Morgunblaðið - 29.07.1947, Side 2

Morgunblaðið - 29.07.1947, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. júlí 194/ 1 Sveinn Árnason fiskimatsstjóri sjötugur Stiklað á stóru frá ýmiskonar æviþáttum MAÐUR þarf ekki annað en sjá, hvernig Sveinn Árnason, fiskimatsstjóri, er í göngulagnu, til þess að sannfærast um, að hann deyr aldrei ráðalaus. Hann hefir alltaf einhvérja útvegi, hvað sema kann að bjáta. Enda kom það á daginn þeg- ar jeg tók að spyrja hann um helstu aaviatriði hans að ýmis- legt hefir hann prófað á lífs- leiðinni. Jeg hefi lengi ætlað að heim- sækja hann, til þess að spyrja hann um nýjungar í saltfisk- verkun og verslun. Því nú eru :menn að ímynda sjer að saltfisk urinn okkar verði þá og þegar ,,en Saga blot“ og enginn vilji !líta við saltmetinu lengur. — Menn hafi orðið svo „genverð- 'Ligir“ í öllum sultinum á hin- um síðustu og verstu tímum. En Sveinn er samkvæmt stöðu sinni allra manna kunnugastur því, sem saltfiski. Svo komst jeg að því að hann væri að verða sjötugur, og datt því í hug, að sameina þetta • tvennt að fá hann til þess að segja mjer sitt af hverju um sjálfan hann, og um saltfiskinn á leiðinni. Því hann hefur hvort sem er, eytt meira en hálfri ævinni í fiskimat. Aldargamall dropi Okkur talaðist svo til að Sveinn kæmi heim til mín stund arkorn á sunnudaginn. Hann tór að vísu fram á að jeg heim- sækti hann, en jeg taldi að það kæmi út á eitt. Þangað til hann kom, og sagði mjer upp alla sögu að hann hefði ætlað að skenkja mjer 100 ára gamalt portvín, sem hann hafði eignast suður í Lissabon er hann síðast var þar á ferð. Það var Dundas vinur minn, sem sendi mjer nokkrar flöskur af þeim „metal“ úti í Grips- holm, áður en jeg fór. Hafði hann sett mjer að drekka af því työ stórglös áður, og sagt sem var að vökvinn væri sterkur. En Dundas er íslenskur kon- súll í Lissabon og vænsti maður, segir Sveinn. Vissi jeg nú ekki hvort jeg átti heldur að harma það, eða hrósa happi yfir því, að jeg hafn aði heimboðinu, og varð af við- kynningunni við svo sjaldgæf- an drykk sem aldargamalt port- vín sunnan frá Portúgal. 5*r*’ Langur starfsferill — Jeg veit ekki betur en jeg sje orðinn einn elsti embættis- maður í þjónustu ríkisins segir Sveinn er hann byrjar frásögn sína. Frá 1. jan. 1910 eða 38 ára um næstu áramót. En þá er samanlagður aldur minn og þjónustualdur orðin rúmlega 108 ár. Var það þá sem lögin um fiski mat gengu í gildi? — Já einmitt. En skipulegt mat á saltfiski byrjaði hjer árið '^906. — Rjeðu menn því sjálfir, Jjvort þeir Ijetu meta fiskinn? [ — En það var okkar góði, Jamli Þorsteinn Guðmundsson, sem átti aðalheiðurinn af fiski- inatinu, byrjaði á því? — Jeg skal ekki segja hver byrjaði. En fyrst kemur fiski- mat til tals að því er jeg best veit, er Þorgrímur Tómasson, gullsmiður á Bessastöðum leggur fram erindi á Alþingi að koma því í kring. Það var árið 1847. — Svo málið er jafngamalt portvíninu. *— Já kemur heim. — En það var mat Þorsteins sem kom því til leiðar að menn gátu selt hjer fisk sinn til Suð- urlanda, kaupendum að ósjeðu, ef Þorsteinn hafði metið vör- una. Margskonar atvinna — Já Varð að taka það sem bauðst — Það fer karmske að verða fljótlegra að telja upp það sem þú hefir ekki tekið þjer fyrir hendur? — Ekki segi jeg það. — En óneitanlega er það nokkuð margt, sem jeg hefi komið ná- lægt. Þetta var svona í gamla daga. Lítið um atvinnu að jafn- aði, og maður varð að taka allt sem bauðst. Jeg var með að skreyta Aust- urvöll fyrir aldamótahátíðina. Hjálpaði Helga Helgasyni við það verk. Hann hafði skreyt- inguna á hendi. -— Hvernig var sú hátíð? — Ágæt. Stórrigning hafði - einmitt. Og með þvíj , , , . SenSiö daeana áður’ en stytti var skapaður heilbrigður grund I var Þa Arnfirðings. | upp Um kvöldið og kom besta Þá fór jeg að mala hus fynr . vegur. Athöfnin á Austurvelli ýmsa í plássinu og hafði það sæmilegt. Sveinn Árnason. völlur undir fiskverslun lands- manna. Jeg gerðist svo fiski- matsmaður á Austfjörðum 1910. Og þótti ekki fýsilegt. Hafði fengið nóg af saltfiski, verið mikið af ævinni viðriðinn salt- fisk á skútum, Verkstjóri við fiskverkun og þessháttar. Kaup maður og fleira. — Hvar? •— Jeg verslaði t.d. hjerna í Aðalstræti um aldamótin í sama húsi og Silli og Valdi nú. En gekk illa. Fór á kollinn. Borgaði það árið 1906, sem varð eftir hjá mjer. Svo fór jeg sumarið 1900 í útgerðmeð Magnúsi Blöndahl og Valgarði Breiðfjörð. — Við Leikhúslíf í Bíidudal Jeg átti heima í sama húsi og Þorsteinn Erlingsson. Það var ánægjulegur sambýlismaður. — Jeg bjó uppi á lofti. Hann kall- aði stundum upp í stigagatið og sagði: Kemur nokkur að kjafta. Þá var jeg ekki seinn á mjer að koma. Það fór oftastnæt kvöldið í það og dálítið meira. Jeg var afgreiðslumaður Arn firðings. Og á langan leikdóm eftir Þorstein um frammistöðu mína, er jeg ljek í „Æfintýri á gönguför". var veiddum fisk í enskum togur- — Nú svo þú hefir líka verið um, hjerna út í bugtinni. Magn ús var útgerðarstjóri, en jeg dispónent og túlkur. Heldur var þetta slarksamt og ekki vin- sælt,- eftir blöðunum þá að dæma. En fyllilega löglegt, ef ekki var farið inn í landhelgi, en það forðuðumst við. Eftir það fór jeg að mála með Lange og Jörgensen. Annnars veit jeg ekki hvað jeg ætti að segja um mína liðnu ævi. — Ómögulegt að giska neitt á það. Við látum það alveg ráð- ast. — Jeg var áður búinn að vera við verslun hjá Markúsi Snæbjörnssyni á Patreksfirði. Það var ekki nema stutt því Markús seldi verslun sína „Ts- landsk Handels og Fiskeri Kompagni“, en aðalmaðurinn þar var Pjetur Ólafsson. Það var annars engin furða, þó jeg færi á höfuðið með verslunina í Aðalstræti, því jeg hafði ekki annað rekstursfje en 300 krón- ur, sem jeg hafði fengið að láni hjá Eyjólfi „sterka“ sem kall- aður var. Áður en jeg gerðist kaupmað ur var jeg í Flensborgarskólan- um. Útskrifaðist þaðan árið 1898. Svo fór jeg vestur á Bíldudal árið 1901. Þar voru foreldrar leikari. — Hef víst leikið 26 hlutverk í allt. Jeg málaði líka tjöldin í „Æfintýrið". — Ljek Þorsteinn líka? — Nei. En Guðrún var með í „Æfintýrinu". Þorsteinn ljek með í Öskudeginum eftir Þor- stein Egilson. — í leikslokin týndi hann tóbaksbauk sem hann þá hafði í leiknum. Hann var ekki vanur að bera á sjer tóbaksbauk. Þá sagði hann: Þannig mínum leikjum lauk. Líklega er einhver verri. En jeg góður: botnaði og þóttist En yerði einhver var við bauk vona jeg hann hnerri. Kannske á Þorsteinn líka botnin eibs og hann varð, að minnsta kosti heflaði hann grip inn. Svo fór jeg til Hafnarfjarðar, gerðist verkstjóri. Jeg rjeðist bókhaldari til Pjet urs Thorsteinsson, en yfirgaf það og gerðist verkstjóri, því, jeg kunni illa kyrsetunum. Svo setti jeg upp bóksölu líka, sem konan mín annaðist með heim- ilisstörfunum,’ en hún er ekki veifiskati við nein störf og er þá ekki of mikið sagt. En árið mínir. Þar var þá Pjetur Thor- 11907 fór jeg aftur í málara- steinsson allt í öllu. Mesti at- orkumaður sem jeg hefi kynnst og ágætismaðwr., Þar átti jeg ekki að fá neina vinnu fyrst í stað. Pjetur hjelt að jeg myndi kótna með óhollar skoðdrilr inri í plássið. Eða það sagði Þor- steinn Erlingsson injer. Hann störfin og setti þá upp reglu- lega bóka- og .ritfangaverslun. Hafði .stúlku eða pilt .við af- greiðsluna. Þar byrjaði Gunn- laugur Stefánsson verslunar- störf. Jeg málaði hús utan og innan og öll húsgögn, sem Jó- hannes Reykdal smíðaði. þetta gamlárdagskvöld stutt en hrífandi. Pjetur Thorsteinsson hafði mikla verslun í Hafnarfirði fyrstu árin eftir aldamótin, átti hana með verslunarstjóranum, Sigfúsi Bergmann. En svo rann hún inn í Milljónafjelagið svo- kallaða, og þá dofnaði hún út af, og jeg hafði þar ekkert að gera. Kreppa var í Hafnarfirði ár- ið 1908. Þá dróst útgerð saman. Þá fór þaðan líka Kennaraskól- inn, svo jeg missti þar spón úr aski mínum sem bóksali. Jeg var líka disponet þar fyrir Coots-útgerðina um tíma. En Coot strandaði, og útgerðin gekk aldrei vel. Þó fiskaði dall- urinn alltaf talsvert. Áfall Annars er jeg fæddur Reyk- víkingur. Faðir minn, Árni Kristjánsson var aftur á móti Arnfirðingur. Hann var hjer út gerðarmaður, duglegur og sæmi lega velstæður. Uns hann árið 1885 lagðist í veiki sem þá var óþekkt, en mun hafa verið mænuveiki. Og var fluttur með allt saman vestur árið 1887. Menn vildu ekki hafa slíkar byrðar í þá daga. Við börnin vorum 8 og var dreift. En faðir minn náði heilsu aftur og var eftir 8 ár búinn að byggja hús á Bíldudal og safna allri krakka hrúgunni undir sitt þak. Þá vorum við að vísu orðin 10. Mamma var forkur mikill. Hún hjet Jakobína Jónsdóttir frá Auðnum, dóttir Jóns Eiríks- sonar bónda þar. Við erum 9 systkinin á lífi. i Á Austfjörðum Svo fór jeg til Austfjarða ár- ið 1910 eins og jeg'sagði áðan. Og þótti ekki tilhlökkun að eiga við saltfisk, það sem eftir var ævinnar. En þegar maður gerir eitthvað að lífsstarfi sínu þá kemur áhuginn fyrir því. Mjer hefir fundist það heilbrigðari lífsskoðun, að láta sjer þykja vænt um starf, sem maður hef- ur tekið að sjer, heldur en að keppa að því .sem maður heldur að hæfi -sjer betur. — Hvernig tóku Austfirðing- ar fiskimatinu í upphafi? :— Svona og svona. Jeg var því ekki óvanur að eiga við menn. Svo það lagaðist fljót- lega. Þá var það ekki skylda, að meta annan fisk en þann sem seldur var til Miðjarðarhafs- landanna. Sumir vildu ekkert eiga við matið, og seldu þá all- an sinn fisk til Danmerkur eða Noregs. En þeir sem höfðu mest an fiskinn. Ijetu allir meta hann eins og Konráð Hjálmarsson, Stefán Th. Jónsson á Seyðis- firði, verslunin Framtíðin, Sig- fús Sveinsson, Túlinius og Örum Wulff. Þeir kappkostuðu að fá allan sinn fisk seldan til Suðurlandanna. Um þessar mundir var Aust- fjarðafiskurinn í lakara áliti en fiskur frá Faxaflóa. Einkum var þó Vestfjarðafiskurinn í miklu áliti, og seldist að jafn- aði fyrir hærra verð, en annar fiskur. En jeg fjekk verkuninni breytt smátt og smátt, og síðar fjekkst jafnan þetta 10 krónum meira fyrir skippundið af Aust- fjarðafiski en öðrum fiski. Jeg ljet víst fyrstur ljettþurka fisk- inn og reyndi að endurbæta pækilsöltun. Þurefni og vökvi. — Nú, það varst kannski þú, sem fanst upp á því, að selja Spánverjanum vatn? — Ekki segi jeg það. En það getur munað allmiklu hve mik- ið fiskurinn er þurkaður. Og ef kaupendur vilja hafa fiskinn lin- þurkaðan, þá var ekki nema sjálfsagt að verða við þessari ósk þeirra. Sumir hjeldu því hik laust fram í upphafi, að með þessu væri verið að svíkja kaup- endurna. En jeg gat ekki fallist á það, þar sem farið var með vöruna þannig að kaupendur sóttust eftir henni. Það munar miklu fyrir fram- leiðendurna hvort fiskurinn er linþurkaður eða ekki. Árið 1936, eftir að borgarstyrjöldin hafði brotist út á Spáni, gátum við ekki selt þangað fisk eins og áð- ur. Þangað höfðu farið 20—30 þúsund smálestir af fiski á ári. Nú fengum við ekki leyfi til að flytja þangað nema 6000 smá- lestir. Og þegar til kom, gátum. við ekki selt þangað ugga. Þá var mikið af Bareelona-verkuð- um fiski á Austfjörðum þ. e. lin- þurkuðum. Þurfti nú að fara með hann allan hingað, til þess; að setja hann í þurkhús fyrir Portugalsmarkað. Hann ljettisí um 15—22% við þá þurkun. Að skifta fiskinum Árin áður en Spánarmarkað'- urinn lokaðist, vegna borgara- styrjaldarinnar gerði jeg nokkr - ar athuganir á því, hvort ekki væri hægt að fá meira upp úr saltfiskinum, með því að skifta honum, selja t. d. þunnildin sjer og sporða á öðrum stöðum og þykkildin þar sem best verð fengist fyrir þau. Þetta var hægí að gera þá, en borgarastyrjöldin kom í veg fyrir að það væri. reynt. Er jeg þó ekki frá því. að þetta ætti að verða hægt enn- þá, ef að því yrði unnið skipu . lega» ■ ■ - r> Framleiðslukostnaður — Hve mikið hefur verið salt- Framh. á bls. 5. J-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.