Morgunblaðið - 08.07.1947, Qupperneq 8
8
MORGtTWBIi A9IS
Þriðjudagur 8. júlí 1947
Útg.: H.f. Árvakur, Rr-ykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands.
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Niðurstaða
verkíallanna
DAGSBRÚNARVERKFALLIÐ er til lykta leitt og aðr-
ar vinnudeilur samtímis. Kauphækkun sú, sem fulltrúar
Dagsbrúnar sættu sig við, nemur 3—5,6%. Til að ná þess-
ari kauphækkun -hefir þurft rúmlega fjögurra vikna
verkfall. Á þeim vikum hafa verkamenn orðið fyrir slíku
tjóni að það tekur þá 1% til nokkuð á 3. ár að vinna það
upp, með þeirri hækkun er fengist hefur.
Vissulega veitir verkamönnum þessvegna ekki af hækk
uninni úr því sem komið er. En því miður er ástandið 4 ísl.
atvinnulífi og fjármálum þannig nú, að hætta er á, að
verkamenn vinni aldrei upp það tjón, sem þetta mánaðar-
Verkfall er búið að valda þeim. Sú aukning verðbólgunnar
sem leiðir af þessari grunnkaupshækkun, þótt eigi sje
hún meiri, mun á skemmri tíma en 1—2 árum gera að
engu þá kauphækkun, sem nú er orðin.
Mega menn í því sambandi minnast afleiðinga grunn-
kaupshækkananna 1946, sem þó voru nokkru meiri en
nú. Kommunistar segja, að aukin dýrtíð sje nú rúmu ári
síðar búin að gera að engu þær kjarabætur, sem með því
veTkfalli fengust. En það verkfall stóð þó ekki nema
viku og varð verkamönnum þess vegna ekki eins dýr-
keypt og þetta.
En auk þess sem kauphækkanirnar ganga í sjálft sig
vegna verðbólgunnar, sem þær hafa í för með sjer, er
yfirvofandi hætta á, að hin geigvænlega dýrtíð hafi leitt
til stöðvunar atvinnuveganna löngu áður en Dagsbrúnar-
menn hafa unnið upp það tjón, sem ráð kommúnista nú
hafa valdið þeim. Verkamenn munu þessvegna skilja, að
þeir hafa til lítils barist og engin gifta fylgir Lokaráðum
kommúnista.
Sjálfsagt láta kommúnistar sjer allt þetta í ljettu rúmi
liggja. Þeir vissu frá upphafi ofur vel, að verkamenn
hlytu að bíða tjón af þessum verkföllum. Ætlunin var
ekki að berjast fyrir hagsmunum þeirra, heldur til hins
að sanna, að ekki væri unnt að stjórna íslandi nema með
atfylgi kommúnista.
Það var þetta, sem kommúnistar lögðu allt kapp á að
sanna, en sú viðleitni þeirra hefur mistekist þeim hrapar-
legar en nokkuð annað. Þeim hefir að vísu tekist að gera
illt af sjer. Við því bjuggust allir, enda var vitað, að þeir
höfðu viljann til þess.
Það er og ekkert nýtt, að kommúnistar láti illt af sjer
stafa. Þeir efndu til Dagsbrúnarverkfalls 1946, með mun
meiri árangri en nú og voru þeir þó þá sjálfir í ríkisstjórn
og höfðu heitið því að koma í veg fyrir grunnkaupshækk-
anir til að grafa ekki undan fjárhagskerfi landsins.
Allt þetta sviku þeir, og gat því enginn búist við góðu
af þeim nú. Framferði þeirra hefir einmitt bæði fyrr og
síðar sýnt, að þeir eru óhæfir til samstarfs um stjórn
landsins. Flesta þá, sem um þetta efuðust áður, hefir kom-
múnistum nú tekist að sannfæra um, að ekki sje komandi
nærri þeim.
Árangurinn af öllu brölti þeirra nú er því sá, að þeir
hafa aldrei verið fjær því marki, sem þeim hefur verið
skipað að ná, sem sje, að komast í stjórn landsins.
Islendingar una því ekki, að lítill minnihluti skuli með
ólýðræðislegum aðferðum ætla að hrifsa til sín þau völd,
sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hefir samkvæmt
stjqrnskipun ríkisins fengið Alþingi og ríkisstjórn.
Lýðræðið.íslenska hefur staðið af sjer hættulegustu at-
lögu, sem því hefur verið veitt. Sjúku fjárhagskerfi þjóð-
arinnar hefur kommúnistum hinsvegar tekist að veita enn
eitt sár. íslendingar munu ekki láta það á sig fá, heldur
mun yfirgnæfandi meirihl. þeirra snúa sjer að því að
lækna þetta sár sem aðrar meinsemdir þjóðlífsins. Fyrsta
læknisráðið er að bægja níðhöggnum frá að vinna fleiri
skemdarverk á þjóð sinni en hann hefir þegar unnið.
DAGLEGA LÍFINU
Frjálsir menn.
REYKVÍKINGAR eru nú aft
ur orðnir frjálsir áð mörgu,
sem þeim hefir verið bannað
í heilan mánuð. Kaupmenn
geta nú flutt heim vörur sínar.
Verkamenn geta unnið, þar
sem þeim býðst vinna. bílaeig-
endur geta keypt bensín, ferða-
menn fengið farangur sinn og
jafnvel íslenska póststjórnin
getur á ný allra náðsamlegast
flutt í land póst, sem legið hefir
í heilan mánuð 1 skipum úti á
ytri höfn. Þjóðhátíðarnefndin
getur látið taka niður flagg-
stengur á götunum og fagna
því allir, nema þeir ribbaldar,
sem hafa gert sjer það til
'dægrastyttingar, að beygja þær
og bögla. Nú má hleypa öllum
fornmönnum og höfðingjum í
land í Reykjavík, eða hvar, sem
er á landinu, hvor-t sem þeir
koma í steini eða eir. •— Dá-
samlegt er að lifa sem frjálsir
menn í frjálsu landi!
•
Úrillur kollega.
KOLLEGA vor í „Gerskum
Tíðindum“ er óvenju úrillur
þessa dagana og er ekki á-
nægður með neitt, nema sjálf-
an sig. Verst er honum við okk
ur kollegana í smáletursdálk-
um blaðana. Hann vill meira
að segja kenna okkur um, að
logið er upp viðtali við Olaf
Thors í norsku blaði. -
En annars talar hann um
„skítinn í kirkjunni og skötuna
sem rak á Þyrli“, eins og sagt
er, en varast að minnast á
Snorra Sturluson. En sann-
gjarnir menn sjá að honum er
nokkur vorkun. En illa ér jeg
svikinn ef hann sker sjer ekki
penna til að skrifa um „Snorra
galdur inn meiri“ .og ber sig
þá aumlega yfir vonsku „aftur-
halds og Bandaríkjaagenta".
9
Skemtiferðafólk.
SKEMTIFERÐIR bæjarbúa
um helgina verða mörgum
minnisstæðar. Á Þingvöllum og
fleiri stöðum, sem ferðafólk
leitar til, stóðu menn í höm all-
an sunnudaginn, eins og úti-
gangshross á Þorranum.
Annaðhvort er almanakið
orðið hringavitlaust, eða að það
verður a snúa öllu tímatali við.
Kalla það vetur, sem við nú
nefnum sumar og sumar vetur.
Það er rjettnefni.
Jeg hitti kunningja minn í
gær, sem var að koma úr sum-
arfríi. Hann bölvaði þeim illu
forlögum, sem höfðu rekið hann
til að eyða' sumarfríinu sínu
þetta snemma. Annan hitti jeg,
sem var að fara í sumarfrí.
Hann krossbölvaði yfir að hafa
ekki farið fyr í frí.
9
Tveir sólbrendir.
ÞAÐ ER SJALDGÆFT að'
sjá menn hjer í bænum. sem
hafa orðið brúnir af sól á þessu
sumri. Það er hægt að segja
með vissu hvernig á því stend-
ur. Annað hvort eru það út-
lendingar, eða Islendingar- að
koma úr utanlandsför sem eru
9
brúnir á hörund.
En í gær rakst jeg á vin minn,
sem var eins og múlatti í fram-
an. „Velkominn úr sigling-
unni“, sagði jeg.
„Jeg er ekki að koma úr
neinni andsk .... siglingu“,
sagði hann. „Jeg geng í ljós!“
9
Góð hugmynd.
ÞETTA VAR GÓÐ HUG-
MYND hjá honum, sem sumar-
gistihúsin hjer á landi ættu að
taka upp, eða einhverjir fram-
takssamir náungar hjer í bæn-
um.
J>að er hugmynd að einni
höllinni. enn — sólarhöllinni —
í stuttu máli: Koma ætti upp
einni heljarmikilli höll með
sóibaðslömpum, þar sem menn
gæíu fengið sólbað á hvaða
tíma dagsins sem vera skyldi
fyrir vægt gjald. — Það yrði
vel sótt höll.
Það mætti kanski nota þetta
hús sem skautahöll á veturna,
þegar nóg er af sól úti.
Fjár til hallarinnar væri sjálf
sagt að afla með bílhappdrætti.
9
Ráðleggingar.
NÚ ERU margir að.búa sig
til sumarferðalaga. Gamalt ís-
ienskt máltæki segir, að eng-
inn kunni sig í góðru veðri
heiman að búa og þótt ekki sjeu
miklar líkur til að neinn leggi
af stað úr bænum í neinni blíðu
ráðlagt, að hafa með sjer hlý
ullarnærföt, sjóhatt og helst
stakk og ha vaðstígvjel í sum-
arfríið. Stormúlpa, sem kallað
er má heita bráðnauðsynleg
flík í sumarfrílnu og ekki má
gleyma ullarpeysum, lopapeys
um. ullarsokkum og ullartrefl-
um. — Með slíkar flíkur, sem
hjer hafa verið nefndar ættu
menn að komast ókalnir heim
úr sumarfríinu.
P.S. En öruggast er að vera
heima og hafa hitaveituna á!
o
Forvitni.
DÆMI UM hvernig menn
geta spurt:
„Kæri Víkverji, getur þú
sagt mjer hvort freðfiskimats-
menn, ullarmatsmenn og kjöt-
matsmenn geta fengið inn-
göngu í Náttúrulækningafje-
lagið?“
MEÐAL ANNARA ORDA , , , ,
Er olíuskortur yfirvcfandi!
ATBURÐARÁSIN í olíumál-
unum er mjög hröð. Útlitið fyr-
ir vöntun í allri veröldinni á
olíu, sem var aðeins sem óljóst
hugboð fyrir fáum árum er nú
að verða að raunveruleika. Það
sem var aðeins möguleiki á 1
gærdag er að verða fullvissan
á morgundeginum af ástæðum,
sem enginn gat sjeð fyrir.
Þörf heimsins fyrir olíu fer
stöðugt vaxandi, með svo mikl-
um hraða að engum hefði fyrir
fáum árum dottið slíkt í hug.
Það er engin vöntun á hráolíu
á olíusvæðunum og það er ekki
svo að olían í jörðinni sje að
ganga til þurðar. En neytend-
urnir láta sjer ekki nægja hrá-
olíu og áður en hún er flutt út
í heiminn verður að hreinsa
hana og breyta henni i stein-
olíu og bensín eða smurnings-
olíu og margt fleira og ef slík
umbreyting á að ganga fljót-
ara fyrir sig verður að fjölga
hreinsunarstöðvunum að mikl-
um mun.
Vantaði stál til
nýrra stöðva.
í stríðinu var svo með olíu-
málin, að þrátt fyrir það, að
mikil vöntun væri jafnah á olíu
varð að fara varlega í að byggja
nýjar hreirfSunarstöðvar, aðal-
léga vegna þess, að í það fer
rnikiö stál, sem þurfti að nota
til armars.
Aðrir erfiðleikar, sem enn
verður að stríða við er vöntun
á tankskipum. Flest olíuskip,
sem bandaríkjastjórn rjeði yfir
í stríðinu, hafa verið tekin úr
notkun. Nú eru nokkur þeirra
aftur farin að sigla, en það þarf
leyfi bandariska þingsins til að
setja öll skipin í gang aftur.
Notkun í Bandaríkj-
unum er 70% af notk
un heimsins.
Þróunin í Bandaríkjunum
veldur að miklu leyti olíuvand
ræðum heimsins. Þetta ár er
talið að eyðsla þeirra verði
hvorki meira nje minna en
70 % af allri evðslu heimsins.
Skrifstofa olíunámanna í
Bandaríkjunum hefir reiknað
það út, að aukning olíunotkun-'
ar þar á síðasta ári hafi ver-
ið um 41/2%. Eyðslan yfir alt
árið náði hinni stórkostlegu
tölu 1.790.961.000 tunnum á
ári. Aukningin, sem varð á ár-
inu hefði nægt bæði Frakk-
landi og Bretlandi til samans.
Þurfa Bandaríkin að
aft flytja olíu inn?
Undanfarið hafa Bandaríkin
verið stærsti útflytjandi olíu,
en svo getur farið, ef eyðslan
vex enn þar í lanai hætti allur
útflutningur þaðan og Banda-
ríkjamenn verði jafnvel að
flytja olíu inn.
Ef Bandaríkin reyna ekki
með einhverju móti að
minka notkun sína, veldur það
áreiðanlega innan skamms olíu
skorti annarsstaðar í heimin-
um.
Olíumálin eru þegar farin að
vekja mikla athygli í banda-
ríska þinginu. Fyrst og fremst
hefir verið þar til umræðu að
leigja út öll olíuskip stjórnar-
innar og ýmsar fleiri bollalegg-
ingar fara þar fram. Nú síðast
hjelt Krug innanríkisráðherra
Bandaríkjanna fund með ýms-
um sjerfræðingum um hvernig
mögulegt væri að umflýja olíu-
skort á næsta vetri. Svo að
málið er auðsjáanlega orðið al-
varlegt.
Lpndon í gærkvöldi.
ISMAY lávarður, yfirmaður
herforingjaráðs Mountbattens,
varakonungs Indlands, kom til
London í dag flugleiðis frá New
Dehli. Mun hann eiga nokkurra
daga viðræður við bresku stjórn
ina. — Þá er landstjóri Breta á
Ceylon einnig kominn til Lon-
don, og mun hann ráðgast við
stjórnina um framtíðarstjórnar-
fyrirkomulag á Ceylon.
— Reuíer.