Morgunblaðið - 27.04.1947, Síða 1

Morgunblaðið - 27.04.1947, Síða 1
12 síður og Lesbók 34. árgangur 93. tbl. — Sunnudagur 27. apríl 1947 íaaloldarprentsmiðj a h.f. Arabar ósveigjanlegir í Palestínumálunum Vilja ekkert slaka til við Gyðinga ogheimta Breta burt WASHINGTON í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. FULLTRÚAR Araba í Washington hafa tekið saman skýrslu um Palestínumájin, og vei'ður hún lögð fyrir þing Sameinuðu þjóðanna, sem hefst á mánudaginn kemur. í skýrslunni eru mjög fordæmdar tillögur um skiptingu Palestínu í tvö ríki Gyðinga og Araba. Jafnframt er lögð áhersla á það, að um- boðsstjórn Breta verði á enda bundin þegar í stað og að Pelestína fái upptöku í Sameinuðu þjóðirnar. Ekkert Gyðingaríki. I skýrslunni segir, að ekki komi til mála að láta þumlung lands í Palestínu til stofnunar .sjerstaks ríkis fyrir Gyðinga. Ennfremur er mjög lagt á móti þeirri tillögu, að í Palestínu verði komið á fót ríki, þar sem byggt sje á pólitísku jafnrjetti Gyðinga og Araba. — Skýrsl- an er skráð á þrem tungumál- um, ensku, frönsku og spönsku, með það fyrir augum, að henni verði útbýtt meðal fulltrúa á jþingi Sameinuðu þjóðanna. Ótvíræður rjettur Araba. I skýrslunni segir, að við lausn Palestínumálanna verði að miða við vilja þeirra, sem mestra hagsmuna hafi þar að gæta, en það sjeu Arabar. Ef mönnum sjáist yfir þá stað- reynd, þá sje eins gott að hætta öllu þrasi um þessi mál og eyða ekki meiri tíma til einskis. Vilja Breta burt. Þá er þess og krafist í skýrsl- unni, að umboðsstjórn Breta í Palestínu verði þegar í stað til lykta leidd og Palestínu veitt upptaka í Sameinuðu þjóðirnar. Sextán fulltrúar frá Banda- ríkjunum. Á þessu aukaþingi Samein- uðu þjóðanna, sem boðað er til gagngert vegna Palestínumál- anna munu sitja sextán fulltrú- ar frá Bandaríkjunum, en for- maður fulltrúanefndarinnar verður Warren Austin. í til- kynningu, sem utanríkisráðu- neyti Bandaríkjanna birti um þetta í kvöld, segir ennfremur, að tólf þessara fulltrúa sjeu ráðunautar utanríkisráðuneytis ins. m sjer flokksins Sendiherra Dana farinn lil Kaupmannahafnar C. A. C. BRUN, sendiherra Ðana á íslandi fór s.l. föstu- dag áleiðis til Kaupmanna- hafnar til að vera viðstadd- ur þar er forseti fslands kemur til Danmerkur. Kaupmannahöfn í gærkvöldi. » CHRISTMAS Möller, fyr- verandi utanríkisráðherra Dana, sagði í dag af sjer for- mennsku danska íhaldsflokks ins. Á fundi með flokknum í dag kvartaði hann undan því, að fylgjendur flokksins bæru ekki hóg traust til samtaka þeirra. — Reuter. Thor Thors á aukaþingi S. Þ. TIIOR THORS, sendiherra verður fulltrúi fslands á auka þingi sameinuðu þjóðanna, er hefst á morgun í Lake Succ- ess og mun ræða Palestínu- vanclamálið. TVEIR RÁiHERRAR RÆÐA ÁSTANDIÐ í RRETLANDI Komu frá Ameríku r Osamkomulag um flóiiamenn í Aust- urríki Vínarborg í gær. í HERRÁÐI bandamanna í Austurríki í gær bar fulltrúi Rússa fram þá tillögu, að það yrði stöðvað, að utanaðkom- andi ríkisstjórnir rjeðu flóttamenn til vinnu í löndum sínum. Fulltrúar Breta og Banda- ríkjamanna lögðust gegn þessu. Sögðu þeir, að flótta- mannavandamálið í Austur- ríki væri ákaflega erfitt við- ureignar, og það, að sumir flóttamannanna leituðu sjer vinnu utan landamæra Aust- urríkis, væri þó nokkur bót. — Reuter. Átta stúlknanna hjer á myndinni eru frá Bandaríkjunum, þrjár frá Kanada. Allar eru þær giftar íslenskum mönnum og búsettar hjer. Nöfn þeira eru: Fremri röð frá vinstri: Alice Snorrasonj Stacia Johannsson, Maria Sæmundsson, Betty Þor- bjömsson og Jean Guðjónsson. Aftari röð frá vinstri: Kristine Ólafsson, Lily Ásgeirsson, Mary Ágústsson, Barbara Friðriks- son, Dora Bjarnason og Margaret Tómasson. (Ljósm.: Jón Sæmundsson). Ungverjor sækjo um upptöku í S.Þ. Upptökubeiðni fyrstu fyrverandi óvinaþjóðarinnar. New York í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. UNGVERJALAND sótti í dag um upptöku í samein-* uðu þjóðirnar, og er þannig fyrsta óvinalandið til að sækja um inngöngu í alþjóðasambandið. í brjefi, sem Aladar Maszak, sendiherra Ungverjalands í Washington, hefur ritað Trygve Lie, aðalritara S. Þ., segir meðal ann- ars, að friðarsamningar við Ungverja hafi þegar verið undirritaðir og þjóðin muni því öðlast fullt sjálfstæði, er samningarnir ganga í gildi. <s>- Mun taka á sig kvaíþr S. Þ. I brjefi sendiherrans segir og, að Ungverjaland sje reiðu- búið til að taka á sig allar þær skyldur, sem settar eru fram í sáttmála sameinuðu þjóðanna. í sambandi við upptöku- beiðni UngVerja, hafa starfs- menn S. Þ. tjáð blaðamönnum, að þess sje ekki vænst, að um- sóknin verði tekin fyrir, fyr en 1 skotinn niður á götu, og friðarsamningarnir við Ung-|komu skotin úr leigubíl, sem verjaland ganga í gildi. Eftir: ók fram hjá á mikilli ferð. •—- gildistöku samninganna, mun j Skömmu seinna ók bifreiðin Öryggisráðið taka umsóknina út af veginum, en tveir ungir til athugunar. Gyðingar, sem í henni voru, Framh. á bls. 6 'komust undan á flótta. Háttsetfur Breii drepinn í Pelestínu Jerúsalem í gær. HÁTTSETTUR breskur lög reglumaður var drepinn í dag í IJaifa. Lögreglumaðurinn var Það verður sigrast á erfiðleikuiuim London í gærkvöldi. TVEIR breskir ráðherrar gerðu í dag að umtalsefni nú- verandi efnahagsástand Bret lands og hvað gera þyrfti. til að endurreisa fjárhag lands- ins. Báðir ráðherrarnir, Hart ley Shawcross, dómsmálaráð- herra og Shinwell, eldsneyt- ismálaráðherra, gerðu enga tilraun til að draga dul á það, að 'ástandið væri alvarlegt í Bretlandi, en ræður þeirra einkenndust þó af bjartsýni á framtíðina og trú á mátt bresku þjóðarinnar til að sigr ast á erfiðleikunum. Töpuðu á styrjöldinni Shawcross sagði í ræðu sinni, að Bretar hefðu verið 6,000 milljón sterlingspund- um fátækari, er styrjöldinni lauk. Ekki kvaðst hann vilja neita því, að Bretland ætti í miklum erfiðleikum, en hann sagðist hins yegar trúa því, að þjóðin mundi ganga með sigur af hólmi. Um lántöku Breta í Banda- ríkjunum og Kanada sagði ráðherrann, að lánið hefði ekki gefið þeim þann frest, sem þeir hefðu gert sjer vonir um. Kenndi hann það hækkandi verðlagi í Ameríku. Reyna að sigra á lýðræðis- legan hátt Shawcross varaði menn við því að þeir mundu verða að leggja hart að sjer, enda yrði Bretland að hafa komið fót- unum undir sig eftir ekki lengri tíma en tvö ár. — En þótt nauðsynlegt væri, að allir legðu fram sinn skerf, sagði hann að breska verk- lýðssjórnin mundi ekki fara að dæmi einræðisríkja og skipa mönnum fyrir verkum, heldur reyna að leysa erfið- leikana á lýðræðislegan hátt.: Hrósar námumönnum Shinwell hrósaði kolanámu mönnum í ræðu sinni. Kvað. thann afköst þeirra eiga mik- ið lof skilið, en meira þyrfti þó til. Hann laujk ræðu sinni með því að aðvara menn, að svo kynni að fara að leggja þyrfti í bráð á hilluna áform stjórnarinnar um fimm daga 1 vinnuviku námumanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.