Morgunblaðið - 26.06.1947, Blaðsíða 1
Bandaríkin vilja rjetta
við efnahag Austurríkis
Greiða hernámskostnað í doHurum
Washington í gær.
BANDARlKIN hafa nú ákveðið að veita Austurríkismönn-
um frá 1. júlí að telja frekari stuðning en áður hefir verið í
þei-m tilgangi að rjetta við efnahag landsins. Bandaríkjamenn
háfa hingað til greitt allan herkostnað sinn sjálfir og munu
framvegis greiða hann í dollurum.
■ Þessi ráðstöfun er í samræmi
við þá stefnu Bandaríkjanna að
fara með Austurríki eins og
þau lönd, er frelsuð voru und-
an oki nasismans og að rjetta
við efnahag landsins.
í skýrslu utanríkisráðuneytis
ins um þetta mál, segir ,,að doll
ararnir, sem Austurríkismenn
þannig fá, muni lyfta undir
efnahagslega viðreisn landsins
með því að skapa Austurríkis-
mönnum aðstöðu til að auka
innflutning sinn svo sem kol,
áburð og aðrar nauðsynjar.“
Bandaríkin telja ráðstafanir
þesgar mikilvægt skref í þá átt,
að fá Austurríki viðurkennt
sem frjálst og óháð land og að
ljetta af þeim byrði hernáms-
ins.
I tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins segir einnig, að ýms
tæki, sem tekin hafi verið af
Austurríkismönnum verði nú
fengin þeim í hendur á ný.
Vilja senda þing-
menn í námumar
London í gærkvöldi.
SÍÐAN báðar deildir Banda-
ríkjaþings samþyktu lög þau
um takmörkun á rjetti verka-
lýðsfjelaga, er Truman forseti
hafði neitað að staðfesta, hafa
mótmælaverkföll gegn löggjöf
þessari allmjög breiðst út í
Bandaríkjunum. Meira en 200,-
000 kolanámuverkamenn hafa
nú lagt niður vinnu og talið var
í dag, að ekkert nema krafta-
verk gæti komið í veg fyrir, að
'40.000 verkamenn við skipa-
smíðar legðu einnig niður vinnu.
Kolanámuverkamennirnir festu
í dag spjöld upp hjá námunum
með áletrunum eins og þessum:
—- Látum öldungardeildarþing-
mennina grafa upp kolin. -
Verða ekki varir.
SKIPVERJAR á lmuveiðar-
anum Rifsnes sem höf síldar-
leit í byrjun þessa mánaðar
hafa ekki ennþá sjeð síld vaða.
í fyrradag var skiplð á Húna-
flóa og urðu skipverjar ekki
várir við síld. Veður var ekki
sem hagstæðast, þokusúld.
í fyrrinótt fekk Siglufjarð-
arbáturinn Hjalti nokkrar síld-
ar í reknet út af Siglufirði. —
Síldirnar voru neðst í netjun-
um.
Verkamennirnir halda því fram
að lögin muni grafa grunninn
undan fjelagssamtökum þeirra
og gera að engu takmarkanir
þær, er fjelagasambönd þeirra
höfðu sett við vinnu utanaðkom
andi manna. Álitið er, að verk-
fallsmennirnir eigi sjálfir upp-
tökin að vinnustöðvuninni, en
hafi ekki verið kvattir til henn-
ar af forystumönnum sínum.
Margir þeirra segja sem svo:
— Jeg heyrði, að fjelagar mínir
hefðu ekki farið til vinnu, svo
mjer fanst rjettast að vera
heima líka.
I\lókvísl verður
manni að bana
ÞAÐ SORGLEGA slys varð vestur á Snæfellsnesi s.l.
laugardag, að kvísl stakkst í auga manns, Pjetur Guðbjörns-
sonar frá Sandi, er var að vinna í mógröf, og ljest hann af
völdum þess s.l. þriðjudagskvöld.
Pjetur var ásamt fleiri mönn-^
um að vinna við mógröft í svo-
nefndum Þæfusteinsbotnum
skamt frá Sandi. Vann Pjetur
að stungu móhnausa, en annar
maður kastaði þeim frá honum
upp á brún mógrafarinnar. —
Klofnaði einn hnausinn á kvísl
mannsins, og misti hann við það
vald á kvíslinni. — Hljóp einn
gaddur hennar í auga Pjeturs
og inn í heila.
Læknir var þegar sóttur, en
hann gerði strax ráðstafanir til
þess að náð yrði í hinn slasaða
mann í flugvjel, og var farið
með hann í Landsspítalann í
Reykjavík. Þar ljest Pjetur í
fyrrakvöld.
Vísir að þjóðþingi á hernáms-
svæðám Breta og Bandaríkja-
manna í Þýskalandi
Jón Kjsrtansson
sýslumaður í
Skaftðfellssýslu
FORSETI ÍSLANDS hefur í
dag (25. júní) veitt Jóni Kjart-
anssyni sýslumannsembættið í
Skaftafellssýslu frá 1. júlí n. k.
að telja.
Frjettatilkynning
frá ríkisráðsritara.
Brottflutningi þýskra
vísindamanna mótmælt
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Frankfurt í gær.
ÞJÓÐVERJAR settu i dag fram sínar eigin tillögur um
ráðstafanir til viðreisnar Þýskalandi á fundi í hinu nýstofn-
aða, sameiginlega efnahagsráði hernámssvæða vesturveld-
anna. Það er talið, að Þjóðverjar hafi á undanförnum 14
árum aldrei komist nær því, að fá sitt eigið lýðræðislega
þing en þeir hafa nú gert, með stofnun þessarar samkundu.
Pfegir kunnlr Norðmenn
í fylgd með ríkis-
erfingjanum.
SAMKVÆMT upplýsingum
frá norska sendiráðinu verða í
fylgdarliði norska ríkisarfans,
auk þeirra sem áður hefir ver-
ið tilkynnt um:
Kaare Fostervoll, kirkju- og
kennslumálaráðherra, prófessor
Francis Bull, sem verður full-
trúi Oslóar háskóla, og general
major Ragnvald Roscher Niel-
sen.
"^Upphaf að nýju tímabili.
MacReady, hershöfðingi, for-
maður hinnar sameiginlegu
bresk-bandarísku hernámsnefnd
ar, sagði, að seta þessa þings
kynni að marka upphaf nýrri og
betri tíma fyrir þýsku þjóðina.
Einn fyrsti ræðumaðurinn á
samkundunni var dr. Friedrich
Holzapfer, formaður kristilegra
lýðræðissinna. Hann krafðist
þess, að hernámsveldin hættu
þegar í stað að banna notkun
þýskra einkaleyfa og að not-
færa sjer þau. Einnig vildi hann
að komið væri í veg fyrir frek-
ari brottflutning þýskra verk-
smiðja og það yrði ekki látið
viðgangast í framtíðinni, að
þýskir vísindamenn væru fluttir
úr landi.
Bandaríkin og Ástralía
semja um varnarsvæði
Gagnkvæm aðstoð í styrjöld
Sidney. Einkaskeyti til Mbls. frá Kemsley.
BANDARÍKIN og Ástralía hafa nú komist að samkomu-
lagi varðandi myndu/n ,,varnarsvæðis“ í Kyrrahafinu, segir
í fregn, sem hingað hefur borist frá Washington.
Samkomulag þetta fjallar einnig um gagnkvæma aðstoð
þessara landa, ef til styrjaldar skyldi koma.
Ástralíumenn
fá anieríska bækistöð.
Ástralía á aðallega að sjá um
varnirnar í Suðvestur-Kyrra-
hafinu, fyrir sunnan miðjarðar-
línu og tekur varnarsvæðið yfir
Nýju Guinea, Nýja Bretland,
Nýja Irland, Ellice eyjar, Solo-
monseyjar og Admiraltyeyjar.
Varnarsvæði Bandaríkjanna
nær frá Honolulu til Guam og
Norður-Kyrrahafið alt frá
Honolulu til Aleuteyja og Al-
aska. Ástralíumenn fá Manus,
sem var mikilvæg amerísk hern
aðarbækistöð í styrjöldinni og
var orsök nokkurrar þrætu, með
því að Bandaríkjamenn vildu
gjarna halda henni áfram.
Vilja aukna fram-
leiðslu nýiendnanna
London í gær.
CREECH-JONES, nýlendu-
málaráðherra Breta, hefur til-
kynt, að stjórnin hafi í hyggju
að beita sjer fyrir stofnun
hlutafjelags, sem stuðla á að
aukinni framleiðslu í nýlend-
um Breta.
Kommúnistar
deila á bernámsveldin.
Max Reimann, forystumaður
kommúnista á breska hernáms-
svæðinu, lagði áherslu á aukn-
ingu kola- og matvælaframleiðsl
unnar, þjóðnýtingu jarða og á
það, að stríðsglæpamönnum, er
rjeðu yfir iðnaðartækjum væri
komið fyrir kattarnef og eignir
þeirra gerðar upptækar. Rei-
mann sagðist koma til þingsins
án hinna minstu vona um nokk-
urn raunverulegan árangur af
störfum þess. Hann hjelt því
fram, að hernámsþjóðirnar
ættu aðeins að hafa eftirlit með
störfum ráðsins, en ekki að hafa
þar síðasta orðið. Kommúnist-
ar hafa ekki gert sig ánægða
með úthlutun þingsæta á sam-
kundunni.
Mikið um dýrðir í
Frankfurt.
Þegar ráðið kom saman, var
mikið um dýrðir hjer í Frank-
furt og borgin öll blómum
skrýdd og með hátíðablæ. Ráð-
ið hefur þegar lagt blessun sína
yfir tilnefningu nokkurra
nefnda, er áður hafði verið kom
ið á fót og hefur auk þess skip-
Framh. á bls. 8