Morgunblaðið - 18.05.1947, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
SUÐ-AUSTAN golau____—
Síoúrir.
Sunnudagur 18. maí 1947
EEYKJAVÍKURBRJEF er á
blaösíðu 7. —•
Ssgurðifl’ Kordal heið
mrsdokior við há-
skóiann í Leeds
ÞANN 14. maí var Sigurður
Nordal prófessor kjörinn heið-
urs doktor við háskólann í
Leeds.
Fór fram hátíðleg athöfn í
tilefni þessa í háskólanum. —
Hjelt Sigurður Nordal prófessor
ræðu við það''tækifæri.
Nánari fregnir af þessum
vísindamanna frama hans, hafa
blaðinu ekki borist enn.
Sigurður er fyrir nokkru far-
inn til Englands. Hann ætlar að
verða þar fram í júlí. Hefur
blaðið frjett að áður en hann
hverfur hingað muni hann
verða kjÖrinn heiðursdoktor við
annan breskan háskóla.
terinn lil tsafjarðar
ísafirði, föstudag.
Á fimtudagskvöld kom hing-
að til ísafjarðar síðasti bátur-
inn af þeim fimm, sem Isfirð-
ingar hafa keypt frá Svíþjóð.
Þessi bátur heitir Ásúlfur, IS
202, og er hann bygður eftir
teikningu Þorsteins Daníelsson
ar, en þó hefir nokkru verið
breytt frá teikningu um inn-
rjettingu á yfirbyggingu og
brútn hækkuð. Hann er 103
rúmlestir að stærð með 260 hest
afia Polar Atlas Dieselvjel.
Báturinn fór frá Gautaborg
9. maí og kom til Vestmanna-
eyja 14. maí. Gekk ferðin heim
að óskum. Jón Björnsson, skip-
stjóri sigldi skipinu til landsins
en Haraldur Guðmundsson
verður skipstjóri á því. Eigandi
skipsins er h.f. Skutull á Isa-
firði, en framkvæmdastjóri þess
er Haraldur Guðmundsson.
Allur frágangur skipsins virð
ist vera góður og er innrjettirig
allri mjög haganlega komið
fyrir. — MBJ.
Hæsfu skaffgreið-
endur á ísafirði
ísafirði, föstudag.
SICATTSKRÁ liggur nú til
sýnis gjaldendum á skrifstofu
sJcattstjórans á ísafirði, og eru
þessir skattgreiðendur hæstir:
Kaupfjelag Isafjarðar 62,
515,000, Marsellíus Bernharðs-
son h.f. 24,637,00, Jóhann .1.
Eyfirðingur 20,276,00, Marsel-
líus Bernharðsson 19,073,00,
Ágúst Leós 18,850,00, Anne
Sorensen 12,624,00, Ingimar
Ölason 12,397,00, Baldur John-
sen 11,655,00, Tryggvi Jóa-
kímsson 8,633,00 Björn H. Jóns
son 7,495,00, Bökunarfjelag
Isafjarðar 7,945,00, Hans
Svane 6,777,00, Ragnar Bárð-
arson 6,703,00, Jón Auðunn
Jónsson 6,054,00, Ragnar Jó-
hannesson 6,641,00, Smjörlikis
gerð Isafjarðar 5,373,00, Jón
H. Sigmundsson 5,042,00, Þor-
steinn Finnbogason 5,022,00.
- Mbj.
Þingmenn á leið til Finnlands
Hinn 23. þ. m. efnir þing Finnlands til hátíðvhalda í tilefni af því, a& 40 ár eru liðin sí&an
þingið var sameinaö í einni málstofu og frjálsar lýðrœÖiskosningar uppteknar. Var Alþingi
hoöiö aö senda fulltrúa tii þessara háúöahahla og fóru fjórir alþingismenn flugleiöis í
þessa för. — Myndin var lekin við hrottför þeirra á fiugvellinum í lieykjavík í ga>r. Taliö
frá vinstri: Baröi Guömundsson, BernharÖ: Stefánsson, Einar Olgeirsson og Jóhann Haf-
stein. Þingfrjellastjóri úívarpsins, Helgi Hjörvar fór einnig og veröur hann ritari ncfndar-
innar.
Kommúnistar heimta 35 aura
grunnkaupshækkun í Dagsbrún
640 börn voru
í Barnaskóla
Akureyrar
STJÓRN Dagsbrúnar og
nefnd sú, sem hið kommúnist-
iska fulltrúaráð í fjelaginu
hafði kjörið til þess að gera
tillögur um væntanlegar kröf-
ur við nýja samningagerð, hafa
að sögn ákveðið að krefjast 35
au. grunkaupshækkunar, þann
ið, að hinn venjulegi dagtaxti
yrði kr. 3.00 um tímann í stað
kr. 2.65 samkvæmt gildandi
taxta.
Kommúnistar boðuð til fund
ar í Dagsbrún síðdegis í gær,
og átti að leggja þar fram hin-
ar nýju kröfur. Höfðu komm-
únistar mikinn viðbúnað fyrir
fundinn. Fallist fundurinn á
hinar nýju kröfur, verða þær
sendar Vinnuveitendafjelaginu.
Umberto fer til
Lissabon
Cairo í gærkvöldi.
UMBERTO, fyrrv. konung
ur Italíu, lagði í gær af stað
flugleiðis frá Cairo áleiðis til
Lissabon, en í Cairo hefur
hann dvalist lengst af, síðan
hann varð að hrökklast frá
Ítalíu. Áður en Umberto lagði
af stað, ræddi hann við Farouk
konung og Nokrashi Pasha, for
sætisráðhera Egyptalands. — I
viðtali við frjettamenn mót-
mælti Umberto kröftuglega
þeim fregnum, sem verið hafa
á sveimi upp á síðkastið, þess
efnis að hann væri að skilja
við konu sina, Maríu Jose,
syslur Leópolds Belgíukonungs
Æfa undir keppni
við sænska hand-
knattleiksiiðið
HANDKNATTLEIKSRÁÐ
Reykjavíkur hefir valið úr þá
menn, sem æfa eiga undir kepn
ina við sænska handknattleiks-
liðið, sem hingað kemur í þess-
um mánuði. Menn þessir eru:
Frá Val: Sveinn Helgason,
Stefán Hallgrímsson, Jón Þór-
arinsson, Garðar Halldórsson,
Þórður Þorkelsson og Karl
Jónsson.
Frá Ármanni: Sigfús Einars-
son, Halldór Sigurgeirsson, Sig.
Norðdahl, Skúli Norðdahl,
Kjartan Magriússon og Hauk-
ur Bjarnason.
Frá Víking: Bjarni Guðna-
son og Baldur Bergsteinsson.
Frá Fram: Kristján Oddsson
og Sveinn Ragnarsson.
Frá K. R. Björn Vilmundar-
son og Þór Elísson.
Frá I. R. Ingvi Guðmunds-
son og Jón Björnsson.
Lóð fyrir beilsu-
verndarstöðina
BÆJARRÁÐ samþykti á fundi
sínum í gærmorgun, að ætla
hinni væntanlegu Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkurbæjar lóð
annað hvort syðst í Hljómskála
garði eða á svæðinu milli Sund
hallarinnar og Egilsgötu.
Akureyri, miðvikudag.
BARNASKÓLA Akureyrar
var slitið 10. þ. m. I vetur starf
aði skólinn í 24 deildum með
640 börnum. Fullnaðarprófi
luku aðeins 28 börn 13 ára, en
rúmlega 60 börn á þeim aldri
-fóru í ungling-adeild Gagnfræða
skólans á s.l. hausti. Ársprófi
592 börn.
í vetur voru haldnir sex
fræðslu og samtalsfundir, með
foreldrum tveggja yngstu ár-
gariganna. Á vetrinum neyttu
börnin 420 lítra lýsis og 6000
kg. gulrófna. Sýning á hand-
iðju, teikningum og skrift barn
anna og vinnubókum þeirra var
4. maí.
Við skólaslit flutti skólastjór
inn, Snorri Sigfússon, skýrslu
um störf skólans, ávarpaði for-
eldra og gesti og kvaddi börnin.
Sr. Friðrik Friðriksson var þar
og staddur og talaði nokkur orð
til barnanna.
Börn kveikja í
í GÆRMORGUN kom upp
eldur í skúr, sem stendur milli
hins nýja Landakotsspítala og
Sjómannaskólans gamla.
Þegar slökkviliðið kom, var
talsverður eldur í öðrum enda
skúrsins, en þar inni var geymt
hey. Slökkviliðinu gekk greið-
lega að slökkva eldinn og munu
skemdir ekki hafa orðið mjög
miklar.
Það eru taldar líkur til þess
að börn hafi kveikt í heyinu.
Handril Jóhanns Sig-
orjónssonar gefin í
Landsbókasanfninu
FYRIR nokkru síðan barst
Landsbókasafninu mjög verð-
mæt gjöf. Var það handrit öll
og brjef og önnur skjöl er Jó-
hann heit. Sigurjónsson ljet eft
ir sig. Gefandinn er hinn danski
rithöfundur Gunnar Hansen.
Hann mun hafa keypt handrit
þessi af ekkju Jóhanns bein-
línis í þeim tilgangi að þau
kæmust hingað til lands til
varðveislu.
í brjefi því til safnsins, sem
fylgdi gjöfinni kemst hann m.
a. að orði á þessa leið: „Sam-
kvæmt erfðaskrá minni hefðu
handrit þessi á sínum tíma hafa
komið hingað til Landsbóka-
safnsins, því það er mín skoð-
un, að handrit þau, sem eru af
íslenskum uppruna eiga að
rjettu lagi heima á íslandi.“
Með handritunum eru brjef
þau, sem hann skrifaði konu
sinni, allmikið af samningum
við leikhús og bókaforlög, sem
Jóhann gerði sjerprentanir af
og ýmsum greinum eftir hann.
Og frumdrættir og frumrit af
öllum leikritum hans. Eru þessi
plögg og handit mjög merkileg-
ar heimildir um æfi hins mæta
skálds og ritstörf hans.
„Braufin" í Bol- j
ungavík heldur
leiNsýningu é ísafirðl
Isafirði, fimmtudag.
KVENFJELAGIÐ Brautin í
Bolungavík hafði sýningu ú
sjónleiknum „Hrtkkir Scap-i
ins“ í Alþýðuhúsinu á Isafirði,
á miðvikudagskvöld. Þetta ev
gamanleikur í þremur jiáttum,
eftir Moliere, og gerist hann ú
17. öld á torgi í stórborg ú
Ítalíu. Leikendur eru 11. <
Hlutverk Scapins ljek Guð •
mundur Pálsson og gerði hami
hlutverkinu góð skil. Yfirleitt
fóru leikendur vel með hlut-
verk sín, þó eru riokkrir nýi
liðar á leiksviðinu. Aðsókn að
leiknum var góð, og undir-
tekir áhorfenda ágætar.
Kvenfjelagið Brautin liefutí
sýnt þennan leik í Bolungavíki
við mikla aðsókn og ágætari
undirtektir áhorfenda. — Mbj.
-----------~-------- (
7jamarboðhlaupið
fer fram í dag
HIÐ árlega Tjarnarboðhlauþ
K. R. fer fram í dag. — Fimrrs
sveitir, hver tíu manna, taksi
þátt í hlaupinu og eru frá þess-
um fjelögum: tvær sveitir úri
K. R., tvær frá í. R. og ein frá
Ármanni.
Hlaupið byrjar við Hljóm-
skálann og hlaupinn hringur og
að barnaskólanum, en þar end-
ar hlaupið.
í þessu hlaupi er kept' unf
Morgunblaðsbikarinn og núver-
andi handhafi er í. R. Hlaupið!
hefst kl. 3,30.