Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 7
7 iVIiðvikudagur 24. sept. 1947 MORGVyBLAÐlp UM DAGINN OG VEGI JEG heyri oft, að útvarpið tilkynnir, að þessi eða þessi tali nú um daginn og veginn, og þar sem jeg er lítið frumlegur, há ætla jeg að taka hjer upp þessa fyrirsögn að því, sem jeg segi hjer, og spjalla svolítið um dag- inn og veginn. í þessum útvarpserindum og í dagblöðunum líka er oft minnst á verðbólguna og dýr- tíðina, og það ekki að ástæðu- lausu, því vegna þessa ástands er nú virkilega alvarleg hætta á ferðum um framtíðarafkomu okkar. Verðbólgan þróast óðfluga og peningarnir hrynja í verði, en hrun peninganna þýðir hrun þjóðfjelagsins. — Enginn mun hafa skilið þetta betur en Jón Þorláksson. — Hann lagði mikla áherslu á að efla gildi krónunnar, enda mun hann hafa verið einhver sá mesti fjármálaspekingur, sem Island hefur átt fyrr og síðar. Á mínum fyrstu búskaparár- um var vinnumannakaup 60 kr. fyrir allt árið og 4 flíkur, sem eftir þágildandi verðlagi hefðu ekki kostað meira en 20--24 krónur, og þá var sláttur úr lambi með haus og garmör 40 •—50 aura. Jeg man, að þegar Hvanneyrarskólinn fór að borga duglegum vinnumönnum fyrir allt árið 100 kr. þótti mörgum bændum það mjög viðsjárverð ráðstöfun, því slík verðhækkun, ef aðrir yrðu eftir að herma, gæti sligað landbúnaðinn að fullu. Það mun nú vera algengt, að vinnandi menn, einkum iðnaðar menn, fái um og yfir 100 kr. A dag og sumir langtum meira, og þetta flýgur áfram. Vegna dýrtíðarinnar gera ýmsar vinn- andi stjettir kauphækkunar- kröfur, með verkföllum og harð heitum fá þeir vanalega kröfum sínum fullnægt að meira eða minna leyti, og þá þegar hækka landbúnaðarvörurnar í hlut- falli við það, og þá aftur vísi- talan og kaupgjaldið, og nú ný- verið hafa bændur knúið fram verulega hækkun á vörum sín- um, og við það hækkar vísi- talan tilfinnanlega og þá aítur kaupgjaldið að sama skapi. Og svona hleypur það áfram holl af kolli, hjer er verið að tefla hina reglulegustu svikamyllu, sem ekkert rtiannlegt auga get- ur sjeð fyrir endann á. Jeg minnist þess ekkí, að jeg hafi heyrt eða lesið neinar virkilegar ákveðnar tillögur til útbóta í þessu mikla vandræða- máli og það er líklega erfitt að gera það, en það er víst, að það dugar ekki að taka hjer á með linum og loðnum vettlingatök- um. Þar, sem jeg tala nú hjer um daginn og veginn, verður það sama og jeg hefi minnst á hjer að framan, þ.e. um verðbólg- una og dýrtíðina, og bera hjer fram ákveðnar tillögur til um- bóta í máli þessu, sem að mínu áliti mundi breyta viðskipta- horfum þjóðarinnar mikið til batnaðar og líklega duga til fullnustu til að hefta þá við- skipta-vitleysu, sem hjer er nú. _ Bara að hinir bestu menn þjóð- arinnar vildu taka þær að sjer og berjast fyrir þeim til sigurs með viljafestu og krafti. Eftir Jc frá Jeg get nú hugsað, að jeg muni heyra það úr ýmsum átt- um, að jeg sje orðinn nokkuð sljór, og á eftir tímanum, eða jafnvel alveg elliær. Jæja, það verður þá að hafa það. Jeg legg til, að öll verslun og viðskipti verði sem allra frjáls- ust og allir búi þar við sömu rjettindi og sömu skyldur og að allar verslanir sjeu sem minnst háðar afskiptum hins opinbera. nema að sjerstakar knýjandi á- stæður liggi fyrir til grundvall- ar eða ef hlutaðeigendur óska eftir. hjálp og aðstoð ríkisins, vegna samninga við aðrar þjóð- ir. Þá er ríkinu skylt að veita hana. Flestar þær nefndir, sem nú eru hjer starfandi, ættu að leggjast niður, því þær eru þungur baggi á ríkinu. Þó eru 2 nefndir, sem jeg býst við að verði óhjákvæmilegt að hafa starfandi fyrst um sinn, á með- an viðskiptalífið er ekki komið í nægilega góðan og fastan far- veg, þ.e. innflutningsnefnd og verðlagseftirlit. í sjávarútvegsmálum þarf ekki aðra nefnd en Fiskifjelag íslands, útvegsmenn annast sjálfir um allar framkvæmdir sinna eigin mála, þeir senda út verslunarerindreka, þegar þeim þykir þörf til, þann mann eða menn, sem þeir sjálfir bera fullt traust til, allar þær framkvæmd ir, sem þeir gera, eru á þeirra kostnað og ríkinu óviðkomandí. Þó skal ríkinu skylt að veita þeim hjálp og aðstoð, ef þeir beiðast þess, vegna viðskipta og samninga út á við. Hið sama gildir um Mjólkur- sölunefnd og kjötverðlagsnefnd, að þær hætta störfum og hefur þao opinbera engin afskipti af þeim málum lengur að öðru leyti en því, sem við kemur heilbrigðiseftirlitinu og svo það, að bændur verða að sætta sig við það hámarksákvæði, sem sett verður á útsöluverðið, og kem jeg að því atriði hjer á eftir; Framleiðendur annast sjálfir um sölu og dreifingu vara sinna, hvort þeir gera það í smærri eða stærri fjelögum eða maður sel- ur manni geta þeir haft eftir því sem þeim sýnist best. — Bændur reyna auðvitað að haga sölunni og viðskiptafyrirkomu- lagi þannig, að dreifingarkostn- aður verði sem allra minnstur. Áður en jeg minnist á kaup- greiðslumálin, ætla jeg að koma með litla tillögu í þeim tilgangi að mýkja hugarfar þeirra, sem lesa það, sem hjer fer á eftir. Jeg legg til, að allur tollur á kaffi og sykri og á allri korn- vöru, hvort sem heldur er til manneldis eða dýrafóðurs, verði afnuminn. Ríkissjóðurinn ætti vel að geta það, því ef farið er eftir tillögum mínum, þá ljettir af honum stórum útgjalda- böggum. Þá kemur tillagan um verka- rnannakaup og önnur laun, og verður það líklega erfiðasta við- )hann Ey Sveinatu fangseínið. Þó ætti það ekki að vera það, ef góður skilningur og góður þegnskapur væri fyrir hendi hjá hinum betri mönnum þjóðfjelagsins. Þegar ákveða skal hin al- mennu verkamannalaun, þá er tvennt, sem maður verður að hafa íyrir augum til að byggja tillögu þessa á. Fyrst það, hvað getur framleiðslan borgað, og svo það, að samræma verka- mannakaupið og verðlag á af- urðum landbúnaðarins. Þaö er óhrjekandi sannleik- ur, að ekkert fyrirtæki, hvorki á sjó nje landi, getur greitt meira en allan arðinn af fyrir- tækinu, og þegar svo er komið, að reksturinn gengur meir og meir niður á við, fer fljótt að draga úr framkvæmdum, og þá þegar orðin kyrrstaða, og þá um leið atvinnuleysi, vandræði og hrun. Við verðum að skilja það, að það er hvorki á valdi ríkis- stjórnarinnar eða neins manns hjer að selja vörur okkar fýrir kostnaðarverði á útlendum markaði, ef við sjálfir getum ekki hagað okkur svo, að við sjeum samkeppnisfærir við aðr- ar þjóðir. Við verðum líka að skilja það, að það er betra að hafa rýra at- vinnu um eitthvað óákveðið tímabil en enga. Þegar um kaupgjald er að ræða, þá verður það aðeins grunnkaupið, sem kemur til greina, allar dýrtíðaruppbætur falla niður og hverfa bæði hjá lágtekju- og hátekjumönnum. Allir þeir, sem sjómennsku stunda, hvort sem er á stærri eða smærri skipum, hafa kaup sitt af hluta aflans á minni skip um, eins og það hefur tíðkast hjer áður og til þess dags, og á stærri skipunum með prósent- um aí aflanum, líkt og fyrir- komulagið er á Englandi. Jeg meina, að hægt sje að koma því íyrirkomulagi á við frystihúsin, sem verði líkt og á smærri skip- unum, að fyrirtækið með því sem það leggur til, fái ákveðinn hluta af tekjunum, og verka- fólkið, konur og karlar, sinn á- kveðinn hlut, sem svo aftur skiptist á milli þess eftir um- sömdum og ákveðnum hlutföll- um. Auðvitað yrði fólkið að fá eitthvað grunnkaup jafnframt því sem það vinnur. Jeg er því miður ekki svo kunnugur þessum málum, að jeg treysti mjer til að gera neinar tillögur um, hvernig skiptingin ætti að vera, hvorki milli fólks ins, eða fólksins og fyrirtækis- ins. Best væri, að þar gætu orð- ið helmingaskipti. Það er víst, að þetta væri gott, ef hægt væri að koma því í framkvæmd. Þá mundi fólkið vinna betur og hafa meiri á- huga fyrir velgengni hússins og þar af leiðandi gengi fyrirtækið betur. Jeg legg til, að vinnunni verði hagað þannig, að hinn almenni vinnutími sje frá kl. 7 að morgni ólfsson ngu til kl. 7 að kvöldi og eftirvinnu- tími byrji kl. 7 og næturvinna eftir kl. 11. Hinn reglulegi vinnutími yrði þá 10 klukku- tímar. Þá geta þeir, sem ekki vilja vinna nema 8 tíma eða skemur, fengið það, um það verður að vera samkomulag milli verkamannsins og verk- stjórans. Kaup verkamanna fyrir al- menna vinnu skal vera 4 kr. fyrir hvern klukkutíma, og iðn- aðarmanna, sem hafa full rjett- indi, 6 kr. fyrir hvern klukku- tíma. Þetta mun nú sumum kannske þykja nokkuð lítið, en það er samt ekki víst, að það geti orðið svona mikið, því það er alveg undir því komið, hvort fram- leiðslan þolir það. Það verður að vera ákveðin sögnA að sjávar afurðirnar okkar verða að selj- ast og seljast fyrir kostnaðar- verði. Ef það reyndist mögulegt að tímakaupið gæti orðið 4 kr., þá fengi maður, sem vinnur 10 tíma á dag, 40 kr. fyrir daginn. Þetta samsvarar því, sem maður fengi nú sem næst 50 kr. á dag. Þetta verður maður að álíta vandræðalaust og allt annað en atvinnuleysi. Jeg álít, að engum heilbrigð- um manni ætti að vera ofvaxið að vinna 10 tíma á dag. Að minnsta kosti hefði það ekki verið kölluð nein vinnuharka í mínu ungdæmi. En nú á tímum leggur fólkið því miður allt of mikla áherslu á að lifa við hægð, skemmtanir og leikara- skap. Jeg ætla ekki að bera hjer fram neinar beinar tillögur um laun hinna opinberu starfs- manna eða um aðrar launa- greiðslur, heldur aðeins leggja það til, að þær verði í vana- legu og sanngjöi'nu hlutfalli við laun verkamannsins. Viðvílcjadi vérði á landbún- aðarvörum legg jeg til, að skip- uð verði nefnd af viðkomandi aðilum, og’ svo á þann hátt, sem best þykir við eiga til að á- kveða verðlagið. Verð á vörum þessum má ekki vera hærra en það, að neytendur njóti full- komlega eins gþðra viðskipta og þeir hafa nú í hlutfalli við laun sín. Jeg held, að við samning þann ætti að líta svolítið á það. að bændur hafa fengið talsverð- an styrk frá ríkinu til ag gera búskapinn arðmeiri og kostn- aðarminni, en verkamenn eng- an. Þá kemur hjer seinasta til- lagan mín, sem jeg legg mesta áherslu á af öllu því, er jeg hefi sagt hjer að framan, og álít stærsta hamingjuspursmálið. hvernig þjóð og þing tekur henni. Jeg legg til að samin verði lög um stofnun gerðardóms og að sá gerðardómstóll hafi hæsta rjettardómsstólsvald 1 öllum vinnudeilumálum og ýmsum viðskiptamálum. Iíjer er ekki að ræða úm 'fast- an dómstól, heldur verður hann skipaður í það og það skiptið, þegar á þarf að halda sam- kvæmt lögum, sem um það gildi. Gerðardómslög geta verið með ýmsu móti, en þau verða þó að vera þannig að dómurinn afgreiði málið að fullu. — Jeg mundi leggja til að hjer væru þau þannig, að ef hlutaðeig- endur geta ekki samið á sátta- fundi, þá tilnefna báðir aðilar 4 menn hvor í gerðardóminn (þá kemur það, sem kallað var á gömlu máli að ryðja kviðinn), þ.e. að báðir aðiljar ryðja 2 andstæðingum úr kviðnum, þeim sem þeir treysta ver. Þá eru 4 eftir og 5. maðurinn, oddamaðurinn, er væri skipaður af hæstarjetti. Eru þá 5 menn, sem skipa dóminn. Fyrir dóm þenna eru svo lögð öll þau. skjöl og skilríki, sem til eru, bæði til sóknar og varnar, og jafnframt tillaga sáttasemjara ríkisins. Svo dæmir dómurinn, og þá er málið þar með af- greitt. Um allar aldir hofa geisað stríð og styrjaldir milli þjóða og landa. Öllum þeim hörmung- um og skelfingum, sem þær leiddur yfir lönd og þjóðir, ætla jeg ekki að fara að lýsa, en það var eitt, sem alltaf var sammerkt og er enn í dag, að sigur eða ösigur er ekkert undir því komið, hver hefur á rjettu að standa, heldur aðeins því, hver sje betur búinn að mönnum, vopnum og verjum tií þess að heyja stríðið. Útlendur málsháttur segir: Innanlandsstríð eru verstu styrjaldirnar, þ.e. að af innan- landsstríðunum stafi meiri vand ræði og óhamingja en af milli- landastríðum. íslenskur máls- háttur segir: Heimilisófriður er versti ófriðurinn. Vinnudeilur éru virkilega innanlandsófriður og þar verð- ur það eins og í öðrum styrj- öldum, að sá sigrar, sem sterk- ari er og lengur getur haldið út í baráttunni, hvort staðið er á rjettu eða röngu hefur hjer ekkert að segja, það er þýðing- arlaust aukaatriði. Sá sigrar oftast, sem til deilunnar stofn- ar, því hann notar vanalega tækifærið, þegar hann veit og sjer, að andstæðingurinn á mjög illt og erfitt til varnar. Það er hægt að sanna það og sýna með mörgum dæmum, að það er ekki alltaf hið virkilega rjettlæti, sem ræður í því úr- sliíum. Við skulum taka t.d. að það er gott árferði, mikið að gera og víða vantar vinnandi menn. Skipaflotinn er að búa sig á síldveiðar og hugsar gott til. Þá er gert verkfall og krafist stórrar kauphækkunar. — Það verður ómögulegt annað en að ganga að kröfum verkfalls- manna, því af tvennu illu skal taka það skárra. Annað dæmi. Það er ekki gott árferði, rýr atvinna og sumir ganga at- vinnulausir. Hjá hinum stærri atvinnuveitendum eru menn alltaf á ferðinni til að leita eft- ir, hvort þeir geti ekki fengið eitthvað að gera. Þá taká hinir Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.