Morgunblaðið - 27.04.1947, Page 7

Morgunblaðið - 27.04.1947, Page 7
Sunnudagur 27. apríl 1947 höliQUNBLAÐIÐ 7 UM HEKLUGOS OG HAFRANNSÓKNIR FYRIR nokkrum dögum kom jeg í vinnustofu Hermanns Ein- arssonar dýrafræðings, er hann hefir til umráða í Atvinnudeild- inni. Hermann var nýkominn úr rannsóknarferðum um fiski- miðin hjer við suðvestur land. Hann var við þessar rannsóknir frá því um miðjan mars til 12. apríl. Ymist á varðskipinu Ægi, gæsluskipinu Fanney eða Skaft fellingi. Á Ægi var hann þang- að til nota þurfti skipið til neta gæslu við Vestmannaeyjar. Mjer hafði verið sagt, að hann hefði farið í sjerstakt ferðalag, til þess að rannsaka áhrif vikursins úr Heklu, á sjáv ardýr og sjávargróður. — Það vildi svo til, segir hann, að jeg hafði verið við sjávarrannsóknir fyrir sunnan land, rjett áður en Hekla gaus, og hafði tækifæri til að fara út aftur, eftir gosið, svo hægt verð Ur með rannsóknum á þeim sjóprufum, er jeg tók í báðum ferðunum, að gera sjer grein fyrir, hvaða áhrif öskufallið hefir haft á „lífið í sjónum". Er hjer um alveg einstakt tækifæri að ræða. En það tekur nokkurn tíma, þangað til sjóprufurnar úr báðum ferðunum hafa verið íannsakaðar. — Var það ekki svo að tæki fyrir afla í Vestmannaeyjum eftir öskufallið? — Togbátar, er stunduðu veiðar á grunnmiðum, sem urðu fyrir öskufalli, kendu afla- brests fyrst eftir öskufallið. — Sennilegt, að fiskurinn hafi fælst frá landinu, þegar askan gerði sjóinn ógagnsæan. Hafi þorskurinn þá brugðið sjer út á brún grunnsævisins, en kom- ið þaðan fljótlega aftur á venju leg mið. En askan og vikurinn getur haft æði mikil áhrif, til dæmis á plöntugróðurinn í sjónum. — Hvaða gróður eigið þjer við? — Hina örsmáu svifþörunga, er heita má að sjeu undirstaðan að öllu sjávardýralífi hjer við land. Þegar jeg fyrst kom út í Faxaflóa með Fanneyju þann 13. mars, þá var svifþörunga- gróðurinn byrjaður. Er þáð all- miklu fyr á ári, en menn áður hafa vitað til. En þetta getur stafað af því, hve undanfarnar vikur höfðu verið hjer sjerstak lega sólríkar. Því heita má, að frá febrúarbyrjun, fram til þessa tíma væri hjer samfeldir sólskinsdagar. En þörungagróð- urinn fer að sjálfsögðu mikið eftir því, hve sólar nýtur vel. Fíngerður vikur er lengi að falla til botns og gæti minkað gagnsæi sjávarins að mun í lengri tíma. Hefði það að sjálf- sögðu áhrif á magn plöntugróð- ursins. Ymis lægri dýr virðast líka mjög viðkvæm gagnvart óhrein indunum í sjónum, t. d. sandi og vera má að þetta eigi við um rauðátuna. Um það vitum við þó ekkert með vissu ennþá. Eftirlætisfæða síldarinnar. — Rauðátan, — eftirlætis- fæða síldarinnar — er lítil krabbategund. Er ekki svo? — Hvað er hún stór? — Hún er um þrjá millimetra Frásögn Hermanns dýrafræðings Einarssonar á lengd, annars getið þjer feng- ið að sjá hana hjerna í smá- sjánni. Hermann bauð mjer sæti við smásjána sína og setti fyrir hana litla flatbotna skál, með einhverjum smáörðum í. En undir stækkunarglerinu kom í ljós, að þarna var margskonar dýralíf. Ýmsar tegundir fisk- seiða, löng og mjó með stórum augum út úr hausnum. — Og þarna voru smákrabbarnir, sem síldin eltir og fitnar af. Undir smásjánni virtist mjer rauðátan mjög syipuð frænkum sínum, rækjunum. Er jeg virti fyrir mjer þetta nytjadýr, sem sum árin gefur Isléndingum mestar tekjur, hugsaði jeg mjer að ef rauðátan' skyldi mannamál, myndi jeg heilsa upp á hana með virktum og þakka henni fyrir alt, sem hún hefir gert fyrir landið og þjóðina á undanförnum árum. En segi við Hermann: „Jeg get ekki sjeð neinn rauðan lit á henni. — Það er ekki von, segir hann, því hún er ekki orðin feit ennþá, það er olían, er hún safnar í sig, sem gefur henni roðann. Þá datt mjer í hug, að merki- legur er búskapurinn í sjónum. Þetta örsmáa dýr, þrír milli- metrar á lengd, skuli geta safn- að í sig þeim ógrynnum af fitu handa síldinni, svo hún verð- ur feitari en öll önnur síld, er veiðist og gómsætist með snapsi allra þjóða. Svo sá litli hluti af síldarstofninum, sem hjer kemur á land, getur fylt stóra lýsisgeyma. — En hvað vitið þið vísinda- mennirnir um lífsferil rauðát- unnar? — Því miður harla lítið, seg- ir Hermann, og mismunandi skoðanir, sem ríkja um það mál. Sumir halda, að rauðátan, sem 'er á síldarmiðunum fyrir Norðurlandi á sumrin , berist með Golfstraumnum hjeðan að sunnan. Aðrir halda því fram, að hún komi norðan úr hafi. Jeg veit ekkert hvað rjettara er. Má vera að hvorttveggja sje rangt, og það rjetta sje, að rauð átan, sem síldin er að sækjast eftir, sje allan ársins hring í sjónum fyrir Norðurlandi. En á meðan við vitum ekkert um ævi feril rauðátunnar hjer við land verður erfitt að gera sjer grein fyrir síldargöngunum. Hitastigsrannsóknir. Eitt helsta rannsóknarefni mitt hjer á Suðurlandsmiðunum var að athuga hitastigið í sjón- um. — Og hvernig reyndist það vera? spyr jeg þá. Sjávarhitamælingar hafa því miður legið niðri síðan á árun- um 1938—39, nema hvað yfir- borðshitinn hefir verið mæld- ur á einstaka stað, en það er vafasamt, hvort hægt er að draga ályktanir af honum um hitann í dýpinu. Jeg hefi ekki unnið úr hitamælingum mínum ennþá, en mjer skilst, að til dæmis hitastigið á Selvogssvæð inu sje hálfri annari tii tveim gráðum hærra, en meðalhitinn í mars—apríl reyndist á tíma- bilinu 1895—1934. Yfirborðs-, hitinn ur nú yfir sjö gráður, en meðalhitinn á fyrnefndu tímabili í mars-apríl var reikn- aður 5.4 gráður. — Vita menn með vissu hvað er kjörhiti fyrir þorskinn við hrygningu? . — Ovíst er, segir Hermann, hvort hægt sje að notfæra sjer niðurstöður Norðmanna í því efni. En við Lofoten hrygnir þorskurinn við 4—5° hita, í sævarlagi því er myndast ná- lægt ströndinni, þegar saltur Atlantshafsstjór og ósaltari strandsjór blandast. — Er þá ekki líkl-egt, að hinn 7° heiti sjór á Selvogs- svæðinu sje of hlýr fyrir hrygn ingu? Um það get jeg ekkert sagt. En togarar veiða nú meira á Eldeyjarbanka en á Selvogs- banka. Til þess að geta fullyrt nokkuð um kjörhita fyrir þorsk hrygningu, þarf að vera hægt að byggja á margra ára athug- unum. En því miður eru rann- sóknir á þessum efnum allt of litlar hjer ennþá. Straumar. Eitt af því, sem okkur van- hagar um að vita, er hvernig straumarnir haga sjer umhverf is landið, hvernig t. d. Atlants hafssjórinn og íshafssjórinn blandast á miðunum fyrir Norð urlandi. Þetta er vafalaust tals vert miklum breytingum und- irorpið. Sumurin 1938 og 1939 fjekk jeg tækifæri til þess að vera á rannsóknarskipinu „Dana“ á ferðum þess fyrir norðan land. Þá rannsakaði jeg þetta sjerstaklega, alla leið frá Kögri að Langanesi. Það kom þá í I ljós, að sumaríð 1939 voru öll t sjávardjúp fyrir Norðurlandi full af Atlantshafs-sjó. Sum- arið áður var gerólíkt ástand, I þá fyllti íshafssjór öll djúp, en 1 Atlantshafs-sjórinn lá aðeins j í þunnu lagi miðsævis. — Hvernig getið þið greint ; það í sjóprufum, hvort um At- I lantshafssjó eða íshafssjó er að ræða? — Það finnur maður á hita sjávarins og seltumagni. í At- lantshafssjó er meira en 35%0 af salti, en íshafssjór er ósalt- ari, enda blandaður leysinga- vatni frá ísnum. Sje svo að til dæmis veru- legur hluti af átumagni síldar | þurfi að berast með Atlants- hafssjó á Norðurlandsmið, þá er það augljóst mál, að það getur haft úrslitaþýðingu, hve mikið þar er af Atlantshafs- sjó á vertíðinni. En ef ekki koma fleiri vik- urgos úr Heklu í þetta sinn, er ná á sjó út, þá getur Heklu- gosið gefið okkur handhægar leiðbeiningar um það, hve fljótt sjórinn berst frá suður- ströndinni til Norðurlandsins, með því að fylgja þyí eftir, hve vikurinn í sjónum er lengi á leiðinni norður eftir:' Annars hefi jeg gert ráð- stafanir til þess að fá mikið af flöskum, til þess að varpa hjer í sjóinn á vissum tímum, svo ITægt verði að rannsaka straum ana nánar en gert hefur verið. — Hefur ekki komið til orða, að Norðmenn reyndu að elta síldargöngurnar, er síldin hverf ur af miðum þeirra að lokinni vertíð þar? — Mjer skilst að Norðmenn sjeu staðráðnir í því, að spara hvorki fje eða -fyrirhöfn við rannsóknir á göngum nytja- fiska sinna. Munu þeir gera allt, sem í þeirra valdi stend- ur, til að koma upp svo hald- góðum rannsóknum, að þær fyrr en síðar geti orðið útgerð þeirra að miklu liði. Þeir elta nú þorsktorfurnar með berg- málsdýptarmæli og gefa út til- kynningar um það, hvar þorsk torfur hafa íundist í sjónum, líkt og gefnar eru út veður- , -v spar. — Er ekki hægt að beita s'vipaðri aðferð við síldveið- arnar? — Lítil íslensk reynsla er fyrir því _ennþá, því bergmáls- mælar hafa ekki verið notað- ir hjer við síldveiðar svo mjer sje kunnugt, nema hjerna í Sundunum í vetur. Nokkrir bátar, sem stunduðu þessar veiðar, köstuðu aldrei fyrir síld, nema eftir vísbendingum, sem þeir höfðu aflað sjer með bergmálSmæli sínum. Mjer er ekki kunnugt um, að þetta hafi tekist á Norðurlands miðunum, minsta kosti virðist það vera þar miklu erfiðara en það reyndist hjer á Sundunum. Hjer er um veiðiaðferð að ræða, sem menn verða að leggja mikla stund á að kynna sjer. — Jeg vil því beina al- varlegri áskorun til skip- stjóra sem nota bergmálsmæia við síldveiðar, að fleygja ekki línuritunum og • haldæ þeim saman, svo hægt sje að vinna úr þeim síðan. Og að þeir gefi upplýsingar um, hvaða teg'und ir af bergmálsmælum reynast best. Jeg vil _ að endingu biðja blaðið að flytja Eiríki Kristó- ferssyni, sk-ipherra á Ægi; og starfsfólki varðskipsins og öðr um, sem hafa aðstoðað mig við rannsóknir mínar undanfarinn mánuð, þakklæti mitt fyrir lipurð og góða aðstoð. Á með- an hjer er ekki til rannsókn- arskip, sem hægt er að nota eins og best hentar fyrri athug- anir okkar, verðum við að sæta lagi og komast með skipum eftir því sem ferðir þeirra falla. En meðan svo er verða rann- sóknirnar slitróttar og hætt við að þær komi seint að fuliu gagni. V. St. Barnasýning Leikfjelagsins: ÁtFMELL Æfintfraieikur eflir Óskar Kjarfansson LEIKFJELAG Reykjavík- ur hefur um þessar mundir sýningar fyrir börn á ævin- týraleiknum ,,Á]fafell“, eftir óskar Kjártansson. Höfund- urinn, sem ljest fyrir 10 ár- um síðan, aðeins rúmlega | hálfþrítugur, hóf sn?mma skáldferil sinn, eða töluvert innan við tvítugt. — Samdi hann aðallega ævintýraleiki og voru margir þeirra leiknir hjer, fyrst á vegum Litla leikfjelagsins og síðar tók Leikfjelag Reykjavíkur nokk ur af leikritum hans til sýn- ingá. Frumsýning á ,,Álfafelli“ fór fram í Iðnó síðastliðinn sunnudag fyrir þjettskipuðu húsi ungra áhorfenda er biðu þess með mikilli eftii’vænt- ingu að~ tjaldið væri dregið frá og þeim birtust þeir fögru ævintýraheimar, sem þeir höfðu lesið um og sjeð í draumum sínum. Mátti þar sjá bros á mörgu andliti, en ekki var heldur laust við að lesa mætti ótta á einstaka andliti þegar Krummi svart- álfur birtist fyrst á sviðinu, en er frá leið virtist mjer hann verða eftirlæti allra hinna ungu áhorfenda. Þó er jeg ekki frá því að þeim hafi þótt Bárður, — Aula-Bárður, eins og hann nefndi sig, enn þá skemmtilegri, enda var hann bráðfjörugur og besti karl, þó umskiftingur væri. . Margir hinna ungu liðs- manna Leikfjelagsins fóru þarna með hlutverk. Meðal þeirra voru hinir góðkunna leikarar Þorgrímur Einars- son, er ljek Sval, álfaprins, Rúrik Haraldsson, er Ijek Álfa-biskupinn og Róbert Am finnsson, er fór með hlutverk ölafs, hins mennska. Unnusta hans, SigTÚnu ljek frk. Sig- rlður Hagalín, Krumma svartálf Einar Ingi Sigurðs- son, en Aula Bárð Haraldur Adolfsson, er fór sjerstak- lega skemmtilega með hlut- verk sitt. » Þarna voru Iíka álfaprins- essan Frostrós og álfameyj- arnar Tunglsljós og Stjarn- dís, ^eins fagrar og nöfnia benda til, og auk þess litlir og yndislegir ljósálfar «er stigu dans. — Af öllu þessu má marka að það er ekki Framh. á bls. 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.