Morgunblaðið - 04.03.1947, Síða 12

Morgunblaðið - 04.03.1947, Síða 12
VEÐURÚTLITiTÐ: Faxafiói: NORÐAUSTAN KALDI — Ljiettskýjað. ísafjörður vil! bæj- arrekslur á úl- og uppskipun NOKKRAR deilur urðu í neðri deild í gær um frum- varp Finns Jónssonar um eínkaheimild • hafnarsjóðs ísa fjarQar til út- og uppskipunar. Sigurður Bjarnason kvaðst viðurkennk hina miklu þörf hafnarsjóðsins fyrir auknum tekjum. En hjer væri farið inn á vafasama braut. Ekkert bæjarfjelag hefur fengið slíka einkaheimild. Ennfremur yrðu að liggja fyrir greinileg ar upplýsingar hvort um nokkurn hagnað yrði að ræQa. Benti Sigurður á fyrri reynslu á bæjarrekstri á ísafirði í sam bandi við kvikmyndahús- rekstur. Einnig væri hæpið að svifta þá menn atvinnu sem áður hafa unnið að þessu. — Frv. var vísað til fjárhagsnefndar. VEGALÖG Frumvarpið til vegalaga var afgreltt til Ed. og samþyktar breytingartillögur samgöngu- málanefndar. Verður þá lengd nýrra þjóðvega rúml. 700 km. Aðrar brt. voru teknar aftur. --- árni og Yanof- sky gerðu jafniefli FIMMTA umferð Yanofsky mótsins var tefld á sunnudag. Leikar fóru svo, gð þeir Yanofsky og Árni Snævarr gerðu jafntefli og Baldur Möller og Wade gerðu jafn- tefli. Jafntefli varð einnig hjá þeim Eggert Gilfer og Guð' mundi S. Guðmundssyni. Bið skák varð hjá þeim Ásmundi Ásgeirssyni og Guðmundi Ág ústssyni vegna veikinda Guð mundar. í gærkvöldi voru telfdar bið skákir úr 3. umferð. Árni og Guðmundur S. gerðu jafntefli og Ásmundur vann Baldur. í kvöld verður 6. umferð mótsins tefld. Þá tefla Yan- ofsky og Guðmundur S. Guð- mundur Ágústsson og Baldur, Ásmundur og Árni og Wade og Gilfer. Þeir sem taldir eru á undan leika hvítu. Mjög goll skaula- svell á Þingvalla- vafni SKAUTAFJELAGIÐ efndi til skautaferðar austur á Þingvalla vatn s.l. sunnudag og var þátt- taka góð, en margir aðrir voru einnig á skautum á vatninu þá um daginn. Er svellið á Þingvallavatni rennisljett og ágætt til skauta- ferða. Það er tært sem vatn og mátti við og við sjá murturnar skjótast undir ísnum. Ef veður ekki breytist má gera ráð fyrir að skautasvellið þar verði mik- ið notað af bæjarbúum, en þó þarf enginn að óttast þrengsli. MÁLLÝSKUR — Grein um bók dr. Björns GuSfinnssonar. — Bls. 7. Þriðjudagur 4. mars 1947 Heiðursborgarar á Akranesi. FRÁ Athöfninni í Akraneskirkju á sunnudaginn. í fremri röð, frá vinstri: Sjera Friðrik Friðriksson, Guðlaugur Einarsson, bæj- arstjóri og Ólafur Finsen læknir. Aftari röð frá vinstri: Sjera Sigurjón Guðjónsson í Saurbæ, Ólafur B. Björnsson, forseti bæj- arstjórnar og sjera Jón Guðjónsson sóknarprestur á Akranesi. Myndin var tekin meðan sungið var „ísland ögrum skorið“. — (Ljósm. Árni Böðvarsson). Akurnesingar kjósn Ivo heiðursborgnrn Á FUNDI sínum 16. febrúar s.l. kjöri bæjarstjórn Akranes- kaupstaðar þá Ólaf Finsen fyrv. hjeraðslækni og sjera Friðrik Friðriksson heiðursborgara bæjarins. Var ákveðið að þessu kjöri skyldi verða lýst með hátíðlegri athöfn í kirkjunni laugardag- inn 1. mars. Athöfnin hófst á tilsettum tíma kl. 6 e. h. með því, að prófastur, prestur, heiðursborg- arar, forseti bæjarstjórnar, bæj arstjóri, bæjarstjórn og embætt ismenn bæjarins og sóknar- nefnd gengu fylktu liði inn kirkjugólf milli raða 9—13 ára drengja, sem stóðu heiðursvörð um alla kirkju. Tólf skírnar- synir sr. Friðriks 8—9 ára stóðu og heiðursvörð í kór. Að upphafi var sunginn sálm urinn „Heilagur, heilagur“. Þá flutti prófastur sr. Sigurjón Guðjónsson bæn frá altari. —• Næst sunginn sálmurinn „Mikli Droítinn, dýrð sje þjer“. Þá gekk forseti bæjarstjórn- ar Ól. B. Björnsson í kórdyr og rjett í sama mund heiðurs- borgarar og bæjarstjóri og stóðu í kórtröppum gegnt hon- um. Talaði forseti bæjarstjórn- ar til hinna kjörnu og afhenti þeim skrautritað heiðursborg- arabrjef. Lýsti hann tilefni kjörsins og verðleikum þeirra til að hljóta þann heiður og sæmd sem þeim var hjer veitt. Að ræðu sinni lokinn bað hann alla viðstadda kirkjugesti að staðfesta þetta kjör með því að rísa úr sætum og syngja öll sameiginlega ísland ögrum skor ið. — Var þetta ákaflega áhrifa mikil stund, er fjöldinn allur söng, en allir í kór sneru sjer fram og sungu með. Næst þökkuðu heiðursborgar ar með hjartnæmum orðum þann heiðum sem þeim hafði fallið í skaut með slíkri við- höfn. Þá var sunginn sálmurinn „Vor feðratrú11. Svo las sóknar- prestur bæn frá altari og lýsti postullegri blessun. Síðast stóðu allir upp og sungu „Son guðs ertu með sanni“. Var þá geng- ið út á sama hátt og inn, og börnin í fylkingu á eftir. Akraneskaupstaður hefir sam ið við kvikmyndafjelagið Saga, um að kvikmynda á yfirstand- andi ári atvinnulíf og ýmsa at- burði úr lífi bæjarins. — Var þessi athöfn kvikmynduð og er byrjun kvikmyndatökunnar. Athöfn þessi fór vel og virðu lega fram og mun víst seint gleymast þeim sem viðstaddir voru. Það er ekki óvanalegt, að bæjir útnefni heiðursborgara, en það mun víst næsta fágætt að það sje gert með kirkjulegri viðhöfn eins og hjer átti sjer stað. Síðar um kvöldið var haldið hóf þeim til heiðurs í ,'Frón‘ og sátu það um 80 manns. Þar voru margar ræður fluttar og mikið sungið af miklu fjöri, verald- leg kvæði og andleg Ijóð, bæði á latínu og íslensku. Hinir hartnær áttræðu heið- ursborgarar voru ekki síður fjörugir en þeir, sem yngrivoru og sögðu marga „brandara“ sem og alvarleg orð. ísfiskur fyrir riimar 2 milj. Á TÍMABILIN frá 20. febrúar til febrúarloka seldu 10 íslensk- ir togarar og eitt fiskflutningaskip ísvarinn fisk í Englandi. — Samtals var landað úr skipum þessum 29.992 kit og söluverð samanlagt var um það bil kr. 2.130.568,05. Að þessu sinni er afla- og söluhæsta skip Júpíter frá Hafn- arfirði með rúm 3800 kit, er seldust fyrir nær 11 þús. sterlpd. <®--------------------------- Fleetwood. Flest skipanna seldu í Fleet- wood og eru þau þessi: Þórólf- ur seldi 3128 kit fyrir 8255 stpd. Belgaum 2740 kit fyrir 8371 pund, Júní 2748 kit, fyrir 7785 Dund. Tryggvi gamli 2485 kit fyrir 7450 og ms. Jón Valgeir 589 kit fyrir 2155 pund. Það skal tekið fram, að þetta skip seldi í byrjun febrúar. í Hull seldu: Skutull 2355 kit fyrir 6453 pund, og Forseti 3058 kit fyrir 8686 pund. í Grimsby seldu: Skallagrím- ur 3384 kit fyrir 9612 pund, Jú- piter 3854 kit fyrir 10.994 pund og Gyllir 3192 kit fyrir 9482 stpd. Gylfi úr fyrstu veiðiför. Gylfi er nýlega farinn af stað áleiðis til Englands með um 4000 kit af ísfiski og mun vanta á um 600 kit til þess að full- fermi sje. Þessi fyrsta veiði- ferð gekk mjög vel, en skipið hrepti þó fimm sólarhringa ó- veður. Það er búist við að Gylfi landi í Brettlandi á fimmtudag- inn kemur. Kjarlan Ó. Bjarnason sýnir kvikmyndir á Ferðafjelagsfundi FERÐAFJELAGIÐ heldur skemtifund í Sjálfstæðishúsinu í kvöld. Þar mun Kjartan Ó. Bjarnason sýna íslenskar lit- kvikmyndir, sem hann hefir tek ið mestmegnis á s.l. ári. Eru þetta margar smámynd- ir. M. a. verður sýnt brim við Reykjapes, Hverasvæði í Krísu vík, Landmannalaugar, Geysir, Þingvellir, Reykjavíkurhöfn og ennfremur göngur og rjettir, hestamyndir og myndir af ís- lenskum blómum. — Verður á- reiðanlega fjölment á þessari Ferðafjelagsskemtun sem þeim fyrri, og mun margan fýsa að sjá kvikmyndir Kjartans. íbúðarskúr í Blesie gróf brennur Á sunnudagsmorgun brann íbúðarskúr í Blesugróf til ösku. Slökkviliðið var kallað þang að inneftir um kl. 12 á hádegi. Var þá skúrinn alelda og engu hafði tekist að bjarga af inn- búi. Sveinn Jónsson átti þetta hús. Hann missti 3000 krónur í peningum í eldinum. Þær voru í jakka hans, er hann hafði orðið að skilja eftir. Eldsupptök voru þau aQ það kviknaði út frá kolaelda- vjel. Kunnur dáleiðari og sjónhverfinga- maður kemur III Reykjavíkur MEÐ Dr. Alexandrine á morgun er væntanlegur kunn- ur dáleiðari og sjónhverfinga- maður, Ernesto Waldosa að nafni, og mun hann leika listir sínar hjer í Tripolileikhúsinu á næstunni. Hann skemtir fólki bæði með kímni og alvörú. Hefir því ver- ið haldið fram, að honum hafi tekist að hjálpa sjúklingum með dáleiðslu. Listir hans eru margbreytilegar. Einu sinni kom hann inn í verslun í Kaup- mannahöfn til að kaupa hatt- prjóna, sem, hann ætlaði að nota við fakír, eða yoga-listir sínar. .Afgreiðslustúlkan sýndi honum nálar og hann tók þær og stakk í gegnum kinnar sjer, án þess að hann blóðgaðist. — Það var nærri liðið yfir stúlk- una af undrun, en Waldosa tók nálarnir úr kinnum sjer og bað hana að setja þær í umbúðir. Hann getur „breytt vatni í vín“, eða látið áhorfendur sína halda, að þeir sjeu að drekka áfengi, þótt ekki sje nema blávatn í glasinu, eða hann lætur ein- hvern halda að hann sje kúreki svo viðkomandi fer á þeysireið í stólnum og ber fótástokkinn ákaft. Sýningar töframannsins standa yfir í hálfa klukkustund. Yanofsky feflir fjöl- skák í Hafnarfirði Kanadameistafinn Yanofsky tefldi í gærkvöldi fjölskák við Hafnfirska skákmenn. Skák- irnar voru tefldar í Góðtempl. arahúsinu og hófust um kl. 8. Um miðnætti í nótt hafði Yanofsky teflt 6 skákir af 29. Hann hafði unnig fimm og gert eina jafntefli. Það var ekki búist við að fjölskák þessari yrði lokið fyr en á þriðja tímanum í nött. Veður hamlar veið- um SÍÐUSTU dægur hefir síld veiðiflotinn legið í höfn. Veð ur hefur hamlað allri veiði. Seinnipart dags í gær tók veð ur að lægja og voru bátarnir þá sem óðast að búa sig til brottferðar. Sjómenn telja að enn muní vera mikil síld á veiðisvæð- inu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.