Morgunblaðið - 10.05.1947, Page 2
s
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 10. maí 1947!
A
var til 3. umr.
Frv. hefir dregist nokkuð sök
um þess að ríkisstjórnin hefir
haft málið til athugunar.
Samkvæmt ósk ríkisstjórnar-
innar bar landbúaðarnefnd
fram brtt. við 8. gr. frv. þess
efniS að í stað þess að Seðla-
deild Landsbankans skuli skylt
að lána Ræktunarsjóðnum 10
milj. kr. komi svohljóðandi á-
kvæði:
..Ríkissjóður aflar Ræktunar-
sjóði lánsfjár að upphæð 10
milj. kr. með 1V2% vöxtum.
Sjóðurinn endurgreiðir lánið
með jöfnum afborgunum á 20
árum.
Þó er seðladeild L. í. skylt,
ef ríkisstjórnin óskar heldur ,að
Útvega lánsfjeð á þann hátt,“
o. s. frv..
Tillaga þessi var samþykt
ásamt öðrum brtt. nefndarinnar
Dagsbrúnarmenn vilja ekkl
verkfall til að koma Áka og
fjelögum hans ti! valda á ný
FYRIR nokkrum árum efndi
Haukur Björnsson til bókasýn-
ingar hjer í bæ. í því skyni
leigði hann stóra salinn á Hótel
Heklu og samdi við mörg bóka-
forlög um að sýna þar bækur
sínar gegn ærnu gjaldi.
Bókaþekkingin var þó ekki
meiri en svo, að í skrá yfir
bókmenntafjelög landsmanna
gleymdist hið elsta og merkasta
þeirra, sjálft Hið íslenska bók-
menntafjelag. Skilvísin var slík,
að svikist 'var um að greiða leig
una samkvæmt því, sem um var
samið.
Aumir erindrekar
Ræktunarsjóður
NOKKR-AR deilur urðu í gær
í Nd. utn Ræktönarsjóðinn, sém
Tillaga Jóns Pálmasonar.
Jón Pálmason bar fram brtt.
þess efnis að árlegt framlag
ríkissjóðs til Ræktunarsjóðs
yrði hækkað úr V2 milj. í 1.
milj. kr.
Jón skýrði frá því að land-
, búnaðarnefnd hefði borist brjef
frá Búnaðarfjelagi íslands með
ályktun frá Búnaðarþingi, þar
sem farið er fram á að þetta
framlag sje hækkað í 2 milj. kr.
Kvaðst Jón vona að ekki
þætti frekt farið þótt fram-
lagið yrði hækkað aðeins í 1.
zniljón, svo mjög sem þörfin
væri brýn,.
Landbúnaðarráðherra Bjarni
Asgeirsson og Steingr. Stein-
þórsson lögðust á móti þessari
breytingartillögu.
Sögðu að það væri ekki hægt
vegna samkomulags er gert
hafði verið er núverandi stjórn
var mynduð.
Jón Pálmason minnti á að
í fyrra er þetta mál var á dag-
skrá þá báru þeir B. Á. o. fl.
^*fram samskonar hækkunartill.,
sem leiddi til þess að málið
stöðvaðist, vegna þess að kom-
ið var að þingslitum. Nú væri
öðru máli að gegna, því að
fullvíst væri, að enn ætti þing-
ið nokkra setu fyrir höndum.
Ennfremur mætti minna á, að
Bjarni Ásgeírsson væri forseti
búnaðarþings, sem fyrir skömu
samþykkti með öllum atkvæð-
um að mælast til þess að fram
lag ríkissjóðs yrði hækkað í 2.
milj. kr.
Hjer væri því nokkuð ó-
samræmi, þar sem Búnaðar-
þing vildi fjórfalda framlagið,
en þegar einungis væri farið
fram á að tvöfalda það, þá legð
ist Bjarni Ásgeilsson, forseti
Búnaðarþings gegn því.
Ef þessir menn væru bundnir
af samkomulagi vegna núver-
andi stjórnarsamnings, þá yrði
þeir einnig að láta samkomu-
Svo fóru leikar að brtt. Jóns
Pálmasonar var felld með 17:5
atkv. Frv. var samþ. til Ed.
Menningarfulltrúi Áka.
Allir vita, að af engu státa.
kommúnistar nú meira en menn
•ingarvináttu sinni. Einn af
helstu og framkvæmdarsömustu
menningarfrömuðum í þeim
hóp, er Haukur Björnsson. Hef-
ir hann um margra ára bil
hs,ft náið samstarf við Áka
Jákobsson og aðra leiðtoga
kommúnistaflokksins. Hvort
Áki hefir verið þátttakandi í
því menningarafreki, sem bóka
sýningin var, skal eigi sagt.
Hitt er víst, að Hauk þenna hef-
ir hann valið til að vera sjer-
stakan fulltrúa sinn úti í lönd-
um.
Þegar Keflavíkursamningur-
inn var til umræðu í haust sím-
aði Áki Jakobsson í ofboði til
Hauks, sem þá var staddur í
Gautaborg, og sendi hann hrað-
ferð til Stokkhólms til að ginna
íslenska stúdenta þar til að sam
þykkja tillögu gegn samnings-
gerðinni. Ekki er kunnugt, hver
borgaði þann ferðareikning, en
sjálfsagt hefir Haukur ekki ferð
ast ókeypis frekar. en sá, er
sendi hann. Úr því, að Áki
Jakobsson gat krafist kr. 18,800
í ferðakostnað innanlands á
einu ári, fyrir utan kostnað af
stjórnarbílnum, þá má nærri
geta, að eitthvað hefir fjelagi
hans heimtað í sinn hlut fyrir
margfalt lengri ferðir en sjálf-
ur höfuðpaurinn.
Áki segist hafa farið ókeýpis
til Sandgerðis.
Annars neitar Áki Jakobs-
son nú öllu sambandi við Hauk.
Alveg eins og hann neitar að
hafa sent reikning fyrir ferð
suður' í Sandgerði, þó að hann
treysti sjer ekki til að neita
reikningsgerð sinni í heild.
En a( hverju synjar Áki frek
ar fyrir samneyti sitt við Hauk
Björnsson og Godtfredsen en
við aðra sendimenn sína? Og af
hverju þykir honum svívirði-
legra að senda reikning fyrir
Sandgerðisförinná en aðrar
ferðir sínar? Úr því að Áki
neitar að hafa eytt 3000 kr. í
Sandgerðisförina, af hverju
segir hann ekki frá, hvert för-
inni var heitið, sem hann heimt
ar þessa skildinga fyrir?
Tunnulcgátax-nir
í Póllandi.
Annars er sitthvaði að segja
af ferðum fleiri le.gáta Áka
Jakobssonar en þeirra Hauks
og Godtfredsens.
Tveir úr þessari hjörð voru
sendir til Póllands á s. 1. sumri
og annar þeirra dvaldi Þar
langt fram á vetur. Þessir heið-
ursmenn skyldu meðal annars
útvega síldart.unnur.
í september eða október
höfðu þeir samband við mikinn
síldartunnuframleiðand.a austur
þar. Hann vildi greiða fyrir
eripdi þeirra og lofaði öðrum
þeirra ,.persónulega“, að hann
skyldi halda eftir einhverju af
tunnmn fyrir íslendinga fram
yfir áramót. En jafnframt
skýrði hann þeim frá, að mikil
ásókn væri í síldartunnur frá
Norðmönnjum og Svíum.
Af þessum sökum komust er-
indrekarnir að þeirri niðurstöðu
„að málinu þyrfti að fylgja
vel eftir“, ef vpn ætti að vera
um að fá tunnurnar. Er þessa
sjerstaklega getið í skýrslu
þeirri, sexfi kom frá erindrek-
anum, er • „pers.ónulegt“ loforð
hafði fengið um, að einhverju
af tunnum skyldi haldið eftir;
fram yfir áramót. Eini gallinn
var sá, að skýrsluna „gleymd-
ist“ að gefa fyrr en í upphafi
marsmánaðar, eða löngu eftir
að allar tunnur voru á þrotum
í Pollandi.
Það er ekki ónýtt að kosta
mörgum tugum þúsunda í slík-
an erindisrekstur og ekki er
furða þó að Áki Jakobsson láti
mikið yfir árvekni sinni og
erindreka sinna í útvegun á
nauðsynjum útvegsins.
Jóhann Jósefsson bætir úr
afglöpunum.
Þá eru vinnubrögðin ólík hjá
núverandi stjórn. Eftir að Áki
Jakobsson hafði haft her manns
á launum til að ferðast víða
um lönd í tunnuútvegun en alt
árr árangurs, fjekk Jóhann
Jósefsson fagmann til að fara
utan í þeim erindum, að bæta
úr afglöpum Áka og sendi-
manna hans.
Fagmanninum tókst, þrátt fyr
ir það þótt ekki væri hann eins
ferðavanur og erindrekar Áka,
að útvega marga tugi þúsunda
af síldartunnum. Á nokkrum
vikum bætti jiann þannig úr
brý'nni þörf og forðaði frá
nokkru af þeim voða, er leiddi
af glapræði Áka ^og fjelaga
hans.
Þegar Aki gleymdi að gera
kostnaðaráætlun.
Oll er ráðsmennska Áka Jak-
obssonar brennd með þessu
markinu. Sjálfur hefir hann sjer
til afsökunar sagt frá því í
útvarpi, að „ekki hafi unnist
tími til“ að gera kostnaðaráætl
un Ufn ÍDýggíngii síldarvefk-
smiðjahjia nýýú. Er þáð þó dýr-
asta mannvirki, sem stofnað
hefir verið til hjer á landi.
Nú er það að vísu rangt, að
engar áætlanir hafi verið gerð-
ar um þetta efni. En það er
önnur saga.
Meira íhugunarefni er það,
hvernig menn hyggja að fari
um áætlunarbúskap þjóðarinn-
ar í heild í 'höndum þeirra
manna, sem gefa sjer engan
tíma til að láta reikna út ein-
mitt það, sem grundvallarþýð-
ingu hefir um allar framkvæmd
ir, sem sje sjálfan kostnaðinn.
Svo eru það einmitt þessir
inenn, sem ætla sjer þá dul að
taka ráðin af borgurunum og
’segja hverjum fyrir hvað hann
megi gera.
«.
Áki gleymdi að útvega
peninga.
Ekki er að undra þó að erfið-
leikar verði á útlánastarfsemi
bankanna, þegar svona er stofn
að til þeirra framkvæmda, sem
kostnaðarsamastar eru. Fyrr-
verandi fjármálaráðherra, Pjet
ur Magnússon, varð áreiðan-
lega að fara marga miður geð-
felda ferðina til að útvega það,
sem Áki Jakobsson hafði gleymt
1
að tii framkvæmdanna þurftx,
sem sagt peningana.
Út yfir tók þó, þegar Áki
Jakobsson sendi menn erlendis
til þess að kdlxpa vjelar t. d.
í hersluverksmiðjuna, án þess
að hafa minnst á það feinu orði,
hvorki við fjármálaráðherra nje
þjóðbankann, að peninga yrði
að hafa til á tilteknum tíma,
til að leysa vjelarnar út.
Oll eru þessj atriði, hvort held
ur reikningsgerð Áka sjálfs,
erindrekar hans erlendis eða
undirbúningur stórfram-
kvæmda og fjárútvegun til
þeirra, með þeim hætti, að und-
arlegt er, að nokkur skuli ljá
sig til að verja þau.
Þau undur hafa samt skeð.
Kommúnistar hampa Áka.
Vei-kamenn fyrirlíta hann.
Því fer svo fjarri, að komm-
únistaflokkurinn geri sig lík-
legan til að hreinsa Áka af
sjer, eins og flokknum var bent
á, að hann ætti að gera, að
Þjóðviljinn hefir Áka einmitt
til skýjanna sem þann einstak-
asta reiðumann, sem nærri
fjármálum og framkvæmdum
hafi komið. Slík öfugmæli væri
hægt að teija mönnum trú um,
ef hjer á landi væri bönnuð
útgáfa allra annarra blaða en
kommúnista, svo sem kommún
ístar telja sjálfsagt að gera þar
sem þeir ráða. En úr því prent-
frelsið ræður hjer er#þetta von-
laust.
Þar sem kommúnistar vilja
sitja uppi með smánina af Áka,
er ekki annarra að fást um það.
Hift mega kommúnistar vita,
að reykvískur yerkalýður mun
ekki láta teyma sig út í vinnu-
stöðvun til að koma Áka Jakobs
svni og fjelögum hans til valda
á ný.
08 sveinar Ijúka
profi vií'6^ * j 1
Iðnskólann
IÐNSKÓLANUM í Reykja-
vík var sagt upp föstudaginn 2.
maí. I skólann innrituðust í
Vetur 910 nemendur, en 825
komu til náms. Af þeim luku
burtfararprófi 138. Sveinarnir
skiptast milli 29 iðngreina
þannig: Hárgrelðslustúlkur 14,
bifvjelavirkjar 5, rafvirkjar 12,
í-afvjelavirkjar 2, pípulagning-
armenn 3, húsgagnasmiðir 8,
ketil- og plötusmiðir 6, málm-
steypumenn 2, vjelvirkjar 11,
húsasmiðir 22, húsgagnabólstr-
ari 1, prentarar 10, múrarar 5,
hattasaumastúlka 1, málarar 6,
skipasmiður 1, prentmynda-
gerðarmenn 2, blikksmiðir 6,
gullsmiðir 3, bókbindarar 2,
bakarar 2, klæðskerar 2, úr-
smiðir 4, útvarpsvirki 1^» eir-
smiðir 2, hárskeri 1, járnsmið-
ir 2, rennismiður 1 og ljós-
myndasmiður 1.
Hæsta einkunn hlaut Ást-
valdur Jónsson, rafvirki, 9,91’
og er það hæsta einkunn, sem
hefir verið tekin frá skólanum
frá byrjun, í þau 43 ár, sem
hann hefir starfað. Næstur
varð Steinn Guðmundsson, raf-
virki, með 9,86. 30 nemendur
fengu verðlaun fyrir ástundun,'
framfarir og hegðun. Kennarar
við skólann voru í vetur 29, þar
af 4 fastir kennarar, að skóla-
stjóra meðtöldum.
Eftir skólapppsögn mættu
kennarar skólans, skólanefnd,
formaður Iðnaðarmannafje-
lagsins í Reykjavík, stjórn
Skólafjelagsins, sundflokkur-
inn, duksarnir o. fl. í kaffiboðí
hjá skóla^tjóra, og um kvöldið
hjelt skólafjelagið skemtisam-
komu í Sjálfstæðishúsinu og
bauð þangað skólastjóra, skrif-
stofustúlku og kennui’um skól-
ans.
Mgreiðslu breska
herskyldufrum-
varpslns miðar lílið
London í gærkvöldi.
NEÐRI málstofa breskai
þingsins hjelt enn áfram um-
ræðum um herskyldufrum-
varp stjórnarinnar i dag, og
er ekki enn sjeð fyrir endanní
á umræðunum, en þær erví
nú á fjórðá degi.
Stjórnin mun hafa gert sjerý
vonir um, að frumvarpið yrði
afgreitt í gær, en margskonar
málþóf hefur taíið afgreiðslu
þess, og sama var enn í dag.
Margskonar breytingartillög
ur hafa komið fram. — Var
meðal annars í dag rætt um
það, hvort skylda bæri erlenda1
verkamenn, sem komið hafa
til vinnu í Bretlandi, til að
gegna herþjónustu. Þá urðu
talsverðar deilur um' það,
hvort sjómenn á togurum,
verkamenn í baðmullarverk-<
smiðjum og verkfræðingar,
sem standa fyrir framleiðslui
kolavinnsluvjela, ættu ekki að
vera undanþegnir herskyldu a
friðartímum.
Umræðum vei’ður haldið á-
fram á morgun (laugardag)*
— Reuter. J
Bniarlög:
Frv. til búnaðarlaga var í
gær samþykkt sem lög. Sam-
kvæmt frv. eru 33 nýjár brýr
teknar upp í brúarlögin.
Gunnar Ólafsson héfir beðið
blaðið að geta þesS, að blaðið
„Skák“ sje honum alveg óvið-
komandi.