Morgunblaðið - 12.06.1947, Síða 1
16 síður
34. árgangur 129. tbl. — Fimmtudagur 12. júní 1947 , ísafoldarprentsmiðja h.f.
Hússar ógna ungverska lýðræðinu
----------------------s> ---
Þýsk böm iil
Hollenski bærinn Limburg hefur boðið nokkrum þýskum
börnum frá Aachen að dveljast nokkrar vikur í Hollandi.
A myndinni sjást börnin vera að fara ýdir hollensku
landamærin.
Truman ávarpar
Sagir Bandaríkin haída áiram að
iir
Ottawa í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
TRUMAN, forseti Bandaríkjanna, sem nú er í þriggja daga
kurteisisheimsókn í Kanada, ávarpaði kanadiska þingið í dag.
Hann sagði meðal annars, að stefna Bandaríkjanna væri að koma
á algerum friði í heiminum og að varðveita hann, svo að allir
menn gætu lifað frjálsir í andlegum og efnalegum skilningi.
Allir einstaklingar og þjóðaheildir ættu rjett til fullkomins jafn
rjettis og „Bandaríkin gera sjer fullljósar skyldur sínar gagn-
vart hinum hrjáðu og kúguðu þjóðum heimsins og ætla að
leggja fram krafta sína til hjálpar þeim“.
«-----------------------------
Harðorð mótmæli
Bandaríkjamanna
- Bretar ræða málið
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN hefir sent meðlimi Rússa í eftirlits-
refnd bandamanna í Budapest harðorða orðsendingu, vegna
framkomu Rússa og ungverskra kommúnista undanfarna daga.
Halda Bandaríkjamenn því fram, að Rússar hafi með framferði
smu brotið samkomulag það, sem gert var í Yalta, og krefjast
þess, að skipuð verði nefnd Breta, Bandaríkjamanna og Rússa
ul að rannsaka tildrög þess, að Nagy, fyrverandi forsætisráðherra
Lngverjalands, var neyddur til að segja af sjer, og varð auk
þess að flýja land sitt, þar sem hann þóttist ekki óhultur um
iíf sitt.
^Brot á Yalíasamþyktinni.
Kanslarí Austurríkis
svarar kröfum kosn-
ninisfa
Vínarborg í gær;
KANSLARI Austurríkis hef-
ur haldið ræðu á þingi og tekið
þar til meðferðar þá kröfu
kommúnista, að breytingar
verði gerðar á ríkisstjórn lands-
ins. Sagði kanslarinn, að ekki
kæmi til mála, að stjórnin segði
af sjer, enda væri „Austurríki
ekkert Ungverjaland“ í þeim
efnum.
Kanslarinn bætti því við, að
Austurríkismenn mundu halda
áfram baráttu sinni fyrir al-
geru sjálfstæði.
Talsmaður stjórnarinnar í
•Lofidon hefur tjáð blaðamönn-
•um, að hreska stjórnin líti svo
á, að austurríska þingið hafi
'verið löglega kosið og stjórnin
eigi því fylsta rjett á sjer.
Reuter.
London í gærkvöldi.
FRJETTIR hafa borist um
það frá Kína, að hersveitir frá
Ytri-Mongólíu hafi gert innrás
í fylkið Sinkiang í vesturhluta
kínverska lýðveldisins. Ríkis-
stjórn Kína hefur faiið sendi-
herra. sínum í Moskvu að mót-
mæla harðlega þessum atburð-
um. Eftir því, sem kínverskur
embættismaður hefur sagt, eru
hersveitir þessar komnar 300
kílómetra inn fyrir landamæri
Sinkiang og hafi fjórar rúss-
neskar flugvjelar verið í fylgd
með þeim. Telur hann að Sovjet
stjórnin beri ábyrgð á þessum
atburðum ao nokkru leyti og sje
hjer ekki um „neinar venjuleg-
ar landamæraskærur að ræða.“
Reuter.
íripps ræðir versl-
un Bsndaríkjanna
í RÆÐU sem Sir Stafford
Cripps, verslunarmálaráðherra
Breta, flutti í Skotlandi í dag,
gerði hann að umtalsefni versl
unarviðskifti Bandaríkjanna
og .annarra landa. Taldi hann
að leggja bæri megin áherslu
á það, að jafna hina miklu
framleiðslu Bandaríkjanna og
landa þeirra, sem, vegna styrj
aldarinnar, hefðu orðið að
draga mikið úr framleiðslu
sinni.
Cripþs taldi ekki ólíklegt, að
lausn þessara mála kynni að
liggja í efnahagsaðstoð þeirri,
sem Bandaríkin hefðu boðið
Evrópulöndum. ■— Reuter.
AUKIN VELMEGUN.
„Við keppum að því að efla
stórlega landbúnaðinn og iðn-
aðinn í heiminum, þannig að
allar þjóðir eigi frjálsari að-
gang að hráefnum og mörkuð-
um og að aukinni dreifingu
gæða jarðarinnar milli allra
manna. Von okkar er sú, að tak
ast megi að margfalda frjósemi
jarðarinnar öllu mannkyni til
blessunar. Á þessum alvariegu
tímum gera Bandaríkjamenn
sjer ljósar skyldur sínar gagn-
vart heiminum. Við vitum, að
nú, að styrjöld nýlokinni, er
friður samt sem áður ekki full-
tryggður og ýmsar hinar hrjáðu
og þrautpíndu þjóðir horfa
fyrst og fremst til okkar í þeirri
von, að við munum geta veitt
þeim nokkra úrlausn, þar til
þeim tekst aftur að komast á
rjettan kjöl, öðlast sjálfstraust
og öryggi.“
FRIÐUR OG JAFNRJETTI.
Við viljum skapa heim, þar
sem ríkir friður, hagsæld og
frelsi, heim þar sem allir menn
geta lifað sem jafningjar, ber-
andi gagnkvæma virðingu hver
fyrir öðrum eins og Kanada og
Frh. á bls. 12
Kaupmannahöfn í gær.
Einkaskeyti til Morgunbl.
SAMNINGAR Dana og Eng-
lendinga um verslunarviðskipti
hefjast 2G. jání. Danir vilja fá
núverandi samninga endurskoð-
aða bæði hvað vöruverð og
vörumagn snertir.
Blaðiö Köbenhavn, sem er
málgagn dönsku stjórnarinnar,
hefur skýrt frá því, að samning-
arnir við Færeyinga gangi
seinna en búist hafði verið við.
Þó hefur ekki enn komið til
slíkra erfiðleika, að ástæða sje
talin til að óttast um endanleg
úrslit samningaumleitananna.
Ástralska stjóminá
í brösum vi kom
múnista
Miðstjórn ástralska Verka-
mannaflokksins hefur ■ sagt
Kommúnistaflokknum í land-
inu stríð á hendur. Ástæðan er
sú, að flokkurinn reynir með
vinnustöðvunum að tefja fyrir
tilraunum þeim, sem undanfar-
ið hafa verið gerðar úti í eyði-
mörkinni með flugskeyti.
Miðstjórnin sakar kommún-
ista um það ,,að vinna að hags-
munum erlends stórveldis“ —
Chifley forsætisráðherra var
þakkað fyrir jTirlýsingu hans
um, að þessi starfsemi kommún
ista yrði barin niður með her-
valdi, ef annað dyggði ekki til
að stemma stigu fyrir skemmd-
arverkunum.
Kommúnistar hafa í Ástralíu
þrátt fyrir smæð sína, komist
til valda í ýmsum fagfjelögum
byggingariðnaðarins og höfðu
farið fram á það við önnur verk
lýðsf jelög að leggja bann á alla
vinnu við flugskeytatilraunirn-
ar, þar sem þær tækju vinnu-
kraft frá öðrum þjóðnýtum
störfum, — Kemsley.
Bandaríkjastjórn segir í
orðsendingu sinni, að Rússar
hafi þverbrotið Yaltasamþykt-
ina, með því að hafa áhrif á
stórnmálaþróunina í Ungverja-
landi. Hafi þetta svo leitt til
þess, að kommúnistaminnihlut-
anum hafi tekist að sölsa
undir sig völdin. Lýsa Banda-
ríkjamenn því-yfir, að afstaða
Rússastjórnar til þessa máls
ógni lýðræðinu í Ungverjalandi.
Kommúnistar. hreyknir.
Á það er ennfremur bent, að
leiðtogi kommúnistaflokksins,
sem aðeins á fylgi 17% kjós-
enda í Ungverjalandi, hafi stært
sig af því opinberlega, að „járn-
hnefi flokks hans“ hafi í einu
vetfangi tekist að ná völdum
í landinu.
Beviii um málið.
Atburðirnir í Ungverjalandi
vekja nú stöðugt aukna athygli.
Var málið meðal annars rætt á
fundi í neðri málstofu breska
þingsins í dag, og skýrði Bev-
in frá því, að sendiherra Breta
í Moskva hafi verið beðinn um
að ræða atburðina við rúss-
neska utanríkisráðherrann. —
Hefðu 'í dag borist skeyti frá
breska sendiráðinu, og mætti
Vænta skýsrlu frá hendi stjórn-
arinnar, strax og skeyti .þessi
hefðu verið tekin til gaumgæfi-
legrar athugunar.
Sendiherra Ungverja í Vínar
borg hefir nú sagt af sjer og
farið til Svisslands. Hann er
sjötti ungverski sendiherrann,
sem segir af sjer, síðan komm-
únistar náðu völdum í Ung-
verj alandi.
METÚTFLUTNINGUR
WASHINGTON: — Landbún
aðarráðuneyti Bandaríkjanna
ségir, að metútflutningur á
kornvöru hafi náðst fyrir maí-
mánuð. Alls voru flutt út um
1.804.000 tonn.