Morgunblaðið - 12.03.1947, Side 1
- 34. árgangur
59. tbl. — Miðvikudagur 12. mars 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
ir gamiar stöðvar
Leiðangur Byrds flotaforingja til Suður lieimskautsins er ný-
lcominn heim til Bandaríkjanna, eftir mjög árangursríka för.
Hjer á myndinni sjest Byrd í kofa, sem hann notaði, er hann
fór í leiðangur á sömu stöðvar 1935.
BúEgarska stjórnin beitir
sendisveitir yfirgangi
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SENDIHERRAR sjö ríkja í Soffíu hafa sent búlgörsku stjórn-
inni orðsendingu, þar sem þeir mótmæla framkomu hennar við
sendiráðin og meðlimi diplomatiskra sendinefnda í landinu. Er
í orðsendingunni farið hörðum orðum um aðgerðir öryggislög-
reglunnar í landinu og þá kröfu yfirvaldanna, að fá að kynna
sjer fjárhag viðkomandi sendisveita.
FRAKKAR OG RANDARÍKJAMENN
RÆÐA UM RUHRHJERAÐIÐ
Viil ógilda bresk-
egypska samninginn
-<s>
irá 1936
Cairo í gærkvöldi.
NOKRASHY Pasha, forsætis
ráðherra Egypta,tilkynti í dag
í öldungadeild egypska þingsins
að hann mundi fara fram á það
við Öryggisráðið, að samningur
Breta og Egypta frá 1936 yrði
ógiltur.
Eins og kunnugt er, hefur
slitnað upp úr öllum tilraunum
Breta og Egypta til að ná sam-
komulagi um brottflutning
breska hersins frá Egyptalandi
— Reutel'.
Vilja vera áfram í
Londan í gærkvöldi.
JOHN Bellenger, hermálaráð
herra Bretlands, skýrði frá því
í neðri málstofunni í dag, að 819
þýskir stríðsfangar hefðu boðist
til að vinna áfram í Bretlandi,
eftir að þeir verða látnir lausir.
Töluverðar umræður hafa ver
ið um það að undanförnu, hvort
rjett væri að ráða þýska stríðs-
fanga til vinnu í Bretlandi. Hafa
Þjóðverjarnir reynst hinir nýt-
ustu verkamenn
Lönd þau, sem mótmælt hafa
eru Bretland, Frakkland, Vati-
kanið, Ítalía, Svíþjóð, Sviss og
Bandaríkin.
I mótmælaorðsendingu ofan-
greindra ríkja er athygli búlg
örsku stjórnarinnar meðal ann-
ars dregin að því, að lögreglu-
menn hafa gengið svo langt, að
misþyrma franska sendiherran
um í Soffía, en. framkoma ör-
yggislögreglunnar hefur yfir-
leitt verið hin herfilegast og
jafnvel erlendir sendimenn hafa
verið teknir með valdi út úr
heimilum og skrifstofum sínum.
í sambandi við hina fyrirhug
uðu ,,endurskoðun“ bjúlgörsku
stjórnarinnar, hefur það komið
fyrii', að ráðist hefur verið inn
í erlendar sendisveitir, auk þess
sem strangt eftirlit hefur venð
haft með fólki því, sem einhver
erindi hefur átt á sendiráðs-
skrifstofur.
Fyrir nokkru síðan kom það
þannig fyrir, að einn af riturum
frönskú sendisveitarinnar var
dreginn út úr bifreið sinni, er
hann fór í heimsókn til breska
sendiráðsins, en þar hafði lög-
reglu verið komið fyrir með fyr
irmælum um að koma í veg fyr
ir það, að nokkur maður ía-ri á
fund sendiráðsins breska.
ilftgsmá! í franska
þinginu
LeiÓtogi Esosnmónista kailaður liðhlaupi
Pgrís í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SLÍTA varð fundi í franska þinginu í dag, er umræðum um
Indo-Kína lauk með handalögmálum milli nokkurra hægri þing
manna og kommúnista. Sagði einn af þingmönnum „Lýðræðis-
lega þjóðfrelsisflokksins“ í ræðu, að Maurice Thoriz, leiðtogi
kommúnista, hefði gerst liðhlaupi í styrjöldinni, en þetta hafði
þær afleiðingar, að einn af kvenþingmönnum kommúnista gaf
hægriþingmanni kinnhest.
Eftir að þetta hafði gerst
kom til slagsmála milli nokk-
urra þingmanna Lýðræðislega
þjóðfrelsisflokksins og kommún
ista. Fóru handalögmál þessi
fram í hliðarsölum þinghallar-
innar.
Liðhlaupi.
Það var Phirre Andre, hægri
þingmaður, sem í ræðu um land
varnir rjeðist harðlega á Thoriz
<»-
og framkomu hans í styrjöld-
inni. Hjelt hann því fram, að
kommúnistaleiðtoginn hefði í
raun og veru gerst liðhlaupi, er
hann 1940 yfirgaf Frakkland og
fór til Rússlands. Thoriz fór frá
Frakklandi /sl;ömmu áður en
Þjóðverjar lögðu það undir sig,
en þá var, eins og kunnugt er,
mikill vinskapur með Rússum
og nasistum.
lltanríkisráðherrar fjór-
veldanna munu taka
ástandið í Kína til
meðferðar
MOSKVA í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÁLITIÐ er hjer í Moskva, að Bandaríkin og Frakkland hafi
þegar hafið viðræður um framtíð Ruhrhjeraðs og kynt fyrir
hverju öðru skoðanir sínar á þeim málum. Umræður þessar munu
hafa hafist um líkt leyti og fundur utanríkisráðherranna hófst,
én s.l. sunnudag er vitað að þeir Marshall og Bidault hjeldu
fund með sjer. Óstaðfestar fregnir herma, að Marshall hafi á
fundi þessum sett fram skoðanir Bandaríkjamanna á Ruhr, og
tjáð franska utanríkisráðherranum, að endá þótt Bandaríkin
sjeu því ekki fráhverf, að aðþjóðaeftirlit af einhverju tagi verði
haft með framleiðslu hjeraðsins, líti þau þó svo á, að Þjóð-
verjar eigi áfram að eiga iðjuverin þarna.
Ræða Kína.
Ekki hefur enn komið að því
að fundur utanríkisráðherranna
tæki þetta mál til meðferðar.
Hins vegar hafa þeir komið sjer
saman um, að ræða ástandið í
Kína, ^en þær umræður verða
ekki í beinu sambandi við ráð-
stefnuna í Moskva.
Löng skýrsla.
Eitt af fyrstu verkefnum ut-
anríkisráðherranna verður að
kynna sjer 700 blaðsíðna
skýrslu um ástandið í Þýska-
land.i. Hernámsvöldin fjögur
hafa í sameiningu látið gera
skýrslu þessa.
*I sambandi við friðarsamning
ana við Þýskaland munu um-
ræður meðal annars fara fram
um afvopnun Þýskalands, eyð-
ingu nasistahugsjónarinnar,
efnahag landsins, stjórn þess og
væntanlegar skaðabótagreiðsl-
ur.
Landamæri Þýskalands,
Þá munu utanríkisráðherr-
arnir einnig verða að koma sjer
saman um framtíðarlandamæri
Þýskalands og fólksflutninga,
sem við það eru bundnir. Kunn
ugir líta yfirleitt svo á, að skaða
bótagreiðslurnar og aðgerðir
gegn nasistastefnunni reynist ut
anríkisráðherrunum þyngstar í
skauti.
Deccafæki í Danmörku
STJÓRNIR Danmerkur og
Belgíu hafa ákveðið að taka
hin bresku Decca staðarákvörð
unartæki í þjónustu ríkisins.
Á sumri komanda verður
byrjað að koma kerfinu upp í
Danmörku.
áiikiS freSsi fyrlr sfrsSs-
fanga
LONDON: — Þýskir stríðs-
fangar í Gíbraltar munu fá
aukið frelsi á næstunni. — Er
ákveðið, að þeir fái að fara
frá fangabúðUnum fylgdar-
lausir og heimsækja veitinga-
hús og aðra skemtistaði.
Verð á tóbaki
hækkar í dag
MORGUNBL. . frjetti
seint í gærkvöldi að heim-
ildin um hækkun álagn-
ingar á tóbaksvörur komi
til framkvæmda kl. 9 fyr-
ir hádegi í dag.
Tóbakseinkasala ríkis-
íns byrjar þá að selja tó-
baksvörur með nýju verð-
unum og mun álagningar-
heimiidin verða notuð á
flestum tegundum tóbaks,
þ. e. a. s. vindlingum,
vindium, reyktóbaki, nef-
tóbaki og munntóbaki.
Samkv. lieimild þess-
ari hækka amerískir vindl-
ingar, Lucky Strike, Old
Gold, o. s. frv., í útsölu úr
kr. 3,60 í kr. 4,80. Hækk-
un á öðrum tegundum tó-
balts er yfirleitt hlutfalls-
lega jafn mikil og á vind-
lingunum.
Jafnframt hefir Stjórn-
arráðið ákveðið að álagn-
ing á tóbaksvörur í smá-
sölu skuli lækka um 5%.