Morgunblaðið - 10.05.1947, Qupperneq 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Breytileg átt. Ilægvióri. Rign-
ing öðru hvoru.
VIÐSKIFTA- OG ATVINNU-
LÍF NORÐMANNA. Sjá grein
Skúla Skúlasonar á 9. síðu.
Laugardagur 10. maí 1947
Skúr Inyólís
Einarssonar
brunninn
KLUKKAN að gapga þrjú í
nótt varð maður, sem var á
leið heim til sín frá vinnu,
þess var, að eldur var kominn
upp í skúr' þeim, scm Ingólfur
Einarsson, járnsmiður, sá er
framdi hinn hryllilega verkn-
að í Skála 1 við Háteigsveg,
bjó í. —- Gerði maður þessi
lögreglunni þegar aðvart, og
komu auk þess nokkrir
slökkviliðsmenn á vettvang.
Maðurinn, sem eldsins varð
fyrst var, segir, að nokkrar
minniháftár sprengingar hafi
orðið í eldinum, en ekki er
vitað, af hverju þær liafi
stafað.
Skúrinn gereyoilagðist í eld
inum og munu hafa brunnið
alfar eigur Ingólfs þar.
Allar likur eru taldar til
þess, að um íkveikju hafi verið
að ræða.
Skymaster
♦
Aj þessari sömu geríí verSur hin nýja jlugvjol LoftleiSa.
einnig af þessari gcrð.
— „Flaggskip Reykjavík“ er
Souglasfiugvjel F.í.
fer fil Presfvíkur
idag
VEGNA mikillar eftirspurn-
ar á flugfari til Prestvíkur hef
ir Flugfjelag íslands ákveðið,
að önnur Douglasflugvjel fje-
lagsins skuli í dag fara eina
ferð til Prestvíkur. Með flug-
vjelinni verða 14 farþegar.
Skrifstofa F. í. skýrði blað-
inu svo frá í gær, að öll sæti
með flugvjelum fjelagsins til
Hafnar og Prestvíkur í þessum
mánuði væru pöntuð. Einnig
hefir mikill fjöldi fólks þegar
pantað far í júnímánuði.
^rjálsíþróffaæflngar
KR
K. R. HEFIR nú auglýst æf-
ingatöflu sína í frjálsum íþrótt
um.
Æfingarnar fara fram á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 8—10 e. h.,
þriðjudögum og fimtudögum
kl. 5—7, laugardögum kl. 3—5
og sunnudögum kl. 10—12 f. h.
Þá heldur fjelagið námskeið
í frjálsum íþróttum fyrir byrj-
endur, sem hefst á íþróttavell-
inum, n. k. mánudag- Kennari
fjelagsins er Benedikt Jakobs-
son.
„SKliASIEPi“-fl«gvjel Loftleiða
væntanleg í byrjun jiíní
Engiands
STÆRSTA FLUGVJEL, sem íslendingar hafa eignast er
væntanleg til landsins í byrj un næsta mánaðar. — Þetta er
Skymasterflugvjel, sem h.f. Loftleiðir hcfur keypt vestur í
Bandaríkjunum. Flugvjelin verður af fullkomnustu gerð og
uppfyllir ströngustu kröfur, sem gerðar eru til slikra flug- J
vjela. — Sæti verða í flugvjelinni fyrir 46 farþega.
Erfiðleikar hafa tafið
afgreiðslu hennar
Skrifstofa h.f. Loftleiða
skýrði blaðinu frá þessu í gær.
«>-
landa. Hefur fjelagið ákveðið
að byrja þegar að taka á móti I
pöntunum á fari til þessara
Það var á s.l. vori að fjelag- j landa á þessu sumri. -—- Far-
ið keypti flugvjel þessa. Hún gjöldum mun verða í hóf stillt.
hafði verið notuð til flutninga j Flugvjelin hefur- aðsetur
á hermönnum og þurfti því að hjer á Reykjavíkurflugvelli.
breyta henni allmikið og inn- ------«. ♦ -----
Uianríklsráðuneylið
annasl ekki fyrir-
greiðslu fluglars
At) GEFNU tilefni skal það
tekið fram, að þýðingarlaust
er að snúa sjer til utanríkis-
ráðuneytisins með beiðnir um
fyrirgreiðslu flugfars til út-
landa.
Afgreiðsla beiðna um flug-
far er algerlega í höndum hlut
aðeigandi flugfjelaga t>g hefur
ríkisstjórnin engin afskipti af
þeim málum, nema um sje að
ræða fulltrúa ríkisstjórnarinn-
ar, sem telja verður brýna á
að komist til útlanda í beinum
erindagerðum ríkisstjórnarinn-
ar. — (Frjettatilkynning frá
rikisstjórninni).
Jens Þórðarson
íslandsmeistari í
þungavigl
Á HNEFALEIKAMÓTI ís-
lands, sem fram fór í gær-
kvöldi, varð Jens Þórðarson ís-
landsmeistari í þungavigt, eft-
ir hafa unnið Kristján Júlí-
usson á stigum. Meistarar í
öðrum þyngdarflokkum unnu
einnig allir á stigum. Keppend-
ur voru allir frá Ármanni.
í ljettþungavigt vann Þor-
kell Magnússon Alfons Guð-
mundsson. í millivigt vann
Svavar Árnason Géir Einars-
son. í veltivigt vann Arnkell
Guðmundsson Jón Guðmunds-
son. í Ijettvigt vann Marteinn
Björgvinsson Hreiðar Hólm. I
fjaðurvigt vann Árni Ásmunds
son Hall Sigurbjörnsson. í
bantamvigt vann Friðrik
Guðnason Björn Eyþórsson. í
fluguvigt vann Ægir Eiríksson
Rósmund Guðmundsson.
Hringdómarar voru Peter
Wigelund og Guðjón Mýrdal.
Huáfð var þjettskipað áhorf-
endum.
Bidðulf ræðir Moskva-
fundinn
!
París í gærkvöldi.
GEORGES Bidault, utanrík-i
isráðherra Frakklands, ræddi
á fundi ráðuneytisins í dag
um - Moskvafund utanríkisráð-i
herra fjórveldanna, en um,
efni þeirfar skýrslu er fregn-
riturum ekki kunnugt. Enni
fremur skýrði Bidault ráðherri
unum frá samningsumleitun-i
um varðandi kolaframleiðslu,
sem að undanförnu hafa farið
fram milli Frakka,, Breta og
Bandaríkjamanna. — Reuter,
Þjóðverjum neitað
um landvistarleyfi
RfKISSTJÓRN Suður-Afr-
íku hefur neitað 900 Þjóðverj-
sm um landvistarleyfi í Suð-
ur-Afríku. Þessir Þjóðverjar
voru fluttir frá Tanganyika
fyrir skömmu. Þeir fóru fram
á það að fá að dveljast í Suður-
Arfíku um stundarsakir, eða
þar til þeir hefðu útvegað sjer
annan viðunanlegan sama-
stað. -— Reuter.
rjetta til farþegaflugs. — A j _ .1
áliðnu sumri kom í Ijós, að
fyrirtæki það, sem samið var
við um .1 framkvæmd allra
nauðsynlegra breytinga, gat
ekki staðið við samninga um
að afhenda flugvjelina full-
búna. Varð því að semja við
nýja aðila um að vinna það,
sem eftir var af verkinu. Var
það miklum erfiðleikum bund-
ið, því að nijög erfitt er að fá
ýmislegt af því, sem til breyt-
ingarinnar þurfti frá verk-
smiðjum þeim, sem framleiða
Skymaster, Douglas-verksmiðj-
unum, nema með löngum af-
greiðslufresti.
Til Norðurlanda og víÖar
Nú er öllum breytingum
flugvjelarinnar svo langt kom-
ið, að vissa er fengin fyrir því,
að hin glæsilega flugvjel
verði ferðbúin til Islands
fyrstu daga júnímánaðar.
Skrifstofa Loftleiða skýrði
ennfremur svo frá, að enn sje HAMBORG: — 1. maí var
ekki' fyllilega ákveðið um ^ haldinn hátíðlegur á breska
ferðaáætlun flugvjelarinnar í hernámssvæðinu í Þýskalandi,
Drengir Irá Akranesi
sýna knallspymu
hjer
í GÆR sýndu 18 drengir frá
Akranesi knattspyrnukerfi Ax
els Andrjessonar fyrir nemend
ur á íþróttgmámskeiði í. S. I., er
Axel skýrði kensluaðferðir sín-
ar þar.
Vakti sýningin athygli og
hrifningu. Aðalkosturinn við
kerfið er það að kensla fer
fram í kepnisformi, þannig að
nemendum er gefin stigeink-
unn fyrir frammistöðu sína.
Axel hefir dvalið á Akranesi
í rúman mánuð og kent þar.
Nemendur hans voru alls 235,
alt frá sjö ára drengjum. —
Þeir, sem sýndu hjer í gær
voru 13 ára.
Afstaða Bandaríkjanna til
Franco-stjórnarínnar óbreytt
Orðasveimur um hið gagnstæða
kveðinn niður
WASHINGTON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. ‘ ,
TALSMAÐUR utanríkisráðuneytis Bandarikjanna ljet þess(
getið í viðtali við frjettamenn i dag, að afstaða Bandaríkja-i
stjórnar gagnvart Franco væri að öllu leyti óbreytt, og væri
orðasveimur um hið gagnstæða, sem allmikið hefði gætt upp
á siðkastið, með öllu tilhæfulaus. |
framtíðinni, þó mun hún
strax hefja farþegaflug til
Norðurlandanna, Englands og
ef til vill annara Evrópu-
með því að ' öllum lauriþegum
var gefið frí, enda þótt þeir
hjeldu launum sínum fyrir
daginn.
F.kkert samneyti við Franeo-*
stjórnina
Talsmaðurinn sagði, að með
an Franco-stjórnin væri við
völd á Spáni gæti ekki orðið
utn að ræða neitt viðskipta eða
stjórnmálasamband milli Spán
ar og Bandaríkjanna. — Enn-
fremur gat hann þess, að ekki
hefði einu sinni komið til tals,
að Bandaríkjamenn veittu
Spánverjum lán.
Þrálátur orðasveimur
Talsmaður ráðuneytisins
lagði áherslu á þessi atriði ú,
blaðamannafundinum í dag,
þar sem á sveimi hefur vericS
allsterkur orðrómur um það,
að Bandaríkjastjórn væri far-i
in að líta mildari augum ál
Fránco-stjórnina. Einkum hef-<
ur þetta þó verið í hámæluní
haft i spönskum blöðum, sem‘
jafnvel hafa gengið svo langí
að fullyrða, að á eftir lánum;
Bandaríkjamanna til Grikkjtf
og Tyrkja myndi koma dolU
aralán til Spánverja.