Morgunblaðið - 30.04.1947, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.04.1947, Blaðsíða 10
10 .MiijSvikudagur 30. apríl 194,7 Minningarorð ÞEIM fer nú óðum fækk- andi, smábændunum, sem fyrrum háðu lifsbaráttu sína uppbóta og styrktarlaust á kotunum í nágrenni Reykja- víkur. — Einn þessarra gömlu bænda, Helgi Sigurðsson, er til grafar borinn í dag, að loknu löngu og erfiðu dagsverki. tlelgi Sigurðsson fæddist að Holtakotum í Biskupstungum hinn 29. apríl 1861, sonur hjónanna Sigurðar bónda Guð mundssonar, fjárríka Eiriks- sonar og Guðrúnar Þorláks- dóttur. Börn þeirra Sigurðar og Guðrúnar voru 17 talsins, en nú eru aðeins 4 þeirra lif- andi, öll Reykvíkingum að góðu kunn, þau María kona Páls Gestssonar fyrrum bónda að Eiði í Mosfellssveit, Sigur- jón og Flosi trjesmíðameistar- ar og Guðmundur bóndi að Lögbergi, sem er yngstur þeirra systkina, rúmlega sjö. tugur nú. Þau Sigurður og Guðrún fluttust 1873 í Gröf í Mos- fellssveit (nú Grafarholt) og fylgdist Helgi með þeim suð- ur. — Helgi heitinn hóf bú- skap að Lækjarkoti í Mosfells- sveit, en það er nú löngu horf- ið undir Lágafell: Þaðan flutt- ist hann að Kópavogi og bjó þar í mörg ár áður en hann fluttist til Reykjavíkur. Hug- ur Helga stóð þó alla tíð til búskapar og ekki leið á löngu þar til moldin og grösin kall- aði hann aftur til sín og hann hóf búskap að nýju, en ekki fór hann þó lengra en að Leynimýri sunnan Öskjuhlíð- ar. Þar bjó hann í 12 ár. Hann var nú kominn hátt á áttræðis aldur og kraftarnir teknir að þverra. Hoilsa hans hafði aldrei verið góð, en með há- um aldri hnignaði henni óð- um. Helgi var tvíkvæntur. Var fyrri kona hans Halldóra Ein- arsdóttir frá Hvassahrauni, fædd 18. jan. 1868, dáin 11. febr. 1904. Þau eignuðust 4 börn, en tvö þeirra dóu ung. Þau sem lifa eru þau Jóhann, giftur Guðrúnu Helgadóttur (eru búsett í Hafharfirði) og Anna, gift Pálmari Sigurðs- syni rafvirkja í Reykjavík. — Himi 20. nóvember 1908 gift- ist Helgi eftirlifandi ekkju sinni, Kristjönu Jónsdóttur, hinni mestu dugnaðar og mannkostamanneskju. Er ó- hætt að segja, að betra gat val Helga ekki verið, slík kona reyndist Kristjana Helga heitnum. Fór saman hjá henni einsdæma dugnaður til allra verka og umhyggja fyrir manni sinum og börnum hans. Þau eigntiðust tvo syni, Hall- dór (fæddur 1912, dáinn 1933) og Ingvar (fæddur 1918 dáinn 1943) og að Ingvari látnum tóku þau son hans, sem nú er þriggja ára, til fóst urs. Sýnir það ræktarsemi þeirra, þótt bæði, en þó eink- um Helgi, væri nokkuð við ;aldur. — Síðustu 35 árin var •heilsa hans ljeleg, en hann bar það allt með mestu stillingu, enda naut hann þá best hinn- ar ágætu konu sinnar. öllu því, að höndum bar, tók Helgi með þeirri ró og festu, sem einkenndi hann allt fram í andlátið. Flann var hið mesta prúðmenni og drengur góður í þess orðs fyllstu merkingu. Glaður var hann viðmóts og |vjek jafnan góðu að öllum. Hann andaðist 18. apríl s. 1. Enda þótt þungur harmur sje kveðinn að, ástvinum hans, gleður þá þó minning um góð- an mann. Otto N. Þorláksson. Fjársöfnun „Hlífar" á Akureýri KVENFJELAGIÐ Hlíf á Akureyri efndi til fjársöfnun- ar á sumardaginn fyrsta, eins og að undanförnu með merkja- sölu, basar, kaffisölu og kvöld- skemmtun. Var þar til skemmt- unar söngur tveggja ungra stúlkna úr Menntaskólanúm, -þeirra Guðrúnar ' Tómasdóttur og Jóhönnu Friðriksdóttur. Úndirleik annaðist Þórgunnur Ingimundardóttir. Edda Schev- ing las upp, frú Sigríður Schiö- th og Jóhann Guðmundsson sungu tvísöng með undirleik frú Elsu Blöndal, Lýður -Sig- tryggsson lj«k á harmoníku og sjónleikurinn „Misskilningur á misskilning ofan“ leikinn af fjelagskonum sjálfum. Síðan var stiginn dans. Fjársöfnunin gekk óvenju- vel aíð þessu sinni, og sýndu bæjarbúar mikinn skilning á nauðsyn þess málefnis, sem fjelagið berst fyrir, sem er að koma á stofn sumarheimili fyr- ir börn á Akureyri. Þess skal loks getið að fjelag- inu barst nýlega vegleg gjöf til styrktarstarfsemi þess frá h.f. Amaro, er var 10,000 krónur í peningum. — H. Vald. Leiðrjelling Herra riístjóri. ÞAÐ eru vinsamleg tilmæli mín, að í sambandi við slys það, er varð í Hvalfirði, og get ið er um í blaði yðar 29. apríl, ^erði leiðrjett, að umræddur bíll, er nefndur var í frjettinni var ekki frá hinu nýstofnaða Hvalveiðifjelagi og algerlega óviðkomandi fjelaginu. Með þökk fyrir birtinguna. Jón Markússon. MORQUNBþAÐIÐ l ? : .1 i L i t - • t > kvöld Einars Krist- jánssoaar SÍÐASTLIÐINN föstudag áttu Reykjavíkurbúar enn kost á því að hlíða á Einai Kristjánsson tenórsöngvara, sem er nýlega kominn heim úr söngför í Svíþjóð og Danmörku, þar sem hann vakti mikla at- hygli með list sinni. Einar varð mörgum kær söngvari þegar hann var hjer heima síðast og hjelt margar söngskemmtanir við mikla aðsókn óg hrifningu áheyrenda. Einar brást ekki vonum manna heldur að þessu sinni og mun það vera álit flestra dómbærra mann að þjóðin hafi á?tæðu til að gera sjer miklar vonir um hann s©m glæsilegan og vaxandi söngvara óg að hann muni ekki bregðast köllun sinni sem listamaður. Á söngskránni voru að þessu sinni tveir flokkar úrvalslaga eftir Schubert og Brahms, flokk ur íslenskra laga, Bikarinn eft- ir Markús Kristjánsson, sígilt lag, Söknuður eftir Hallgrím Helgason, einkar hugþekkt lag, Meðaíið eftir Árna. Thorsteins- son og Hamraborgin eftir Sig- vulda Kaldalóns. Auk þeSs söng Einar aríur úr La Bohéme og Turandot eftir Puccini og Pagliacci eftir Leoncavallo. Einar hefir lagt sjerlega mikla rækt við vandaða með- forð hugþekkra smálaga. Ein- hverjir munu því máske vilja líta SVO á að hann væri ekki hlutgengur þar sem á reynir í stórverkum í óperuhöllum heimsins. Þeim mönnum væri holt að hlýða á meðferð hans á fyrnefndum aríum, sem -var í senn fáguð, glæsileg og tilþrifa mikil. Sjerhvert tónverk hefir sína sál og tjáningu að flytja og sönglist Einars Kristjánsson- ar er brigðalaus þjónusta við túlkun þeirrar tjáningar, vax- in upp af glæsilegum hæfileik- um, miklum lærdómi ig tvú- mennsku við listina. Vikar. !i m mynan fyrir S.Þ. — Isbskum iistamðnnuDi boðin þátttaka UPPLÝSINGASKRIFSTOFA Sameinuðu þjóðanna efnir til alþjóðasamkeppni um litmyndir sem sýni á táknrænan hátt ein- hvern þátt úr markmiði S. Þ. eins og það er framsett í inngangi í sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Myndirnar skulu vera 41X1 53 cm. að stærð, óupplímdar og sljettar (ekki samanvafð- ar), á þeim má ekkert sýnilegt merki vera, en aftan á þær skal skráð nafn, þjóðerni og heim- ilisfang iisfamannsins, en hvít- ur pappír festur yfir það, svo ekki sjáist nafnið í gegn. Myndirnar mega vera í alt að sex litum (svart méð talið). Þar sem prenta á myndirnar fyrir ýmsar þjóðir, verður texti að vera stuttorður og gagnorður ef hann er nokkur, Það sem ^myndirnar tákna verður að vera skiljanlegt öll- um og ekki eiga frekar við eina þjóð en aðra. . Myndirnar á’að dæma bæði eftir listgildi þeírra og boð- skap J)eim sem þær híifa að flytja. Islenskir listamenn fá tækifæri til þátttöku. Hver maður má aðeins senda eina mýnd> Þátltakendur skulu vera.ísl. ríkisborgarar. Dómnefnd í hverju landi dæm ir myndir þær, sem þar koma fram og sendir síðan þrjár þær bestu til ajðalskrifstofu S. Þ. í New York, en alþjóðanefndih dæmir síðan endanlega um þær. i 1. verðlaun 0750 krónur. Verðlaun eru: 1 : $1500, 2 : $1000, 3 :500 og 10 aukaverð- laun að upphæð $100. Verðlaun ; aðar myndir verða eign S. Þ., en aðrar endursendar lista- mönnunum. I dómnefnd hjer eru: ~ Rektor háskólans próf. Olaf- ur Lárusson. Formaður fjel. ísl. myndlista manna Sigurjón Olafsson. Formaður fjel. ísl. húsameist ara, Gunnlaugur Halldórsson. - Formaður fjel. ísl. blaða- manna, Bjarni Guðmundsson. Myndirnar sendist til Rotafy umdæmisins á íslandi, c/o Helgi Tómasson, Kleppi, fyrir 10. maí 1947. Bretar hóta flutnin iáii ivia í Herford í gærkvöldi. , Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. SAMKVÆMT áreiðanlegum heimildum, munu Bretar hafa 'lkynnt Rúsum, að allar vöruflutningar milli breska og rúss- j ne ;ka hernámssvæðisins verði stöðvaðir, nema þúsundum ' eskra járnbrautarvagna, sem Rússar hafa komist yfir, verði skilað fyrir lok næsta mánaðar. BIÐSKÁKIR úr fyrstu og annari umferð landsliðskeppn innar í skák hafa nú verið tefldar. Biðskák þeirra Hjálm ars Theódórssonar og Guð- mundar Arnlaugssonar úr fyrstu umferð lauk með jafn- tefli. Biðskákir úr annari um ferð, fóru svo, að Jón Þorsteins son vann Sturlu Pjeturson og þeir Guðmundur S. Guðmunds son og Guðmundur Arnlaugs- son gerðu jafntefli. Með þessum biðskákum er nú lokið við tvær umferðir keppninnar og er Baldur Möll er efstur, með 2 vinninga. 1 kvöld verður þriðja um- ferð tefld þá mætast Sturla og Hjálmar, Guðmundur Arn- laugsson og Baldur Möller, Jón Þorsteinsson og Guðmundur S. Keppnin hefst kl. 8 í Kaup- þingssalnum. Getur komið Rússum illa. ^ I sömu fregn er sagt, að þetta mundi í raun og veru þýða álgera stöðvun á viðskift um hernámssvæðanna, og koma Rússum illa, þar sem þeir mundu þá ekki geta feng- ið kol þau og stál, sem þeir þarfnast svo mjög frá Ruhr. 12,600 vagnar. Sagt er að Rússar neiti að skila 12,600 flutningavögnum, sem tilheyri breska hernáms- svæðinu, en þetta mun yera nálægt því 7% af vögnum her námshlutans Hafa Rússar ekki svarað margendurteknum til- mælum um að vögnunum verði skilað, og bresku her- námsyfirvöldin hafa nú kom- ist að þeirri niðurstöðu, að ekkert annað sje að gera en að stöðva flutninga milli hernáms svæðanna, ef Rússar halda áfram að halda vögnunum. STASSEN KOMINN HEIM NEW YORIf: — Stassen, leiðtogi rupublikana, er kom- inn hingað til New York eftir ferð sína um Evrópu, þar sem hann meðal annars ræddi við Stalin marskálk. trúlofunar iringunum trá ■ Sigurþór fiafnarstr. 4 Heykjavik Margar gerðir, Sendir geqn póstkröju hveri d innrí *em er — Senrírf' n/íkivnmt mál —•

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.