Morgunblaðið - 06.03.1947, Side 12

Morgunblaðið - 06.03.1947, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudíigur 6. mars 1947 Ungur maður deyr af brunasánmi ÞAÐ sorglega slys vildi til hjer í bænum í fyrrakvöld í verkstæði Vjelskóflunnar h.f., að ungur maður skaðbrendist svo, að hann Ijest í gærmorg- un í Landsspítalanum. Hann hjet Grjetar Kristjánsson, Mið túni 15. Grjetar var að sýna bróður sínum Hannesi, hvernig farið væri að því að rafsjóða, er slysið vildi til. Skamt frá skrúf stykki því er hann var að vinna við var ílát með bensíni í. — Neisti mun hafa hrokkið þang- að og kveikti hann þegar í því. Gjetar setti þá ílátið á gólfið og ætlaði að kæfa eldinn með handslökkvitæki, en ekki tókst honum það. Þá greip hann vinnuföt er þar voru rjett hjá og reyndi að kæfa eldinn með því að'breiða þau yfir opið á ílátinu. Þá komst eldurinn í vinnufötin og náði að læsa sig í föt Grjetars. Hann hljóp þá yfir að vask og ætlaði að kæfa í fötum sínum en það tókst ekki. Bróðir hans Hannes greip þá slökkvitæki, en það var ekki í lagi. Þá var gripið til yfirbreiðslu og henni kastað ut an á Grjetar og tóku þeir nú að rífa fötin utan af honum. Með þessu tókst þeim að slökkva í fötum Grjetars. Hannes flutti nú bróður Sinn í Landsspítalann og ljet gera að brunasárum er hann sjálfur hafði hlotið á höndum, en fór síðan heim til sín. í gærmorgun um kl. 6 Ijest Grjetar Kristjánsson af völd- um brunasáranna. Hann var 20 ára að aldri. Níu bamslík flnnast hjá grafara Adelaide í gær. í HÚSRANNSÓKN, sem gerð var hjá grafara í Ade laide í gær, fundust lík níu barna. Líkunum var sumum vafið inn í gömul dagblöð, en önnur fundust í pappaköss- um. Meðal barnanna voru einir tvíburar. Grafarinn hef- ir verið handtekinn. Ýmsir foreldrar hafa í dag hringt til lögreglunnar, til að spyrjast fyrir um börn, ~sem horfið hafa, en erfitt er að þekkja líkin, þar sem sum líkin eru orðin allgömul. Firnni mínúina krossgáfan ■ 2 ) 4 ■ 1 6 7 ö 9 M 10 11 12 1> 14 m ■ ■ i7 ■ 18 ) SKYRINGAR Lárjett. — 1 vargur •— 6 skógardýr — 8 verkur — 10 ættingjar •— 12 málfræðingur — 14 karlmannsnafn (kín- verskt) — 15 fangamark — 16 þrír fyrstu — 18 áhlaup. Lóðrjett. •— 2 kaffibrauð •— 3 eftirhermur — 4 ríki í Asíu — 5 stjarna — 7 fleygir — 9 karlmannsnafn — 11 fát — 13 fíladrengur — 16 fangamark — 17 tveir samhljóðar. Lausn á síðustu krossgátu Lárjett. — 1 endir — 6 örn — 8 org — 10 Nóa — 12 ræln- ast — 14 G.R. — 15 aa — 16 aga — 18 nautaat. I Lóðrjett. — 2 nögl — 3 dr. — 4 inna — 5 Borgin — 7 fat- ast — 9 rær — 11 ósa •— 13 nægt — 16 au — 17 aa. Norefjell-skíða- mófið BRUNKEPPNI í Norefjell- skíðamótinu í Noregi fór fram í gær. Fallhæðin var 800 m. í flokki karla, en 500 í kven- flokki. Norðmenn áttu þrjá fyrstu menn í karla-flokki: 1. Erik- m sen, 2. Arentz og 3. Holmvang. í kvenflokki áttu Svíar tvær þær fyrstu: Maj Nilsson og Sara Tomasson. Laila Schou- Nielsen, Noregi, varð nr. 3. í hermannakeppninni áttu Norðmenn fyrsta mann og þriðja, en Frakkar annan. Svig-keppnin í tvíkeppn- inni (brun—svig) verður í dag og fer fram í Rödklæva við Osló. Gunnar Akselsson. Nokkur innbrcf í FYRRINÓTT brutust tveir menn inn í vörugeymslu hús Eimskipafjela,gs íslands í Naga. En ekki tókst þeim að hafa þýfið á brott með sjer. Þeir voru komnir af stað með kassa fullan af skótaui, en til þeirra sást. Þjófarnir urðu varir við þetta og hlupu á brott og skyldu kassann eftir. Þá hefur verið brotist inn í bragga er Knattspyrnufjelag ið Víkingur hefur keypt í Tripoli-búðunum. Þar hefur nokkru af verkfærum og þrem lömpum verið stolið. Þá hefur Sæberg bílaeigandi kært til rannsóknarlögregl- unnar, að brotist hafi verið inn í geymsluhús er hann hef ur á Hraunhálsi við Hafnar- fjarðarveg. Þar hafði hann geymdar 6 tunnur af bensíni en þegar til þeirra átti að taka fyrir nokkru síðan voru þær allar horfnar. Telur eigand- inn að innbrot þetta hafi verið framið um jólaleytið s.l. ár. Strandsiglingar Framh. af bls. 9 ins, að fjelagið þurfti á hverri fleytu að halda sem það hafði umráð yfir, til millilandaflutn inga, og þó hafðist ekki und an að flytja vörur landsmanna þannig að þúsundir smálesta söfnuðust fyrir í erlendum höfnum. Eins og framanrituð skýrsla sýnir, eru viðkomur fjelagsins á hafnir við strendur lands- ins þegar farnar að aukast eft ir því sem skipakostur fjelags ins eykst, og eftir því sem dregiQ verður úr innflutnings hömlum til landsins, en _þær hafa haft þau áhrif að smærri verslanir og iðnfyrirtæki hafa átt mjög erfitt með að kaupa vörur sínar beint frá útlönd- um. Með framangreindum skýr ingum tel jcg niður kveðin hin fjarstæðukendu ummæli í nefndri blaðagrein. Höfund ur hennar hlýtur þessutan að vita að Hf. Eimskipafjelag ís- lands hefir hingað til tekið við vöum utanlands til flutn- ings á innlendar hafnir utan Reykjavíkur — hafi þær ver ið skrásettar beint á viðkom- andi höfn — án hækkaðs flutningsgjalds og án um- hleðslukostnaðar fyrir vöru eiganda. Þetta vita allir innflytjend ur landsins. enda hefir piarg oft verið frá því skýrt í blöð unum. Tímanum ætti því að vera vorkunnarlaust að vita hið rjetta í því efni. E. G. Norræfla búfræði- fjelagið ÍSLANDSDEILD þess heldur aðalfund sinn annað kvöld (föstudagskvöld) kl. 8,30 í Kaupþingssalnum. Að loknum venjulegum fundarstörfum held ur Pálmi Einarsson fyrirlestur um Nýbýli og nýbygðir. Allir, sem áhuga hafa á því máli eru velkomnir á fundinn. Áður en Búnaðarþingi lýk- ur, mun fjelagið efna til ann- ara-umræðufimdar um búnaðar mál. Mun Runólfur Sveinssson skólastjóri hefja umræður um kynbætur búfjár og Árni G. Ey lands um bændaskóla og búnað arfræðslu. Norræna búfræðifjelagið Nor diske Jordbrugsforskeres For- ening, er allfjöimennur fjelags- skapur, sem starfað hefir um öll Norðurlönd xjm 30 ára skeið. Fjelagið gefur út tímaritið' Nordisk Jordbrugsforskning. — Aðalverkefni fjelagsins er að vinna að gagnkvæmu samstarfi og kynningu þeirra manna á Norðurlöndum, er fást við bún- aðatrannsóknir og önnur þau búnaðarmál, er almenning varða. Á stríðsárunum var af eðlileg um ástæðum hljótt um þennan fjelagsskap, en aldrei var hann bannaður nje lagður niður í hinum hernumdu löndum. — Vann fjelagsskapurinn hið merkilegasta starf í kyrþei og að tjaldabaki, enda hefir hann fjölda mjög mætra manna á að skipa, Af eðlilegum ástæðum, hefir íslandsdeild N. J. F. aldrei gerst umsvifamikil, en hún hefir hald ið uppi sambandi og kynningu við aðrar deildin N. J. F. Full- trúar hjeðan hafa sótt norræn búnaðarmót, og íslenskir bú- fræðimenn hafa birt greinar í tímaritinu Nordisk Jordbrugs- forsikring. Góður afli á Pal- reksfirði Frá frjettaritara vorum á Patreksfirði. VERTÍÐ hófst hjer seinni hlutann í janúar, og héfir gengið vel til þessa, þegar gæftir hafa verið. Hæsti bátur, Skálaberg, er nú með tæpar 230 smálestir í 26 róðrum. Framh. af bls. 7 sóknir frá mörgum landssarm böndum um að íþróttagreinar „þeirra“ verði teknar sem sýningar-greinar á Olyrnpíu- leikana 1948. í þessu sam- bandi má geta þess, að Ol- ympíunefnd íslands hefir með aðstoð fulltrúa síns í London, Björns Björnssonar, stórkauþ manns, reynt að fá íslenska glímu tekna sem sýningar- íþrótt á leikana. Ennfremur hefir fulltrúi íslands í Alþjóða Olympíunefndinni, Benedikfc G. Waage, unnið að málinu. Meðal annars hefir fram- kvæmdanefndinni verið sýnd kvikmynd af glímunni, sem Sigurður Norðdal tók af síð- ustu Íslandsglímu. í skýrsl- unni. segir, að ekki hafi enn verið neitt ákveðið um sýn- ingar-íþróttirnar, cn verið sje að athuga umsóknirnar. HÝSING ÍÞRÓTTAMANNA. Ekki hefir enn verið ákveð- ið, hvernig hýsing íþrótta- manna og starfsliðs verður hagað. Gert er ráð fyrir, að sjá þurfi meira enn 5000 kepp endum og starfsmönnum fyr ir fæði og húsnæði. Talað hef ir verið um að byggja Olymp- íu-þorp, eins og stundum hef ir verið gert áður, en ekkert er enn afráðið í því efni. Mun þó verða tilkynt bráðlega. BLYSA-BOÐHLAUPIÐ. Eitt af hnium mörgu við- fangsefnum framkvæmda- nefndarinnar, er að sjá fyrir tendrun og viðhaldi Olympíu- eldsins, sem kveiktur er á Olymíu-leikvanginum við ,,opnun“ leikanna og slöktur við loka athöfnina. Eins og á Berlínar-leikunum, er gert ráð fyrir að Olympíu-eldur- inn verði sóttur suður til Grikklands — til Olympíu — og borinn í boðhlaupi, af hlaupurum ýmsra landa, alla leið til Lundúna. Verið er að rannsaka, hviiða efni sjei heppilegast að nota í blysin. Ekki hefir enn verið ákveðið hvaða leið verður hlaupin. LONDON: — Tilkynt hefur verið, að ekkert skólabarn hafi látið lífið í umferðaslysi í Ips- wich undanfarin. tvö ár. Þetta er þakkað því, að lögreglan á staðnum lætur öðru hvoru fara fram skoðun á reiðhjólum barnanna. •, 1 Eftir Roberl Sloriti wovw ABOUT * 5T(?APlNö 'VOU STEPFED DOWN FROM A O.OUD' ? ApTER U0UR6, AT TUE RIVERVIEW.. WWAT VOU Ö0IN6 TO £1N6, öATE? _ |< opr 1946 Kinjj rf3ture» ^yndifatc Iru , orlri nght' rcservcd. V p VOU 6TEPPED D0WN# FROM A CLOUD.../ I 6AZED IN WONDER ...VOU ^TEPPED DOWN FROM A CLOUD...AND FILLED MV HEART WlTH TEN MlNUTEÖ LATER ) ^ i’M BEólNNINó TO FEEL LIKE COLUMBU‘5’! VOU'RB " 6O0D...I4M-M...VOU DON'T MAPPEN TO MAVE A $TABLE OF RACE MOR0E$? p- WELL, VOU DO! AND VOU'RE MIRED...VOU £TAKT, TO.VlORROW NI6MT! rTMANköí l'VE BEEN TOLP THAT í $OUND LIKE B— ’rm’ií Haze: Hvað viltu syngja? Bing: Hvað segið þið um „Þú stökkst niður úr skýjunum“? — Bing syngur, og tíu mínútum seinna segir Haze: Jeg er farinn að halda að jeg sje Colubus! Þú ert ágætur. rödd og B...............Haze: Alveg rjett. Þú ert rá5- Bing: Þakka fyrir. Mjer er sagt að jeg hafi líka inn og getur byrjað strax annað kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.