Morgunblaðið - 24.12.1946, Síða 2

Morgunblaðið - 24.12.1946, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 24. des. 1946 íslenskir varðmenn einir liafa eftiriiiie Ólag við rekstur Keílavíkur flugvallarins Atburðir þeir, sem gerst hafa á Keflavíkurflugvellin- um, er amerískur varðmaður einn, sem staðið hefir vörð við hlið vallargirðingarinnar, hef- ir tvívegis skotið úr byssu sinni í því skyni, að undirstrika myndugleika sinn, hafa áður verið gerðir hjer að umtalsefni. Ollum mönnum hlýtur að vera það ljóst, að við slíkt ve'rð ur ekki unað, að hermenn komi þannig fram við íslenska borg- ara. Enda hafa borist afsakan- ir frá Bandaríkjamönnum út af þessu, samkvæmt tilkynn- ingu, sem birtist á öðrum stað hjer í blaðinu. Varðmaðurinn ræðst að bíl bæjarfógetans. Enn einn atburður hefir gerst við þetta sama umferðar- hlið, sem vekur athygli. Er bæjarfógetinn í Hafnar- firði heyrði af hinu síðara skot máli þar syðra, fór hann sam- stundis suður á flugvöll, til þess að kynna sjer málavöxtu. Tvær aðrar bifreiðar voru sam ferða honum. Voru þar á ferð menn, sem eru að vinna að mati á löndum þeim, sem á að taka eignarnámi vegna flug- vallarins. Bæjarfó.getinn, Guðm. I. Guðmundsson, og þeir menn, sem með honum voru, gátu komist hindrunarlaust inn á völlinn. En bandaríski varð- maðurinn, sem var við hliðið, skrifaði upp númer bifreið- anna, er þar fóru inn. En er bæjarfógetinn kom aftur að sama hliðinu í baka- leiðinni, var íslenskur lög- regluþjónn, sem hafði verið þar á verði, á förum til Kefla- víkur, með smiði, sem voru þar í vinnu. Fór hann leiðar sinn- ar. En þegar bæjarfógeti og samferðamenn hans staðnæmd ust við hliðið á útleið, þá vind- ur sami vörður, er hefir áður sýnt, að honum er tamt að grípa til byssunnar, sjer að bíl bæjarfógeta, og ætlar að opna farangurshólfið aftan á bíl hans, auðsjáanlega í því skyni, að leita þar þjófaleit. Bæjarfógeti snýst hvatlega við þessum tiltektum manns- ins, losar hendi hans af snerli hólfsins, og segir honum að hjer hafi hann ekkert að gera, spurði hvort enginn yfirmað- ur hans væri hjer viðstaddur. Hinn kvað nei við. Gekk bæjar fógetinn þá inn í varðskýlið og hringdi til Ragnars Stefáns- sonar majórs. Varðmaðurinn talaði síðan við Ragnar, en bæjarfógeti fór eftir það óá- reittur leiðar sinnar. I skýrslu, sem Guðmundur bæjarfógeti hefir sent ríkis- stjórninni um atburð þenna, segir hann, að hann hafi ekki verið í einkennisbúningi þeg- ar hann var þarna á ferð, enda engan slíkan getað fengið, eftir að hann tók við embættinu. Það er ljóst, af því sem þeg- ar er komið fram, að banda- rískir lögreglumenn hafa enn afskifti af ferðum íslendinga til og frá flugvellinum. En samkvæmt samningnum, sem gerður var um afhending vall- arins, átti svo ekki að vera. Þrír lögregluþjónar anna ekki eftirliti. Er tíðindamaður frá blað- inu átti tal við Guðmund bæj- arfógeta í gær, sagði hann m. a., að svo hefði verið um talað í upphafi, að lögreglustjórinn hjer í Reykjavík legði til 12 lögregluþjóna, til þess að vera þarna syðra, svo allir íslend- ingar, sem þarna eiga leið um geti snúið sjer til þeirra éinna og þyrftu ekki að hafa nein af- skifti af bandarískum mönnum eða þeir af íslendingum. En af ástæðum, sem bæjar- fógetanum voru ekki kunnar, hafa aldrei fengist fleiri en þrír íslenskir lögregluþjónar þangað. En þar eð þarna þarf að halda vörð bæði dag og nótt, er þetta algerlega ófullnægj- andi mannafli, ekki síst þeg- ar á það bætist, að menn þess- ir þurfa að bregða sjer frá til eins og annars. Bæjarfógeti skýrði frá því, að í dag færi fulltrúi hans, Björn Sveinbjörnsson, spður á flugvöllin og tæki þar að sjer afgreiðslu fyrir íslendinga, sem þar verða á ferð. Lokun vallarins vegna bilaðra ijósatækja. Skot varðmannsins við hlið- ið er hneyksli, sem ekki má endurtaka sig. En það fram- ferði virðist hafá opnað augu manna fyrir því að í einu og öðru er enn áfátt um stjórn vallarins, eins og einnig kem- ur í ljós er loka þarf flugvell- inum fyrirvaralaust að kalla, eins og gert var nú fyrir helg- ina. Þegar blöðin birtu frjettina um það, þá fylgdi það ekki með hvernig á því stóð að loka þarf vellinum fyrir allri _flugvjela- umferð, nema þegar bjart er. Þetta stafar af því, að ljósaút- búnaður sá, sem nota þarf til að leiðbeina flugmönnum við lendingu, er alt í einu kominn í ólag. A meðan svo er verður að telja það hættulegt, að lenda flugvjelum þar meðan dimt er. En sjerfræðingar eru ekki við hendina, sem geta komið ljós- tækjunum í lag. Flugvallar- nefndin hafði fund í gær með flugmálastjóra og bandarískum liðsforingjum, sem með þessi mál hafa að gera. Mun verða hraðað, eftir því sem frekast er unt, að koma Ijósatækjunum í lag, svo völlurinn megi verða starfræktur allan sólarhring- inn eins og áður. Lokaþátturinn á Alþingi Ábyrgðin á fiskverðinu oy verðjöfnunin löyfest Frakkar koma á foll- eftirlili í Saar París í gærkvöldi. FRANSKA utanríkisráðu- neytið tilkynti í dag, að komið hafi verið upp tolleftirliti milli Saar og annara hjeraða Þýska- lands. Samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins, er þetta gert til að koma í veg fyrir það, að matvæli, sem ætluð eru íbú- um Saar, sjeu flutt úr hjerað- inu. Eftir fyrstu heimsstyrjöld, var Saar, eins, og kunnugt er, sameinað Frakklandi til fimmt- án ára. Að þeim tíma liðnum, var íbúum hjeraðsins gefinn kostur á að kjósa, hvort þeir vildu halda áfram að vera í sambandi við Frakkland, eða sameinast Þýskalandi á ný. Síðari kosturinn var tekinn, samkvæmt vilja yfirgnæfandi meirihluta íbúanna. — Reuter. Rússar sakaðir um yfirgang í Darien, Mansjúríu UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Bandaríkjanna hefur enn ekki skýrt frá, hvað rjett sje í því, að Rússar hafi gefið amerísku skipi skipun um að vera farið úr höfninni á Darien í Man- sjúríu innan tuttugu mínútna, eða taka ella afleiðingunum. Samkvæmt frjett þessari, kom skipunin frá Rússum eftir að tveir bandarískir blaða- menn og einn kaupsýslumað- ur höfðu sótt um að fá að fara í land, en fengið neitun. Menn þessir höfðu meðal annars með ferðis póst til ræðismanns Bandaríkjanan á staðnum. Það fylgir fregninni, að bandaríska skipið hafi farið út úr höfninni, skömmu eftir að skipun Rússa barst. !iiiiniiiiiHiiiiiiiiiiiii[iiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii[iiii[i[iim)|iiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiii[iimiiiiiii | óóhar öíívun ui(ióh(tamörmum óínum § | fyœr oý nœr | (j(ec)itecfra jóta ! iiuiimiiiiiiiiiiii!!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii]iiíiiuniiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i HJER vei ður skýrt nokkuð nánar frá lokaafgreiðslu frv. um ríkisábyrgð vegna báta- útvegsins í efri deild aðfara- nótt sunnudags og svo aftur í neðri deild. Þess var áður getið hve limlest frumvarpið var eftir afgreiðsluna í Nd., þar sem feld hafði verið burt 6. gr. frv. (verðjöfnun frá síldinni), en hún átti að tryggja ríkissjóð gegn áhættu af ábyrgðinni. t EFRI DEILD Það var komið fast að mið- nætti er Ed. fekk frumvarpið. Var því þegar vísað til fjár- hagsnefndar deildarinnar, og veitt fundarhlje svo að nefnd- in gæti athugað málið. Nefndin klofnaði. Minni- hlutinn (Ásm. Sigurðsson og; Herm. Jónasson) vildi sam- þykkja frv. óbreytt. En meirihlutinn (Jóh. Þ. Jósefs- son, Guðm. í Guðmundsson og Þorst. Þorsteinsson) flutti brtt. um að taka inn 6. gr., sem Nd feldi burtu, ásamt með viðauka þeim, er áður var greint frá. Ennfremur fluttu þeir Jóh. Þ. Jós. og Guðm. í. G. brtt. um að fella burtu 8. gr. frv. (verðupp- bætur á útfl. landbúnaðaraf- urðir), en þessa grein hafði Nd. sett inn. ATKVÆÐI Umræður urðu ekki miklar í Ed. Atkvæðágreiðslan við 2. umr. fór þannig, að brtt. meirihl. fjárhagsn. (að taka inn 6. gr.) var SAMÞ. með 10:4 atkv; 3 voru fjarstaddir. MEÐ brtt. voru Sjálfstæðis- menn og Alþýðufloklrsmenn, en á MÓTI Framsóknarmenn og kommúnistar. Brtt. Jóh. Þ. Jós. og Guð- mundar í. G. um að fella burtu 8. gr. var samþ. með 8:5 atkvæðum. Þannig breytt var frv. af- greitt til 3. umr. Kom nú fram brtt. frá Herm. Jónassyni við 6. gr., þess efnis, að eigi skyldi greiða í tryggingarsjóð fyrr en eftir að hrásíldarverðið 1946 hefði verið hækkað um 66% (í stað 30% skv. grein- inni). Brtt. var FELD með 10:4 atkv. og fjellu atkvæði eins og er greinin var sett inn. Var svo frv. samþykt í heild með 13:1 atkv. (P. Magn.), 3 fjarstaddir, og end- ursent Nd. MÁLIÐ AFTUR í ND. Kl. var nálega 3,30 að nóttu er frv. kom aftur til neðri eildar, en deildarmenn höfðu haldið sig í þinghúsinu, því að þeir áttu von á að fá frum- varpið í hendur á ný. Var nú frv. tekið til einnar umr. í Nd. Umræður urðu litlar að þessu sinni. Komu fram þrjár brtt. Ein var frá E. Olg., að fella 6. gr. burtu. Hún var FELD með 15:13 at- kvæðum. Onnur frá Eysteini samhlj. tillögu Hermanns í Ed.; hún var FELD með 15:12 atkv. Loks var þriðja brtt„ frá Skúla Guðm., að taka inn 8 gr., um verðuppbætur á landbúnaðarafurðir; hún var FELD með 14:13 atkv. Loks var frv. í heild sam- þykt með 27:1 atkv. (J. J.) og afgreitt sem lög frá Al- þingi. Var kl. nál. 4 að nóttu, er fundi Nd. var slitið. Fyrir atbeina efri deildar tókst að bjarga þessu máli bátaútvegsins og þar mcð að tryggja að flotinn fari af stað. Kommúnistar og Framsóknar menn gerðu nýja tilraun til skemdarverka á málinu, er ræði þeirra mistókst að þessu sinni. Skipafrjettir. — Brúarfoss fór frá Rvík 11/12. til New York, væntanleg til New York 24/12. Lagarfoss fór frá Kaup- manahöfn 21/12. til Rvíkur. Selfoss var á Akureyri í gær, 23/12. Fjallfoss kom til Hull 19/12. frá iAntwerpen, fer það- an væntanlega í dag, 24/12, til Rvíkur. Reykjafoss fór frá ísa- firði í gær til Siglufjarðar. Salmon Knot fór frá Rvík 13/12. til New York. True Knot kom til New York 20/12. frá Rvík, fer þaðan ca. 29/12. til Halifax. Becket Hitch fór frá Rvík í gærkvöld til New ork. Anne fór frá Rvík 19/12. til Leith, Gautaborgar og Kaup mananh. Lublin fór frá Leith 21/12. til Gautaborgar. Lecht fór frá Hafnarfirði í gær, 22/12. til Grimsby. Horsa fór frá Vest mananeyjum í gær til Fáskrúðs fjarðar. Evrópusöfnunin. S. Þ. 30.00, Þ. Þ. 100,00, J. Á. 200,00, S 8i G. 400,00, ónefnd 100,00 K. R„ 25,00, Sigurbjörg Sigurðard. Vífilsstöðum 100,00. Jólaleikun Sctjið 25 punkta á pappír, eins og sýnt er hjer að ofan. Tveir keppendur (A og B) eiga svo að reyna, hvor geti búið sjer til flciri ferhyrna reiti, með því að draga strik — lá- rjett cða lóðrjett — milli punkt anna. Keppendumir skiftast á, en aðeins má drága eina línu í einu. Sá sigrar auðvitað, sem í leikslok hefir flesta reitina. —* Athugið að myndin er aðeins til skýringar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.