Morgunblaðið - 30.08.1947, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 30. ágúst 1947
Jón Gestsson áttræður
ÁTTATÍU ára var 6. ágúst
a.l. Jón Gestsson frá Sviðu-
görðum í Gaulverjabæjar-
hreppi, nú á Öldugötu 53 í Rvík.
Jón var sonur Gests Jónssonar
bónda í Sviðugörðum og konu
hans Elínar Einarsdóttur. Ólst
Jón þar upp og dvaldi fram á
þrítugsaldur, en fór þá að Kald
aðarnesi til Sigurðar sýslu-
manns, var ráðsmaður hjá hon
um í þrjú ár. Meðal annara
vinnukvenna var þar þá Guð-
rún Guðmundsdóttir frá Halls-
koti Flóagaflshverfi. Fór svo að
þeim leist vel hvoru á annað
og giftust um haustið þriðja
árið. Hvernig vinnuhjú þau
hafa verið Jón og Guðrún, má
best marka af því, að sýslu-
mannshjónin hjeldu stórveislu
við það tækifæri, sem vott virð
ingar og þökk fyrir prýðilega
unnin störf þessi ár.
Þetta hjónaband mun ekki
hafa verið stofnað fyrir augna-
blikshrifning eina, heldur
miklu fremúr fyrir vaxandi
virðingu og skynsamlega yfir-
vegun þeirra við störfin á þessu
stórbúi, það hefir líka reynst
þeim vel, þau hjón hafa lifað
í hamingjuríku og farsælu
hjónabandi hátt á fimmta tug
ára, saman valin að -atorku og
ráðdeild.
Vorið eftir fluttu þau til
Reykjavíkur og hafa búið þar
síðan. Stundaði Jón sjóinn
lengi, eða um 20 ár, sem hann
var skútumaður. Reyndi þá oft
á þrek og þor ,en allt gekk
farsællega og slysalaust. Og nú
er þessi öldungur áttræður, er
hefir unnið erfiðisvinnu óslitið
með afdráttarlausum áhuga og
þrótti alla sína æfi, hann er
ennþá svo ern að hann vinnur
oftast í „vinnu bæjarins“, og
lætur ekki á sig hallast með iðni
eða handlag, ies á bók gler-
augnalaust, og fylgist með lífi
og framförum í bænum með
fullum skilningi og einlægni á
sinn sjónhaga og velviljaða
hátt.
Þ^u hjón eiga þrjú börn,
hvert öðru efnilegra og ást-
ríkara foreldrum sínum; þau
eru Guðmunda, gift Steindór
Árnasyni frá Höfðahólum, for-
stjóra, Elías stýrimaður og Eg-
ill bakari.
Það er mikilsvert líf og starf
slíkra manna, sem Jóns Gests-
sonar. Það bæjarfjelag, sem á
slíka menn, er traust og sterkt.
Á þessu merkisafmæli þínu
Jón, senda vinir og frændur
þínir þjer kærajcveðju og bestu
heillaóskir og kona mín, sem
er uppeldissystir þín, blessar
þig í orði og anda fyrir hina
góðu kynningu er.hún átti með
þjer, og ágætu áhrif er hún
naut af sambúð við þig í æsk-
unni.
Vertu blessaður og þið ágætu
hjón.
Dagur Brynjúlfsson.
Reykvíkingar á
íþrátiamóli í Eyjum
í FYRRADAG flugu 20 KR-
ingar til Vestmannaeyja og
verða gestir Vestmannaeyinga
í dag og á morgun. Ákveðið er
að þarna verði háð tveggja daga
íþróttamót þar sem KR-ingar,
Vestmannaeyingar, og ýmsir
aðrir munu taka þátt í, þar á
meðal Kolbeinn Kristinsson og
Sigfús Sigurðsson frá Selfossi,
Stefán Sörensson, Þingeying-
ur og Ármeningarnir Bjarni
Linnet, Hörður Hafliðason og
Stefán Gunnarsson. — I dag
verður kept í 200, 1500 m., 4x
100 m. boðhlaupi, langstökki,
hástökki, kúluvarpi og kringlu
kasti, en 'é morgun í 100 m,
400 m., 3000 m hlaupum, þrí-
stökki, stangarstökki, sleggju-
kasti og spjótkasti.
Þátttakendur K. R. í ferðinni
eru Ásmundur Bjarnason,
Brynjólfur Ingólfsson, Einar H.
Einarsson, Gunnar Sigurðsson,
Hermann Magnússon, Ingi Þor-
steinsson, Jóhann Bernhard,
Magnús Jónsson, Pál Halldórs-
son, Pjetur Sigurðsson, Páll
Jónsson, Trausti Eyjólfsson,
Þórður Sigurðsson og Þorvarð-
ur Arnibjarnarson.
Reykvíkingarnir eru vænt-
anlegir heim aftur annað kvöld.
— Fararstjóri KR-inganna er
Brynjólfur Ingólfsson.
Sameinuðu þjóðirnar
WASHINGTON. Trygve Lie,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
hefur tjáð frjettamönnum, að hann
geri ráð fyrir að alsherjarþingið,
sem hefjast á 16. september n.k.,
standi yfir í þrjá mánuði.
— Þýski iðnaSurinn
Framh. af bls. 1
og er talið, að Frakkar beri það
fram sem skilyrði, ef þeir eigi að
sameina sitt hernámssvæði, að
framleiðslumagn þýska iðnaðar-
ins verði minnkað.
Hefur franski upplýsingamála
ráðherrann, Bondard, lýst því
yfir, að Frakkar álíti, að endur-
reisn Þýskalands eigi ekki að
ganga íyrir endurreisn þeirra
ríkja, sem börðust fyrir málstað
lýðræðisins í styrjöldinni.
Ilann heldur áfram: Ef að
þessari aukningu verour komið
á verður það til þess ao Þjóð-
verjar ná sama valdi yfir fjár-
málum Evrópu og þeir höfðu
fyrir styrjöldina. — Frakkar
heimta að framleiðslumagn Þjóð
verja á þyngri vjelum og einnig
ýmis efnaframleiðsla, svo sem
gerfigúmmí verði lækkuð frá
því sem Bretar og Bandaríkja-
menn hafa ákveðið. Og þeir vilja
iíka, að meiri kol verði flutt út
frá Ruhr-hjeruðunum og megi
þá telja þá flutninga sem hluta
af stríðsskaðabætum Þjóðverja.
Þjóðverjum finst ekki
nógu langt gengið.
Þýski sósíalistaflokkurinn er
þar á móti óánægður með að-
gerðir hernámsstjórnanna og
Schumacher hefur sagt, að þess-
ar aðgerðir sjeu ekki líkt því
nægjanlegar, til endurreisnar
Þýskalands.
Yiðræður í Berlín..
Bandarískir, breskir og fransk
ir sjerfræðingar munu ræðast
við í Berlín eftir helgina og verð
ur þá úr því skorið, hvort Frakk
ar vilja sameina sitt hernáms-
svæði hinna.
aiKiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitfitiiiiiitiiiiidiiiiiiiiiiiiiniiiiii'
: r
[Dodge bílij
} Keyrður 30.000 km. er til {
| sölu. Lysthafendur sendi j
j nöfn merkt: „X-120 —953“ I
j til afgr. Morgunbl.
«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Vefnaðarksnsia
§ Stúlka, sem vill hjálpa til
I við húsverk getur fengið
I kenslu í vefnaði. — Uppl.
| hjá
Agnesi Davíðsson
í Holtsgötu 31. Sími 5399.
„LAGARFGSr
fer frá Iteykjavík fimtudaginn
4. september til vestur- og
norðurlandsins.
Viðkomustaðir:
Patreksfjörður
Þingeyri
Isafjörður
Siglufjcrður
Akureyri.
H.í. EÍRiskipafjel. íslafids
uiá 1940 j
{ Velmeðfarinn einkavagn í ;
§ :
{ ágætu lagi til sölu. Uppl. |
j í síma 7319 kl. 1—3 í dag. !
f•lll•llll•l•l■•l■lll1lllll■lllllllllllllllllllll■llllll•llllll■Mltal
Bandprjóna eg hekfynála
innfiyfjendur
Dönsk verksmiðja býður yður
„eloxeraða“ og nikkelhúðaða
aluminíum-prjóna. Fljót af-
greiðsla. Tilboð merkt: „5318“
sendist Harlang & Toksvig, Re-
klamebureau A.S., Bredgade
36, Köbenhavn K.
• lllálllllllllSllllk.UtllMIMIMMIII
Vk or L
agnuó ^Jhonaciuó
hæstar j ettarlögmaður
IMI— dllHIMH
— Me^al annara oróa 1
Framh. af bls. 6
var Farben svo fullkomlega
undirbúið undir styrjöld, að
engu þurfti að breyta undir
stríðsreksturinn. Göring hafði
sagt, að í styrjöldinni væri allt
komið undir að hafa nóg gúmmí
og olíu, sem Farben framleiddi
í tonnatali úr kolum. En Farb-
en framleiddi einnig 84% af
öllum sprengiefnum Þjóðverja.
Það jók magnesíumframleiðsl-
una um 4000% og alúminíum-
framleiðsluna um 1300%. Það
framleiddi 95% af eitúrgasi
Þjóðverja.
Þýskir skriðdrekar. fallbyss-
ur og vopnaðar bifreiðar runnu
áfram á Farben málmhjólum,
með Farben hjólbörðum, rekn
ir áfram af Farben gerfibensíni.
Og sagan var hin sama allstað-
ar. Kraftur þýska hersins bygð
ist að miklu leyti upp af margra
ára starfi þessa volduga fje-
lags.
Frá Hollandi
og Belgiu
F.s. Reykjanes
frá Antwerpen 1. sepíembcr
frá Amsterdam 3. september
EINARSSON, ZOEGA & Co. h£
Hafnarhúsinu,
Símar: 6697 & 7797
Bíaupmenn
Ef þjer viljið tryggja yður ný fyrsta flokks egg frá
hænsnabúi rjett við bæinn, þá sendið nafn og síma-
númer á afgreiðslu blaðsins, merkt: „100%“, fyrir n.k.
miðvikudagskvöid.
'5>^<?>«><?><^x®^<$v$x^x®kí>^xí>^x®>^kí>^k$><^>4xíxJx$>^xMxSxíxSx$x»^xíxíxíxíxSxÍx$x&.
fX$><S><®xM^><$>^><^>^SxíX$X$XÍ><í><íxí><$XS><Mx$>^X$XÍxí><$XÍXÍxSKÍxS>^XÍXÍxSX$X$>^XÍXÍX$>^>>
Hekluferð
í dag kl. 2. Pantið sæti f. h. hjá B. S. R., simi 1720.
í
I-f
£
£
Efiir Roberf Sforns
IF UVEf?-LlP(5 KNEW I 60T
HEMEABTED úb1 LET TH7.T DCLL
TúKE A POWDER, H6*D 5P1LL ME
ALL CVER THt PLACE-1 /,n' YET
B0UND 10 6QÚEAL —
M
STU/M5LIN3 THR0J5H THE W00D5, NEEDRA
FSALE REACHE& THE HIGHWAV, BUT—
f* HES'! THAT L00K& UKE
THE FRILL WE BEEN H0LDIN6
ATTHECA/MP —J p
i ■■■
„---------------------------sttmi
Synoirjfc, Inr, \X orlj riplns rcservcii *
Kalli: Það er að koma myrkur. Shifty og Lor- söm. Jóf (hugsar): Ef Kalli kemst að því, að jeg að sföðVa íbifreið Sþiftýs og Loreen. Of seint tekur
. V\ \ ¥ ;.ir\ v n \ ■■ ..DU;.-o.i: • . . '4 w 'C V? ", ,S
een ættu að fara að koma. — Bófinn: Það var hafi gefið henni líf, drepur hann mig. —< En á sama hún eftir því, að hún er hlaupin beint í fangið á
prýðilegt að skjóta stelpuna, Loreen er svo afbrýði- andartaki^er Exale komjn út úr, skóginum, og búin óvinyim s.ínum.