Morgunblaðið - 26.08.1947, Blaðsíða 1
I kringum hnöliinn
Á mynd þessari, sem tekin var s. 1. sunnudagskvöl d á Kefla-
víkurflugvellinum, sjást Bandaríkjaflugmennirnir tveir, sem
eru að fljúga kringum hnöttinn. Flugvjelar þeirra heita
„City of Washington“ og „City of the Angles“. Sjá frásögn
á 2. síðu blaðsins.
Finnbjörn og Haukur taka þátt
í j\Sor5urlandakeppninni
Frá frjettaritara Mbl. með iR-flokknum.
ÞAÐ er nú ákveðið að þeir Finnbjörn Þorvaldsson og
Haukur Clausen taki þátt í Norðurlandamótinu í frjálsum
íþróttum, sem hefst eins og kunnugt er í Stokkhólmi 6. sept.
n.k Finnbjörn keppir í 100 m. hlaupi, langstökki og 4x100
m. boðhlaupi, en Haukur í 200 m. hlaupi.
ÍR-flokkurinn kom til Oslóar
í gær eftir mjög ánægjulega
flugferð, tók norska frjáls
íþróttasambandið á móti flokkn
um með ágætum. Osló leikirnir
hefjast á miðvikudag og standa
ýfir í þrjá daga mun flokkur-
inn taka þátt í keppnum tvo
fyrstu dagana. M. a. keppenda
verða íþróttamenn frá Banda-
ríkjunum, Svíþjóð, Finnlandi,
Danmörku og víðar að.
Finnbjörn og Haukur taka
þátt í 100 m. og 200 m. hlaupi,
Reynir Sigurðsson og Kjartan
Jóhannsson í 400 m., Oskar Jóns
son, Kjartan Jóhannsson og
Pjetur Einarsson í 800 m., Óskar
Jónsson í 1500 m., Öi'n Clausen
og Magnús Baldvinsson í lang-
stökki, Sigurður Sigurðsson í
kúluvarpi og Jóel Sigurðsson í
spjótkasti. Flokkurinn fer frá
Oslo á miðvikudagskvöld til
Stokkhólms. Nánari frjettir um
skipan Norðurlandsliðsins
koma síðar. Vellíðan og kærar
kveðjur.
—Þorbjörn.
haldaris vongóður
um stjórnarmyndun
TSALDARIS foringi popul-
ista flokksins gríska átti í all-
an dag 1 ströngu að stríða um
tilraun til stjórnarmyndunar
Atti hann viðtal við Sophoulos
foringja miðflokksins, sem neit-
aði allri saminnu, nema Tsald-
aris gengi að skilmálum mið-
flokksins, sem eru meðal ann-
ars, Sophoulos megi halda for-
sætisráðherra embætti.
Tsaldaris hefur lýst því yfir,
að enn sje öll von ekki úti um
að honum takist stjórnarmynd-
un.
Seint í kvöld gekk hann á
fund Páls konungs og vita menn
ekki hvað þeim fór á milli.
CANBERRA: Ástralíumenn
hafa miklar áætlanir á prjón-
unum til að spara dollara.
Verða nú sett meiri höft á gjald
eyrisleyfi en áðui.
Frakkland beitir neitunarvaldinu
MótmæEir út-
strikuniim
komma
Budapest í gær.
Kosningaundirbúningur í
Ungverjalandi er nú í íullum
gangi. í ræðu, sem Pfeiffer hjelt
í dag gagnrýndi hann harðlega
útstrikanirnar, sem átt hafa
sjer stað af kjörskránum. Sjer
i lagi að Istvan Szazo einn aðal
foringi smábændaflokksins hef-
ir verið sviptur kjörgengi, en
ekki vita menn til þess að hann
hafi drýgt neinn glæp.
Kommúnistar notuðu sem á-
sökun á hann, að hann hefði
haft fasistiskar skoðanir á stríðs
tímunum og segjast hafa sjeð
nafn hans í skrá yfir meðlimi
fasistaflokksins. Að vísu efast
menn stórlega um að kommún-
istar hafi nokkurn tíma í raun
og veru sjeð þetta nafn þar, en
Pfeiffer sagði að ef svo væri,
hlyti það að hafa verið einhver
annar maður með sama nafni.
Nú er orðið of seint að koma
með kjörskrár kærur og færist
nú óðum nær kosningunum,
sem eiga að fara fram 31. ágúst.
Stíga Gyðingarnir á
land í Hamborg
SKIPSTJÓRINN á Runny-
mede Park, einu hinna þriggja
skipa, sem Gyðingarnir 4400
eru fluttir á frá Port de Bouc
til Hamborgar, hefur sagt frá
því, að Gyðingarnir á hans skipi
muni stíga á land þegar þeir
koma til Hamborgar. Telja
menn, að ef svo fer, muni Gyð-
ingarnir á hinum skipunum
einnig verða fáanlegir til að
fara í land. Skipin eru nú stödd
undan suðurströnd S.pánar.
<*> -----------;-
Móti tillögu Rússa í
Indónesíumálinu
LAKE SUCCESS í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FRAKKLAND beitti neitunarvaldi sinu í öryggisráðinu í
fyrsta skipti í kvöld og felldi með því tillögu Rússa um að
stofnuð skyldi eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna til að hafa
eftirlit með að friður væri haldinn í Indónesíu — Er það í
fyrsta skipti, sem nokkur þjóð utan Rússa beitir því valdi.
Tillaga Rússa hafði verið samþykkt með 7 atkvæðum gegn 2.
Belgía greiddi atkvæði með Frakklandi gegn rússnesku til-
lögunni, en Bretland cg Kína sátu hjá.
Henhöfðinginn, sem
fyrirskipaði eyðingu
Finnmerkur fyrir
rjetti
Nurnberg í gærkveldi.
LOTHAR RENDULIC áður
I þýskur hershöfðingji yfir
^ Norður-Noregi er fyrir stríðs-
iglæparjetti í Nurnberg. l'yrir
nokkru hjelt hann því fram, að
I þýski herinn hefði eytt Finn-
|mörk vegna þess að hann hefði
óttast sókn Rússa inn yfir
Skandinavíu.
í dag bar norski hershöfðing
inn Erne Dahl vitni fyrir rjett-
inum og vísaði burt þessarri á-
sökun Þjóðverjans.
Dahl sagði, að hann væri viss
um, að Þjóðverjum hefði aldrei
jkomið til hugar, að rauði her-
Jinn færi vestur yfir Finnmörk.
Hann sagði, að fyrirskipun
Rendulics hefði verið gefin af
einskærri eyðileggingarlöngun.
^Fulltrúi Indonesa ber
fram beiðni.
Fulltrúi Indónesa dr. Sutan
Sjahrir beiddist þess af Öryggis
ráðinu, að það lýsti því yfir,
að aðgerðir Hollendinga væru
árásarstríð og að Hollendingum
væri skipað að hverfa á brott
með her sinn.
Sjahrir sagði, að Indónesar
treystu því ekki, að ræðismönn
um í Batavíu yrði falið að gefa
skýrslu, þar eð þessir menn
sæju hernaðaraðgerðirnar gegn
um hollensk augu. Hann sagði
áfram, að Indónesar myndu
fagna allri málamiðlun, þó að
því undanskyldu, að hún færi
ekki í kringum ákvarðanir Ör-
yggisráðsins.
Hraða störfum.
Hann bað Öryggisráðið, að
hraða störfum því að hver mín
úta kostaði fjölda mannslífa.
Þegar tillaga Ástralíumanna
um að fela ræðismönnunum um
sjá eftirlitsins var borin undir
atkvæði var hún felld með 7
atkvæðum gegn engu. En hjá
sátu Bretland, Pólland og Rúss
land.
Alþjóðaráðstefna um matvælðmál
Prentarar segja ekki
upp samningum
HIÐ ísl. prentarafjelaga boð-
aði til fundar s. 1. sunnudag.
Til umræðu voru samningar
fjelagsins við atvinnurekendur,
en þeir ganga úr gildi þann 1.
okt., n. k. Sje þeim hinsvegar
ekki sagt upp, þá framlengjast
þeir um eitt ár.
Þeir Stefán Ögmundssori og
Gestur Pálsson, báru fram til-
lögu um að samningunum skyldi
segja upp 1. okt. Eftir nokkr-
ar umræður var tillaga þeirra
Stefáns og Gests borin undir
atkvæði. Með uppsögn þeirra
greiddu 24 atkvæði, en á móti
35.
GENF í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HIN árlega matvælaráðstefna Sameinuðu þjóðanna var
sett í dag í Genf. Sir Boyd Orr setti hana með ræðu, og sagði
meðal arinars, að aðalmál þessarar ráðstefnu yrði að koma
á laggirnar 18 manna nefnd, sem ætti að finna ráð til að
samræma macvælaframleiðslu og skiptingu fæðunnar um
heim allan.
Um þátttöku er það að segja,:
að Rússum var boðið, en þeir
hafa ekki sent neinn fulltrúa.
Aftur á móti taka Ungverja-
land, Pólland og Tjekkóslóvakía
þátt i henni.
Argentínu hefur ekki verið
boðið þar eð hún sat ekki á þing
inu í fyrra. Eitt ríki hefur verið
tekið upp. Er það Salvador í
Mið-Ameríku. Finnland, Síam og
Pakistan hafa áheyrnaríulltrúa
| á ráðstefnunni.
I ísland tekur þátt í ráðstefn-
unni og er Davíð Ólafsson, fiski-
málastjóri, fulltrúi á þinginu.
UPPREISNARMENN
GERSIGRAÐAÐIR.
ASUNCION: Stjórnin í Ura-
guay hefir nú lýst því yfir, að
alger friður ríki í landinu, enda
hafi uppreisnarmenn verið ger-
sigraðir.