Morgunblaðið - 26.06.1947, Qupperneq 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
Suð-austan eða austan kaldi,
- rigning öðru hvoru.
140. tbl. — Fimmtudagur 26. júní 1947
AFURÐASALA og viðskifta-
samningar. Fyrri hluti útvarpS
erindis ntanríkisráðherra j
gærkveldi.
Stærsti liður út-
flutningsins í maí
var óverkaður
saltfiskur
STÆRSTI LIÐUR útflutningsverslunar íslendinga í maí-
mánuði var óverkaður fiskur, fyrir samtals 7,5 miljónir
króna. Stærsti liður innflutningsins var vagnar og flutn-
ingatæki, fyrir um 4,9 miljónir króna.
Hagstofan skýrði Mbl. frá
þessu í gær og gerði jafnframt
nokkra nánari grein fyrir
stærstu liðum inn- og útflutn-
ingsverslunarinnar í maí.
Útflutt vara.
Hinn óverkaði saltfiskur fór
mestmegnis til Grikklands.
Nokkur fór til Bretlands og
Belgíu og lítilsháttar til Dan-
merkur og Þýskalands. ísvar-
inn fiskur var allur fluttur til
Bretlands og nam sala hans
þar 3,9 milj. Freðfiskurinn var
stór liður í viðskiftum maímán
aðar. Það voru aðallega Bret-
land og Frakkland sem fiskinn
keyptu, en samanlagt söluverð
hans voru 6,9 miljónir. Lýsi
seldum við fyrir 2.5 milj. mest
til Bandaríkjanna eða fyrir 2
milj. Til Tjekkóslóvakíu seld-
um við síldarolíu fyrir 2 milj.,
og fiskimjöl fyrir 1,3 og síldar-
mjöl fyrir 2,1 milj. króna.
Ekki sama hvert
tunnan fer •
í GÆRMORGUN komu
nokkrir menn frá Verkamanna
fjelaginu Dagsbrún upp að
hinni nýju olíustöð Olíufjelags
ins h.f. í Hvalfirði og í nafni
fjelagsins stöðvuðu þeir alla
afgreiðslu á bensíni frá tönkum
fjelagsins.
Nokkru eftir hádegi í gær
varð samkomulag milli Olíu-
fjelagsins og Dagsbrúnar um
að í stöðinni yrði ekki afhent
bensín á tunnur, en fara ættu
suður fyrir Hvalfjörð. Hinsveg-
ar væri leyfilegt að setja á
bensíngeyma allra bíla. Enn-
fremur varð samkomulag um
að afgreiða mætti bensín á
tunnur, er fara ættu til vesturs
eða norðurs.
Innflutningurinn.
Stærstu liðir innflutnings-
ins voru sem hjer segir: Trjá-
viður og trjávara fyrir 1,6’Fyrsti farmur fjelagsins.
Varðskipsmaður-
inn sem var ,ræm
Samningarnir milli
síldarverksmiðjanna
og Alþýðusam-
bandsins farnir út
um
þúfur
SAMNINGAUMLEITANIR þær, sem farið hafa fram
milli fulltrúa síldarverksmiðja utan Siglufjarðar og fulltrúa
Alþýðusambands íslands og Alþýðusambands Norðurlands,
hafa farið út um þúfur.
jg-—-yw~r. . . - - ... '
Það var þann 18. júní s.l. að
••avr-
milj. kr. Mest keyptum við frá
Rússlandi. Af álnavöru keypt-
um við fyrir 2.3 milj. kr. mest-
megnis frá Ítalíu, Bretlandi og
Sviss. Af fatnaði úr vefnaði,
sem kom mest frá Bretlandi og
Tjekkóslóvakíu fyrir 1,7 milj.
Brensluolíu fyrir 2,4 milj. Af
járni og stáli fyrir 1 milj. Mun-
ir úr ódýrum málmum námu
1.5 milj. Hverskonar vjelar og
áhöld (ekki rafmagns) fyrir
3,7 milj. mest frá Ameríku, en
einnig nokkur frá Bretlandi og
Svíþjóð. Rafmagnsvjelar og
áhöld fyrir 2,9 milj. mestmegn
is frá Ameríku. Og eins og fyrr
segir var stærsti liður innflutn
ingsverslunarinnar vagnar og
flutningatæki. Þau komu nær
öll frá Ameríku, eða fyrir 3,1
milj. kr. Frá Bretlandi fyrir
1.6 milj. kr.
Skip það, er flutti bensín
þetta til hins nýstofnaða Olíu-
fjelags, er fyrsti farmurinn til
fjelagsins, en Olíufjelagið er
einkaeigandi Hins ísl. steinolíu
hlutafjelags.
Hraðskákkepni
I kvöld’ verður hraðskák
keppni í Mjólkurstöðinni við
Laugaveg. Keppnin hefst kl. 8.
Keppt vérður eftir klukku,
þannig að menn verða að leika
einn leik á fimjm sekúndum.
Keppt verður í mörgum riðlum.
Tveir efstu menn úr hverjum
riðli fara svo í milliriðla og
síðast verður svo úrslitakeppni.
Allur ágóðinn rennur til Finn-
landsfararinnar. Öllum er heim
il þáttaka og aðgangur að
keppni þessari.
160 til 260 kr.
sekt fyrir Ijelega
hemla
GÖTULÖGREGLAN hefir nú
fyrir nokkrum dögum tekið upp
að nýju herferð sína gegn þeim
bílum, sem hafa ljelega hemla.
Mál sem þessi heyra nú undir
hinn nýja umferðardómstól og
eru því afgreidd jafnóðum af
dómstólnum. Þeir menn, sem
staðnir eru að því, að bílar
þeirra sjeu búnir ljelegum
hemlum hafa verið dæmdir í
100 til 200 króna sekt við
fyrsta brot, en þær hækka sje
um ítrekað brot að ræða.
Áður en umferðardómstóll-
inn kom til sögunnar tók af-
greiðsla þessara „bremsumála“
mjög langan tíma og því nær
ókleyft að fást við þau í mjög
stórum stíl.
HJORTUR BJARNASON
varðskipsmaðurinn, sem skip-
stórinn af breska togaranum
„Ben Heilem“ strauk með til
Englands fyrir skömmu. Mynd
þessi var tekin um borð í skip-
inu, sem hann fór með heim.
Myndin birtist í skosku blaði
og segir þar, að Hjörtur sje í
fötum af skipstjóranum, sem
„rændi“ honum. — Skosk blöð
skrifuðu talsvert um þenna at-
burð og gátu þess, að Hjörtur
hefði verið í besta yfirlæti hjá
skipstjóranum, sem hefði farið
með hann í skemtiferðalag um
Aberdeen og yfirleitt látið fara
sem best um hann.
I. fiokks méiið
hefst í kvðld
KNATTSPYRNUMÓT Reykja
víkur í fyrsta flokki hefst á
Iþróttavellinum í kvöld kl. 7,30.
Taka fjögur fjelög þátt í mót
inu, KR, Valur, Víkingur og
Fram.
Fyrsti leikur mótsins fer
fram á milli KR og Fram, en
strax á eftir keppa Valur og
Víkingur.
eigendur síldarverksmiðja á
Dagverðareyri, Krossanesi og
Hjalteyri, svo og stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins, fóru fram
á það við stjórn Alþýðusam-
bands íslands og aðra aðila fyr-
ir verkalýðsfjelögin á þessum
stöðum, að hafnar yrðu samn-
ingaumleitanir um kaup og kjör
l r \
1 síldarverksmiðjunum á Skaga-
strönd, Hjalteyri, Dagverðar-
eyri, Krossanesi, Húsavík og
Raufarhöfn. Skyldu samninga-
umleitanirnar hefjast á Akur-
eyri þann 22. júní. Alþýðu-
sambandið f jelst á þessi tilmæli.
Á fyrsta fundi samninga-
nefnda fulltrúa verksmiðjanna
og fulltrúa Alþýðusambandsins,
kom í ljós, að Alþýðusamband-
ið setti það skilyrði fyrir þátt-
töku í þessum samningaumleit-
unum, að jafnframt yrði samið
um kaup og. kjör milli S. R. og
Verkamannafjelagsins Þróttur
á Siglufirði. Fulltrúar síldar-
verksmiðjanna kváðust að sjálf-
sögðu ekki geta tekið upp samn
inga við Þrótt, því þeir teldu að
bindandi samningar væru komn
liggja á milli hluta, þar til úr-
skurður Fjelagsdóms kæmi.
Fulltrúi Alþýðusambandsins
neitaði að verða við þessum til-
mælum fulltrúa verksmiðjanna.
Á öðrum fundi samninga-
nefndanna, er var haldinn 23.
júní s.l. var því lýst yfir, að
ekki hefði tekist að finna grund
völl fyrir því, að hefja samn-
ingaumleitanir.
Verkalýðsfjelögin utan Siglu-
fjarðar, sem hjer eiga hlut að
máli höfðu yfirleitt óskað eftir
því að umræður færu fram og
deilunni milli Þróttar og S. R.
yrði ekki blandað í þetta mál.
En fulltrúi Alþýðusambands
íslands og Alþýðusambands
Norðurlands, sem höfðu umboð
margra fjelaganna, mörðu það í
gegn þrátt fyrir mótmæli þeirra
fjelaga, sem sjálf höfðu sent
fulltrúa til samninga, að ekki
yrði samið um kaup og kjör,
nema því aðeins að samningar
næðu einnig til Verkamannaf jel.
Þróttur á Siglufirði.
Alþýðusambandinu hefur tek
ist að hindra í bili, að samn-
MONTGOMERY
í CEYLON
NEW DEHLY: — Montgo-
mery lávarður, yfirmaður
breska herforingjaráðsins, er
nú staddur í Ceylon á leið sinni
til Singapore og Ástralíu.
r
Eslensk svansegg í
eign bresks jarls
NÝLEGA var flogið
með fjögur svansegg frá
Prestvvick í Skotlandi til
London og verða eggin
geymd í Whipsnade dýra-
garðinum í Badsforshire.
Egg þessi voru eign
jarlsins af Harewood, scm
ljest fyrir skömmu. Eggin
hafði hann á sínum tíma
fengið send að gjöf frá ís-
landi. í erfðaskrá sinni
mælti jarlinn svo fyrir að
dýragarðurinn skyldi fá
eggin.
ir á milli þess f jelags og S. R. á inSar væru teknir upp milli síld
arverksmiðjanna og verkalýðs-
f jelaganna utan Sigluf jarðar og
að Þróttardeilan væri látin
liggja milli hluta.
Alþýðusambandinu tókst að
koma á samúðarverkfalli með
Dagsbrún hjá síldarverksmiðj-
unum, en fara nú þá leið að dul-
búa samúðarverkfallið með
Dagsbrún á þennan hátt.
Siglufirði, þar eð miðlunartil-
laga sáttasemjara í deilunni
heíði verið samþykt við at-
kvæðagreiðslu í fjelaginu.
Þessi atkvæðagreiðsla hefur
verið vjefengd af kommúnistum
í Þrótti og Alþýðusambandinu,
og hefur stjórn S. R. höfðað
fjelagsdómsmál til viðurkenn-
ingar á því, að atkvæðagreiðsl-
an hafi stofnað bindandi samn-
inga um kaup og kjör milli
Þróttar og S. R. á Siglufirði.
Ágreiningur um lögmæti at-
kvæðagreiðslunnar í Þrótti er
atriði, sem heyrir undir Fjelags
dóm að úrskurða og sámkv. 17.
gr. laga um stjettarfjelög og
vinnudeilur, er óheimilt að
hefja vinnustöðvun ef ágrein-
ingur er einungis um atriði, sem
Fjelagsdómur hefur úrskurðar-
vald í.
Bentu fulltrúar síldarverk-
smiðjanna á, að útilokað væri
að hefja nokkrar viðræður við
Þrótt, meðan biðið væri eftir úr-
skurði Fjelagsdóms. Hinsvegar
kváðust fulltrúarnir ekkert
hafa við það að athuga, að full-
trúar Þróttar fylgdust með öll-
um samningatilraunum. Fulltrú
ar verksmiðjanna buðust nú til
að semja um kaup og kjör hjá
verksmiðjum utan Siglufjarðar
og að láta deiluna við Þrótt
íslenskir lögreglu-
menn í heimsókn
hjá Scofland Yard
TVEIR íslenskir lögreglu-
menn eru nýlega komnir heim
frá Bretlandi, en þangað fóru
þeir á vegum British Council,
til þess að kynna sjer almenna
starfsemi hinnar heimskunnu
lögreglu Scotland Yard. Menn
þessir voru Matthías Guð-
mundsson stöðvarmaður og
Þórður Kárason lögreglumað-
ur. Láta þeir mjög vel af ferð-
inni er var hin lærdómsríkasta.
Lögreglumenn frá Frakk-
landi, Tjekkóslóvakíu og Sví-
þjóð voru einnig í slíkri kynn-
isferð, er þeir Þórður og Matt-
hías voru þar ytra.