Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24, sept. 1947 Útg.: H.f. Árvakur, Reýkjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórl: Valtýr Steíánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsmgar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlanda. kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Hver á uppbótin að vera ? KOMMÚNISTARNIR halda áfram að tala um afurða- sölumálin, í blaði sínu. Þeim er það ekki of gott. Engum gera þeir mein með því áframhaldi, nema ef vera skyldi sjálfum sjer. Almenningur hefir fyrir alllöngn sjeð, að alt skraf kommúnista um markað í Austur-Evropu, þarsem selja mætti íslenskar afurðir kvaðalaust fyrir hærra verð en fengist hefir fyrir þær, er ekki annað en vaðall útí loftið. Niðurstaðan af þeim umræðum sem fram hafa farið um þessi mál er í stuttu máli þessi. Þegar Alþingi gekk í ábyrgð fyrir freðfisk og saltfisk, var það gert til þess að útgerðin stöðvaðist ekki í fyrra- vetur. Þegar átti að selja fiskinn til Breta-og Rússa, var ekki viðlit að fá ábyrgðarverðið fyrir hann nema, að síldar- lýsi fylgdi með í kaupunum. Bretar vildu þó taka við nokkru af freðfiskinum, án þess að þeir hefðu tekið á móti tilsvarandi magni af lýsi. Rússar vildu engan fisk fyrri en lýsið væri komið í þeirra hendur. Og af lýsi fjekkst ekki á vertíðinni meira en sem svo að nál. helm- ingurinn af freðfisknum seldist fyrir það verð sem fjekkst íyrir hann, með því að láta lýsi fylgja með í kaupunum. Bretar sögðu, að raunverulega væri verðið á freðfisk- inum miklum mun lægra, en þeir með þessu móti fengust til að gefa fyrir hann. Og sama hljóðið var í hinum rússn- esku samninganefndarmönnum. Þeir kváðust geta fengið þessar fiskafurðir fyrir mun hagstæðara verð frá Norð- mönnum, en heimtað var fyrir íslenska fiskinn. Enda spöruðu Moskva menn ekki að benda hinum íslensku samningamönnum á, að verðlagið á hinum íslensku afurð- um væri of hátt. En það kæmi þeim ekki við. Það væri íslendinga sjálfra að haga fjármálum sínum þannig að þeir gætu selt vörur sínar fyrir framleiðsluverð. Kommúnistar höfðu fulltrúa í báðum nefndunum, bæði þeirri sem til Bretlands fór, og hinni sem fór til Moskva. Ekkert höfðu fulltrúar þeirra að athuga við þá sölusamninga sem gerðir voru á þessum stöðum. Allir vita að fulltrúar kommúnista, hvar sem þeir eru, og við hvað sem þeir starfa, eru altaf undir svo strör.gu eftirliti yfirboðara sinna, og í svo nánu samstarfi við þá, að þó þeir sitji í London eða Moskva, þá gera þeir ekkert eða samþykkja ekkert, nema það sje í samræmi við vilja flokksstjórnar sinnar. Það þýðir því ekkert fyrir Þjóð- viljann að reyna að telja nokkrum manni trú um, að samningarnir sem gerðir voru um sölu á hraðfrystum fiski og síldarlýsi, við Breta og Rússa fyrripart ársins í ár, hafi verið á nokkurn hátt gegn vilja kommúnista- flokksins. Þó Þjóðviljinn sje með ónot og illindi útaf samn- ingum þessum nú. ' Annað mál er svo það að við og við er hægt að selja slatta af fiski fyrir hátt verð í vöruskiftum fyrir dýrar og óhentugar vörur. En að selja meginhluta framleiðsl- unnar á þann hátt, kemur aldrei til greina. Ef kommúnistar halda áfram að klifa á þeim fullyrð- ingum sínum, að hægt muni vera að selja íslenskar fram- Jeiðsluvörur í Austur-Evrópu, fyrir mikið hærra verð en aðrar þjoðir fá á sömu slóðum, fyrir samskonar vörur, þá gefur það auga leið að ætlast er til að eitthvað mikið eigi að fylgja með í kaupunum frá okkar hendi. Því það hafa fulltrúar Ráðstjórnarríkjanna sagt, að þeir keyptu ekki vörur með öðru móti en því að fá vörurnar uppá sem hagkvæmasta skilmála fyrir sig. Dytti þeim góðu kaupmönnum þar eystra í hug að kaupa alt í einu fisk hjeðan, fyrir mun hærra verð en þeir geta fengið hann annarstaðar frá, þá liggur í hlut- arins eðli að þeir ætla að fá frá okkur einhverja meiri en Iitla uppbót á þær greiðslur. Geta menn gert sjer í hugarlund hverskonar uppbætur þar eigi að koma til greina? ÚR DAGLEGA LÍEINU f 2 I jf í 1 i Lánsviðskifti afnumin. KAUPMANNAFJELÖG í bænum hafa tekið sig saman um að hætta öllum lánsviðskift um frá 1. október n. k. og þýð- ir það raunverulega, að ekki verður framar um lánsverslun að ræða í smásölu hjer í bæn- um. Menn verða að greiða vör una, hvort sem það er matvara eða vefnaðarvara og hvað ann- að með peningum út í hönd. Og það verður öllum gert jafnt undir höfði. Engar und- antekningar og stórvíti liggja við ef út af er brugðið. Það er með öðrum orðum alvara hjá kaupmönnum að hætta að lána. Þessi nýbreytni í verslunar- háttum mun koma misjafnlega við fólk. Sumum þykir hún þörf og góð, en öðrum eintóm vitleysa, en þegar famm í sæk ir, spái jeg, að mönnum líki það vðl og best er að eiga ekki nein eftirkaup við einn eða neinn. • Erfitt fyrst. ÞAÐ FER ekki hjá því að það verði mestu erfiðleikarnir fyrst. Þeir, sem þurfa að borga reikninga sína fyrir mánuðinn, sem nú er að líða og ennfrem- ur staðgreiða allar vörur í næsta mánuði, sjá kannski ekki hvernig þeir eiga að láta tekj- urnar hrökkva til, en ólíklegt er að kaupmaðurinn, sem búið er að versla við lengi, heimti allan reikninginn greiddan í einu af ábyggilegum mönnum, sem altaf hafa staðið í skilum og fara nú að versla „beint út í hönd“. Það hlýtur að vera hægt að komast að samkomu- lagi um að greiða reikninginn í tveimur þremur áföngum. • Heilbrigðari verslun. EN GEGAR komið er yfir byrjunarörðugleikana, getur enginn neitað því, að stað- igréiefslani er Ke:ilbrigðásti versl unarhátturinn. Þá er minni hætta á að menn kaupi meira en þeir hafa ráð á og ennfrem ur spara menn frekar við sig, ef þeir eiga að borga brúsan, en er þeir geta sagt: „Skrifa það“. Það er ekki lengur hætta á að konan eða krakkarnir gangi í reikninginn og taki út botn- laust og vitlaust. Og svo þurfa menn ekki að fara í feluleik lengur við rukkarana um mán aðamót. Þeir verða atvinnulaus ir, skinnin, svona með tíman- um. En það verður vafalaust hægt að finna eitthvað handa þeim að gera. • Gamall ósiður. LÁNSVERSLUNIN er gam- all ósiður, sem legið hefir hjer í landi frá því fyrsta. Skal ekki sú raunasaga rakin lengra. En með núverandi tekjum manna og kaupgreiðslum í pen ingum er lánsverslun alveg ó- þörf og það mun með tíman- um þykja merkilegt spor, sem stigið var 1. okt. 1947, er láns- verslun var afnumin í Reykja- vík. • Illa með farnar póstsendingar. TOLLVERÐIR á bögglapósts stofunni hafa sagt mjer í til- efni af kvörtun konunnar hjer á dögunum, um að hlutir hyrfu úr póstbögglasendingum frá útlöndum, að það sje rjett að oft komi það fyrir að bögglar sem sendir eru hingað til lands sjeu illa leiknir á leiðinni og geti þá vitanlega komið fyrir, að eitthvað falli úr þeim. • Margar hendur fara um þá. ÞAÐ FARA margar hendur um böggla þessa, áður en þeir koma hingað. Póstur frá Amer íku fer stundum um England og Norðurlandapóstur um mörg lönd áður en hann kemur hing að. — Þá segja tollverðirnir að það sje misskilningur af konunni, að það þurfi nauðsynlega að tollskoða vörur í viðurvist við- takanda. Það væri ekki hægt að koma slíku við nærri altaf og síst í þeim húsakynnum, sem tollverðir hafa til starfa síns. o Á ekki að ciga sjer stað. ÞAÐ ER enginn að bera toll vörðum á brýn, að þeir vinni ekki sitt verk eins og þeir eiga að gera og eftir settum regl- um. En hitt hefir verið sagt, að það er ófært að hlutir hverfi úr bögglum frá útlöndum og ef það kemur fyrir, þá er sjálf- sagt að heimta rannsókn á hvernig það megi vera að slíkt komi fyrir og reyna að íá úr því skorið^ hver eigi sökina. • ,,í leit að lífsham- ingju“. NÝJA BÍÓ sýnis þessa dag- ana kvikmyndina „í leit að lífs hamingju“, en hún er gerð eft- ir skáldsögu W. Sommerset Maugham. Kom þessi skáld- saga sem framhaldssaga í Morgunblaðinu fyrir þremur árum og vakti þá mikla at- hygli. Kvikmyndin er líka einstak lega vel gerð og vel leikin og er ekki furða að mikil aðsókn skuli vera að henni. Þar að auki hafa kvikmyndirnar, sem sýndar hafa verið hjer undan- farið ekki verið svo beisnar, að menn eru fegnir ef góð mynd kemur. Það væri sannarlega óskandi, að kvikmyndahúsin gætu far- ið að fá betri myndir en þau hafa haft undanfarið, því sann leikurinn er sá, að fæstar kvik myndir, sem nú eru á boðstól- um eru boðlegar. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . ! i Vörusýning í Hannover HIN MIKLA vörusýning í Hannover var sett á til þess að sýna heiminum, hvað Þýska- land, þrátt fyrir stríðið og erf- iðleikana alla, sem hafa fylgt því að vera hernumið land, getur afhent og selt innan 12 til 18 mánaða. Samt er það enn svo, að þótt Þjóðverjar geti framieitt hinar margbreyttustu vörur, að það er allmiklum erf iðleikum bundið að flytja þær út úr landinu til annarra landa. Sameiginlegt ráð Breta og Bandaríkjamanna hefir ná- kvæmt eftirlit með öllum út- flutningi. Sumar vörutegundir er jafnvel algjörlega bannað að flytja út úr landinu, því að útflutningur þeirra væri sam- keppni við útflutning Breta. • Eignast vini í Þýskalandi. Nú myndu margir spyrja: Hvernig stendur á því, að fleiri hundruð og jafnvel fleiri þús- und manna frá ýmsum löndum Evrópu og einnig margir frá Bandaríkjunum gera sjer ferð til Hannover á vörusýningu án þess að búast við að gera nokkra kaupsamninga? Jú, hví ekki það. Þó ^ð lítið sje enn sem komið er, sem hægt er að flytja út frá Þýskalandi, er ekki þar með sagt, að ástandið verði jafnan svo og það getur vissulega borgað sig upp á síð- ari tíma að eiga sjer vini í Þýskalandi. Vörusýningin er vel skipulögð. En svo talað sje um sjálfa vörusýninguna, verður fyrst að segja, að hún er ákaflega vel skipulögð. Hún er ekki inni í sjálfri Hannover, heldur á sljettum flötum um 20 km. fyr ir utan borgina, því að þar voru rúmgóðir skálar, sem í stríðinu voru flugvjelaverk- smiðjur. Eru það fimm gríðar- lega stórir salir og eru þar í stuttu máli sagt deildir fyrir hvern þátt þýska iðnaðarins, sjer í lagi ýmiskonar vjelaiðn- aður, allt frá úragerð og upp í framleiðslu stærstu vörubif- reiða. Almenningsbílar. En það sem vekur mesta at- hygli alls, sem sýnt er, eru hin ir þýsku „folkswagen“, sem eru litlir almenningsbílar. Nú sem stendur framleiðir Þýskaland um 1000 þeirra á mánuði, en í ráði er að auka framleiðsluna mikið á næstunni. Almenningsbíllinn er lítill um sig, en samt rúmgóður og þægileg sæti í honum. Enda er hann þektur fyrir hve mjúkur hann sje. Hann eyðir ekki nema 6 lítrum af bensíni á 100 kíló- metra og verðið á honum nú er 5000 mörk, og þó mun verð hans lækka mikið á næstunni. Hann tekur fimm farþega og kemst hraðast 120 km. á klst. Skortur á gjaldeyri. Mesti skortur Þjóðverja næst matarskortinum, er skortur á erlendum gjaldeyri. Þýska mark ið eftir styrjöldina hefur ekki verið verðfest, og þýskur al- menningur fær ekkert keypt fyrir mynt þá, sem bandarísku og bresku hermennirnir nota. Skiptingin milli Þjóðverja og útlendinga er jafnvel enn meiri, því að Þjóðverjar fá ekki mat á veitingastöðum útlending- anna, nema þeir borgi með enskri eða bandarískri mynt. An skömmtunarseðla. Það er mikill hópur Þjóð- Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.