Morgunblaðið - 12.01.1947, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.01.1947, Qupperneq 6
MORGUNBL A »3 I D Sunnudagur 12. jan. 1947 b —. i - . i . . —i. — —------------------------------~ KVENFLOKKUR Frjettaritari Morgunblaðsins í Hafnarfirði hefir ritað eftir- farandi grein fyrir Íþróttasíðuna um handknattleiksflokk kvenna úr Knattspyrnufjelaginu Haukum, en Hauka-stúlkunar munu nú ótvírætt sterkasta -handknattleikslið kvenna hjer á landi. HAUKA I HAFNARFIRÐI Leiknasti, sterkasti og víðkunn- asti handknattleiksfiokkur Islands Handknattleiksbærinn Hafnarfjörður. Handknattleikur er ein þeirra íþróttagreina, er á undanförn- um árum, hefir náð einna mestri og almennustu útbreiðslu meðal íslensks æskulýðs. En hvergi á landinu hefir þessi í- þróttagrein náð eins áberandi útbreiðslu og verið jafn dáð, sem skemmtileg og holl íþrótt, sem meðal Hafnfirðinga. Og er nú svo komið að vart er að finna pilt nje stúlku í Hafnarfirði sem ekki iðkar handknattleik í öðruhvoru íþróttafjelaginu þar, þ. e. * Knattspyrnufjelaginu Haukum og Fimleikafjelagi Hafnarfjarðar. Síðastliðið ár hafa þessi fjelög Haukar og F. H. sent svo marga flokka til hinna ýmsu hand- knattleiksmóta, að höfuðborgin sjálf Reykjavík,- hefir hvergi nærri staðið þeim á sporði, hvað þátttöku snertir, því íþrótta- fjelögin í Reykjavík hefðu mátt auka að mun þátttöku sína í mótum þessum, ef jafna hefði átt hlutföllin við íbúatölu bæj- anna. . Nú er ekki svo að skilja að handknattleiksæska Hafnar- fjarðar, hafi við sjerstök sæld- arkjör að una, ef dæma á um I aðstæður-bæjanna, til iðkunnar I þessa skemmtilega leiks — síð- I ur en svo — því þar eiga Hafn- firðingarnir hvergi nærri við jafn góða aðstöðu að búa. Aðbúnaður sá sem handknatt leiksiðkendur í Hafnarfirði eiga ; við að búa er: tuttugu ára gam alt íþróttahús. upphaflega byggt einv'rðungu til að uppfylla þarfir Barnaskóla Hafnarfjarð- ar. í þessu húsi æfa fjelögin á veturna. A sumrin verða bæði fjelög- in að leita á náðir næsta hrepps, sem er Garðahreppur, til þess að fá svæði fyrir handknattleiks velli. Haukar í Engidal og F. H. á túnunum hjá Reykdal að Þórshamri. — Því Hafnarfjarð- arkaupstaður hefir eigi enn lagt íþróttafjelögunum til svæði sem til handknattleiksiðkana mætti nota. Flokkurinn sem allir dá. Sá handknattleiksflokkur í Hafnarfirði, sem hefir náð mest urh framförum og hæfni í hand- knattleik, samfara ágætum ár- öngrum, frægð og frama, er tví- mælalaust kvennflokkur Hauka (melstarafl.). Haukastúlkurnar hafa með elju,‘ þrautseigju og dugnaði, unnið sig upp úr því að vera óþekktur og lítilhæfur kvenn- flokkur (ef svo mætti að orði kveða), í það að vera leiknasti, sterkasti og víðkunnasti hand- knattleiksflokkur landsins. — Flokkur sem allir dá, fýrir leikni, dugnað og drengilega framkomu í leik, — jafnt Hafn- firðingar, sem aðrir landsmenn, er handknattleik una, —---og á leikvelli jafnt mótherjar sem fjelagar úr Haukum. Ferill flokksins. Kvenflokkur var stofnaður sem sjerstök deild innan Knatt- spyrnufjelagsins Haukar árið 1938. Fyrsta mótið, sem flokk- urinn tók þátt í var hið fyrsta Landsmót í handknattleik, sem haldið var fyrir kvennfólk, en það fór fram í Reykjavík 1940. — í því móti ljeku Haukar sinn fyrsta úrslitaleik við kvenn- flokk Ármanns — flokkinn sem ávallt síðan hefir verið hinn versti þrándur í frægðargöngu Haukanna. Þótt oft hafi munað litlu um hver flokkurinn bæri sigur úr bítum, og dæmi eru til um að framlengja hefir orðið leik, tij að fá úrslit, þá var það lengi vel að Haukastúlkurnar urðu að lokum að gefa sig fyr- ir hinum öruggu og keppnis- vönu stúlkum Ármanns — og tapa. ■ Árið 1941 taka Haukastúlk- urnar ekki þátt í landsmótinu. Árið 1942 tóku aðeins tvö fjelög þátt í mótinu Haukar og Ár- mann og sigraði Ármann. Árið 1943 hittast þessir sömu flokkar aftur til úrslitaleiks, um nafnbótina „Islandsmeistarar í handknattleik kvenna“, og var leikur þeirra svo jafn að fram- lengja varð leiknum og unnu Ármannsstúlkurnar að lokum. Sama ár taka Haukar þátt í handknattleiksmeistaramóti kvenna, sem er úti keppni, og háð var í Reykjavík. Sjö fjelög tóku þátt í móti þessu, en samt fór svo að lokum, er að úrslita- leiknum kom, þá voru það flokk ar Ármanns og Hauka er þar mættu til leiks, en endir hans varð sem fyrr — Ármann bar sigur úr bítum. — Sama ár er stofnað til Hraðkeppni og -fór hún fram í Hafnarfirði. Þátt- tökuleyfi til þessarar keppni höfðu öll íþróttafjelög í sunn- lendingafjórðungi og Vest- mannaeyjum. Aðeins þrjú fjelög sendu lið til keppninnar, Hafnarfjarðarfjelögin F. H. og Haukar og K. R. úr Reykja- vík, sem vann þessa keppni. ' Fyfsti hlckkur sigurkeðjunnar. Árið 1944 taka Ilaukar þátt í landsmótinu og Ijeku sem fyrr Svanhvít Kristín. Hclga. Soffía. Sigurlaug. Rut. Þorhjörg. Svava. úrslitaleik þess við Ármann — og töpuðu. En þótt þetta ár, eða rjettara sagt handknattleikstímabil þessa árs, byrjaði með slíkum úrslitum, þá fór það nú svo, að einmitt árið 1944 varð til þess að færa Haukastúlkunum sinn fyrsta sigur, sem eitthvað kvað að. — Sömu fjelög tóku þátt í Hraðkeppninni og árið áður, auk Hauka flokkar K. R. og F. H., en úrslit keppninnar urðu bara önnur, því Haukastúlk- urnar unnu K. R. í úrslitaleikn- um, og urðu þar með Hrað- keppnismeistarar 1944 — og má telja að þessi sigur kvenn- flokks Hauka sje 'fyrsti hlekk- urinn í hinni miklu sigurkeðju er flokkurinn hefir mvndað síðan. — Það fem var mest á- berandi við þennan sigur flokks ins, í þessari keppni, var að það kom augljóst í ljós að marg ur er sá Hafnfirðingurinn, sem finnst sem Hraðkeppnisbikar- inn ætti raunverulega hvergi annarsstaðar heima en í Hafn- arfirði. Þetta sama ár 1944, er gef- inn bikar og stofnað til hand- knattleiksmóts fyrir Hafnar- fjörð. Aðeins fjelög úr Hafnar- firði mega taka þátt í því móti. Kvennflokkur Hauka vann þessa keppni og urðu þar með Hafnarfjarðarmeistarar 1944. Handknattleiksmeistaramótið í úti handknattleik kvenna var einnig háð í Hafnarfirði þetta ár. Fimm fjelög tóku'þátt í móti þássu og utðu Haukar nr. 3. Úr- slitaleik móts þessa ljeku ís- firðingar og Ármann og sigruðu Ármannsstúlkurnár. Sigrarnir aukast. Árið 1946, var einn óslitinn sigur fyrir Haukastúlkurnar. -— Þær unnu alla leiki og allar keppnir sem fram fóru á árinu, ogvþær tóku þátt í. 1946 urðu þær Islandsm. í handknattleik kvenna innanhúss með því að vinna Landsmótið. Islands- meistarar í útihandknattleik kvenna urðu þær með því að vinna alla keppinauta sína á Handknattleiksmeistaramótinu, sem háð var-.á Akureyri. Hraðkeppnismeistarar urðu þær með því, að vinna Hrað- keppnina í Engidal. — Þótt þar hafi hurð skollið nærri hælum, því j þessu móti sýndu Fram- stúlkurnar sig all skeinuhætta keppinauta Hauka og sigraði flokkur Hauka með marki sem þeim tókst að setja á síðustu sekuntum leiksins, og vildu margir kalla það heppni, — en Framstúlkurnar sýndu það sem fyrr að dugnaður og kjark- ur þeirra bilar ekki þótt þær eigi við fjelög að etja sem bera nokkrar nafnabætur í pokahorn inu, — en Haukastúlkurnar höfðu bara eitthvað meira. og því unnu þær. . Hafnarfjarðarmeistarar 1946 urðu Ilaukastúlkurnar, með því að sigra hina hafnfirsku keppi- nauta sína F. II. — Og' með þeim sigri unnu þær bikar þann, sem keppt var um, til fullrar eignar. Árangursríkt starf. Auk þéss sem stj’órn Knatt- spyrnufjelagsins Haukar hefir ávallt látið sjer mjög annt um kvennaflokk fjeíagéihs cg gért allt sem í hennar valdi hefir staðið til þess að hlú sem mest að honum, hafa Hdukar allt frá fyrstu tíð verið sjerstaklega heppnir með kvennaval. Kenn- arar þeirra hafa oftastnær ver- ið menn sem með kvetjandi og dugandi starfi, hafa lagt sig alla fram í því, að starf þeirra yrði sem happasælast fyrir fjelagsheildina. Og skulu þar sjerstaklega nefndir þeir Garð- ar S. Gíslason og Baldur Kristj- ánsson. Starf þessara tveggja aðilja endurspeglast í þeim ferli kven- flokks Hauka, sem hjer hefir verið reynt að draga fram í þessum sundurlausu þönkum. — Allt frá byrjun hafa Hauka- stúlkurnar sýnt sig sannar í- þróttakonur. — Stúlkur er aug- sýnilega hafa iðkað og lært þessa uppáhaldsíþrótt sína, fyrst og fremst sem leik. — Leik sem í senn skapar þeim ánægju og hollustu. Ennfrem- ur það, að þær hafa frá byrj- un lært, og síðan ávallt haft rikt í huga, að drenglýndi og það að kunna að taka ósigri sem sigri, er hinn óumflýjan- legi dómur, sem sannur íþrótta- maður þarf að ganga undir og yfirstíga. — Það eru þessi frum skilyrði, sem Haukastúlkurnar hafa yfirstigið og sem fyrst og fremst hafa gert þeim fært að ná hiríum glæsilega árangri sem raun ber vitni um — að vera leiknesti, sterkasti og víðkunn- asti handknattleiksflokkur landsins. Á. Á. SM ■ PAUTCE P rTmr^Trm 0 .44 „dverrir til Snæfellsneshafna og Flat- cyjar. Vörumóttaka á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.