Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 12
12
MORGUftBLAÐlÐ
Miðvikudagur 24. sept. 1947
fimm mínúfna krossgáfan
SKÝRINGAR
Lárjett: — 1 fugl — 6 atviks
orð — 8 forsetning — 10 íþrótta
fjelag — 11 kökuna — 12 sam-
an — 13 hæð — 14 tenging —
16 volduga.
Lóðrjett: — 2 einkennisstafir
■— 3 liðdýr — 4 skáld — 5
skemmtun þgf. — 7 pár — 9
liðug — 14 tvíhljóði — 15 verk
færi.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 tísta — 6 stó —
8 ak — 10 aa — 11 grunnur
— 12 gá — 13 K. K. — 14 eik
*— 16 Unnur.
Lóðrjett: — 2 ís — 3 stöng-
in — 4 tó — 5 vagga — 7 marka
•— 9 krá — 10 auk — 14 en —
15 ku.
Albanska stjérnin
undirokar og kúgar
andstöSuflokkana
Washington í gær.
BANDARÍSKA utanríkis-
málaráðuneytið hefur sent orð
sendingu til stjórnar Albaníu,
þar sem segir, að albanska
stjórnin sje að reyna að ná al-
ræðisvaldi í landir.u með því
að undiroka og kúga foringja
smáflokkanna. Sjer í lagi mið-
ar orðsendingin að dómunum
ýfir 24 foringjum smáflokk-
anna í Albaníu nýlega, en flest-
ar ákærur á hendur þeirra voru
soðnar saman án þess að nokk-
ur rök lægju á bak við.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 8
verja, sem notar sjer til fulln-
ustu það tækifæri, sem þeir
fá með því að fara á vörusýn-
inguna. Hún er opin fyrir Þjóð
verja á milli kl. 2 og 5 síðd. á
hverjum degi og kostar ekki
nema fimm mörk, en í því er
innifalið bæði eitt glas af ljettu
víni, sem annars fæst Tivergi í
landinu, kolla af góðu öli og
nokkuð smurt brauð og það
sem er best, þetta fæst allt án
þess að láta skömmtunarseðla.
Hermenn fiyija kjöl í
London
London í gær.
300 BRSSKIR herbílar og
hermenn eru nú starfandi við að
flytja kjöt á markað Lundúna-
borgar, því að kjötflutninga-
menn í borginni hafa gert
verkfall.
Verkfall þeirra hófst fyrir
nokkrum dögum, vegna þess,
að fjórum flutningamönnum
var fyrirskipað að skipta um
vinnustað en þeir neituðu og
fengu samstarfsmei-n sína í lið
með sjer. — Reuter.
Greenwich stöðin
flutt til Sussex
London.
HALDIÐ er áfram flutningi
rannsóknarstöðvarinnar í Green
wich. Á að flytja hana til Herst
monceux-kastala í Sussex og er
það gert vegna þess að land-
rými í Greenwich var orðið
lítið, London búin að gleypa
allt upp.
Flutningurinn var ákveðinn
fyrir rúmlega einu ári, en hef-
ur dregist þetta vegna þess að
húsnæði vantaði fyrir starfs-
mennina. Hefur verið bætt úr
því og byggð bráðabirgðahús
fyrir starfsmennina. Sir Har-
old Spencer, konunglegi stjörnu
fræðingurinn, hefur sagt, að
hann geti að öllum líkindum
hafið starf sitt í Sussex í maí
n. k. — Reuter.
Negra flugsföð
í Bandaríkjiinum
Washington í gær.
FLGLIÐ Bandaríska hersins
hefur komið á fót tilraunar-
flugstöð í ,Columbu(; í Ohio
ríki, sem eintómir hermenn af
negraættum standa að. Hún er
kölluð Locbourne-flugstöð.
Allir flugmenn og allt við-
gerðarlið eru negrar. Samtals
vinna þar 2000 manns. Flug-
mennirnir hafa nú Thunder-
bolt flugvjelar, en munu ef til
vill síðar fá liftþrýstivjelar til
umráða.
Hermálaráðuneytið hefir
skýrt frá því, að þetta sje gert
aðeins til reynslu.
— Kemsley.
Vilja hef ja umræður
áný
London í gær.
BÚIST er við því, að danska
stjórnin muni á næstunni senda
sendinefnd til London, til að
leita fyrir sjer um, hvort ekki
muni mögulegt að taka upp á
ný umræður þær um matvæla-
kaup Breta í Danmörku, sem
fóru út um þúfur í Kaupmanna-
höfn í s.l. viku. Árangur varð
enginn af umræðunum, þar sem
Bretar töldu sig ekki geta geng
ið að verði því, sem Danir kröfð
ust fyrir landbúnaðaraf ut ðir
sínar. — Reuter.
Brjefaskoðun í
Bretlandi
London í gær.
ÞÁÐ hefur verið tilkynnt í
London, að í næsta mánuði
muni póststjórnin hefja skoðun
á brjefapósti til þess að koma
í veg fyrir að pundsseðlar og
ýmislegt annað, sem óleyfilegt
er að láta út úr landinu sje ekki
innifalið. Þó munu aðeins verða
rannsökuð þau brjef, sem grun-
ur liggur á að feli í sjer eitt-
hvað slíkt. — Reuter.
Sextugsafmæli Sig-
Iryggs Jónssonar,
hreppstjóra
EINS og getið hefur verið í
frjettum átti Sigtryggur Jóns-
son, hreppstjóri á Hrappsstöð-
um í Dalasýslu, sextugsafmæli
3. þ. m. Við það tækifæri heim
sóttu hann fjöldamargir vinir
hans og kunningjar. — Bár-
ust honum margar góðar gjaf-
ir, fjöldi skeyta og mikið af
blómum. Stærsta gjöfin var
frá sveitungum hans, það var
gullúr, mjög vand.að. — Marg-
ir fjarstaddir vinir hans, sendu
honum hlýjar kveðjur og ósk-
ir, bæði í bundnu og. óbundnu
máli. M. a. sendi Geir Sigurðs-
son, oddviti á Skerðingsstöðum
í Hvammssveit, honum eftir-
farandi kveðju:
Heill þjer vinur, vafinn sjertu
visku og gæfu, laus við hrygð,
sextíu ára sæmdar vertu,
sigurgleði og vinatrygð,
sveitamanna sómi ertu,
sífelt rómi Dalabygð.
Góður árangur a!
Parísarráðstefn-
unni
London í gær.
BEVIN, utanríkisráðherra''
Breta, kom í dag flugleiðis frá
París, þar sem hann sat loka-
fund Parísarráðstefnunnar um
Marshall-áætlunina. Tjáði hann
frjettamönnum á flugvelli í ná-
munda við London, að ráðstefn-
an hefði afrekað miklu og nú
mætti ekki láta staðar numið.
Skýrsla Parísarráðstefnunnar
er væntanleg til Washington í
kvöld. Mun Marshall, utanrík-
isráðherra, kynna sjer hana á
morgun (miðvikudag), en enda
þótt álitið sje að bandaríska
þingið muni samþykkja skýrsl-
una í aðalatriðum, er búist við
að hörð átök verði um hana.
Truman forseti mun bráðlega
taka ákvörðun um það, hvort
kalla beri saman aukaþing, til
þess að fjalla um skýrsluna.
Aþena í gærkvöldi.
GRÍSK frjettastofa tilkvnnti
í dag, að stjórnarhersveitir
ættu nú í höggi við 350 skaxu-
liða í fjöllunum við norður-
strönd Korinthuflóa. Bar fund-
um þeirra saman í námunda við
Kalloni, og er barist þar enn.
Fjörutíu og fimm skæruliðar
höfðu fallið, er síðast frjettist,
en 30 verið teknir til fanga. —
Reuter.
- Samgöngumálin
erfið
(Framhald af bls. 2).
þeir geta gróðursett í brekk-
urnar á næstu árum.
Óþurkarnir.
Hafa bændur í Skaftafells-
sýslum ekki átt í miklum erfið
leikum í sumar vegna óþurk-
anna?
Fyrir austan Mýrdalssand
náðust töður nokkurn veginn.
Oþurkarnir náðu ekki á túna-
slættinum lengra austur en að
Hafursey. Þó var þurkurinn
linur í Álftaverinu. En út-
engjaheyskapurinn hefir verið
jafn erfiður í allri sýslunni. Og
garðávextir verða mjög af skorn
um skamti í haust m. a. vegna
þess hve garðarnir fóru illa í
norðanverðri 6. ]úlí.
Endurreisn pélska
landbúnaððrins
Varsjá í gær.
NÝ áætlun fyrir pólska end-
urreisn hefur nú verið samin.
Er þar gert ráð fyrir hinum
mestu framförum, einkanlega í
landbúnaðinum, því að miklar
breytingar hafa ekki orðið í
þeirri atvinnugrein.
Fyrst hafa Rússar tekið af
Póllandi stærstu landbúnaðar-
hjeruðin, en í stað þess hefur
Pólverjum bætst mikið land-
rými frá Þýskalandi. Þó segja
Pólverjar, að hluturinn frá
Þjóðverjum geti ekki bætt
þeim upp tjónið.
í landinu eru nú um fjórð-
ungi milljónar færri bændur err
1939.
— Reuter.
— Um daginn og
veginn
Framh. af bls. 7
stóru og ríku vinnuveitendur
sig saman um að heimta kaup-
lækkun. Ef ekki er gengið að
því, loka þeir fyrirtækjunum,
því þeir þola það vel. — Þeir
segja glottandi við verkamenn-
ina: Þið hafið gott af að hvíla
ykkur svolítið.
Verkamaðurinn þolir atvinnu
leysið ekki lengi. Börnin gráta
og biðja um meiri mat, móðirin
er hnuggin og í vandræðum. —
Hann verður að láta undan, því
af tvennu illu skal taka það
skárra.
Jeg tel víst, að vel skipaöur
gerðardómur mundi afgreiða
málið á þann hátt sem rjettlát
ast væri eða sem næst því.
Jeg tel víst, ef þetta fyrir-
komulag gæti komist á, þá
myndi koma allt annar svipur
á þjóðfjelagið. Öryggi verka-
manna og vinnuveitenda yrði
tryggara og traustara. — Það
myndi Iíka hafa þau áhrif, að
flokkarígur og stjettabarátta
myndi verða öðruvísi en verið
hefur, til stórra umbóta.
I góðu trausti sendi jeg ykk-
ur nú, þjóð minni og þingi,
þennan smíðisgrip minn með
þeirri von, að þið fleygið hon-
um ekki beint í eldinn, heldur
lagið hann eitthvað til og heflið
af honum mestu hrukkurnar og
notið hann svo að einhverju
leyti.
Með bestu kveðju.
Jóhann Eyjólfsson. I
Eftir Robert Sform
Al 7HI* /HQvigNTL7^y^BR-R-R. 1 l'M ( j
U6HT UP, INSIDE-
THEN COMB OUT WlTH
WUR HANDS HIGH-
AND EMPTY»
CMILLED 10 TME BONE - ^
IP ONLV ^MlFTV/4ND ÖRINNER
CAN riOLD ODT TILL X A
. élAKE TRACK$ — Jfcff
WATCri N
FOR TRI
BlNGj
<”opr. 1046, Kinp Futures Syndirarr. Inr.. VX'orld ri^hts rcsor»ed
Shifty: Jæja, þið þarna fyrir utan, hvernig viljið og tómar. — Tuck segir: Passaðu að hann leiki ekki
en vonar að hinir bófarnir tefji lögregluna, svo að
þið að jeg gefist upp. — Bing: Kveiklu Ijósin inni. Kalli upp á vatnsbakkann/Honum er ákaflega kalt, hann sjálfur sleppi.
Komdu svo út með hendurnar fyrir ofan höfuð ■— á þig. — En um leið og Shifty gefst upp ,skríður