Morgunblaðið - 27.04.1947, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 27. apríl 1947
Sigurður Eriendsson hreppstjóri
á Stóru Ciijá sextíu ára
Á MORGUN þ. 28. apríl, er
sextíu ára einn af merkustu
bændum í Húnavatnssýslu, Sig-
urður Erlendsson hreppstjóri á
Stóru-Giljá í Þingi. Hann er
fæddur á Beinakeldu 28. april
1887, sonur hjónanna Erlendar
Eysteinssonar og Ástríðar Sig-
urðardóttur, er lengi bjuggu á
Beinakeldu. Er Sigurður elstur
þeirra Beinakeldubræðra, sem
allir eru merkir menn.
Faðir þeirra fjell frá, er Sig-
urður var um fermingaraldur
og'reyndi strax á hann sem for-
Stöðumann fyrir heimili móður
sinnar og systkina. Kom brátt
í ljós, að þar var enginn meðal
maður, enda hefir reynslan
sýnt altaf síðan, að hann st^nd-
ur flestum framar að dugnaði
og fyrirhyggju.
Árið 1916 flutti Sigurður að
Stóru-Giljá og hefir búið þar
síðan að nokkru leyti fjelags-
búi með bróður sínum, Jóhann-
esi.
Á Beinakeldu hafði Sigurður
ásamt Eysteini bróður sínum
komið í verk miklum og merki-
legum umbótum, en hans aðal-
lífsstarf hefir verið á Stóru-
Giljá. Hefir sú jörð tekið meiri
stakkaskiftum í höndum þeirra
B
( Auglýsendur
1 athugið!
I
| að Isafold og Vörður er
| vinsælasta og fjölbreytt-
| asta blaðið í sveitum lands
| ins. Kemur út einu sinni
C
Æ s í viku — 16 síður.
* i
e
bræðra en flestar aðrar á landi
voru síðustu 30 árin, með mikl-
um byggingum, vatnsrafstöð og
stórfeldri ræktun. Hefir þar
verið einhver mesti fyrirmynd-
ar búskapur í Húnavatnssýslu.
Eiga þeir bræður báðir að því
sinn góða hlut. En út á við hef-
ir Sigurður jafnan verið meiri
forustumaður, enda hafa hlað-
ist á hann mörg og mikil opin-
ber störf og traust hans farið
vaxandi. Fer svo um þá menn
eina, sem leggja sig fram með
áhuga og dugnaði og sem aldrei
bregðast annara trúnaði. — Á
það við í besta skilningi um
Sigurð Erlendsson. Hann er nú
bæði oddviti og hreppstjóri
sveitar sinnar. Héfir mjög lengi
verið í hreppsnefnd og stjórn
Búnaðarfjelags Torfalækjar-
hrepps. Um skeið var hann í
stjórn Kaupfjelags Húnvetn-
inga, deildarstjóri þess mjög
lengi og ýmsum öðrum störf-
um hefir hann gegnt fyrir sveit
sína og sýslu.
Sigurður er glaðlyndur mað-
ur og bjartsýnn. Honum er
gjarnast að draga fram bjartari
hliðina á hverju máli og gera
sem minst úr skuggum og örð-
ugleikum. Hann er með afbrigð
um ósjerhlífinn og atorkufullur
til hvers konar nytjaverka og
hjálpsamur við aðra menn svo
af ber.
Hann nýtur líka almennra
vinsæla í hjeraði sínu, og öll
þess framfaramál eiga traust-
an liðsmann þar sem hann er.
Á þessum merku tímamótum
æfirinar sendi jeg Sigurði á
I Giljá hlýja kveðju, með kærum
i þökkum fyrir vináttu og mann-
i dáð og einlægum óskum um
gleði og hamingju á komandi
árum.
Undir það veit jeg að mjög
margir aðrir taka.
Reykjavík, 27. apríl 1947.
Starfsstúlku
vantar á Kleppsspítalann. Upplýsingar í síma 2819.
Frú Guðrún Breiðfjörð
Á MORGUN kl. 4 síðd. verð-
ur útför frú Guðrúnar Breið-
fjörð frá Fríkirkjunni. Hún
Ijest hinn 16. þ. m. éftir þunga
legu, en fædd var hún að Hörgs
dal á Síðu 13. júlí 1880. For-
aldrar hennar voru þau Hörgs
dalshjón Bjarni hreppstjóri
Bjarnason (á Keldunúpi) og
síðari kona hafns, Helga Páls-
dóttir prófasts. Er cfþarfi að
rekja þær kunnu ættir hjer.
Guðrún var ekki gömul, er
hún fór úr foreldrahúsum,
fyrst að Kirkjubæjarklauslri
til sýslumannshjón.anna, Guð-
laugs Guðmundssonar og frú-
ar hans, en fám árum síðar
fluttist hún hingað til Reykja
víkur og var um hríð að kkeð-
skeranámi, og fyrir rúmum 40
árum gekk hún að eiga Guð-
mund Breiðfjörð, er hjer hefir
rekið blikksmiðju, sem lengst
af hefir verið og er enn við
Laufásveg 4. En þar hefir og
■heimili þeirra hjóna verið lengst
um. Börn þeirra hjóna eru 2:
Dórotea, gift Þorsteini Ö. Step
hensen leikara og Agnar blikk
smíðameistari, kvæntur Ólafíu
Bogadóttur. Þá hafa þau og al
ið upp Ágústu Jónasdóttur,
gifta Jóni Bergmanri gjaldk. En
auk þess hafa margir verið á
heimili þeirra lengur eða skem
ur. —
Guðrún Breiðfjörð var fríð
kona og fyrirmannleg, hóg-
vær og glöð í lund, og hafði
ýmsa þá kosti, er til mestrar
prýði má telja: Hún var úr-
ræðagóð og hjálpsöm, gestris-
in og ráðsvinn. Heimilisstjórn-
in fór henni jafnan frábæri-
lega vel úr hendi; er víst ó-
hætt að segja, að þau hjón hafi
verið samhent í besta lagi um
alla hluti og fyrirhyggjusöm,
enda bar heimilið þess órækan
vott. Munu nú margir sakna
hinnar mætu húsfreyju, sem
þar skipaði sinn sess með á-
gætum og í öllu vildi halda
uppi heiðri heimilisins, bæði
> -
gagnvart eiginmanni og börn-
um, sem og hinum mörgu, er
þar bar að garði. Minningu
hennar blessa allir, sem til
hennar þektu og votta ástvin-
unum einlæga samúð sína.
Vinur.
Sveikst undan herþjónustu
WASHINGTON: Alþ j óða-
fjármálamaðurinn Serge Rub
enstein hefur í Bandaríkjun-
um verið dæmdur í 50,000
dollara sekt og 2 V2 árs fang-
elsi, fyrir að svíkjast undan
herþjónustu.
- Álfafel!
Framn. af bls. 't
einskisvert að koma í Iðnó
og horfa á „Álfafell“.
Jón Aðils hefur sett leik-
inn á svið og annast leik-
stjórn. Hefur honum hvor-
tveggja vel tekist.
Sigurður Grímsson.
Eggert Claessen
Gústaf A. Sveinsson
hæstar j ettarlögmenn
Oddfellowhúsið. — Sími 1171.
Allskonar lögfræðistörf.
20 ára afmælisfagnað
heldur Sundfjelagið Ægir í Tjarnarkaffé 1. maí, og
hefst með borðhaldi klukkan 7.
Stjórnin.
Framh. af bls. 5
Páll Guðfinnur Jónsson, Suður
götu 10
Sighvatur Birgir Emilsson,
Kirkjuveg 7
Sigmar Sigfússon, Norðurbr.
Sigurður V. Hjartarson, Hverfis
götu 18B
Sigurjón Ingvarsson, Garðaveg
5
Tómas B. A. Högnason, Hlíðar
braut 7
Þórður Jón Þorvarðarson, Jó-
fríðarst. v. 2
Þorleifur Jónsson, Selvogsg. 4
Þorvaldur Sigurður Þorvalds-
son, Brekkug. 10
Stúlkur:
Aðalbjörg Björnsdóttir, Sel-
vogsgötu 19
Aðalheiður Guðrún Alexand-
ersdóttir, Dvergasteini
Ásta Jósefsdóttir, Pálshúsum
Ásthildur Ólafsdóttir, Tjarnar-
braut '11
Auður Sigurðardóttir, Hamars
braut 11
Elín Sigríður Jónsdóttir, Urð-
arstíg 8
Guðbjörg Breiðfjörð Sigurðar-
dóttir, Hverfisg. 62
Guðbjörg Ástvaldsdóttir, Sel-
vogsgötu 16
Guðleif Jóhannesdóttir, Hellis-
gö.tu 5B
Guðmunda Kristín Bjarnadótt-
ir, Strandgötu 50
Guðiúður Jónsdóttir, Hverfisg.
35C
Halldóra Elsa Erlendsdóttir,
Reykjavíkurveg 26
Hólmfríður Margrjet Jóhanns-
dóttir, Öldug. 27
Hrafnhildur Inga Guðjónsdótt-
ir, Gunnarssundi 6
Katrín Káradóttir, Hverfisg. 5
Kristín Irigvarsdóttir, Garðav. 5
Ragnheiður Benediktsdóttir,
Vesturbraut 7
Sigríður Guðbjörnsdóttir, Lang
eyri
Sigrún Kristín Jónsdóttir, Hverf
isg. 10
Sigurbjört Vigdís Björnsdóttir,
Breiðabólsstað
Sólveig Ásgeirsdóttir, Brekku-
götu 24
Steinunn Jónsdóttir, Öldug. 12
Þóra Sigurjónsdóttir, Suðurg.
54
'h’
Skeytasímar Ritsímans vegna
fermingarskeyta eru 1020, 7003
og 7004. — Skeyti, sem koma
tímanlega berast fljótt til ferm
ingarbarnanna. ->
/
X-9 £ £ . £ £ £ Eflir Roberf Sform
u I
',0UR SHARE OF.
WMAT DOUGH?
F VOU OUARANTEED TO BEAT
THE RAP FOR ME iF i'D 5PLIT
THE HOT HAUL WITH T0U...$AlD
YOU HAD THE JUDöE'ó BENCH
Pleed: Hvaða peninga ertu að tala um? — Kalli:
Vertu ekki að reyna að kjafta þig út úr þessu, Pleed:
Þú lofaðir því, að fá mig sýknaðan, ef jeg vildi láta
þig fá helminginn af þýfinu. Þú sagðir, að þú þektir
dómarana . . . . En eftir að jeg var kominn í stein-
inn, tókstu þá ákvörðun að hirða allt saman. Og
nú vil jeg fá minn hluta!
)