Morgunblaðið - 20.06.1947, Page 1

Morgunblaðið - 20.06.1947, Page 1
34. árgangur 135. tl)l. — Föstudagur 20. júní 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f. Einkennileg yfirlýsing Alþýðusambandsins Til að leyna daufum undirfeklum STJÖRN Alþýðusambandsins hefur birt mjög einkennilega yfirlýsingu. Þar segir m.a. að hún, eða kommúnistaflokkurinn hafi aldrei farið fram á það við verkalýðsfjelög utan Reykja- vikur, að .þau lýstu yfir samúðarvinnustöðvun við Dagsbrún í vinnudeilu hennar. Bretar munu notfæru sér uðstoðurtilboð Murshulls -3> Helreið dauðans Segir Þjóðviljinn í gær, að * stjórn Alþýðusambandsins hafi með yfirlýsingu sinni „hnekt blekkingum“ sem fram hafa verið bornar um þetta efni. Brjefið. Til sannindamerkis um það, að Alþýðusambandsstjórnin hafi aldrei haft nein samúðar- verkföll í huga birtir Þjóðvilj- inn bi’jef, er stjórn Alþýðusam- bandsins sendi verkalýðsfjelög unum þ. 4. júní s.l. Segir svo í þessu brjefi að því er Þjóð- viljinn upplýsir. „Þar sem Dagsbrún hefir boð að vinnustöðvun frá og með 7. þ. m.; ef þá hafa ekki tekist samningar viljum vjer hjer með fara þess á leit, við fje- lagið ,að það sjái um að á fje- lagssvæðinu verði ekki af- greiddar vörur eða flutninga- tæki í banni Dagsbrúnar 'frá nefndum degi ef til vinnustöðv unar kemur. Ennfremur að fjelagið boði Vinnuveitendafjelagi Islands, Skipaútgerð ríkis- ins, Olíufjelögunum og Reykjavíkurbæ nú þegar samúðarvinnustöðvun eftir því sem tilefni gæfust frá og mcð 14. júní n. k., ef þá hafi eigi náðst samn- ingar. (Leturbr. lijer). Daufar undirtektir. Þessi tilmæli hafa verkalýðs fjelögin víðsvegar út.um landið skilið svo að stjórn Alþýðu- sambandsins mælist til þess, að þau auglýsi samúðarverkföll eftir 14. júní. Enda verður máls greinin í brjefinu trauðla skil- in á annan hátt.. Fjelögin eiga að boða Vinnu- veitendafjelagi íslands, alls- herjarfjelagi vinnuveitenda, nú þegar samúðarvinnustöðvun. En annað mál er, að stjórn Alþýðusambandsins kann að óska þess heitt og innilega nú, að hún hefði aldrei farið fram á þetta við hin einstöku fjelög, og brjef það, sem Þjóðviljinn birtir nú, hefði aldrei verið skrifað. Því árangurinn af tilmælun- um hefir orðið sá, að nálega engin verkalýðsfjelög út um land hafi farið eftir þessum tilmælum stjórnar Alþýðusam- bandsins. Mörg hafa leitt til- mælin hjá sjer. En aftur önnur hafa beinlínis samþykt að neita tilmælunum eða felt að verða við þeim eftir því hvernig mál- ið hefir verið borið upp í fje- lögunum. Hver ósigur af öðrum. Stjórn Alþýðusambandsins má segja að sjaldan sje ein báran stök. Kommúnistarnir, sem nú ráða Alþýðusambandinu, hófu verkfalls undirbúning sinn að þessu sinni, með því að senda tilmæli til verkalýðsfjelaga um alt land og mælast til þess að fjelögin segðu upp samningum svo hjer gæti risið ein alls- herjar verkfallsalda. En ekki eitt einasta fjelag varð við þessum tilmælum, Framh. á bls. 2 Eden ræðir utanríkismál Fulltrúafundur Kvennrjeitinda- fjelagsins ÞRIÐJI fulltrúaráðsfundur Kvenrjettindafjelags Islands var haldinn í Reykjavik dag- ana 14.—16. júní s.l. Á fund- inum voru mættir fulltrúar úr öllum fjórðungum landsins, nema Vestfirðingafjórðungi. — Voru gerðar samþykktir varð- andi ýms rjettinda- og áhuga- mál kvenna, svo sem atvinnu- mál og útgáfu málgagns. Eftir fundinn skoðuðu full- trúar sýningu Nínu Sæmunds- son og færðu listakonunni blóm. I gærkvöldi hjelt K.R.F.I. 19. júní fagnað að Tjarnarcafé og var fulltrúunum boðið þangað og ennfremur fulltrúum á þingi Kvenfjelagasambands Is- lands, sem eins og kunnugt er, stendur yfir þessa dagana hjer í Reykjavík. Itaiir semja um innflufning. BERLIN: — ítölsk sendi- nefnd er hingað komin til að gera verslunarsamning við þá hluta Þýskalands, sem tilheyra hinu sameinaða efnahagssvæði Breta og Bandaríkjamanna. Hjer birtist mynd af einu af málverkuni Nínu Sæmundsson á sýningu hennar í skála myndlistarmanna. Sýningin verður opin til mánöðamóta og hafa um þúsund manns þegar sótt hana. Skipulagsmál rædd í Ásmundur teflir Á bæjarstjórnarfundinum i gær urðu nokkrar umræður um skipulagsmál bæjarins í sam- bandi við umræður um leik- velli og dagheimili. Ræddi Gísli Halldórsson, verkfr., einn af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórninni þessi mál nokk uð og skýrði frá reynslu þeirri, sem hann fekk í þessum efnum í síðustu ferð sinni til Banda- ríkjanna. Aðallega benti hann á, að heppilegt væri fyrir Reyk- víkinga, að kynna sjer skipu- lagsmál Detroitborgar í Banda- ríkjunum og þær nýju tillögur um endurbætt skipulag, sem for ráðamenn þeirrar borgar hafa á prjónunum, en sú borg hefði upphaflega verið skipulögð á líkan hátt og Reykjavík. Flutti hann svohljóðandi tillögu um málið: „Bæjarstjórn Reykjavík ur samþykkir að fela borgar- stjóra að útvega upplýsingar um breytingar, sem fyrirhugað er að gera á gatnaskipun Detroit borgar til þess að auka öryggi og heilbrigði barna og fullorð- inna þar í borg, svo að bæjar- stjórn megi gefast kostur á að kynna sjer, hvort svipaðar breyt ingar gætu komið til greina á skipulagi Reykjavíkur“. Sigfús Sigurhjartarson flutti viðbótartillögu við tillögu Gísla, þess efnis, að bæjaryfirvöldun- um beri að vinna að því að nauðsynlegar breytingar yrðu gerðar á skipulagslögum bæj- anna. Báðar tillögurnar voru sam- þykktar samhljóða. fjölskák í KVÖLD kl. 19,30 teflir Ás- mundur Ásgeirsson fjöltefli við 20—30 menn í Mjólkurstöðinni við Laugaveg. Þeir, sem ætla sjer að tefla við hann, eru vin- samlega beðnir um að hafa töfl með sjer. Allur ágóðinn af keppni þess- ari rennur til styrktar Finn- landsfararinnar, en eins og kunnugt er, verður haldið Norð- urlandamót í skák í Helsing- fors í Finnlandi, dagana 29. júlí tii 11. ágúst, þar sem Is- lendingum er boðið að senda tvo menn til að keppa um Norð- urlanda meistaratign í skák. í næstu viku mun Guðmundur S. Guðmundsson einnig tefla fjöl- tefli í Mjólkurstöðinni, í sama tilgangi, en ákveðið hefur verið að senda þá báða, Ásmund og Guðmund til Finnlands fyrir ís- lands hönd. Gísii Sveinsson skipaður sendiherra Á RÍKISRÁÐSFUNDI höldn- um 19. þ. m. skipaði forseti Islands Gísla Sveinsson til þess að vera sendiherra íslands í Noregi, jafnframt var honum veitt lausn frá sýslumannsem- bættinu í Skaftafellssýslu frá 1. júlí að telja. Ennfremur var Stefáni Þorvarðarsyni sendi- herra veitt lausn frá embætti sem sendiherra íslands hjá norsku ríkisstjórninni. (Frjettatilkynning frá ríkisráðsritara). London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BEVIN, utanrikisráðherra, skýrði í dag neðri deildinni bresku frá tveggja daga viðræð- um sínum við frönsku stjórn- ina. Kvað hann bæði Breta og Frakka nú aðeins bíða eftir því, að svar bærist við orðsendingu þeirra til Rússa um hjálpartil- boð Marshalls, utanríkisráð- herra. Sagði Bevin í þessu sam- ! bandi, að Bretar væru staðráðn ir í að láta ekki tilboð Banda- ríkjanna ganga sjer úr greipum, en þeir, ásamt Frökkum, hafa farið fram á það við Rússa- stjórn, að Molotov taki þátt í þríveldaráðstefnu um málið. Bevin skýrði frá þessu, er umræður um utanríkismál hóf- ust í neðri málstofunni, en Eden tók þar fyrstur til máls fyrir hönd stjórnarandstæðinga. NÝ VON. Eden kvað tilboð Marshalls ; hafa vakið nýja von í Evrópu. j Sagði hann að ræða hans væri j stórviðburður í veraldarsög- unni. Um ástandið í löndum Aust- ur-Evrópu hafði Eden það að segja, að það vekti nú vaxandi ugg manna á meðal. í Búlgariu hefði leiðtogi stjórnarandstæð- inga verið handtekinn, en marg ir fylgjendur hans gerðir rækir af þingi. — í Grikklandi hefðu kommúnistar lýst yfir þeirri ákvörðun sinni, að þeir mundu berjast gegn aðstoð Banda- ríkjamanna. í Austurríki væri stjórnmálaástandið mjög alvar- legt. XJNGVERJ ALAND. En langsamlega alvarlegasta ástandið, sagði Eden loks, ríkti í Ungverjalandi. — Þar hefðu kommúnistar hrifsað til sín völdin með aðstoð Rússa, sem svo brigsluðu Bretum um af- skipti af ungverskum innanrík- ismálum. VERSNANDI SAMBÚÐ. Eden lauk ræðu sinni með því að segja, að Bretar hefðu enn mikla samúð með Rússum, en hinu yrði þó ekki neitað, að að undanförnu hefði sambúð þess- ara tveggja þjóða farið versn- andi. LÖNDON: — írar hafa ný- lega gert samning við Banda- ríkjamenn um kaup á Vt milj. smálesta af kolum fyrir 3.500.000 dollara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.