Morgunblaðið - 06.03.1947, Side 1

Morgunblaðið - 06.03.1947, Side 1
16 síður 34. árgangur 54. tbl. — Fimtudagur 6. mars 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f. MARSHALL, BEVIN OG BIDAULT Á LEIÐ TIL MOSKVAFUNDARINS Áhrifamiklir sljórnmálámenn -s> Vandenberg, - formaður utanríkismálanefndar Bandaríkja- þings (lengst til vinstri), sjest hjer í viðræftum við Trygve Lie, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Byrnes, fyrv. utanríkisráðherra og Conally, öldungadeildarþingmann. Mikil flóð ó Spóni (000 heimilislausir í Sevilia. Madrid í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. VEGNA flóða í fljótinu Guadalquivir á Spáni, voru 6000 af íbúum Sevilleborgar heimilislausir í kvöid. — Mörg af strætum borgarinnar lágu undir vatni, en svo mikill var vöxturinn í fljótinu, að um tíma náði vatnshafið tólf m yfir venjulegt vatnsyfirborð. Látlausar rigningar hafa verið á Spáni í 48 klukku- stundir. Samgöngutniflanir. Vegna-vatnavaxta víðsvegar um landið, hafa miklar trufl- anir orðið á samgöngum, en landbúnaðurinn hefir beðið mik ið afhroð. Vjelbátar voru í dag sendir til að bjarga Genzago de Llano herforingja, er stjórnaði vörn Sevilla meðan á borgarastyrj- öldinni stóð. De Llano var hætt kominn í húsi sínu, skammt frá Sevilla. Járnbrautarlestir teptar. Þá ollu flóð skemdum í hluta af E1 Pardo, þorpi því, sem Franco einræðisherra býr í, en járnbrautarlestir á leiðinni- til Barcelona urðu teptar um 65 km. frá Madrid. I Badajoz voru 1000 manns heimilislauýr í kvöld, er flæddi inn í hús í hluta af borginni. ■anwssKa LONDON: — Bresk þing- mannanefnd kom fyrir skömmu síðan til Vínarborg- ar. Nefndin á að kynna sjer á- standið meðal flóttafólks á bresku hernámssvæðunum í Austurríki og Þýskalandi. Nýr breskur sendi- herra fil Póilands London í gærkvöldi. BRESKA utanríkisráðuneyt ið tilkynti í kvöld, að Sir Don ald Saint-Clair Gainer hefði verið skipaður sendiherra Bretlands í Varsjá. Gainer hefur verið sendi- herra í Brazilíu. en við starfi hans í Rio de Janeiro mun taka Victor Cavendish Bent- inck, fyrverandi sendiherra Breta í Póllandi. — Reuter. UmræSur um fjár- hagsmál milli ílala London í gærkvöldi. í NÆSTU viku munu hefj- ast í London milli Breta og ítala umræður um fjárhags- mál. Manichella, bankastjóri Ítalíubanka, mun taka þátt í umræðum þessum 'fyrir hönd ítölsku stjórnarinnar. Fyrirspurn um breska hermenn r I London í gær. í SPURNINGATÍMA í neðri málstofu breska þings- ins í dag, spurði Philip Piratin kommúnistaþingm. hversu margir breskir hermenn væru enn í Danmörku, hvar þeir dveldust og hvers vegna þeir hefðu ekki verið kallaðir þeim. John Bellenger, hermála- ráðherra, varð fyrir svörum. Sagði hann að engaþ breskar herdeildir væru í Danmörku en aðeins örfáir einstakir her menn sem meðal annars hefðu það verkefni með höndum, að kaupa ný matvæli handa setu liði Breta í Rínarhjeraði. Flest ir þessara hermanna, sagði her málaráðherrann, dveljast í Kaupmannahöfn. — Reuter. Sjö Grikkir dæmd- ir fil dauða SJÖ manns voru dæmdir til dauða hjer í dag, þeirra á meðal Idannis Lambos, yfir- maður grísku öryggislögregl- unnar meðan á þýska hernám inu stóð. Er þetta í þriðja skifti að mál Lambos er tekið fyrir. Ráðstefnan á að hefjast næstkomandi mánudag London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BRESKU, bandarísku og frönsku sendinefndirnar á fund utanríkisráðherranna, sem kallaðar hafa verið sam- an til viðræðna um friðarsamninga við Þýskaland og Austurríki, voru í kvöld allar á leiðinni til Moskva. Ernest Bevin, breski utanríkisráðherrann, kom í járnbrautarlest til Berlín eftir hádegi í dag og er væntanlegur til Varsjá á. morgun (fimtudag), Bidault, utanrríkisráðherra Frakka, lagði af stað frá París áleiðis til Rússland í eftirmiðdag, en G. Marshall hershöfðingi, bandaríski utanríkisráð- herrann, er farinn flugleiðis frá Washington. Tvær árásir í Jerú- salem Jerúsalem í gærkvöldi. ÓALDARFLOKKURINN Irgun Zvai Leumi framdi í da,g tvær sprengjuárásir sam tímis hjer í Jerúsalem í nám unda. við „Baker“ öryggis- svæðið. Árásir ofbeldismannanna voru gerðar í nánd við liðsfor ingjaklúbb þann, þar sem þrettán manns ljetu lífið í sprengjuárás sJ. laugardag. í ofangreindum árásum særðust tveir menn lítillega. — Reuter. Róðgerð leit að Júgóslövum í Ítulíu Rómaborg í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. SAMKVÆMT góðum heimildum, hefur breski herinn í Ítalíu í hyggju að hefja innan skafnms leit að flokkum Júgóslafa, sem hafast við í Ítalíu í heimildarleysi. Hafa nokkrir grunsamlegir Júgóslafar verið handteknir að undanförnu, en á dögunum komst upp um nokkra, sem grunað var að hefðu samband við einn eða fleiri af of- beldisflokkum Gyðinga í Palestínu. <?>—--------------------------- Sextán handteknir. í gærkveldi voru sextán sagði í dag, að því hefði ekk- Júgóslavar handteknir í Gen- úa, er þeir voru um það bil að fara um borð í skip, sem sigla átti til Argentínu. Er álitið, að handtökur á borð við þetta sjeu ráðgerðar í flestum aðalborg- um Ítalíu. Fasistaforingi á ferðinni. Breska sendiráðið Róm ert verið tilkynt um handtök- urnar í Genúa, en heyrst hef- ur, að líklegt sje, að Ante Pave litch, einn af leiðtogum júgó- slavneskra fasista á styrjaldar- árunum, hafi í gær verið í Genúa, til að reyna að komast undan til Suður-Ameríku. Hvort Pavelich hafi verið á meðal þeirra, sem handteknir voru, er enn ekki vitað. Pólska stjórnin hefur boðið Bevin að eiga nokkurra klst. viðdvöl í Varsjá, til að skoða rústir borgarinnar, en margs- konar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í sambandi við ferð ráðherrans um Pólland. Býst við langri viðdvöl. Er frjettamenn í Berlín spurðu Bevin í dag, hvérsu lengi hann byggist við að dvélj ast í rússnesku höfuðborginni, svaraði hann: „Allmargar vik- ur“. Um útlitið fyrir árangri Moskvafundarins sagði hann: „Jeg vona að árangurinn verði góður“. i 100 manna frönsk sendinefnd. Búist er við, að Bidault og franska sendinefndin sem í eru um 100 manns, komi til Berlín á morgun eftir hádegi. Hefur Bidault í hyggju að dveljast í borginni í þrjár klukkustundir, en halda að því loknu áfram ferð sinni. Vafasamt um árangur. Marshall utanríkisráðherra, er væntanlegur til Berlín á laugardag. Tjáði hann blaða- mönnum skömmu áður en hann steig upp í flugvjel sína í Washington, að nú virtist mjög vafasamt, hvort takast mundi í Moskva að gera upp- kast að þýskum friðarsamn- ingum. Hann bætti því við, að Bandaríkjastjórn gerði sjer það ljóst, að samkomulagsumleit- anirnar um friðarsamningana við Þýskaland og Austurríki mundu verða mörgum erfið- leikum bundnar.' STOKKHOLMUR: — Sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um, mun Gústaf Svíakonung- ur fara til Frakklands innan skamms. í för með honum verður læknir hans, dr. Cass- erman.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.