Morgunblaðið - 27.04.1947, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 27. apríl 1947
■íiÍÉMOV
Kvæði þetta var flu'tt Kristjáni X. Danakonungi á sjötugsafmæli hans, 26. september
1940. Höfundurinn flutti það sjálfur í danska útvarpið, en kvæðið var fært konungi skraut-
ritað á pergamenti.
VOR hilmir, þinn dag skal Iofa í ljóði,
hann lýsir sem stjarna yfir tímanna flóði,
þar hugur og vilji er reiddur til ráða
af reynslu og viti hins sanngöfga manns.
Sjá þegnana að höfði þjcr knýta krans
af kærleik og trú, þinna samtengdu láða.
I»ín þjóðmerki hófstu mót hækkandi degi,
Vor hertogi, á lýðstríðsins vegi.
VOR fyfkir, þjer tengdur er hugur og hjarta
hins háa ættstofns í norðrinu bjarta.
Þar bragandi leiftrar á líðandi kvöldum
Ijóshafsins hvolf yfir blátærum unnum.
Að glitblómum daggir þar drjúpa í runnum
við dagmál, und morgunsins blikandi tjöldum.
Þar spegla sig hæðir í heiðum lindum.
Þar horfa vogar að tindum.
HINN norræni rjettur var ríkjandi frelsi,
hvar rjeði þegninn af dögum sitt helsi.
Og víkingar kváðu þcim konungi lof,
cr kvaddi sjálfráða hirðmenn til styrjar.
Og logskíði flugu þess hástilta hyrjar,
er hugfrjálsra Væringja lýsti hof.
Þann dag hvern liðinn skal lofa að kveldi,
sem limið af björkum ei feldi.
ÞÚ skildir, þú j-jeðir rjettinn forna,
er reistur var kyninu aðalsborna,
í árdag, við alfagurt sunnubál.
Af eldstöfum hóf sig hin norræna saga.
Vor heimur naut sinna Hávabraga,
þar hrundi í stefjum hið eilífa mál.
Hin guðborna list, ásamt drengskapardáðum
drottnaði í fríþegnsins ráðum.
ÍSLAND þú hófst í heimsríkja veldi,
þess háðungardag Ijetst þú runninn að kveldi,
þú skráðir þess rjett, þú reistir þess merki.
Þín ráð voru holl, sem þinn vilji var beinn.
Sem þú, vann því aldrei neinn
af öðlingum heims í dags síns verki.
Hin íslenska þjóð þjer þakkar af hjarta,
þakkar morgunínn hjarta.
HVER einasta sál af íslensku bergi,
þjer ann og þig man, þú gleymist oss hvergi.
Hvar þjóð-vitar rísa rökstöfum búnir,
þín ráðgleggvi stóð að, á sjónartind.
í ljóðmáls vors gróður er greypt þín mynd,
þar greina sig þættir við aldanna brúnir.
Þú lögbauðst vorn heiður. — Um hafið kalda
há-brimsins lægðir þú falda.
HVE ljúft er að þakka þeim lofðung ríkja,
cr leysi þrautir og órjett Ijet víkja.
Þar ertu meiri að menningarfremdum
en margir, sem þjer erfðu ríkari lönd.
Af kærleik oss rjetti þín konungshönd,
þann kynborna arf, er til vjer stefndum.
Vjer nutum þíns vilja, vor ræsir, og ráða.
Þú ruddir oss braut til dáða.
ÞA saga Fróns verður rituð með rökum,
að rjcttu skal lýst þínum framafökum.
Vor byltingaöld hefir hrugðið sverðum,
og brotið til grunna hin tignustu hof.
Og enn eru víg og eiðarof,
og eldur borinn að sáttmálsgerðum.
Því ríður á mönnum með reynslu og þckking.
Með rökvísi, trú. — Eigi blekking.
ÞÚ komst og þú fagnaðir fagurlundum,
Iiins fornhelga lands og þess vornæturstundum
þá sunna í unnir ei sígur að kveldi,
og sindrar við gullský hátindsins brún.
Og bergið þú leitst, þar röðulsins rún
er rist í, sem friðtákn af guðdómsins eldi.
Og fossar þjer eilífan aldaslag sungu
á alfrjálsa norðurheimstungu.
ÞÍN höll, hvað sem verður, er bygð á bjargi.
Hún bugast ei undir stálaldarfargi.
Vitri konungur, verða svo megi,
að verjir þú ríki þín böli og nauðum.
Að jöfnu, vor ræsir, hjá ríkum og snauðum
þín ráð eru metin sem ljós yfir vegi.
Heyr, miljónir þegna á þínum degi
þjer þaklta, á hauðri og fleyi.
Ásmundur Jónsson frá Skúfsstöðum.
Svíar gegn hinum Morður-
löndunum í frjálsum íþróttum
Jóhann Bernhard
ritstjóri „íþrótia-
blaðsins"
i Verða íslendingar þar með!
ÁKVEÐIÐ hefir verið að fram fari í sumar kepni í
friálsum íþróttum milli Svía annarsvegar en hinna
Norðurlandanna hinsvegar.
lands borist brjef um þetta
inu. Fer keppni þessi fram í
Kepninni verður þannig'
háttað, að frá hvorum aðila
keppa þrír menn í hverri
grein. Sjerstök nefnd, sem
kemur saman í Stokkjiólmi
20. ágúst, velur liðið, sem á
að mæta Svíunum, og verður
þar farið eftir árangri þeim,
sem íþróttamennirnir ná á
meistaramótum heima fyrir,
en þau verða haldin í öllum
löndunum um svipað leyti,
iffíi miðjan ágúst.
Þessi aðferð við val manna
í þessa keppni virðist nokkuð
hæpin fyrir okkur íslend-
iaga, þar sem vitað er, að að
stæður til keppni hjer heima
eru ekki eins góðar og í hin-
Hefir íþróttasambandi ís-
frá sænska íþróttasamband-
Stokkhólmi 6.—8. sept. n. k.
um Norðurlöndunum og ís-
lenskir íþróttamenn há yfir-
leitt betri árangri erlendis en
heima. Sjerstaklega á það þó
við um hláupin. Einnig eru
veður hjer miklu vályndari
en ytra og árangur oft lje-
legri af þeim ástæðum. En
áreiðanlegt er, að íslendingar
eiga íþróttamenn, sem fvlli-
lega verðskulda að taka þátt
í þessari keppni. — Þorbjörn.
LONDON: — Stassen, einn
af leiðtogum republikana, er
kominn til Bi’etlands. Hanni
hefir í hyggju að dvelja þar í
fimm daga.
FYRIR NOKKRU kom út -.
1.—3. tbl. af „íþróttablaðinu“
á þessu ári. Ritstjóraskifti
hafa orðið við blaðið, þar sem
Þorsteinn Jósefsson hefir lát
ið af því starfi en Jóhann
Bernhard tekið við.
Efni þessa blaðs er m.a.:
Ávarp frá ritstjóra, íþrótta-
samband íslands 35 ára eftir
Benedikt Gröndal, Afmælis-
hátíð f. B. 1, 35. skjaldar-
glíma Ármanns, eftir Kjartan
Bergmann, Handknattleiks-
meistaramót Reykjavíkur, eft
ir Grímar Jónsson, Flokka-
glíma Reykjavíkur, Afmælis-
mót Ægis, íslensk sundmet 1.
janúar 1947, Helgi frá Brennu
sextugur, eftir B. G. W., Frá
Skíðasambandi fslands Frjett
ir frá fyrra ári, Knattspyrnu
hjal, íþróttir og fræðsla,
Glímuför Ármenninga til Sví
þjóðar, eftir Gunnar ólafsson
Keppni Oslófaranna í Svíþjóð
fþróttir erlendis, Ljettara
hjal, Frjettir frá fjelögum og
fleira.
Skíðahótel við
..
Akureyri
frá ársþingi íþróttabandalags
Akureyrar
MIKILL áhugi er nú á því á Akure^ri að koma uppj
skíðahóteli þar í nágrenninu. Á síðasta ársþingi í. B. A.,
sem var haldið fyrir skömmu, var samþykt tillaga þess
efnis, að heppilegast myndi að hótelið yrði reist um einn
km. suð-vestur af Útgarði, skíðaseli Mentaskólans á
Akureyri. Telur þingið rjett, að skíðahótelsnefndin starfi
áfram og þó sjerstaklega að því, að vegur verði lagður
á staðinn á þessu sumri. . •
Þá lagði ársþingið mikla á-»
Frumsýning á
„Ærsladraug"
Hoel (owards
í næsfu viku
LEIKFJELAG Reykjavík-
ur hefir frumsýningu á leik-
ritinu „Ærsladraugurinn“
(Blight Spirit) eftir breska
leikritaskáldið Noel Coward á
föstudaginn kemur.
Leikrit þetta hefir verið
leikið víða um heim og als-
staðar hlotið hinar bestu við
tökur og víst er um það, að
margt er í því óvenjulegt og
allleyndardómsfult. Hafa fá
skáld tekið slíkt efni til með
ferðar, og því síður á þennan
frumlega hátt, og Coward.
Haraldur Björnsson er leik
stjóri, en leikendur eru: Arn
dís Björnsdóttir, sem leikur
miðilinn. Valur Gíslason, sem
leikur rithöfundinn. Þóra
Borg Einarsson leikur eigin-
konuna, sem er lífs, en Herdís
Þorvaldsdóttir hina framliðnu
eiginkonu. Emilía Borg og
Brynjólfur Jóhannesson leika
læknishjónin. Nína Sveins-
dóttir leikur þjónustustúlku.
Þetta er gamanleikur og
hefir Ragnar Jóhannesson
snúið honum á íslensku. Er
þetta fyrsta leikritið eftir
Noel Coward, sem Leikfjelag
ið tekur til meðferðar.
Attlee svarar
(hurchil!
London í gær.
ATTLEE forsætisráðheiTa
hefir svarað ásökunum, sem
Winston Churchill bar á
stjórnina á dögunum. Attlee
segir að það sje engu líkara
en að Churchill sje 50 ár á
eftir tímanum ef hann haldi
að hægt sje að ganga fram
hjá kröfum þjóða í Asíu um
sjálfstjórn. Með þessum um-
mælum sínum um Indland sje
Churehill að falla frá lýðtæð
isfyrirkomulaginu, sem Bret
ar hafi barist fyrir í styrjöld
inni.
Attlee sagði, að það væri
rangt, að breska stjórnin
væri að leiða bresku þjóðina
í glötun. Þvert á móti hefði
enginn bresk stjórn unnið
jafnvel á 21 mánuði eins og
núverandi stjórn hefði gert.
herslu á.að kappsamlega verðí
unnið að því að koma upp
íþróttaleikvangi austan Brekku
götu og kaus þriggja manna
nefnd til þess að vinna að frarrt
gangi þess.
íþróttaráðunautur og
ný sundlaug.
Þingið beindi þeirri áskoruq
til bæjarstjórnar Akureyraiv
hvort' ekki myndi tímabært, acS
bærinn hafi í þjónustu sinni
ráðunaut í íþróttamálum. Þá
óskaði þingið eftir því, að bæj-
arstjórnin ljeti þegar í vor geral
athugun á heitavatnsleiðslu
þeirri ,er liggur úr Glerárgilij,
að sundlaug bæjarins og gerai
nauðsynlegar umbætur og ein-
angrun leiðslunnar. Ennfrem-
ur að láta hefja sem fyrst bygg
ingu fullkominna búningsklefg
og yfirbygðrar eundlaugar.
Sjerráð og sjersambönd.
Um sjerráð og sjersambönð
var tillaga samþykt þess efnis,
að þingið teldi enga nauðsyp
bera til þess að stofna lands-
sambönd í fleiri íþróttagrein-
um en þegar hefir verið gert,
Þó telur þingið að til mála geti
komið síðar, að stofna fleiri
landssambönd, ef reynslars
sýndi að slíkt skipulag væri tij
bóta.
Knattspyrnumót 1. fl. i
á Akureyri.
Meðal þeirra íþróttamóta,
sem háð verða á Akureyri á
þessu sumri verður íslandsmólí
í knattspyrnu fyrsta flokks,
sem væntanlega fer fram 1.—9,
júlí, Knattspyrnumót Norður-
lands og bæjakepni í frjálsunrs
íþróttum við Hafnfirðinga.
Stjórn:
I stjórn í. B. A. voru kosnir;
Ármann Dalmannsson, for-
maður, Hermann Stefánsson,
Stefán B. Einarfkm, Kári Sig-
urjónsson, Marteinn Friðriks-
son og Eggert Steinsen. — For-
menn sjerráða eru þessir?
Skíðaráð Hermann Stefánssoii,
Knattspyrnuráð Friðþjófui’
Pjetursson, FrjálsíþróttaráSi
Tryggvi Þorsteinsson, Hand-
knattleiksráð Sverrir Magnús-
son, Fimleika- og glímuráð
Jónas Jónsson og Sundráð Ól-
afur Magnússon.
LONDON:: — Þýskir stríðs-
fangar, sem starfa að land-
búnaðarstörfum í Kent, hafsj
hótað að minka afköst sín, e£
bændur þar sjái þeim ekki fyr-
ir nægilegum birgðum af síg-
arettum. x