Morgunblaðið - 20.06.1947, Qupperneq 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
SA- og síðar SV-kaldi. Skúrir.
GLÆSILEGT ÍSLANDSMEÍ
— Sjá íþróttir bls. 7.
135. tbl. — Föstudagur 20. júní 1947
Landsþing Kven-
fjelagasambands
íslands
SJÖUNDA landsþing Kven-
fjelagasambands íslands var
sett í Húsmæðraskóla Reykja-
víkur miðvikudaginn 18. júní,
kl. 8,30 síðdegis.
Mættir voru 33 fulltrúar úr
flestum sýslum landsins, auk
stjórnar, framkvæmdastjóra og
sendikennara sambandsins. —
Væntanlegir eru nokkrir fulltrú
ar hingað til bæjarins næstu
daga.
Við setningu þingsins flutti
forseti þingsins, frú Ragnhildur
Pjetursdóttir ræðu. Minntist
hún nokkurra merkiskvenna,
sem látist hafa s.l. ár. Fundar-
konur risu úr sætum og vott-
uðu hinum látnu virðingu sína.
Á þessum fundi voru lögð
fram kjörbrjef fulltrúanna og
kosið í fastar nefndir.
Fundur hófst í gær kl. 10 í
Húsmæðraskólanum. — Fram-
kvæmdastjóri Sambandsins frú
Svava Þorleifsdóttir, lagði
fram starfsskýrslu sambandsins
ásamt reikningum frá árunum
1945—1946. Skýrslan bar með
sjer, að s’tarf sambandsins er í
örum vexti, enda eru samtök
þessi fastar skipulögð en þau
áður voru.
Að loknum hádegisverði hófst
fundur í fyrstu kenslustofu Há
skólans. Þar var lögð fram fjár
hagsáætlun fyrir næstu tvö ár
ásamt greinargerð. Eftir nokkr
ar umræður var málinu síðan
vísað til fjárhagsnefndar.
Þá lagði frú Hulda Stefáns-
dóttir, forstöðukona Húsmæðra-
skólans fram nefndarálit um
handávinnu stúlkna í framhalds
sltólum. Skýrði hún álitið með
nokkrum orðum. Urðu síðan all
miklar umræður um málið.
Lagðar voru fram tillögur um
smávægilegar lagabreytingar
og frumvarp að þingsköpum.
I gærkveldi sátu fulltrúar
boð Kvenrjettindafjelags ís-
lands í Tjarnarcafé. í dag'hefst
fundur kl. 1,30 í Háskólanum.
Þar flytur frú Rannveig Kristj-
ánsdóttir erindi um framtíðar-
starfsemi Kvenfjelagasambands
íslands. Á morgun á sama tíma
flytur Helgi Elíasson fræðslu-
málastjóri erindi um húsmæðra
skóla. Ollum konum er heimill
aðgangur að þessum erindum.
Hallveigarslaðir
Eins og sjá má á myndinni verða flallveigastaðir fallegt hús. Þar verður miðstöð kvenfje-
laga landsins. í framhlið hússins verða búðir, sem verða ieigðar út verslunarfjelögum og
þar á líka að vera kaffibar, þar sem selt verður hið alþekkta „Hallveigarstaða-kaffi“.
Fimm frægir frjáls-
íþróttamenn á afmælis-
móti Í.R.
A FUNDI bæjarstjórnar í
gær skýrði borgarstjóri frá því,
að hann hefði í samráði við raf-
magnsstjóra, sent fyrirspurn
um það til ríkisstjórnarinnar,
hvort hún vildi gerast þátttak-
andi að væntanlegri viðbótar-
virkjun Sogsins. Svar hefði
ekki enn borist frá ríkisstjórn-
m. fer fram á Iþróttavellinum í inni' Hinsvegar hefði bæjarráð
Koma frá Svíþjóð
Lík finnsf í höfninni
LAUST fyrir hádegi í gær,
varð vaktmaður á bv. Skalla-
grímur þess var, að lík flaut
upp á milli Skallagríms og ís-
lendings, en skip þessi liggja
við Löngulínu.
Rannsóknarlögreglunni var
þegar gert aðvart. Við rann-
sókn kom í ljós, að hjer var um
að ræða lík Bjarna Árnasonar
skipverja á ms. Hafborg, er
hvarf þann 24. janúar s. 1.
Það var síðast vitað um ferð-
jr Bjarna heitins, að hann ætl-
aði að fara um borð í skip sitt,
en þangað kom hann aldrei.
Hafborg lá þá á svipuðum slóð-
um og var þriðja eða fjórða
Bkip frá bryggju.
DAGANA 29. til 30. þ
Reykjavík frjálsíþróttamót í tilefni af 40 ára afmæli lR. — Á
mótinu mæti 5 afbestu frjálsíþróttamönnum Svía og keppa þeir
hjer við bestu frjálsíþróttamenn okkar. Má búast við að mót
þetta verði eitt það merkasta, sem haldið héfur verið i Evrópu
á þessu ári. -j jjÉff
Fyrri dag mótsins verður®----------------—1---------------
keppt í þessum 7 greinum: 100 f meistari og hækkaði sig enn,
stökk 1,99.
Olle Lœssker.
Olle Læssker er 25 ára, lög-
regluþjónn í Gefle. — Einn af
fjólþættustu íþróttamönnum
Svía, bæði í stökkum og sprett-
hlaupum. Verið 7 sinnum land-
liðsmaður Svía í 100, 200 m.
hlaupum og langstökki Sænskur
meistari í langstökki í fyrra og
varð svo Evrópumeistari í Oslo,
stökk þá 7,42 m.
Roland Sundin.
Roland Sundin er 24 ára, versl
unarmaður frá Orebro. Þekkt-
astur undir nafninu „Valadals-
drengen“, en Valadalurinn er
sá staður, sem sænskir íþrótta-
menn æfa sig. Roland Sundin
er einn frægasti hlaupari Svía
á vegalengdunum frá 1500 til
5000.
Roland Nilsson,
Roland Nilsson, 22 ára gam-
all, vinnur hjá sænska flughern
um. Hann er nú besti kúluvarp-
ari Svía og hefur verið lands-
maður þeirra nokkrum sinnum.
Niðurröðun á keppninnar
verður í samráði við íþróttaráð
Reykjavíkur og þau fjelög,
sem senda keppendur á mótið.
m. hlaupi, 1000 m. boðhlaupi,
4x100 m. boðhlaupi, langstökki,
hástökki, kúluvarpi og kringlu
kasti. — Seinni daginn verður
keppt í 200 m. hlaupi, 400 m.
hlaupi, 2000 m. hlaupi, 1000 m.
boðhlaupi, kúluvarpi, lang-
stökki, hástökki og spjótkasti.
Að kvöldi fyrri dagsins er
sennilegt að Svíinn Atterwall
sýni spjótkast, en keppni verð-
ur þá engin.
Fararstjóri verður Sverker
Benson, ritstjóri við Iþróttablað
ið sænska, en hann var einnig
fararstjóri sænsku íþrótta-
mannanna, sem komu hingað
fyrra ár.
Á afmælismóti ÍR, sem verð-
ur 29. og 30. þ. m. keppa 5
Svíar, þar af 3 Evrópumeistar-
ar. —.Þeir, sem koma eru:
Lennart Atterwall.
Lennart Atterwall, 36 ára
gamall, kennari að menntun. —
Orðið sjö sinnum sænskur
meistari í spjótkasti og einu
sinni enskur meistari í spjóIT-
kasti, eða árið 1935. Tvívegis
sænskur meistari í fímmtar-
þraut. Evrópumeistari í spjót-
kasti í Oslo í fyrra. Methafi í
spjótkasti og hafði áður sænska
metið í fimmtarþraut.
Anton Bolinder. ■
Anton Bolinder vinnur við
sænska herinn, 32 ára. — 1932
varð hann annar á sænska
meistaramótinu, síðan verið
einn af bestu hástökkvurum
Svía, en aldrei verið sænskur
meistari í þeirri grein fyrr en' í
fyrra. 1 Oslo varð hann Evrópu-
Prófsprengingar
við Sogið
Fararleyfi ónauð-
synlegt til stuFtr-
ar Frakklands-
dvalar
STJÓRN Frakklands hefir af
numið áritunarskyldu fyrir ís-
lenska þegna, sem ferðast vilja
til Frakklands til stuttrar dvál-
ar. Þurfa íslendingar nú eigi
að afla sjer fararleyfis til Frakk
lands eða dvalarleyfis þar,
nema þeir ætli sjer að dvelja
lengur en þrjá mánuði í land-
inu eða taka að sjer launaða
atvinnu. v.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
samþykkt að fela rafmagns-
stjóra að láta fram fara próf-
sprengingar fyrir undirgöngum
vegna virkjunar Sogsins og
hefði samþykki hlutaðeigandi
ráðuneytis fengist fyrir þessu.
Ennfremur hefði bæjarráð sam
þykkt, að heimila rafmagns-
stjóra, að ráða A. B. Berdal,
verkfræðing, þann er var við
virkjun Sogsins síðast, ráðunaut
virkjunarinnar með þeim fyrir-
vara, að bæjarráð samþykki
ráðningarkjörin.
Nýr forsætisráðherra
í Japan.
LONDON: — Tetsu Katay-
ama, foringi social demokrata í
Japan var nýlega kosinn for-
sætisráðherra landsins af jap-
anska þinginu með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða.
BUENOS AYRES: — Fregn-
ir herma, að Brasilíumenn hafi
stungið upp á því, að Rio-ráð-
stefnan yrði haldin þ. 15. júlí n.
k. og hefir Argentínustjórn nú
þessa uppástungu til athugun-:
ar.
PRAG: — Bandaríska sendi-
ráðið hjer hefir tilkynt, að
tjekkneska stjórnin hafi opin-
berlega beðist afsökunar á níð-
kvæði um Truman forseta, sem
nýlega birtist í kommúnista-
blaði einu.
„Viðey" kemur iil
Sfykkishólms
Frá frjettaritara vorum
í Stykkishólmi, fimtud.
TOGARINN Viðey, eign
Stykkishólmsbúa, kom hingað
í fyrsta skifti að kvöldi þjóð-
hátíðardagsins. Mikill mann-
fjöldi fagnaði komu skipsins
og fór fram móttökuhátíð,
ræður voru fluttar; Lúðrasveit
in Víkingur ljek nokkur lög
undir stjórn Víkings Jóhanns-
sonar. Ræðumenn voru Sigurð-
ur Steinþórsson kaupfjelags-
stjóri, er árnaði togaranum,
skipshöfn hans og bæjarbúum
allra heilla. Jón Björn Elíasson
þakkaði ræðuna og óskaði
Stykkishólmsbúum og togar-
anum gæfu og gengis: Að lok-
um söng Karlakórinn: ísland
ögrum skorið.
Teikning af Haliveigarstöðum
Áætlaður bygglngakoslnaður um 3 mi!|.
1 GÆR voru í fyrsta skifti birtar opinberlega teikningar
af hinu fyrirhugaða kvennaheimili Hallveigarstöðum. Teikn-
ingar eru gerðar af Sigmundi Halldórssyni og Sigvalda
Thordarson.
Fjögra hæða hús.
Húsið á að standa á spildunni
milli Túngötu, Garðastrætis og
Öldugötu og lengd þess verður
17,5 m. Er það fjögra hæða með
rúmgóðum kjallara að auki. í
húsinu verða 40 gisti og náms-
meyjaherbergi, en einnig er
ætlunin oð starfsrækja í því
bókasafn og barnalesstofu og
vinnuskóla fyrir konur, þar
sem kendar verða ýmsar hpnn-
yrðir. Þá verða þar bækistöðv-
ar Kvenfjelagasambands ís-
lands, Kvenrjettindafjelagsins,
og Mæðrastyrksnefndar.
«>-
Fjársöfnun.
Áætlaður byggingarkostnað-
ur er talinn 3 miljónir. Hafa
konur þegar safnað 800 þúsund
um. Er það sannarlega mikill
dugnaður, en samt ætla þær nú
að herða sig enn betur og ætla
að hafa fjársöfnunardag 24.
júní.
Byggingarnefndina skipa:
Laufey Vilhjálmsdóttir formað
ur, Guðrún Jónasson, Kristín
Ólafsdóttir, Rannveig Kristjáns
dóttir, og Rannveig Þorsteins-
dóttir. j