Morgunblaðið - 13.07.1947, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.07.1947, Qupperneq 12
■VeSurútlitið. — (Faxaflói): Vaxandi suð-austan átt, athvasst og rignirsg. WOLUM. 154. tbl. — Sunnudagur 13. júlí 1947. REYKJAVIKURBRJEF bls. 7. — Eru í sænska sjóhemum Myndin hjer að ofan er af stúlkum, sem starfa fyrir sænska sjóherinn. Fjölmargar þjóðir hafa nú kamið upp föstum kvenherdciidum, enda reyndust þær prýðilega í stríðinu. tíðin hefst þegar e Síldarleitar-flugvjelar sjá mikla síld á vestur- svæðinu Þrjár flugyjelar yíS leil í sumar SÍLDARLEIT frá flugvjelum hófst s. 1. föstudag og er það síðar í ár en venja er til að hefja síldarleit úr íofti, en ástæðan eru verkföllin, sem hjer voru í sumar. Síldarleitarflugvjelarnar sáu mikla síld í fyrrinótt og í gæ'rmorgun við Skaga og við Strendur. Fyrsta skipið, sem kom á Skagasvæðið í gærmorgun, togarinn Sindri, var búinn að fá 1000 mál kl. 10 í gærmorg'un, en mörg skip voru á leiðinni til síldarsvæðanna, samkvæmt tilvísun flugmanna. Frásögn G. Rosinkranz af tilhögun hennar FRAMKVÆMDANEFND Snorrahátiðarinnar í Reykholti og hjer í Reykjavík, hefir nú lokið við að semja dagskrá hátíðahald- aima. Þau hefjast laugardaginn 19. júlí kiukkan 10,30 árd. er iierskipin og Lyra leggjast að hafnarbakkanum. Á hafnarbakkanum Guðlaugur Rosinkranz skýrði Morgunblaðinu frá þessu í gær og sagðist honum svo frá: Þegar herskipin þrjú, Osla, Stavanger og Trondheim, og es. Lyra hafa lagst að hafnarbakk- anum býður Olafur Thors frv. forsætisráðherra hina riorsku gesti velkomna fyrir hönd ísl. Snorranefndarinnar. Að því loknu leikur Lúðrasveit Reykja víkur undir stjórn Klahns þjóð söngva Noregs og íslands. Um kvöldið kl. 7 hefir ríkis- stjórnin boð inni að Hótel Borg fyrir hina norsku og íslensku gesti Snorrahátíðarinnar. I Eeykholti. Sunnudaginn 20. júlí fara hátíðargestir með es. Esju til Akraness, en þaðan verður ek- ið í bílum til Reykholts og er ætlast til að þangað verði kom- ið kl. 11,30. Þar verður mið- degisverður snæddur. Klukkan eitt hefst sjálf háííðin með því að lúðrar verða þeyttir. Þá leik ur Lúðrasveitin hátíðasöng úr Sigrud Jorsalafar, eftir Grieg. Að því loknu flytui forséti ís- lands ávarp. Aðrir ræðumenn verða formaður íslensku Snorra nefndarinnar Jónas Jónsson og varaformaður norsku Snorra- nefndarinnar Haakon Sheteling Þá flytur Olav krónprins ræðu og jafnframt afhjúpar hann Snorrastyttuna. Þá mun Davíð skáld frá Fagraskógi flytja kvæði, sem orkt er í tilefni að hátíðinni. Loks syngja karla- kórarnir Fóstbræður og Karla- kór Reykjavíkur norsk og ís- lensk lög, og Lúðrasveitin leik- ur. Að þessu loknu verður Réyk- holtsstaður skoðaður undir leiðsögn Matthíasar Þórðarson- ar. Síðan verður kaffi drukkið, en til Akraness verður haldið kl. 5,15 e. h. og Esja fer til Reykjavíkur kl. 8. Um það leyti sem farið verð- ur til Akraness, hefst í Reyk- holti hjeraðsskemtun Borgfirð- ingafjelagsins, þar verður margt til skemtunar. I Háskólanum. Þann 21. júlí verður norsk íslensk messa í Dómkirkjunni kl. 2. Klukkan 4 hefst hátíð í Hátíðasal Háskólans. Þar flyt- ur fulltrúi Oslóar-Háskóla Franciá Bull kveðju, en af hálfu Háskóla íslands flvtja kveðjur rektor Ólafur Lárusson og próf. Sigurður Nordal. Um kvöldið hefir forseti íslands boð inni að Bessastöðum fyrir Olav krónprins og nokkra aðra gesti. Ferðalög og fleira. Þriðjudaginn 22. júlí fara Norðmenn í boði bæjarstjórnar Reykjavíkur til Þingvalla. Þá um kvöldið hefir sendiherra Norðmanna hjer boð inni í S j álf stæðishúsinu. Miðvikudaginn 23. júlí fara gestirnir í boði íslensku Snorra nefndarinnar til Gullfoss og Geysis. Fimmtudaginn 24. júlí munu hinir norsku gestir skoða Reykjavík, en um kvöldið fer fram millilandakeppni í knatt- spyrnu milli Norðmanna og Is- lendinga. Föstudaginn býður Snorra- hefndin íslenska Norðmönnun- um austur að Stöng í Þjórsár- dal. Síðasti dagur hátíðahaldanna láugardagurinn 26. júlí. Þá bjóða hinir norsku gestir til kveðjusamsætis í Sjálfstæðis- húsinu. Um kvöldið fara gest- irnir heim til Noregs. Guðlaugur sagði, að innan fárra daga yrði dagskrá hátíða- haldanna birt í heild. Hjer hef- ir aðeins verið stikklað á stóru. Um þátttöku almen’nings, sagði Guðlaugur, að Snorra- nefndin hefði gert allt og myndi gera allt til þess að greiða götu almennings og myndi fólki verða selt far með Esju eftir því sem hægt væri, svo og með Laxfoss. liikil síld barst til Siglufjarðar ígær í GÆR þegar frjettist frá Siglufirði voru bátar að streyma inn með síld, og er mikil veiði þar. Þessir bátar j voru komnir inn og er mála- talan á eftir hverju nafni: j Fróði 120, Elsa 400, Ingólfur ! 150, Ólafur Magnússon 430, Fram 600, Ásbjörn 150, Reykja ! röst 450; Valbjörn 400, Gylfi I 380, Flosi 80, Bangsi 300, Garð ! ar 700, Muggur 180, Guðmund ur Þórðarson 600, Þorsteinn 600, Vísir 550, Dröfn 450, Frey | faxi 1000, Asgeir 650, Sæfari 300, Bjarmi 300, Hannes Haf- stein 500, Skíðblaðnir 300, Kári Sölmundarson 550; Sleipnir j 800, Valþór 1000, Skrúður 400, Einar Þveræingur 550, Heimir 400, Jökull 300, Ársæll Sigurðs son 300, Böðvar 600, Vestri 380, Egill 200, Guðbjörg 450, Freyja 300, Hilmir 200, Bald- vin Þorvaldsson 100, Ágúst Þór arinsson 700, Hafbjörg' 450, Keilir 700, Grótta 500, Ingólfur Arnarson 4«0, Finnbjörn 600, Skagfirðingur 500, Milly 600. Þrjár flugvjelar í síldarleit. Á föstudaginn byrjuðu tvær flugvjelar síldarleit. Var fyrst leitað á austursvæðinu og sást þá sama og engin síld. í þessu .flugi voru notaðar tvær flug- vjelar, Gruman-flugbátur Loft- leiða og Beechcraft-vjel Flug- fjelags Islands. Alls verða í sum ar notaðar þrjár vjelar að stað- aldri við síldarleit, Gruman og Anson vjelar Loftleiða og Norsemanvjel Flugfjelags ís- lands. Fjórða vjelin, Catalína frá Flugfjelagi íslands verður og í síldarleit í gripum. Tvær vjelarnar munu hafa bækistöð sína á Miklavatni í Fljótum en ein á Akureyri. Síldarleitinni stjórna þeir Hreinn Pálsson utgerðarmaður og Eyþór Hallsson skipstjóri. Síld á Grímseyjarsundi. Síld hefir veiðst á Grímseyj- arsundi og á Skagafirði undan- farna daga. Hý tepnd af PLYMOUTH hæna, sem er með fjóra fætur, tvö stjel og tvöföld eggjagöng var til sýnis í hænsnabúi í Brooklyn. Húft gekk þarna um hin hnarreist- asta og hænsnaræktarmenn horfðu undrandi á hana. Hún gengur á aðeins tveimur fótum, en hinir tveir hanga í lausu lofti af því að þeir eru styttri. Eig- andi hennar Murray Weiss seg- ir, að hún sje fjögra mánaða og hafi verið ungað út úr tvíblóma eggi. Kostur við hana er, að hún verpir helmingi fleiri eggj- um en venjulegar hænur. Fjekk silfurborð- búnað fyrir 12 EINS og getið var um í blað- inu í fyrradag, ákvað stjórn Landbúnaðarsýningarinnar, að sæma sjerstökum heiðurslaun- um þann sýningargest, er yrði fimtíuþúsundasti gesturinn. I gær kl. 5 mín. yfir tvö, var sú tala fyllt. Það var Erlendur Árnason bóndi að Skíðbakkft í Landeyjum, sem hlaut verð- launin. Var það vandaður borð búnaður fyrir 6 manns í falleg- um kassa, svo og handmálaður diskur úr íslenskum leir. Krist- jón Kristjónsson framkvæmda s'tjóri sýningarinnar afhenti þessa muni um leið og hann gekk inn um hlið sýningarinn- ar. Ji/' I inpbúð á morpn SKÁKMEISTARI íslands Bald- ur Möller teflir n.k. mánudags- kvöld fjöltefli í Breiðfirðinga- búð, er hefst kl. 19,30. Samtímis teflir Ásmrndur Ásgeirsson fjórar blindskákir. í sambandi við þessa skák- keppni verða ýmis skemtiatriði, sem Valur Nordal annast. Hilljón sferfings- pund fil öryggis- Ankara í gær. FULLTRÚAR tyrknesku stjórn arinnar hafa komist að nam- komulagi við Bandaríkjastjórn um það, að þegar verði af hendi greiddar 25 milljónir sterlings- punda af láni því, sem Banda- ríkjamenn hafa ákveðið að veita Tyrkjum. Peningum þessum kveðast Tyrkir ætla að verja til þess að efla öryggi landsins og tryggja frelsi þess. — Tyrkir hafa skuldbundið sig til þess að gefa Bandaríkjastjórn kost á því, hvernig fje þessu veröur, varið. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.