Morgunblaðið - 22.03.1947, Síða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
FÓLKIÐ hefir metið far
N- eða NA-átt, sumstaðar
ailhvasst. — Úrkomuiaust að
mestu.
sæla stjórn Reykjavíkur. —i
— Bls. 5. ___________
Laugardagur 22. mars 1947.
Ný gróðrastöð að Tumastöðum
Kostar um eina miljón
Á fimm árum vörðu einsiaklingar og
fjelög 1,3 miijónum iil skógræktar.
SKÓGRÆKT RÍKISSINS hefir nú varið um 500 þús-
und krónum til þess að koma upp gróðrarstöð að Tuma-
stöðum í Fljótshlíð. En gert er ráð fyrir að hún muni
kosta allt að milljón, þegar henni hefir verið komið í það
horf, sem til var ætlast og
Bjarnason skógræktarstjóri,
í gær.
Lánd það, sem gróðrarstöðin
hefir fengið til umráða eru 20
hektarar lands. Þar er búið að
ræsa landið, byggja íbúðarhús
fyrir skógarvörð og starfsfólk
hans og stórt geymsluhús. Enn
sem komið er hefir mjög litlu
af trjáplöntufræum verið sáð
þar, því þar hefir allt verið á
byrjunarstigi.
Hákon Bjarnason sagði, að í
vor yrði þessi nýja stöð tekin
til afnota. Og þegar allt væri
komið þar í fulla rækt, myndi
þar vehða hægt að fá alt að 2
miljónir trjáplantna árlega.
Gróðursetning nytjaviðar.
Hákon Bjarnason sagði, að að
alviðfangsefni Skógræktarinnar
á næstu árum, væri öflun trjá-
fræs erlendis frá, frá þeim
stöðum sem best þætti henta og
gróðursetning þeirra hjer, á
þeim stöðum, sem best væru til
.þess fallnir. í þessu sambandi
skýrði Hákon svo frá að fyrir
um það bil 40 árum síðan voru
gerðar tilraunir með gróðursetn
ingu erlendra barrtrjáa hjer á
landi. Á Hallormsstað og nokk-
urum öðrum stöðum, þar sem
skógarfuru úr Norður-Noregi,
síberiskt lerki og amerískt blá-
greni hefir verið sett í skjóli
birkiskógar og kjarrs, hefir
það komið æ betur í ljós, með
hverju ári sem leið, að ræktun
þessara tegunda í stórum stíl
getur orðið með allra þýðing-
armestu störfum, sem hægt er
að vinna fyrir framtíð þjóðar-
innar. Síðan hafa fengist hing-
að nokkrar aðrar trjátegundir,
sem munu jafnvel ná enn betri
þroska en hinar, sem vaxið hafa
í nokkra áratugi hjer.
Á Hallormsstað hefir lítill
furulundur vaxið jafn vel
fyrstu 35 ári æfi sinnar og sama
furutegundin vex um miðbik
Noregs og Svíþjóðar. Vöxtur
skógarfurunnar á Hallormsstað
hefir verið mældur nákvæm-
lega og borinn saman við norsk
ár og sáenskar viðarmælingar-
töflur. Á þeim grundvelli hefir
verið reiknaður út vöxtur og
verðmæti slíks skógar á einum
hektara lands og fram til 100
ára aldurs. Þó hefir aðeins
verið stuðst við töflur, sem
sýna minni vöxt fyrstu 35 árin
heldur en Hallormsstaðafuran.
I sambandi við þetta gat Há-
kon þess, að í fyrsta sinn hefði
verða mun, — sagði Hákon
er hann ræddi við blaðamenn
ameríska blágrenið borið veru-
lega mikið af fræi á s.l. ári. —
Hafði hann á borðinu hjá sjer
tvær krúsir, sem í voru um það
bil 1 kg. Aðra dós hafði hann
fyrir framan sið með álíka mik
ið af lerkifræi, sem nú í fyrsta
sinn eftir 25 ár, skila talsverðu
af fræi.
Hákon sagði, að ef vel tækist,
þá ættu að vaxa að Tumastöð-
um nokkrir tugir þúsunda
plantna af hvorri trjátegund-
inni.
Betri trjáfræasambönd nauð-
synleg.
Hákon sagði að þau sambönd
við útvegun á trjáfræi, sem
Skógræktin hefði nú, væru ekki
eins góð og æskilegt væri, hvað
Rússland og Noregs snerti, en
hann var vongóður um að
þetta myndi lagast á næstu
árum.
Hann sagði, að á vori kom-
anda ætti Skógræktin von á 100
þúsund skógarfuruplöntum frá
Lofoten og einnig nokkru af
rússnesku lerkifræi og lítils-
háttar af sitkagrenifræi frá Al-
aska. Þegar Hákon kom frá
Alaska í fyrra, hafði hann með
ferðis um 100 kg. af þessu fræi.
Um helming þess hefir verið
sáð í gróðrarstöðvum Skóg-
ræktarinnar. Sáðningu þess
verður haldið áfram í vor, og
kvaðst Hákon vona, að upp af
þessum fræjum ættu eftir að
vaxa miklir skógar í landinu
síðar meir.
Áhugi fólks er mikill.
Að lokum ræddi Hákon um
þann gífurlega áhuga þjóðar-
innar fyrir trjárækt og land-
græðslu. Sagði hann að á árun-
um 1940 til 1945 hefði hið opin
bera varið í þessu skyni, 1,4
milj. króna á móti 1,3 mSj.,
er einstaklingar og fjelög hefðu
lagt fram. ,,En þesasr tölur
tala sínu máli“, sagði Hákon.
Hákon kvað eignir Land-
græðslusjóðs nú vera um 400
þúsund krónur.
í vor myndi Landgræðslu-
sjóður efna til merkjasölu. —
Merki sjóðsins, birkilaufin þrjú,
hafa verið steypt í málm, og
er það mjög skekklega gert.
Ríkisfáninn á spífunni.
Þessi mynd var tekin síðastliðinn þriðjudag á Keflavíkur-
flugvelli, er „Flagship Reykjavík“ kom þangað og sýnir
hún ríkisfánann íslenska á fjölinni, sem notuð var í stað
flaggstangar. (Ljósm. Svavar Hjaltested).
Amerísku blaða-
mennirmr
tepfir
AMERfSKU blaðamennirn-
ir eru veðurteptir hjer á landi
Þeir ætluðu að fara vestur á
föstudagskvold og fóru til
Keflavíkur þá um kvöldið, en
komu, aftúr til bæjarins
vegna þess, að ekki var hægt
að fljúga vegna snjókomunn-
ar.
í fyrraaag fóru þeir í ferða
lag austur fyrir fjall og um
Þingvelli, skoðuðu hitaveit-'
una að Reykjum og fleiri
staði. Síðdegis á föstudag
hafði utanríkisráðh. Bjarni
Benediktsson og frú móttöku
1 ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu og voru þar auk
hinna útlendu gesta, margir
íslenskir embættismenn.
í gær notuðu blaðamennirn
ir tímann til að skoða sig um
í bænum og afla sjer upplýs-
inga. Síðdegis í gær hafði
ameríski sendifulltrúinn, Mr.
Trimble og frú hans móttöku
í ameríska ‘sendiráðinu.
. Búist er við að blaðamenn-
irnir fari vestur í kvöld.
Róstusamt í Grikk-
landi
GRÍSKA ríkisstjórnin sam-
þykti í dag, að gera sjerstak-
ar öryggisráðstafanir í Pelop-
hensus, þar sem hefndarverk
hafa verið unnin í sambandi
við morðið á Katsarcas kap-
teini, forystumanni andkomm-
únistafjelags nokkurs í Spörtu.
Gríska ráðuneytið, sem fer
með öryggismál, tilkynti í
kvöld, að ‘37 fangar í fangelsi
einu hafi verið drepnir, ásamt
sjö Öðrum, sem sagt var að
væru vinstri menn. En það var
vopnuð sveit hægri manna,
sem rjeðist inn í fangelsið.
Skæruliðar rjeðust á 20 rík-
islögreglumenn skamt frá Lar-
issa og skutu þá til bana, segir
ennfremur í opinberri frjetta-
tilkynningu í kvöld. — Reuter.
60 miljón sterlings
pund til rannsókn-
arstofu
London í gær.
ALEXANDER landvarnaráð-
herra sagði í ræðu í neðri mál-
stofu breska þingsins í dag, að
stjórnin hygðist verja meira en
60 miljón sterlingspundum á
þessu ári til ýmiskonar rann-
sóknarstarfa.
Alexander sagði, að löndin
við bofn Miðjarðarhafs væru
enn mikilsverður hlekkur í ör-
yggi breska heimsveldisins.
Um herskyldu sagði ráðherr-
ann, að stjórnin gerði allt, sem
vhún gæti, til að halda hernum
eins litlum og framast væri unt
—Reuter.
Ikíðalandsmótið
heísi í dag
FRESTA varð Skíðamóti
fslands, sem hefjast átti í gær
Af brunkeppninni, sem fram
átti að fara í Borgarfirði gat
ekki orðið vegna snjókomu og
dimmviðris. Göngukeppnin
gat heldur ekki farið fram við
Kolviðarhól, vegna illfærðar
þangað.
Keppendurnir, sem voru í
Re.vkjavík í gærmorgun gekk
erfiðlega að komast hingað. í
gærmorgun var þeim snúið
við, en aftur var lagt af stað
og tókst þeim þá að brjótast
í gegn og tók ferðin um það
bil 4 klst. og urðu þeir að
ganga síðustu kílómetrana.
Eru nú allflestir keppendur
komnir og hefst mótið í dag.
Breyting hefur verið gerð á
dagskránni. Klukkan 11 árd.
hefst brun kvenna. Ganga í
öllum flokkúm hefst kl. 3
síðd., en svig kvenna kl. 5.
Á sunnudagsmorgun kl. 10
heldur mótið áfram og hefst
það með svigi í B-flokki karla
Svig A-flokks hefst kl. 11,30,
en skíðastökk kl. 3,30 síðd.
Þorbjörn.
Mjólkin kemur
seint í búðirnar
„ÞAÐ er ekki vitað hversu
mikil mjóllc berst til bæjarinS
í dag“, sagði Pjetur Sigurðs-t
son mjólkurstöðvarstjóri í viðt
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Pjekir sagði, að ef ske
kynni, að eitthvað bærist
hingað í nótt sem leið, þá
myndi hún koma seint í mjólk
urbúðirnar. Hann gat þess
ennfremur að til Mjólkurbús
Flóamanna hefði engin mjólk;
borist í gærdag.
í gærkvöldi voru fjórir bíl-
ar á leiðinni hingað. Tyeir
þeirra koma að austan og
aðrir tveir ofan úr Borgar-
firði, en ekki var vitað hve-
nær þeir kæmu. Og t.d. var
ekki vitað hvar Borgarfjarð
arbílarnir væru um kl. 10 í
gærkvöldi. Lítilsháttar af
mjólk kom hingað með skipi
frá Borgarnesi, seint-í gær-
kvöldi.
I
Reyn! að halda
leiðinni ansiur yfir
Fjall opinni
MIKIL hríð var í austur-
sveitum í gærmorgun og stóð
hún fram yfir hádegi. Hríð
var svo svört, að bílstjórarnir
treystu sjer ekki til þess að
aka á eftir snjóýtuunni
er hún ætlaði að leggja upp
frá Ölfusá.
Er líða tók á daginn tók veð
ur að batna og lagði ýtan þá
af stað og átti hún að fara;
upp að Kambabrún. Þar kom'
til móts við hana snjóýtan.
sem höfðu er við Skíðaskálan
og átti hún að ryðja leiðina
f.vrir bílana alt niður fyrir
Lögberg. Búist var við að bíl
arnir myndu koma hingað til
bæjarins eftir miðnætti , nótt
í þessari bílalest voru 2 mj óllc
urbílar. .
Ásgeir Ásgeirsson skrifstofu-
stjóri Vegamálaskrifstofunn-
ar sagðist vonast til að tak-
ast mætti að ryðja leiðina
austur jafnóðum og bílalest-
irnar leggja af stað að aust-
an og hjeðan úr bænum.
Tekist hefur að halda leið-
inni norður til Blöndóss op-
inni f gær var vegurinn uml
Kjalarnes ruddur en hvernig
gengi að halda leiðum opnum’
í Borgarfirði var ekki vitað
með vissu.
FEITUR BITI
NEW YORK: — Timaritið
„Time“ segir frá því, að mað-
ur í Uniontown, Bandaríkj-
unum, hafi komið inn í veit-
ingghús á staðnum, snúið sjer
að Katherine nokkurri Gaydo,
litið á hana andartak, sagt:
„Mikið ertu falleg -— það væri
hægt að borða þig“, gripið í
hendina á henni og bitið hana.