Morgunblaðið - 22.08.1947, Page 6

Morgunblaðið - 22.08.1947, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. ágúst 1947 i llbtóistiUiiMb Útg.: H.f. Árvakur, Rrykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands. kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Höfðakaupstaður EINS og minnst var á hjer í blaðinu í gær, í samtali við iormann nýbyggingarnefndar Höfðakauptúns, setti Al- þingi vorið 1945 lög um nýbyggingar í Höfðakaupstað. Tilgangurinn með þessari löggjöf var að hefjast handa um algera nýjung. Samkvæmt henni skyldi ríkisvaldið taka forustuna um að byggja upp lítið og fámennt þorp og leggja grundvöll að myndun nýtísku útvegsbæjar, sem jafnframt styddist við jarðrækt og framleiðslu sveitanna i Húnavatnssýslu. Hjer var vissulega um merkilega hugmynd að ræða, enda var henni frábærlega vel tekið, ekki aðeins af íbú- um Höfðakaupstaðar, heldur fjölda fólks víðsvegar um land. Þessi staður bjó við góð skilyrði til lands og sjávar. Þaðan var stutt á mið Húnaflóa og ræktunarmöguleikar voru miklir. ★ Samkvæmt lögunum, var nýbyggingarnefnd, sem skip- uð var, fengið eftirfarandi verkefni: Að koma upp skipulagðri bygð í Höfðakaupstað, að koma þar á fót atvinnufyrirtækjum í samráði við Ný- byggingarráð og ríkisstjórn, að stuðla að því, að einstak- lingar, fjelög og stofnanir reisi þar íbúðarhús og önnur mannvirki, að reisa þar sjálf íbúðarhús til þess að selja þau fullsmíðuð, að koma upp handa bygðinni rafveitu, vatnsveitu og götum. Þessi verkefni voru fengin nýbyggingarnefndinni. En marfir munu segja að mestu máli skifti, hvað framkvæmt hafi verið af þeim. Þær raddir hafa einnig verið uppi, aðallega úr einni ákveðinni átt, að alls ekk- ert hafi verið gert nema það, að upp- dráttur af Höfðakaupstað hafi verið sendur til Parísar. Fyrir þessum söguburði, hefur Tíminn og Framsóknar- menn aðallega staðið. Þeir hafa allt frá upphafi haft allt á hornum sjer í sambandi við framkvæmdir á þessum stað. En ástæða þess er sú, að fyrverandi ríkisstjórn beitti sjer fyrir málinu í góðri samvinnu við þingmann Austur- Húnvetninga. ★ DAGLEGA LÍFINU Sólarhöll. HUGMYNDIN, sem varpað var fram hjer einu sinni í sum ar hefir fengið einn stuðnings- mann — A.B. segir á þessa lund í brjefi til Víkverja: „Af öllum þeim höllum, sem bygðar hafa verið og byggja á, þykir mjer einna merkust upp- ástungan um „Sólarhöll“, þó enn sje hún, því miður, jafn fjarlæg og „Borgin fyrir aust- an mána og sunnan sól“. En er nokkuð því til fyrirstöðu aö slík ,,höll“ verði að veruleika í framtíðinni? Nógai eigum við orkulindirnar. Sumar eins og það, sem nú er að líða, þar sem sólskinsdagarnir eru teljandi, skilar okkur illa undirbúnum í hendur löngum vetri. Þar við bætist bætiefnissnauð mjólk eða kanske engin.“ • Gjaldeyrissparnaður. „SÓLARHÖLL (helst í sam- bandi við hinn margumtalaða sjóbaðstað), sem almenningur ætti aðgang að mundi verða sá heilsubrunnur, sera einnig myndi spara tíma og gjaldeyri þeim, sem fara í heilsubótar- íerðalög til Kaliforníu og Mið- Íarðarhafsins, eða eyða sumar- fríinu í rándýr og þreytandi ferðalög, norður á Sljettu, eða Langanes.“ Höfuðdagur — sólardagur. OG ENN heldur A.B. áfram: „Höfuðdagurinn hefir lengi ver ið merkisdagur í veðurfari og veðurspám íslenskrar alþýðu. Því ekki að gera hann að merk isdegi með fjáröflun fyrir til- vonandi sólarhöll og gefa al- menningi kost á að sýna máli þessu stuðning, t. d. með sölu á sólarmerkjum, sólarhapp- drætti og sólarkaffi. Og ekki trúi jeg að sólguðinn yrði verri til áheita en hver annar. Finst mjer hjer vera verk- efni fyrir eitthvað fjelagið að glíma við“. • Mjólkin. FYRIR NOKKRU hitti jeg af tilviljun lækni einn hjer í bæn- um. Talið barst að mjólkinni, sem hjer er seld í höfuðstaðn- um og magakvillum og annari óáran í heilsufari fólks yfir- leitt. Læknirinn fór ekki dult með, að sitt álit væri það, að mjólkin ætti sína sök á ýmsum kvillum, sem hjer eru land- lægir, beint eða óbeint. Læknirinn fullyrti, að mjólk, sem hjer er á markaðinum, fengist alls ekki flokkuð eftir þeim reglumt sem gilda um mjólkursölu hjá menningar- þjóðum. „Það er ekki að tala um 3. eða 4. flokks mjólk“, sagði hann. „Mjólkin fengist alls ekki flokkuð“. Hvað á lengi að þola þetta? HVERSU lengi eigum við að búa við þetta óþolandi ástand í mjólkurmálunum? — Það er ekki gott að segja. Það er bú- ið að ganga til svo lengi, að margir eru orðnir úrkula von- ar um, að nokkurn tíma fáist breyting til batnaðar. Það er talað um nýjar mjólkurvinslu- vjelar, flöskumjólk, fyrirmynd ar kúabú (sem svo reynist ein- tóm vitleysa), en ekki batnar mjólkin. En sannleikurinn er sá, að hjer er um mál að ræða, sem er svo mikilsvert, að fá önnur mál, sem á döfinni eru, geta talist meiri. • Umbætur. ÞESSA DAGANA er verið að bera skattareikningana um bæínn. Það er einskonar einka- niðurjöfnunarskrá, sem hver skattgreiðandi fær til að minna hann á að greiða sín gjöld í tíma og forðast dráttarvexti og j lögtök. I En það er fátt svo ilt að ekki boði nokkuð gott og svo ar það með skattareikningana. Það fylgir nefnilega bónus með reikningunum handa þeim, sem fá kjötuppbætur. Og víst ætti það að vera nokkur huggun harmi gegn. • Fá grasætur kjöt uppbót? EN MARGT er það, sem gef- ur tilefni til hugleiðinga og eins er það með kjötbónusinn. Það er víst látið jafnt yfir alla ganga, hvort sem þeir borða kjöt eða ekki. Jurtaætur, jafn- vel fjelagsbundnar jurtaætur fá víst kjötuppbót. Og þótt það væri, að kjöt- bónusinn gleddi hrelda skatt- ; greiðendur, þá mun það samt | vera svo í reyndinni, að það sem rjett er að þeim í aðra höndina er tekið úr hinni. • Þrjú ríki. MARGT ER SJER til gam- ans gert. Inn við Skúlagötu er lítill hóll og moldarbarð í hon- um. Þar er nokkurt afdrep fyr ir suðaustan rigningunni. Þar er líka oft mannmargt, og virð ast þeir er þar dvelja una hag sínum vel. Einkum eru það menn sem koma frá Nýborg, sem er þarna skamt frá, sem I sækja þenna stað. I Er jeg spurði kunningja minn hversvegna þessi staður ( væri svona vinsæll sagði hann: „Veistu það ekki að það eru þrjú ríki í Reykjavík. Austur- ríki við Hringbrautina, Dýra- ríki í Nýborg og þessi staður er þar sem þess er neytt, sem fæst í þeim ríkjum er kallaður „Himnaríki“. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Grtöabrall af lameininf hemámssvreða En hvað hefur svo verið aðhafst? Þýðingarmikið undirbúningsstarf hefur verið unnið. í sumar hefur verið grafið fyrir skolpveitu og aðalvatns- veituæð lögð. Verður hún væntanlega fullgerð á komandi sumri. Þá hefur og verið unnið að margskonar mæling- um, sem grundvallarþýðingu hafa fyrir hina nýjú bygð. Samtals hefur ríkissjóður lagt til þessara framkvæmda nær eina miljón króna. En það er ekki síður athyglisvert, hvað almenningur á staðnum hefur aðhafst á þessum tíma. í sumar er t. d. verið að byggja þar á vegum einstaklinga 15 íbúðarhús. Ekkert sýnir betur, að fólkið hefur trú á framtíð stað- arins. Það má að vísu segja, að meira hefði mátt framkvæma á þeim stutta tíma, sem lögin um nýbyggingar í Höfða- kaupstað hafa verið í gildi. En það er samt sem áður tölu- vert, sem gert hefur verið. Og það er athugandi að slíkt uppbyggingarstarf verður að undirbúa vel. ★ En aðalatriði þessa máls er þó það, að haldið verði áfram því verki, sem hafið er og lögin gera ráð fyrir. Til þeirra framkvæmda þarf aukið fjármagn. Þessi tilraun er það merkileg, að hún má ekki stöðvast í fæðingunni. Að sjálfsögðu verður ekki til þess ætlast, að ráðgerðum framkvæmdum verði lokið á einu eða tveimur árum. En þær mega ekki stöðvast. Það verður að framkvæma gerð- ar áætlanir föstum og jöfnum skrefum. Þá mun sú hug- mynd mnan skamms tíma verða að veruleika, að Höfða- kaupstaður rísi upp sem mýndarlegur bær. Þá hefur merkilegri nýjung verið hrundið í framkvæmd. í GEGNUM smárifu á járn- tjaldinu má sjá, að Rússar eru að reyna, eða frekar að látast vera orðnir hliðhollir Þjóðverj- um. En aðferðir þeirra eru gamlar, sömu tegundar og al- ræmdasti áróður stríðsins. Þeir nota öll tæki, sem þeir hafa til að koma að Þjóðverjum ýmsum skoðunum til .að rjettlæta stjórn rússneska hernámssvæðisins og til þess að gera sem minst úr öllu, sem er framkvæmt á bresk-bandaríska hernámssvæð inu. j Þjóðverjarnir, einkum þeir, sem búa í Berlín og þar í grend fá á hverjum degi rússnesku skoðunina í öllu, sem fyrir ber, bæði 1 þýsku blöðunum, sem gefin eru út á rússneska her- námssvæðinu og í útvarpinu, sem er undir yfirstjórn Rússa. Þetta eru helstu heimildir Ber línarbúans og á þessu eru skoð- anir hans í alþjóðamálum farnar að byggjast. Sameining táknar kol og meira gróða fyrir Rússa. I Rússar vilja fá meiri stríðs- skaðabætur frá Þýskalandi og þurfa á þýskri framleiðslu að halda til þéss að standa undir fjármálum sínum og þess vegna langar þá mikið í að fá kol flutt frá Vestur-Þýskalandi til þess að starfrækja verksmiðj- urnar í austurhlutanum á sem hagkvæmastan hátt. Rússar | hafa því gerst einskonar postul ar sameiningar alls Þýskalands. en þegar þeir segja sameining, meina þeir vitanlega kol fyrir sjálfa sig, þótt það sje vitanlega ekki upp gefið. En með því að halda áfram áróðri sínum fyr- ir sameiningu alls landsins í eitt hernámssvæði getur vel verið að Rússar sjeu að áskapa sjer nafnið,„frelsarar Evrópu“. Aukin gremja Þjóð- verja. Berlínarbúar eru margir hverjir gramir út í bandaríska, breska og franska liðsforingja og hermenn, sem búa 1 bestu húsum sem finnast í borginni, en Þjóðverjar verða að una við skemd hús og íbúðir með brotn um veggjum, sem gert hefir ver ið við til bráðabirgða. Vitanlega er lítið hægt að gera við þessu, en Rússar hafa notað það til að æsa upp reiði og grimd meðal fólksins. Það eru ver klætt og soltnara en nokkru sinni áður og er mjög móttækilegt fyrir hverskonar áróðri og brýtur lítt heilann um hvort sögurnar, sem ganga eru sannar eða ekki. Auk þess ,er atvinnuleysið í borginni mikið, talið vera milli 150,000 og 200,000 atvinnuleys- ingjar. Rússneska útvarpið og blöðin nota sjer líka til hins ýtrasta viðnámsleysi fólksins og skella allri skuld af hverju, sem aflaga fer, á vesturveldin. Og jafnan kveður við tónninn: Þetta eru hinu kapitalistíska Vestri að kenna. Eru kolin flutt út? íbúum borgarinnar hefir lítt getist að Rússum og nú eftir allan áróðurinn líst þeim ekki heldur á hinn hlutaðeigandann. Það ganga sífelt sögur um að öll kolin, sem numin eru úr jörð í Ruhrhjeruðunum sjeu flutt úr landi til þess að nota í breskum og frönskum stál- smiðjum og geta má nærri að það veldur óánægju, þar sem kolin sem Berlínarbúar hafa, eru aðeins brúnkol og jafnvel lítið af þeim. í raun og veru væri eina vel- gjörðarþjóð Þýskalands sú, sem leysti þá undan þessum viðjum rammrar áróðurstækni ósvif- inna gróðabrallsmahna, sem hafa fastákveðið að grípa eins mikið og mögúlegt ér af þýsk- um vjelum og þýskri fram- leiðslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.