Morgunblaðið - 17.11.1946, Side 1
12 síður og Lesbók
33. árgangur.
261. tbl. — Sunnudagur 17. nóvember 1946
ísafoldarprentsmiðja h.f.
ER RJETTUR OG SKYLDA DANA,
AÐ HALDA ÖLLUM HANDRITUNUM"
r
! Þfngvallabirkju.
SIRA Bjarni Jónsson vígslubiskup talar í Þingvallakirkju yfir kistu Jónasar Hallgrímssonar
(Ljósm. Mbl. Fr. Clausen).
Minningarathöfn um Jónas
Hall grímsson að Þin^völlum í gær
í GÆR var Jónas Hall-
grímsson lagður í moldu í
grafreitnum að Þingvöilum,
eins og áður hafði verið til-
kynt. Minningarathöfnin, er
þar fór fram var virðuleg
eins og við átti, en laus við
allan íburð og tilgerð.
Það var Þingvallanefnd,
er stóð fyrir athöfn þessari
og hafði valið til hennar fæð
ingardag Jónasar Hallgríms
sonar, en í gær voru liðin
139 ár ;frá fæðingu hans.
Formaður Þingvallanefndar
er Sigurður Kristjánsson,
alþm
Nefndin hafði boðið allmörg-
um mönnum austur til þess að
vera viðstadda athöfnina, þing
mönnum og æðstu embættis-
mönnum þjóðarinnar. Nokkrir
þingmenn voru þar þó ekki. —
Einnig var boðið rithöfundum
og náttúrufræðingum. Dóm-
kirkjukórinn var á Þingvöllum
til að annast sönginn og eins
var þar Lúðrasveit Reykjavík-
ur.
Boðsgestir logðu af stað hjeð
an úrbænum kl. 10%. —
Veður var kyrt og bjart
er haldið var af stað austur. —
Líklegt er að flestir eða allir,
er voru með i fö’’ þessari hafi
haft mjög í huga æfi og starf
Er bein hans voru jarð-
sett í Þjöðargrafreitn um
og örlög Jónasar Hallgrímsson-
ar og þá ekki síst hugsað til
þess fámenna hóps vina og að-
dáenda, er stóð yfir moldum
hans í Assistentkirkjugarðin-
um í Kaupmannahöfn fyrir
rúmlega 100 árum.
A leiðinni austur kom þessi
vísa í hug Jakobs Thorarensen
skálds:
Lokið utanlands
er nú langri dvöl,
færð til feðraranns
hinstu tylg.iskjöl,
uppfylt csk og þrá —
raunar okkur ljóst,
að þú Króni frá
aldrei fórst nje dóst.
Mosfellsheiðin var dimm og
hjelugrá, er bangað kom. — En
þegar bifreiðarnar raunnu nið-
ur eftir Aimannagjá birti
snögglega í lofti, svo Þingvellir
stóðu í björtu skini nóvember-
sólarinnar, með glitrandi hjel-
unni, en fjallahringurinn í
fannamötli gnæfði yfir. Margir,
er þarna voru á ferð, munn
aldrei hafa sjeö Þingvelli í björt
um vetrarskrúða Þannig voru
þeir í gær.
Þingvallakirkja var opin, er
að var komið. Þar stóð kistan
með beinum Jónasar lista-
skáidsins góða, á kirkjugólfi.
Var það vönouð eikarkista, er
Þingvallanefnd hafði látið gera.
Kertaljós loguðu þar, en kirkj-
an öll ásamt kistunni, var fag-
urlega skreytt hvítum blómum.
Þingvallakirkja er lítil eins
og menn vita, svo ekki komust
nálægt því alllir viðstaddir inn.
En veður var svo kyrt, að menn
gátu heyrt allt, sem þar fór
fram, þó þeir stæðu fyrir utan
kirkjudyr.
Kirkjuathöfnin.
Athöfnin hófst með því, að
Dómkirkjukórinn söng „Allt
eins og blómstrið eina“.
Því næst flutti sr. Bjarni Jóns
son vígslubiskup ræðu. Hann
talaði um forystumenn þjóðar-
innar á fyrri hluta 19. aldar og
hvar Jónas Hallgrímsson stóð í
þeirra hóp. Hvernig rödd hans
hljómar enn til allrar þjóðar-
Framh. á 2, siðu.
Danskur guðfræði-
prófessor ræðir
handritamálið
Khöfn í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
DANSKUR guðfræðiprófessor, sem er þingmaður
ihaldsflokksins, sagði í þingræðu í gær, „að það væri ekki
aðeins rjettur Dana, heldur og skylda þeirra, að hafa
handritin íslensku áfram“. Sagði hann, að það myndi hafa
„hryllilegar afleiðingar fyrir dönsk bókasöfn“, ef handrit-
in yrðu afhent íslendingum, þar sem það meðal annars
myndi hafa í för með sjer, að kröfur færu að koma frá
öðrum löndum, um að skila hinu og öðru aftur.
Taka sæ!i á þingi
UHO á mánudag
Á MÁNUDAGINN kemur
taka fulltrúar íslendinga sæti
á þingi hinna sameinuðu
þjóða. Verður þá haldinn alls-
herjarfundur og rita fulltrúar
íslands, Svíþ.jóðar og Afghna-
istan þar undir sáttmála sam
einuðu þjóðanna, en síðan
munu formenn sendinefnda
þessara þriggja þjóða ávarpa
þingið. Fyrii' hönd íslendinga
tekur Thor Thors sendiherra
til máls.
FRÁ Kína berast þær fregn
ir, að herir kínversku stjórn-
arinnar sæki nú að Yennan,
höfuðstöð kommúnista í Kína
af miklum ákafa. Fylgir fregn
inni að lið stjórnarinnar sje
komið mjög nærri borginni og
hafi sprengjuflugvjelar stjórn
arinnar verið á sveimi vfir
henni undanfarna daga. Ekki
var getið, hvort þær ijetu
sprengjur falla, en fallhlífa-
hermenn munu hafa verið
iátnir svífa til jarðar nærri
borginni og búist er við alls-
herjaratlögu að henni bráð-
lega. Myndi fall hennar verða
mikill hnekkir fyrir kommún
ista. •— Reuter.
SÖLUNEFND setuliðseigna
hefur boðið Reykjavíkurbæ
forkaupsrjett að Tripoli her-
búðunum við Melaveg.
Mál þetta kom fyrir síðasta
bæjarráðsfund, er haldinn var
í fyrradag. Ráðið fól borgar-
stjóra afgreiðslu þess.
: Guðfræðiprófessorinn
Flemming Hvidberg, þingmað
ur íhaldsflokksins danska
flutti ýtarlega ræðu um hand
ritamálíð á þinginu í gær, er
verið var að ræða fjárlaga-
frumvarpið. Hann mótmælti
harðlega að handritin væru af
hent íslendingum og sagði að
krafan um að handritunum
yrði skilað aftur ætti sjer eng-
an grundvöll hvorki lagalegan
siðferðilegan nje menningar-
legan.
„RJETTUR OG SKYLDA“
Þingmaðurinn sagði að Dan
ir hefðu ekki aðeins rjett held
ur skyldu til þess að geyma
safnið í heild. Hann sagði að
ekki væri hægt að skifta
Árnasafni, ekki aðeins vegna
fvrirmæla í arfleiðsluskrá,
heldur og vegna þess að taka
yrði tillit til allra Norðurland.
anna í heild. Hann kvað hand
ritin fjalla um bæði dönsk,
norsk og samnorræn efni auk
íslenskra.
„HLUTI AF MENN-
INGARFORTÍГ
Ræðumaður kvað handritin
þannig vera hluta af hinni
m enninga rsögulegu fortíð
Danmerkur, og sje því hags-
munamál allra Norðurland-
anna, að Danir geymi safnið.
Væri þau nfhent íslendingum
myndi það hafa „hryllilegar
afleiðingar fyrir dönsk bóka-
söfn og önnur söfn, vegna þess
að þetta myndi rjúfa gamlar
a Iþj óðlega r grundvalI arregl ur
og hafa í för með sjer að-aðrar
þjóðir færu að krefjast hins
og annars af Dönum. „Háskóli
Kaupmannahafnar“, sagði.
ræðumaður ennfremur, „gef-
ur það ekki frá sjer að vera
aðalsetur rannsókna á forn-
norrænum fræðum“. Að lok-
um sagði ræðumaður að ó-
nauðsynlegt væri að skipa
nefnd til þess að fjalla um
þessi mál. •— Páll.