Morgunblaðið - 05.06.1947, Qupperneq 7
j Fimmtudagur 5. júní 1947
7
MORGUNBLAÐIÐ
„Kristiansand“ vann
með 21:4
SÍÐASTI LEIKUR sænska handknattleiksliðsins við
íslendinga fór fram á íþróttavellinum í gær, og unnu Sví-
ar enn með miklum yfirburðum, settu 21 mark gegn 4.
Fyrsta markið í leiknum
skoraði Halldór Arinbjarnar
fyrir íslendinga á annari mín-
útu. Hálfri mínútu síðar „kvitt-
uðu“ Svíar, en á fimmtu mín-
Útu skorar Hafsteinn Guð-
mundsson annað mark íslend-
inga og stóðu leikar þá 2:1 ís-
lendingum í vil. En Adam var
ekki lengi í Paradís, því að það
sem eftir var af hálfleiknum
skora Svíar 7 mörk, en íslend-
ingar ekkert. Lauk honum því
með 8:2. — Mörkin voru sett á
9., 13., 17., 18., 19., 22. og 23.
mínútu.
í síðari hálfleik voru Svíar
enn harðari í horn að taka. —
Settu 13 mörk gegn 2. Settu
þeir mörk á 1. og 2. mínútu, en
íslendingar settu svo mörk á
4. og 6. mínútu. Jón Þórðarson
það fyrra, en Halldór Arinbjarn
ar hið síðara. Eftir það settu
Svíar 11 mörk í röð, á 8., 9.,
11., 12., 13., 17., 18., 22., 23.,
24. og 25. mínútu.
Ármann hjelt Svíunum hóf í
Sjálfstæðishúsinu í gærkvöldi,
en þeir leggja af stað heim-
leiðis með ,,Drottningunni“ í!
kvöld. — Koma þeirra hefur
Verið íslenskum handknattleiks
mönnum til mikillar ánægju og
gagns, þar sem þeir hafa mikið
getað af þeim lært. •— Þ.
* ^
Afram Framarar!
EINS OG skýrt er frá á öðr-
um stað hjer í blaðinu keppir
breska atvinnuliðið annan leik
sinn hjer í kvöld við íslands-
meistarana „Fram“. Verða
Framarar nú að bæta eitthvað
fyrir ófarir ,,úrvalsliðsins“. Það
er ekki hægt að heimta sigur,
en sigurviljann má ekki vanta.
Spjarið ykkur, Framarar.
Knailspyrnuvormóti
Hafnarfjarðar lýkur
íkvöld
I KVÖLD fara fram síðustu
leikir Knattspyrnuvormóts
Hafnarfjarðar á íþróttavellin-
um á Hvaleyrarholtinu. Fyrri
leikurinn hefst kl. 7 e. h. Keppa
þá 3. ílokkur F. H. og Hauka
til úrslita í þessum flokki, þar
eð flokkarnir gerðu jafntefli
0:0 s. 1. laugardag. Síðari
leikurinn er milli 1. flokka
sömu fjelaga, og hefst hann
strax að 3. flokks leiknum lokn
um.
Knattspyrnumenn í Hafnar-
firði eru nú yfirleitt í góðri
æfingu, og má því búast við
góðum leikjum í kvöld. Ekki
er efa að fjelögin leggi mikið
við að ná sem bestum árangri
í þeim, þar sem t. d. að þau
standa jafnt að vígi til að vinna
bikar þann er keppt er um í
þriðja flokki til fullrar eignar,
því bæði hafa unnið hann 4.
sinnum, en 5. sinnum þarf að
vinna hann.
í fyrsta flokki hafa fjelögin
til skamms tíma æft sameigin
lega með tilsögn Karls Guð-
mundssonar, íþróttakennara, og
rr.un því vera hið mesta áhuga
mál að sýna sem besta knatt-
spyrnu. Að -líkindum mun
Kar l Guðmundsson dæraa leik
inn.
Fimleikafjelag Haínarfjarð-
ar hefir sjeð um mótið, og hef-
ir knattspyrnunefnd fjeiagsins
sýnt loísamlegt verk í því að
lagfæra völlinn, sem er nú
betri en hann nokkurn tíma
heíir verið.
50. þátttakendur í KR-mótinu
Skemmlilegt einvígi í kúluvarpi
FYRSTA frjálsíþróttamót sumarsins, KR-mótið, fer
fram n. k. sunnudag. Keppendur eru alls 50 frá 6 íþrótta-
íjelögum og fjelagssamböndum. Þar að auki tekur írski
kúluvarpsmeistarinn Guiney þátf í mótinu.
Keppt verður í sjö íþrótta-
greinum: 300 m. hlaupi, 3000
m. hlaupi, kúluvarpi, kringlu-
kasti, langstökki, hástökki,
4X200 m. hlaupi og ef til vill
100 m. hlaupi (úrvalshlaup).
Gera má ráð fyrir mjög
skemtilegri kepni í öllum grein
um, enda eru flestir bestp
íþróttamenn okkar meðal kepp
enda. í kúluvarpinu verður
auk þess einvígi milli írans
Guiney og Husebys.
Keppendur verða 18 frá KR,
15 frá Armanni, 11 frá ÍR, tveir
frá UMF Selfoss tveir frá FH
» ■*
og einn frá UMSK.
BRESK VÖRUSÝNING í
HÖFN
London: — Samband breskra
iðnrekenda gengst fyrir breskri
Vörusýningu ' í Kaupmanna-
höfn í september 1948. Síðast
var slík sýning haldin árið
1932.
” ■<■ “ ■*--■ 'i>\ ».* '■,.■• ’ -
Aðalfundur sýslu-
itefndar V.-Skafta-
fellssýslu
AÐALFUNDUR sýslunefndar
Vestur-Skaftafellssýslu þ. á„
var haldinn í Vík og hófst 27.
maí, en_lauk 30. s. m. Fjár-
hagur sýslusjóðs er góður og
var tekjuafgangur frá fyrra ári
rúml. 32 þús. kr. Tekjur voru
áætlaðar öllu hærri en síðast
eða yfir 105 þús. kr. og gjöldin
í samræmi við það, þannig að
tekjueftirstöðvar eru áætlaðar
líkar og s.l. ár. Eins og áður
voru tekin til meðferðar á
sýslufundinum margvísleg mál
bæði verklegs og menningar-
legs eðlis, þótt samgöngumál
væru eðlilega með útgjalda-
hæstu liðunum. Sýslunefndin
og oddviti hennar voru á. einu
máli um það, að hjeraðinu væri
eigi kleift að standast áfram
kostnað af byggingu hjeraðs-
skólans að Ytri-Skógum, nema
með aðgengilegri lántöku, sem
ríkisvaldinu bæri skylda til að
veita aðstoð sína til, enda eðli-
legt, að slíkum kostnaði yrði
dreift á fleiri kynslóðir en þá,
sem nú er uppi. Að þessum
framkvæmdum stendur líka
Rangárvallasýsla.
Sýslufundurinn bar allur þess
merki, að oddviti sýslunefndar,
Gísli Sveinsson, sýslumaður,
hjelt hann sem kyeðjufund um
leið, þareð hann hverfur nú
eins og kunnugt er til annara
starfa eftir nærfelt 30 ára em-
bættis- og fulltrúastörf í sýsl-
unni. Ályktaði sýslunefndin að
sýna honum og konu hans vott
virðingar og þakklætis fyrir á-
gætlega unnin og ómetanleg
störf fyrir hjeraðið í embætti
og utan þess, óg bað nefndin
þau að þiggja minningargjöf,
er þeim yrði færð síðar.
Sýslunefndarmennirnir sátu
aS vaftda veglegt boð hjá sýslu-
mannshjónunum að heimili
þeirra, og komu þá ljóslega
fram og samhuga eigi síður en
á sýslufundinum,, hversu mikið
Skaftfellingar telja sig eiga
Gísla Sveinssyni að þakka fyr
og síðar.
FlugvjeiaframleiÍsE^
Breta eykst enn
London í gær.
HF.RBERT Morrson hafði
fund með blaðamönnum í dag
og skýrði þeim frá framleiðslu
málum Breta.
Morrison sagði meðal annars,
að næstu sex vikurnar, áður en
sumarleyfi almennt hefjast
muni ráða mestu um það, hvort
Bretum tekst að framleiða það
vörumagn í ár, sem þeir hefðu
upphaflega ásett sjer.
Flugvjeíáframleiðsla Breta,
sagði Morrison hefir verið meiri
í apríl en í nokkrum öðrum
mánuði síðan styrjöldinni lauk,
en kolaframleiðslan til maíloka
hefur orðið 83 miljón tonn.
Sagði Morrison það undir námu
mönnum komið, hvort tækist að
ná takmarkinu um 200 miljón
tonna ársframleiðslu.
—Reuter.
BEST AÐ AUGLYSA
t MOBGUNBLAÐIND
Jón Jóel Einarsson
minningarorð
HVAMMSSVEIT í Dala-
sýslu varð fyrir því mikla
tjóni á hinum nýliðna vetri að
missa einn af sínum dugandi
bændum, Jón Jóel Einarsson,
bónda í Sælingsdalstungu. —
Hann andaðist hjer á Land-
spítalanum 27. febrúar síðastl.
eftir stutta legu. Hann mun
aldrei hafa náð fullri heilsu
eftir uppskurð, er á honum var
gerður fyrir all-mörgum árum
og hefur það máske orsakast
með fram af ofmikilli vinnu,
er hann komst ekki undan að
leggja á sig við búskapinn.
Jón Jóel fæddist í Ásgarði
22. april 1898. Hann var sonur
Einars Einarssonar og konu
hans, Signýjar Halldórsdóttur,
er þar bjuggu mest alla sína
búskapartið og voru bæði af
merkum bændaættum úr
Hvammssveitinni. — Jón var
einkasonur þeirra hjóna og ólst
úar upp hjá þeim ásamt tveim
systrum sínum, Guðfinnu, sem
nú er ráðskona Sigurðar bónda
Sigurðssonar i Hvítadal og
Þuríði, konu Valdimars Ólafs-
sonar, bónda á Leysingjastöð-
um.
Árið 1926 kvongaðist hann
eftirlifandi konu sinni, Sigríði
Sigurðardóttur frá Sælingsdal.
Dvöldu þau fyrsta hjúskapar
ár sitt á Leysingjastöðum, en
fluttu að Hólum í Hvamms-
sveit vorið eftir og festu kaup
á þeirri jörð. Árið 1935 seldú
þau hana aftur og keyptu Sæl-
ingsdalstungu, þar sem þau
bjuggu síðan. Þau eignuðust
saman 3 börn, 2 syni og eina
dóttur: Einar Jóhann, sem verð
ur nú aðalfyrirvinna heimilis-
ins, Garðar, 11 ára og Sigur-
borgu Helgu, Sem gift er Bene-
dikt Ástvaldi Gíslasyni, prent-
myndasmið hjer í Reykjavík.
Jón hneigðist snemma til
landbúnaðarstarfa og varð
brátt liðtækur við búskapinn í
föðurgarði. Hann varð og snot-
ur bóndi, eins og hann átti
kyn til, starfsamur, verklag-
inn, hirðusamur, forsjáll og
fvrirhyggjusamur. Hann átti
allt af gott bú og gagnsamt,
enda átti hann styrka aðstoð i
samhentri, dugmikilli og góðri
mvndarkonu.
Eitt stærsta refabú sveitar-
innar rak Jón um mörg ár og
lánaðist honum það betur en
flestum öðrum.
- Það bar snemma á því, að
Jón væri sönghneigður. Faðir
hans var um áratugi for-
söngvari í Hvammskirkju, áð-
ub en hljóðfæri kom í kirkj-
una, en það varð ekki fyr en
1914. Leysingjastaða-heimilið
mun hafa verið eitt af fyrstu
bændaheimilum sveitarinnar,
er eignaðist orgel. Jón tók
sönghneigð föður síns í arf og
byrjaði á ungum aldri að æfa
sig á hljóðfæri. Um tvítugsár-
in var hann tvivegis við nám
hjá E. Gilfer uift nokkurra
mánaða tíma og síðar hjá Páli
Isólfssyni. Hinn 11. mars 1917
byrjaði hann fyrst að leika á
hljóðfæri i Hvammskirkju við
messugerðir og aðrar helgar
athafnir og stundaði það starf
siðan af hinni mestu kostgæfni
og trúmennsku til dauðadags.
Hann var sjálfur jarðsunginn
frá Hvammskirkju 11. mars
1947, þegar rjett 30 ár voru
liðin frá þvi, er liarm i fyrsta
sinni settist við hljóðfærið í
kirkjunni. — Jón stofnaði fyrir
allmörgum árum dálítinn
blandaðan kór i sveitinni, sem
um tíma aðstoðaði við messu-
gerðir, en starfskraftarnir
hurfu smátt og smátt út i busk
ann eða týndu tölunni á annan
hátt, svo að fjelagsskapurinn
varð ekki langlífur. Allra síð-
ustu árin stóð Jón fyrir öðrum
kór, er sóknarpresturinn og
söngmálastjóri, Sigurður Birkis
komu á fót af sinum alkunna
áhuga og dugnaði. Jón stóð
fyrir æfingu hans og hjelt
honum saman. Auk þess var
hann i umboði söngmálastjóra
umsjónar- og eftirlitsmaður
kirkjukóranna í Dalaprófasts-
dæmi. Kirkju- og safnaðarlíf í
sókninni og hjeraðinu hefur
því mikils misst við fráfall
Jóns. I sóknarnefnd var hann
búinn að vera i 15 ár og fleiri
nefndum átti hann sæti i. —
Hann var yfirleitt nýtur mað-
ur í sveitarfjelaginu, en naut
sin þó ekki lengst af vegna
lamaðrar heilsu og var auk
þess að eðlisfari hljedrægur, en
hann var laginn og hagsýnn
bóndi, er beið tækifæris að
koma meiri framkvæmdum í
verk en honum entist aldur til.
Jón var ástrikur eiginmaður,
umhyggjusamur og góður heim
ilisfaðir. Hann var reglumaður
og hófsamur i hvívetna, hátt-
prúður og vel látinn friðsemd-
armaður. IJjónabandið og
heimilishfið var hið ástúðleg-
asta. Fráfall Jóns var þungt á-
fall fyrir ástvini hans, enda
þótt það hafi að líkindum
hvorki komið honum eða þeim
með öllu á óvart. En minning
hans lifir mæt og hlý í hug-
um ástvina hans og vanda-
manna, sveitunganna og
margra annarra samferða-
manna. Asgeir Ásgeirsson.
Eiga að hjálpa grísk-
um skæruliSum
Aþena í gærkvöldi.
GRIKKJASTJÓRN hefur
sent frönsku stjórninni orðsend
ingu, vegna þráláts orðróms um
það, að franskir kommúnistar
væru að láta þjálfa „alþjóða-
hersveit“ í Suður-Frakklandi,
til þess að berjast með grísk-
um skæruliðum.
Framh. á bls. 12