Morgunblaðið - 13.07.1947, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ'
Sunnudagur 13. júlí 1947.3
Skemdarhugur kommún-
ista er ætíð hinn sami
í VETUR var sagt, að ástand
ið í stjórnmálum Frakklands
væri slíkt, að hvorki væri hægt
að stjórna með kommúnistum
nje án þeirra. Um skeið var
skoðun manna hjer á landi ekki
ósvipuð þessu.
Á meðan kommúnistar voru
í stjórn voru verk þeirra slík,
að mjög erfitt var við að una.
Jafnframt höfðu þeir sjálfir við
orð, að margfalt ver mundu
þeir reyngst, ef þeir færu út
úr stjórninni, og þótti þá ýms-
um, sem af því myndi stafa
þjóðarvoði,
Vildu vera í andstöðu þótt
]þeir nytu góðs af völdunum.
Kommúnistar höguðu stjórn-
arvist sinni á þann veg, að þeir
vildu til hins ýtrasta njóta góðs
af völdunum, og þó í engu af-
;sala sjer rjetti andstöðunnar til
:iulls fjandskapar og ýfinga við
ovokallaða samstarfsmenn sína.
Hvorugur ráðherra kommún
:'.sta ljet sjer nægja að fara öllu
;>ínu fram í ráðuneytum þeim,
er undir þá heyrðu, án sam-
ráðs við meðráðherra sína, held
ur færðu þeir sig oft á tíðum
inn á valdsvið hinna ráðherr-
anna, stundum án þess einu
sinni að segja þeim frá aðgerð-
nm •sínum þar: Því til sönnun-
ar skal aðeins minnt á sendi-
ferðir þær, er Áki Jakobsson
gerði út til annara landa, samn'
ingaumleitanir hans við afskip
unarmanninn rússneska um
sölu allra íslenskra afurða o.
m.fl. , allt án nokkurs samráðs
við utanríkisráðuneytið.
Menn óttuðust, að þeir yrðu
verri.
Oll var þessi framkoma með
þeim endemum, að óviðunandi
var. Hið eina, sem menn kunna
að færa henni til varnar, er að
>vo vondir sem kommúnistar
væru í stjórn, myndu þeir þó
verða margfalt verri utan
stjórnar. Þá myndu þeir eins-
kis svifast, heldur miskunnar-
laust nota hina sterku aðstöðu
sína í verkalýðsfjelögunum til
að koma þjóðfjelaginu öllu í
kalda kol.
Að lokum varð yfirgangur
kommúnista samt svo mikill,
að enginn treystist lengur að
tjónka við þá. Að sjpálfsögðu
spöruðu kommunistar þá ekki
hóUinir og illyrði. Fullyrtu þeir
að á nokkrum vikum myndu
þeir með verkföllum og öðrum
óskunda hafa hrakið frá völd-
am hverja þá stjórn, sem á
laggirnar væri sett, án þess að
þeir ættu þar fulltrúa.
Kommúnistar ætltiðu að koma
stjórninni frá fyrir síldveið-
arnar.'
Síðustu tímamörk, sem þeir
settu um efndirnar á þessu fje-
lega fyrirhciti sínu, voru síld-
veiðarnar. Vegna nauðsynjar
þjóðarinnar á, að þær gætu
hafist hindrunarlaust, heit-
strengdu kommúnistar að koma
af stað rjett á undan veiðunum
þeirri verkfallsöldu, er ekki
skyldi linna, fyr en sú stjórn,
Mátturinn til að gera
ilt er minni þegar þeir
eru í stjórnara'ndstöðu
sem þeir vildu feiga, væri liðin
undir lok.
Því er ekki að leyna, áð
margir óttuðust, að kommún-
istar yrðu menn til að koma
þessum ófögru áformum sínum
fram. Víst er það, að ekki skorti
kommúnista til þess viljann cða
tilburðina. /
Raunin varð og sú, að verk-
u. m
föllum tókst þeim að koma( af
stað, meira að segja mjög al-
varlegum. Með þeim urðu þeir
miklu tjóni valdandi., og er
ekki nema að vonum, að komm
únistar telji það vera sjer mik-
inn sigur. Oll þjóðarheildin
varð fyrir tjóni af völdum
'þeirra. JafnveÞþeir, sem fengu
nokþra grunnkaupshækkun
fram, vérða IVz—2% ár að
vinna upp það beina peninga-
tap, sem kommúnistar hafa
valdið þeim.
Náðu ekki því, sem þeim
var sagt.
En sigur kommúnista liggur
eingöngu í því að hafa valdið
skjólstæðingum sínum og þjóð-
inni í heild miklum miska. Hinu
náðu þeir ekki, að bi'jóta á bak
aftur löglega stjórn landsins og
setjast sjálfir að völdum. Það
var þó aðaltilgangurinn og áttu
kommúnistar áreiðanlega meira
undir, að hann næðist, en menn
í fljótu bragði gera sjer grein
fyrir, því að skipunin utan að
var sú, að þeir ættu að komast
í ríkisstjórn á ný, hvað sem það
kostaði. Þetta mistókst, og að
sama skapi lækkaði á þeim mat-
ið hjá hinum erlend'u húsbænd-
um-
Hitt gera menn sjer auðvit-
að ljóst, að þó að kommúnistar
næðu ekki því, sem þeir lögðu
mest kapp á, hafa þeir gert þjóð
inni mikið og varanlegt tjón.
Þeir hafa gei;t dýrtíðarmálin
miklu erfiðari úrlaulnar en áð-
ur, og valda því, að örðugt mun
reynast að halda dýrtíðinni í
skefjum, svo sem ætlun manna
var.
Skemdarverk kommúnista
engin nýjung.
• Slík skemmdarverk eru eng-
an veginn nýjung af hendi
kommúnista. Þegar þeir gengu
í ríkisstjórn 1944, hjetu þeir að
standa á móti vexti verðbólg-.
unnar, og lofuðu að leggja sig
alla fram ,um, að ekki yrði frek
ari almennar grunnkaupshækk
anir, vegna þess ao slíkt hlyti
að leiða til varanlegs ófarnað-
ar þjóðinni, þó að einstakar
stjettir kynnu að græða á því
í bili.
Við þetta loforð stóðu þeir
aðeins í rúmt ár. Að því liðnu
efndu þeir á ný til kauphækk-
unaröldu og ljetu Dagsbrún
ríða á vaðið. Kröfðust þeir þess
þá, að grunnkaup í almennri
vinnu hækkaði úr kr. 2,45 í kr.
2,75. Þetta braut algjörlega í
bága við fyrirheit þeirra, þeg-
ar stjórnin var mynduð, því að
þá var einmitt í öllum samtöl-
um sjerstaklega tekið fram, að
þáverandi grunnkaup Dagsbrún
ar væri það hámai’k, sem ekki
mætti fara fram úr. Og voru
kommúnistar haustið 1944 ekki
síður skeleggir en aðrir í yfir-
lýsingum um að hækkun um
fram það væri þjóðhættuleg.
„Sfromniuðu sig af“
á svikimum.
Eftir ósigurinn í bæjarstjórn-
arkosningunum 1946 töldu þeir
sig þurfa „afstrammara“ og
þessvegna efndu þeir til kröfu-
gerðar Dagsbrúnar skömmu síð
ar. Að loknu viku verkfalli
tókst þeim þá að knýja fram
20 aura grunnkaupshækkun.
En áður en varði fór svo, að
verkamenn sannfærðust um, að
hagur þeirra var engu betri en
fyrir hækkunina. Þessa stað-
reynd notuðu kommúnistar svo
í vor til að villa um fyrir verka
rriönnum á þá leið, að þeir
skyldu heimta enn frekari
hækkanir, í stað þess áð snúa
sjer að því, sem hagur þeirra
raunverulega krefst, að dýrtíð-
in verði lækkuð.
Árangurinn sýnu minni nú.
«a
En nú var kröfugerðin miklu
stórkostlegri en veturinn 1946.
Nú er krafist.35 aura hækk-
unar í stað aðeins 30 aura þá,
og í ofanálag var það látið
fylgja, að hrekja yrði stjórn
landsins írá völdum.
Allt, sem upp úr krafsinu
hafðist, var, að eftir rúmlega
4 vikna verkfall náðist fram
15 aura hækkun í stað 20 aura
árið áður, og þessi hækkun varð
nú eingöngu sökum þess, sem
öllum var ljóst frá upphafi, að
síldveiðarnar mátti ekki með
nokkru móti stöðva. Hitt, sem
fyrir kommúnistum var aðalatr
iðið, að hrinda löglegri stjórn
landsins, af stóli, fór gersam-
lega út um þúfur.
Osigur kommúnista nú frá
því árinu áður er þess vegna
öllum auðsær. Og þá ekki síður
hitt, að þann óskunda, sem
kommúnistar hafa enn vald til
að fá áorkað, gera þeir jafnt,
hvort sem þeir eru í stjórn eða
stjórnarandstöðu. Þar er ekk-
ert lát á. Munurinn er sá einn,
að þegar þeir eru utan stjórnar
er máttur þeirra til óþurftar-
verka minni en meðan þeir eru
í stjórn ríkisins.
Stiídentamót í Reykjavík um
næstu helyi
EndurheimfJiandritanna verður aðalmál
ENDURHEIMT íslenskra handrita og þjóðminja úr vörslum
danskra safna verður aðalmál stúdentamóts, sem haldið verður
í Reykjavík dagana 19.—21. júlí n. k. Stúdentasamband ís-
lands gengst fyrir móti þessu, en sambandið tekur til allra
stúdentafjelaga hjer á landi.
Um aðalmál mótsins munu
flytja ræður þeir prófessorai'nir
Olafur Lárusson, rektor Há-
skólans, og Sigurður Nordal.
Gert er einnig ráð fyrir, að um-
ræður fari fram um málið og
ályktun verði gerð um það.
Dagskrá mótsins.
Dagskrá mótsins verður á
þessa leið:
Kl. 14, 19. júlí verður mótið
sett af formanni Stúdentasam-
bandsins, Gísla Sveinssyni sendi
herra. Lárus Pálsson flytur
kvæði Einars Benediktssonar
um Snorra Sturluson. Próf.
Olafur Lárusson flytur ræðu
um handritamálið og pi'óf. Sig-
urður Nordal ávarp úm sama
efni. Hljómleikar verða á fund-
inum. Lokaorð flytur1 Lúðvíg
Guðmundsson, varafoi'maður
Stúdentasambandsins.
20 júlí fara þátttakendur í
mótinu 4il Snorrahátíðarinnar
í Reykholti. Verður farið sjó-
leiðis til Akraness, en þaðan'
með bílum til Reykholts.
Síðasta dag mótsins, 21. júlí,
verður svo aðalfundur Stúd-
entasambandsins. Verða þar
umræður og væntanlega sam-
þykkt tillaga um handritamál-
ið. Um kvöldið verður skilnað-
arhóf að Hótel Borg.
Heiðursgestir.
Sigurður Guðmundsson skóla
meistari og frú hans verða heið
ursgestir mótsins í tilefni þess,
að skólameistarinn mun á
næsta ári láta af störfum fyrir
aldurs sakir. Verður honum
þakkað merkilegt starf við
Menntaskólann á Akureyri þau
20 ár, sem liðin eru síðan skól-
inn fjekk rjettindi til að braut-
skrá stúdenta.
Sjö manna framkvæmdanefnd.
Sjö menn sitja í framkvæmda
pefnd mótsins: Lúðvíg Guð-
mundssðn, sem er formaður’
nefndarinnar, Einar Ól. Sveins
son, f-ulltrúi Háskólans, Páll S.
Pálsson og Sigurður R. Pjeturs-
son, fulltrúi Stúdentafjelags
Reykjavíkur, frú Hildur Bern-
höft, fulltrúi kvenstúdenta, og
Geir Hallgrímsson og Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson, full-
trúi Stúdentaráðs Háskólans.
I
Ilaifa í gær.
TVEIM breskum hermönnum
og einum óbreyttum borgara,
hefir verið rtpnt af ofbeldis-
mönnum, er þeir voru á gangi
fýrir framan kaffihús eitt í
þorpi miðja vegu milli Telaviv
og Haifa.
Evalf lil viðf^ðna
Sidney í gærkvöldi,
DR. EVATT, utaniákisráð-
herra Ástralíu, lagði í dag a£
stað frá Sidney með skipi áleið-
is til Tokio. Áður en skipið lagðx
frá landi skýrði hann blaða-
mönnum svo frá, að Mac Art-
hur, yíirmaður bandarísku her-
námssveitanna í Japan, hefði
fyrir nokkrum mánuðum síðan
boðið sjer til viðræðna í Tokio,
og kvaðst ráðherrann búast við
því, að ýms mikilsverð mál yrðu
útkljáð í þeim viðræðum. — Dr.
Evatt mun verða kominn til
Tokio eftir um það bil hálfan
mánuð. — Reuter.
Gibraltar,
TILRAUN hefur verið gerð
til að sökkva skipinu Colonial
Trader, sem er 800 tonn og hald-
ið hefur verið í Gibraltar frá
því 23. maí, sökum þess að grun-
ur lá á að nota ætti það til ó-
leyfilegra flutninga Gyðinga tij
Pálestínu. __
Skipverjar á skipi, sem lá’
skamt frá Colonial Trader, tóku
eftir því, að það byrjaði að hallá
Var skipstjórinn aðvaraður, og;
þegar að var gætt, var búið að
opna fyrir botnventla skipsins.
Hafnarbátum tókst að þur-
ausa það. — Kemsleý.
Keilað um póK-
líska viðurkenn-
ingu !
Hamborg í gærkveldi.
ÞÝSKA frjettastofan á her-
námssvæði Br-eta skýrði svo frái
í kvöld, að hernámsstjóm
bandamarina í Berlín hefði ekks
sjeð sjer fært að veita Suður-
Sljesvíkur bandalaginu, sam-
tökum danska þjóðernisminni-
hlutans í Suður-Sljesvík, póli-
tíska viðurkenningu. Var bandsj
laginu einnig bannað að gefa
út blöð á þýsku. Segir frjetta-
stofan, að bi’esku hernámsyfir-
völdin í Kiel hafi tilkynní;
bandalaginu þessa ákvörðun
hernámsstjórnarinnar. — Það
var látið fylgja fregninni, að
hernámsstjórnin myndi þó e£
til vill endurskoða þessa á-
kvörðun sína, ef stjórnmála-
ástandið í SuðurrSljesvík skýr'Q
ist eitthvað. — Reuter.