Morgunblaðið - 30.09.1947, Side 1

Morgunblaðið - 30.09.1947, Side 1
16 síður S4. árgangur 221. tbl. — Þriðjudagur 30. september 1947 Ííaloldmrprentsmiðja h.i. 580 miljón dollara aðstoð nauðsynleg lianda Frakklandi, Italíu og Austurríki Skömmtun á hverskonar lífsnauð- synjum og bensíni heíst á rnorgun Skömmíynarsljóri gerir grein fyrir henni í úbarpinu Á MORGUN, miðvikudaginn 1. október, kemur til fram- kvæmda skömtun á því nær öllum lífsnauðsynjum landsmanna. Skömmtunarseðlarnir, er gilda við þessar nýju skömmtunar- reglur ganga í gildi á morgun, og byrjað verður að afhenda þá í dag. Fundur hjáTruman um hjálparþörf Evrópu Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TRUMAN forseti, hefur beðið nefndir í báðum deildum Banda ríkjaþings að byrja þegar í stað að undirbúa 580 miljón dollara bráðabirgðaaðstoð til handa Frakklandi, ítalíu og Austurríki. —• Tjáði forsetinn blaðamönnum í kvöld, að hann hefði farið fram á þetta við utanríkisnefnd og fjárveitinganefnd, en áður hafði hann haldið tveggja og hálfrar klukkustundar fund með ráðherrum sín- um og leiðtogum beggja stjórnmálaflokka á þingi Var á fundi þessum rætt um nauðsyn þess, að aðstoða Evrópuþjóðirnar sem allra fyrst, auk þess sem bráðnauðsynlegt væri að koma í veg fvrir hækkandi verðlag í Bandaríkjunum. •---------------------«> Reitir hins nýja skömmtun- arseðils eru allir númeraðir með ákvejinni tölu og bókstöf- um og bera það ekki með sjer hvað þeir gilda. Hverju núm- eri, ef svo mætti að orði kveða, verður svo gefið ákveðið inn- kaupa gildi með auglýsingu. Erindi skömmtunarstjóra. I gærkvöldi var ekkert látið uppi um hvernig skömmtun- inni yrði hagað. Hinsvegar ætl- ar forstjóri Skömmtunarskrif- stofunnar, Elís Ö. Guðmunds- son að flytja erindi í útvarpið kl. 1 e. h, í dag. Mun hann þar gera grein fyrir reitum skömmt unarmiðanna, gildi þeirra og hvaða númer skuli gilda fyrir hverri vöru. Á morgun munu Reykvíkurblöðin einnig flytja frjettir um mál þetta og nauð- synlegar skýringar á því. Skömmtunarflokkarnir. Skömmtunarflokkarnir eru þessir: Matvara, vefnaðarvara, hreinlætisvara, skófatnaður, en skömmtun á honum er hafin svo sem kunnugt er og loks eru búsáhöld og bensín. Einnig verður gerð grein fyrir bensín- skömmtuninni í erindi Elís Ó. Guðmundssonar. Reglur þær, er settar verða um skömmtun á bensíni munu vera svipaðar og voru í gildi á stríðsárunum. Afhending seðlanna. Eins og fyr segir, þá hefst afhending skömmtunarseðla í dag í Góðtemplarahúsinu og mun standa yfir í næstu þrjá daga frá kl. 10 til 5. Auk þessara skömmtunar- reita, er þegar hefir verið gerð grein fyrir, þá munu nú einnig verða afhentir mjólkurskömt- unarmiðar. En eins og kunnugt er, af .frjettum hjer í blaðinu, þá stendur til að taka upp skömmtun á mjólk nú í haust eða vetun Hvenær fólk þarf svo að grípa til mjólkurmiðanna, verður tilkynt þegar þar að kemur. Eins og að undanförnu verða hinir nýju seðlar afhentir gegn stofni eldri miða, greinilega árituðum. Það hefur þótt á- stæða til að benda þeim mönn- um á, er eiga skömmtunarseðla sína hjá öðrum, t. d. hjá mat- sölum, að þeir verða nú sjálfir að nálgast hina nýju skömmt- unarseðla og varðveita þá sjálfir. Tíu drepnir í sprengjuárás í Haifa Jerúsalem í gær. TÍU MANNS biðu bana í Haifa í morgun, er nokkrir menn úr ofbeldisflokknum Irgun Zvai Leumi sprengdu í loft upp lög- reglustöð við aðalgötu bæjar- ins. Fimtíu og fjórir manns særðust við þetta tækifæri, þar af þrír hættulega. Sprengjuárás Jressi var þann- ig gerð, að árásarmennirnir komu á vörubifreið upp að lög- reglustöðinni og veltu tunnu fullri af sprengjuefni að húsinu, áður en nokkuð yrði að gert. Sprakk sprengiefnið þvínær sam stundis, með ofangreindum af- leiðingum. Fjórir Gyðingar voru hand- teknir skömmu eftir atburð þennan, en bifreið ofbeldis- mannanna fanst við torg í ná- munda við árásarstaðinn. Handsprengja fanst í bifreið- inni. — Reuter. Spnrn matvœli NEW YORK: -— Trygve Lie, að- alritari Sameinuðu þjóðanna, hef- ur skipað svo fyrir, að fyllsta sparnaðar sje gætt í meðferð mat- væla á veitingastöðum S. Þ. Er þetta í samræmi við áskorun Tru- mans um matvælasparnað. Yill 580 miljcn doílara Truman forseti skýrði frá því í gærkvöldi, að hann vildi að Bandaríkin legðu fram 580 miljón dollara til að aðstoða Frakka, ítali og Austurríkis- menn. BELGRADE: — Þrír bandarískir hermenn hafa verið látnir lausir í Júgóslavíu, eftir að stjórnin þar hafði beðið afsökunar á handtöku þeirra. Bandaríkin krefjast skýr- ingar á handtökunum. ASstoð við skœruliða Tsaldaris fór ekki í grafgöt- ur með það, að Júgóslavar, Al- banir og Búlgarar hefðu ljáð grísku skæruliðunum aðstoð. Sagði hann, að hver sá dagur, sem það drægist að Sameinuðu þjóðirnar tækju Grikklands- vandamálið í sínar hendur hjálp aði þjóðum þeim, sem nú ógn- uðu sjálfstæði Grikklands. — Hann bætti því við, að jafnvel á þessari stundu, væru Júgó- slavar, Búlgarar og Albanir stöðugt að auka vopnasending- ar sínar til skæruliðanna. Skýrslur, sem birtar voru í Aþenu í (lag, sýna, Hinn nýi sendiherra Breia kontinn HINN nýskipaði sendiherra Bretlands hjer, Charles William Baxter, kom hingáð til lands í gær, með leiguflugvjel Flugfje- lags íslands. Sendiherrann var áður deild- arstjóri í breska utanríkismála- ráðuneytinu. að 45,000 óbreyttir borg- arar og 3,000 lögreglu menn hafa failið í Grikk landi, síðan landið fyrir þrem árum síðan var frelsað undan ánauð Þjóðverja. Engar tölur liafa þó verið gefnar um manntjón í gríska hern- um. Friðsamleg lausn Bandaríkin hafa, eins og kunnugt er, borið fram þá til- lögu í stjórnmálanefnd S. þ. að Balkanlöndum verði gefin fyrir mæli um að leysa deilumál sín á friðsamlegan hátt. Aukaþing Truman tjáði frjettamönnum í kvöld, að hann hefði átt lang- ar viðræður við bandaríska stjórnmálaleiðtoga um það, hvort kalla bæri saman auka- þing. En forsetinn neitaði að skýra frá því, hvort nokkur á- kvörðun hefði verið tekin í því máli. Hann tók þó skýrt fram, að fje það, sem nú væri fyrir hendi til að koma í veg fyrir hungur og kulda í Evrópu, mundi aðeins duga til 1. des- ember. Að þeim tíma loknum, mundi þingið verða að grípa til einhverra aðgerða. Þarfnasl 580 miljóna Truman sagði, að Frakldand, Ítalía og Austurríki þörfnuðust 580 miljón dollara til að geta þraukað til 31. mars n. k. Hann gat þess einnig, að þarfir Bret- lands væru ekki taldar með í þessari hjálparáætlun. Bandarískur hindur- spillir reksl á lund- urdufl BANDARÍSKI tundurspillir- inn Fox rakst í dag á tundurdufl um 18 mílum frá Trieste og lask aðist nokkuð. Ljetu þrír menn lífið við sprenginguna, en 12 særðust. Dráttarbátar eru nú lagðir af stað til að draga skipið til hafn- ar. — Reuter. Afflee ræðir við verk lýðsleiðfoga London í gær. ATTLEE forsætisráðherra mun á miðvikudagsmorgun eiga við- tal við forystumenn breska verk lýðssambandsins um stefnu stjórnarinnar í launamálum. —> Gríska sfjórnin fús fi! samvinnu vi S. Þ. 50,000 hafa fallið I áfökunum við skærullða New York í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TSALDARIS, utanríkisráðherra Grikkja, lagði í dag hart að a llsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að það gerði skjótar ráð- stafanir til að leysa gríska vandamálið. Kvað hann Grikki reiðu- húna til að hafa fulla samvinnu við stofnunina, enda mundu þeir þegar í stað styðja hverja þá nýja rannsóknarnefnd, sem S. þ. kynni að skipa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.