Morgunblaðið - 30.09.1947, Side 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. sept. 194/
Islenskir stúdentar i Höfn
vilja trvgga gjaldeyris-
vfirfærslu
FJELAG íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn hjelt fund í
húsi stúdentafjelagsins danska í Kaupmannahöfn 22. september
s.l. til að ræða þá tilkynningu Viðskiftanefndar, að gjaldeyris-
yfirfærslur til námsmanna erlendis verði minkaðar frá því sem
uú er. Fundurinn gerði eftirfarandi ályktanir:
,.Með tilvísun til tilkynning-
ar háttvirtrar Viðskiftanefndar
■dags. 10. sept. 1947, þar sem
rn a. er tekið fram, „að allar
greiðslur til þeirra er við nám
dveljast erlendis, verði minnk-
aðar frá því er áður tíðkaðist“
vill Fjelag íslenskra stúdenta í
Khöfn taka fram eftirfarandi:
1) að það álítur algerlega
óviðunandi að gjaldeyrisyfir-
færslur til námsmanna erlendis
verði ákveðnar og fastbundnar
við hámark án undangenginn-
ar ranhsóknar á því, hvað telja
rná sanngjarnan framfærslu-
kostnað í hverju landi,
2) áð það telur brýna nauð-
eyn á því, að þeim mönnum,
sem erlendis dveljast við nám,
verði þegar í stað veitt trygg-
ing fyrir ákveðinni lágmarks-
yfirfærslu á gjaldeyri hvern
mánuð, svo að þeir viti. á hvaða
fjármagn þeir geíi treyst og
hftgað sjer samkvæmt því (sbr.
fyrsta lið).
3) að með tilvisun til þeirrar
g/einar í áðurnefndri tilkynn-
<ngu. þar sem segir, „að um-
sóknir til að hefja nám erlend-
ís verði eigi teknar til greina,
nejria alveg sjerstakar ástæður
sjeu. fyrir hendi“, telur fjelag-
ið, að eðlilegast sje, að Mennta
rnálaráð eða anrvar aðili, sem
heyrír undir mentamálaráðu-
ncytið, fjalli um siíkar umsókn-
íj í samráði við Viðskiftanefnd.
Að lokum vill íjolagið leggja
ríka ánerslu á það, að þessum
tilmælum þess veröi sinnt eins
fljótt og auðið er, þar sem meg
inþorri íslenskra stúdenta í
Khöfn er í algerri óvissu um
hag sinn á komandi vetri“. .
Úr greinargerðinni.
I greinargerð fyrri ályktunar
segir m. a.:
„E'nda þótt tækifæri til náms
hafi aukist mjög á Islandi s.l.
mannsaldur, hafa kröfur þjóð-
arinnar til sjermentaðra manna
jafnframt aukist svo, að aug-
ljóst er, að um fyrirsjáanlega
framtíð muni mikill hluti ísl,
mentamanna verða að leita
utan til náms. Nú munu fleiri
ísi námsmenn veia við nám
eilendis en nokkru sinni fyrr,
flestír í námsgreinum, er ekki
ej hægt að stunda heima. Það
er að vísu í mörgim tiifellum
hægt ao deila um það. hvaða
námsgrejnar má te’.ja nauðsyn-
legar fyrir stundarhag þjóðar-
irmar og hverjar ekki, og því
eðíiiegt. ef ætlunin er að ták-
marka gjaldeyrisyíirfærslur til
námsdvalar, að nokkur greinar
iriunur sje gerður á hinum
ýrnr.u námsgreinum. En það
hiýiur hins vegar að liggja í
augum uppi, að óverjandi er að
meina þeim námsmönnum um
áframhaldi yfirfærslur, sem
þegar hafa eytt þæði tíma og
fjármunum í nám erlendis, en
hafa enn ekki lokið námi.
Það kemur í ljos í tilkynn-
ingu Viðskiftanefndar frá 10.
sept. s.l., sem er aðaltilefni með
fylgjandi ályktunar, að ætlun-
in er að minka aliar yfirfærsl-
ur til námsmanna, sem nú eru
við nám erlendis. Það er að
vísu ekki hægt að sjá það á til-
kynningunni, hvort ætlunin er,
að miðað verði við ákveðið há-
mark, sem verði jafnt fyrir alla
námsmenn í hverju landi, eða
hvort minnka á yfirfærslur til
þeirra í hlutfalli við þær yfir-
færslur, sem þeir hafa fengið
hingað til, en að óreyndu þykj-
umst við mega álíta, að um hið
fyrnefnda sje að ræða. — Það
kemur þá til álita, hvort unt sje
að fara þá leið án þess að áður
hafi farið fram rannsókn á því,
hvað telja má sanngjarnan
framfærslukostnað í hverju
landi“.
Ijömlna lagði
ÞEGAR Reykvíkingar vökn-
uöu á sunnudagsmorgun, var
jörð því sem næst hvít. Allan
daginn gekk á með hvössum jelj
um, en hiti var um frostmark.
— í fyrrinótt gerði lítilsháttar
frost og lagði þá Tjörnina. —
Veðurstofan segir, að frostið
hafi mest orðið hjer eitt og
hálft stig, en mest mældist það
á Blönduósi og að Kvígindisdal
2 stig.
Veðurstofan telur frostið vera
búið að sinni og spáir nú í dag
sunnan kalda og rigningu.
Slérkosðleg fjár-
kaup á Vesffjörðum
Frá frjettaritara vorum
á Þúfum.
TIL fjárkaupa víðsvegar á
Vestfjörðum, eru komnir um
60 menn, frá fjárskiptasvæðum
í Strandasýslu, Barðastranda-
sýslu, Dalasýslu og úr þrem
hreppum í Húnavatnssýslu.
Keypt verður um 14,500 íjár,
aðallega lömb. Búist er við, að
flytja þurfi sjóleiðis norður í
Hrútafjörð og inn í Dalasýslu,
um 11 þúsund fjér, en rekið
verður í fjárrekstrum um 3500.
Ráðin hafa verið til fjárflutn
inganna 14 skip. Á laugardag
fóru Freydís og Hafdís, með
600 fjár, allt úr Sljettuhreppi
og Grunnavíkurhreppi. Farið
var til Hrútafjarðar.
Næstu daga verða skipin
hlaðin eftir því sem fjeinu er
smalað og veður leyfir.
Fjárrekstrarnir á landi eru
að hefjast. Sæmundur Friðriks
son framkvæmdar.stjóri og Páll
Pálsson hafa yfirumsjón með
fjárflutningunum,
Mæðrasfyrksnefnd
fær lóð undir dval-
arheimili
EINS og getið hefur verið í
frjettum blaðsins, þá hefur
Mæðrastyrksnefndin sótt um lóð
Hlaðgerðarkots í Mosfellssveit
til bæjarráðs. Þar hyggst nefnd
in ætla að reisa dvalarheimili
fyrir mæður og börn.
Bæjarráð f jallaði um málið á
fundi sínum s.l. föstudag. Var
samþykt að gefa Mæðrastyrks-
nefnd kost á um það bil 1 ha.
lands, í þessu skyni.
Talsímasamband við
Belgíu, Frakkland
OPNAÐ hefur verið talsam-
band hjeðan við þrjú lönd, sem
ekki héfur áður verið talsam-
band við. Eru það Belgía, Frakk
land og Sviss.
Eftir stríð hefur verið talsam
band við þessi lönd: Norðurlönd
in, Bretland, Bandaríkin og Hol-
land.
Stjórn Berlínar
WASHINGTON: — Bandaríska
utanríkisráðuneytið hefur neytað
fregnum um það, að Þjóðverjar
taki við stjórn Berlínarborgar á
vori komanda.
Síðari umræða m heilbrigðis-
samþykktina í þessum mánuði
Borgarstjóri gerir greln fyrir málimi
ÚT AF ÁLYKTUN, sem gerð var á kvennafundi í Reykjavík
25. þ. m., varðandi heilbrigðissamþykt bæjarins og störf heil-
brigðisfulltrúa, hefur skrifstofa borgarstjóra sent Mbl. eftirfar-
ar.di upplýsingar:
Guðjón M. Slgurðs-
son hæslur í meisl-
araflokki
ÞRIÐJA umferð í meistara-
flokki á haustmóti Taflfjelags
Reykjavíkur fór fram í gær. —
Leikar fóru þannig, að Guðjón
M. Sigurðsson vann Bjarna
Magnússon, Jón Ágústsson vann
Steingrím Guðmundsson, . Egg-
ert Gilfer og Guðmundur Pálma
son gerðu jafntefli, en biðskák
var hjá Áka og Sigurgeir og
Óla og Benóný. — Guðjón M.
er hæstur eftir þessar þrjár um
ferðir, hefur unnið allar sínar
skákir.
í Il.-flokki eru búnar fjórar
umferðir og er Eiríkur Marels-
son þar eftir með 4 vinninga, en
næstur er Valur Norðdahl með
3ý2 vinning.
Yeifing prófessorsembæffis í
lyflæknisfræði gagnrýnd
í SÍÐASTA hefti Lækna-
blaðsins, sem komið er út fyr-
ir nokkrum dögum, ritar dr.
med. Jóhannes Björnsson grein
um veitingu prófessorsembætt
isins í lyflæknisfræði við Há-
skóla Islands og bendir á að
mentamálaráðherran (Eysteinn
Jónsson), gekk framhjá þeim
umsækjenda, sem læknadeild
háskólans hafði talið hæfastan
til að gegna embættinu, en
læknadeildin mælti eindregið
með því að dr. Óskari Þ. Þórð-
arsyni yrði veitt umbættið, þar
sem hann, að dómi deildarinn-
ar, væri hæfastur umsækjenda.
Embættið var sem kunnugt er
veitt Jóhanni Sæmundssyni.
í grein sinni rekur dr. Jó-
hannes Björnsson gang þessa
máls mjög ítarlega frá því að
embættið var auglýst laust til
umsóknar og samkvæmt fund-
argerðum læknadeildar um
mál þetta er ekki um að villast,
að deildin taldi dr. Óskar þann
af umsækjendum, sem ætti að
fá umbættið, vegna hæfileika
og lærdómá í lyflækisfræði.
Dómur háskólakcnara
um kcnnaraval hvar-
vctna teknar til grcina.
í grein sinni segir dr. Jó-
hannes m. a.:
„I hinum mentaða heimi er
það föst regla að háskólakenn-
arar eru látnir dæma um hæfni
þeirra manna sem sækja að
háskolanum og telur veitinga-
i valdið það sjálfsagði skyldu
sína að hlýta þeim dómi.
Þessi hefð í veitingum byggist
á því, að háskólar og starfslið
þeirra nýtur trausts og virð-
ingar alþjóðar, og einnig á því,
að mcð þessu fyrirkomulagi
þykir best tryggt, að til háskól
anna veljist jafnan hinir hæf-
ustu vísindaménn hver á sínu
sviði“.
„Enginn mun halda því fram,
að menntamálaráðherrann, hr.
Eysteinn Jónsson, hafi betri
skilyrði til þess að dæma um
vérðleika umsækjendanna en
kennarar Háskólans, og skal
hjer engum getum að því leitt,
hvaða öfl hafa því valdið, að
menntamálaráðherrann veitti
ekki þeim umsækjenda em-
bættið, sem samkyæmt hinum
faglega dómi var til þess hæf-
astur“.
Óheppilcgt fordæmi.
„Með svipuðum veitingar-
hætti verða ekki liðin mörg ár,
þar til meiri hluti kennara við
Háskólann verður kominn að
honum í óþökk Háskólans sjálfs
Er þó einsætt að virðing þjóð-
arinnar fyrir Háskólanum hlýt-
ur að skerðast. Ekki er það held
ur líldegt, að ungir mentamenn
muni í framtíðinni leggja mikið
í sölurnar til þess að búa sig
undir háskólastöður, er þeir
sjá, að annað ræður meiru um
val í stöðurnar en fagleg hæfni.
Einnig er það hæpið að þeir,
sem til háskólastarfa eru hæf-
astir, verði óðfúsir að ganga í
flokk þeirra manna, sem þá
verða við stofnunina."
^ Samkvæmt lögum frá 12. febr.
1940 um heilbrigðisnefndir og
heilbrigðissamþyktir skulu heil-
brigðisnefndir beita sjer fyrir
því, að settar sjeu heilbrigðis-
samþyktir og semja, með að-
stoð hjeraðslæknis og lögreglu-
stjóra, frumvarp að þeim og
leggja fyrir hlutaðeigandi bæj-
arstjórn.
Þar sem heilbrigðissamþykt
Reykjavíkur er gömul og að
ýmsu leyti úrelt, þótti sjálfsagt
að vinna að nýrri heilbrigðis-
sapiþykt. Hjeraðslæknirinn hef-
ur fyrir all-löngu gert ýtarlegt
uppkast, heilbrigðisnefnd haft
það til rækilegrar athugunar,
og með brjefi, dags. 4. júní í
ár, afgreiddi heilbrigðisnefndin
frumvarpið frá sjer til bæjar-
stjórnar með ýmsum breyting-
artillögum. — Á öðrum bæjar-
stjórnaríundi þar frá, 3. júlí,
var frumvarpið tekið til fyrrl
umræðu og vísað til síðari um-
ræðu. Á frumvarpi þessu, sem
er mjög ýtarlegur bálkur og víð
tækur, hefur síðan farið fram
lögfræðileg athugun, -sem nú er
senn lokið, þannig að frumvarp-
ið verður tekið fyrir til síðari
umræðu á fyrsta eða öðrum
fundi bæjarstjórnar í október.
Bæjarstjórn er það fyllilega
ljóst að nauðsynlegt er að hraða
setningu nýrrar heilbrigðissam
þyktar, en henni er jafnljóst, að
til samþyktarinnar ber sem best
að vanda.
Varðandi störf heilbrigðis-
fulltrúa skal þetta tekið fram:
Nýr heilbrigðisfulltrúi fyrir
Reykjavík, dr. med. Jón Sigurðs
son, var ráðinn frá 1. mars
1946. Hann var erlendis á veg-
um bæjarins til undlrbúnings
starfi sínu þangað til í júlí-lok
1946, er hann kom heim.
Það var tilætlun bæjarstjórn-
ar, að starfssvið og vald heil-
brigðisfulltrúa yrði aukið og því
breytt verulega, þegar læknis-
fróður maður kæmi í stöðuna.
Var beðið með að ákveða starfs-
svið heilbrigðisfulltrúans þar til
er hann kæmi heim. Hjeraðs-
læknir skilaði umsögn sinni um
það mál í lok apríl síðastl. Kom
þá í ljós mikill skilsmunur á
skoðunum hjeraðslæknis og fyr-
irætlunum bæjaryfirvaldanna
um skiftingu starfa milli hjer-
aðslæknis og heilbrigðisfulltrúa.
Lagabréytingu þarf til að koma
þeirri skipan á, sem bæjarráö
hafði hugsað sjer. Borgarstjóri
gerði tilraunir til samkomulags
í málinu en það hafði ekki náðst
er Alþingi lauk störfum síðastl,
vor. Þessum tilraunum hefur
verið haldið áfram, og eru nú
horfur á, að lausn fáist, sem
lögð verði fyrir næsta Alþingi,
Sú undrun og óánægja, sem
lýst er í tillögu kvennafundar-
ins, stafar því af skorti á kunn-
leika um gang málsins.