Morgunblaðið - 16.07.1947, Side 1

Morgunblaðið - 16.07.1947, Side 1
Einhugur og samstarísvilji: PARÍSARRÁÐSTEFNUNNI LAUK í GÆR *----------------------- Lítil síld barst Kynd úr (ram ha idssögu nni Sjerfræðinganefndir i gær FRJETTARITARI Morgun- blaðsns á Siglufirði símaði seint í gærkveldi, að þangað hefðu aðeins borist um 7000 mál af síld til bræðslu. Veð- ur var gott á miðunum, lá- dauður sjór og hiti. Síldveiðiflotinn var því nær allur vestur hjá Skagafirði og þar í grend. Engar fregnir af sjerstakri veiði hjá einstökum skipum bárust til Siglufjarðar í gær. Kl. um 9 í gærmorgun hófst ' söltun á einum 4 til 5 síldar- plönum. Giskaði frjettaritari blaðsins á, að saltaðar hefðu; verið 200 til 300 tunnur á hverju plani. Aðeins örfá skip voru í höfn á SiglufirðL í gærkvöldi. Fi'jettaritari blaðsins á Hjalt eyri símaði að þangað hefði aðeins eitt skip komið s. 1. sól- arhring. Það var Sindri með 290 mál. Aflahæsta skip við Hjalteyrarverksmiðjuna er Eldborgin með 1980 mál. Úr kvikmyndinni „Vofan og frú Muir“, sem gerð er eftir sam- nefndri skáldsögu, sem nú birtist í Morgunblaðinu. A mynd- inni er frú Muir, (Gene Tierney) og skipstjórinn (Rex Harri- son). Saga þessi hefir vakið mikla athygli lesenda Morgun- blaðsins, enda er hún sjerkennileg og skemtileg. • • Oryggisráðið einbeitir sjer ú Balkanmálunum Dregið í bílahappdrætti í GÆRKVELDI var dregið í fyrsta hluta bílahappdrættis S.I.B.S. Dregin voru út fimm númer, en af óviðráðanlegum orsökum var aðeins hægt að birta fjögur þeirra í gær- kveldi ,— Hið fimmta verður birt í dag. Númerin fjögur eru þessi: 14.583, 61.303, 79.297 og 85.064. Vinningarnir eru Renault-bílar. Rúmenskir bænda- fiokksleiðiogar handteknir Búkarest í gærkv. RÚMENSKA stjórnin hefur nú hafið að nýju handtökur úr hópi andstæðinga sinna. Síð- asta sólarhring hafa um 100 menn verið teknir fastir. Með- al þeirra eru Juliu Maniu, for ingi bændaflokksins og Micha lecks, varaformaður flokksins. Ennfremur tveir aðalritarar flokksins og konur þeirra. Maniu hefur um hríð veríð einn af höfuðandstæðingum kommúnista. Hann var forsæt isráðherra Rúmeníu 1932 og 1933 og varaforsætisráðherra 1944. — Reuter. Grikklandi LAKE SUCCESS, New York í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. FULLTRÚI Grikkja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna lagði fram á fundi þess í dag brjef, þar sem skýrt er frá því, að allmikið og vel vopnað lið hefði ráðist frá Albaníu inn í Grikk- land og veitt uppreisnarmönnum styrk í árás þeirra á bæinn Koritsa. Fulltrúi Bandaríkjamanna, dr. Johnson, sagði, að það væri skoðun Bandaríkjastjórnar, að Balkanmálin væru mjög aðkallandi. Kvaðst hann leggja það til, að ráðið tæki ööll önnur mál út af dagskrá þessa viku, en einbeitti sjer að Balkanmál- unum. Fulltrúi Pólverja, sem þenn an mánuð er forseti ráðsins, dr. Lange, kvaðst fyrir sitt leyti samþykkja þessa tillögu. Er því búist við því, að ráðið muni snúa sjer eingöngu að Balkan- málunum að minnsta kosti út 1 þessa viku. Albanir neita. Af hálfu albönsku stjórnar- innar liefur verið þverneitað sannleiksgildi þerrar fregnar að albanskar hersveitir hafi veitt uppreisnarmönnum lið. Segir stjórnin. að þetta sje rakalaus og ósvífinn áróður! Hinsvegar hafi nýlega tvær grískar her- flugvjelar sjest á flugi yfir al banskri grund og grískt herskip á siglingu innan albanskrar landhelgi. 5000 handteknir. Handtökum stjórnarandstæð inga í Grikklandi er stöðugt haldið áfram, og telja fregnrit ar, að tala handtekinna manna geti nú varla verið undir 5000 — Talið er, að stjórnin mun hafa í undirbúningi frekari ráð stafanir til þess að klekkja á kommúnistum, svo sem að fá þingið til þess að samþykkja lög um að reka þá í útlegð og banna helstu málgögn þeirra. Ráðherrar kvaddir heini. Ólgan í Grikklandi fer sívax andi, og vegna liins ófriðlega ástands hafa tveir af ráðherr- um landsins verið kvaddir heim: Tsaldaris utanríkisráð- herra, sem er staddur í New York, og Papandrou scm dvelst í Paris. taka þegar til starfa PARlS i gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. PARlSARRÁÐSTEFNUNNI um viðreisnartillögur Marshalls lauk í kvöld. Hafði hiin þá staðið yfir í fjóra daga, og er þann- ig styttsta ráðstefna ríkja, sem haldin hefur verið síðan styrj- Idinni lauk. Fullt samkomulag náðiöst um öll dagskráratriði, og hefur einhugur fulltrúanna skapað bjartsýni og nýjar vonir. Endanlegt tilboð Dana í Færeyja- máiinu K.höfn í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. SAMNINGANEFND Færey- inga var í dag afhent endan- legt tilboð Dana í Færeyjamál- inu. Blaðið „Berlingske Tid- end'e“ segir, að færeyska lög- þinginu hafi verið boðið lög- gjafarvald í málum sem snerta Færeyinga sjerstaklega. Fáni Færeyja sje viðurkenndur, en Færeyjar verði áfram hluti danska ríkisins og danska stjórn arskráin gildandi þar. Færey- ingar eiga áfram að hafa full- trúa í danska þinginu. Af hálfu dönsku samninga- mannanna er því haldið fram, að ómögulegt sje að veita Fær- eyingum frekari ívilnanir, ef einingu ríkisins eigi að varð- veita. Samninganefnd Færeyinga hefir hvorki umboð til þess að taka þessu tilboði eða hafna því. Verður það því lagt fyrir lögþing Færeyja. Samninga- menn Færeyinga munu leggja af stað heim einhvern næstu daga. Ósjálfráð fyrir Rússum Washington í gærkvöldi HAROLD Stassen, forsetaefni republikana, hefur látið svo um mælt í útvarpsræðu, að hann sje andvigur því, að Bandarikin láti sig engu skifta efnahag Austur-Evrópuríkj- anna átta, sem ekki tóku þátt í Parísarráðstefnunni. Sagði Stassen, að þessum ríkjum væri ekki hægt að kenna um það, hvernig til -tókst um ráðstefn- una, því að þau hafi verið kúg uð af ofbeldi Sovjetrikjanna. — Reuter. Eining um tillögur. Á fundinum í dag voru rædd ar tillögur framkvæmdanefnd- ar ráðstefnunnar, og voru sam- þykktar tillögur hennar um skipun fjögurra sjerfræðinga- nefnda til þess að kanna birgð- ir og þarfir þeirra Evrópuríkja, sem fulltrúa áttu á ráðstefn- unni, varðandi helstu vöruteg- undir og orkulindir. — Sjerstök nefnd verður einnig starfandi til þess að greiða fyrir allri sam vinnu varðandi rannsóknir þess- ar. Þegar hafist handa. Sjerfræðinganefndirnar munu taka til starfa strax á morg- un (miðvikudag). Eiga nefnd- irnar að hafa lokið störfum sínum fyrir 15. ágúst næstkom- andi, því að niðurstöður rann- sóknanna eiga að hafa borist Bandaríkjastjórn fyrir 1. sept. n. k. Samvinnunefndin mun einnig koma saman til fundar á morgun, og verður Bevin, ut- anríkisráðherra Breta, þar í for sæti. En að fundinum loknum mun hann leggja af stað til London. — Þegar nefndirnar hafa lokið störfum sínum verð- ur aftur boðið til allsherjar fundar fulltrúa þeirra ríkja, sem tóku þátt í hinni nýaf- stöðnu ráðstefnu. Bevin og Bidault ánægðir. Á lokafundi ráðstefnunnar í dag fluttu þeir stuttar ræður Bevin og Bidault, utanríkis- ráðherra Frakka. Bidault sagði, að ráðstefna þessi hefði verið einstök í sinni röð, því að hún hefði engum vonbrigðum valdið. Einhugurinn, sem þar hefði ríkt, ætti ekki einungis að vera þeim ríkjum hvatning til samvinnu, sem fulltrúa hefðu átt á ráðstefnunni, held ur einnig örfa þau ríkþ sem staðið hefðu utan við hana, til að slást í hópinn, og taka þátt í efnahagslegri viðreisn Ev- rópu. — í örstuttu ávarpi, sem Bevin flutti úr forsetastól, sagði hann, að ráðstefnan hefði sýnt og sannað, að þjóðirnar vildu hafa nána samvinnu sín á milli, ef þeim aðeins væri leyft það. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.