Morgunblaðið - 16.10.1947, Qupperneq 1
Marshalláætl unin.
Geliir hindrað eínahagslegt hrun Evrópu
Fyrsti snjór vetrarins
Fyrsíi snjórinn á vetrinum. sem ckki tók u ip strax aftur, fjeli í fyrrinótt og er bæjarbúar
komu á fætur í gærmorgun, var allt orðið hvíít, cins cg um hávcíur. Myntíin hjer að ofan var
tekin við hús Geirs Zoega vegamálastjóra við Túngötu.
...og börnin voru fljót til
Börnin ljetu ekki standa á sjer að nota sjer s njóinn og voru komin snemma í gærmorgun upp
á Arnarhól með sleoana sína. Gaman, gaman. Elvílt í mitri brekkunni á uppleiðinni og svo
aHir íi halarófu niður . . . ; (Ljó: m. Morgbl. — Ólafur Magnússon).
■<s ——
Athyglisverð ræða Mars-
hails utanríkisráðherra
í gær
Boston í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
í RÆÐU, sem George Marshall utanríkisráðherra, flutti hjer
í Boston í kvöld, varaði hann við nauðsyn þess, að láta Evrópu-
löndunum í tje bráðabirgðahjálp, til þess að koma í veg fyrir
pólitískt og efnahagslegt hrun þessara landa, áður en Banda-
ríkjaþing hefði tíma til að kynna sjer og koma í framkvæmd
áætlun um aðstoð til lengri tíma. Skömmu áður en Marshall flutti
ræðu sína, hafði Lovett aðstoðarutanríkisráðherra, tjáð frjetta-
mönnum, að bandaríska utanríkisráðuneytið hefði í hyggju að
hafa gengið frá Marshalláætluninni og lagt hana fyrir utan-
ríkisnefnd þingsins fyrir 10 nóvember næstkomandi.
Arabar setja við-
skiftabann á Gyð-
inga
Lebanon í gærkvöldi.
ÁKVEÐIÐ hefur verið á ráð
stefnu Arabasambandsins, sem
nú er haldin í Beirut, Lebanon
að grípa til nýrra aðgerða gegn
Gyðingum. Munu Arabaríkin
engar vörur kaupa af þeim auk
þess sem landamæri þeirra
verða fokuð ölfu fólki af Gyð-
ingaættum.
Þá hafa fulltrúarnir á ráð-
stefnunni og komið sjer saman
um, að senda Frökkum, Bret-
um, Bandaríkjamönnum og
Rússum orðsendingu, þar sem
þess er krafist, að Lybía fái al-
gert sjálfstæði. — Reuter.
Fyrsta bandaríska
hjálparsendingin lil
Tyrklands
Istambul í gærkvöldi.
TVÆR bandarískar flutn-
ingavjelar komu í dag til einn-
ar af hafnarborgum Tyrklands
við Miðjarðarhaf. Fluttu þær
fjmsta farminn af hjálpargögn
um þeim, sem Bandaríkjamenft
ætla að láta Tyrkjum í tje.
Meðal varningsins voru ýmis
konar vjelar tii vegagerðar.
! , I
(Jfvarpsræða
| Bjarna Benedikís- j
j senar er á bls. 7. j
+———■—+
Hjálparþörf Frakka
Alment er álitið, að þessi yf-
irlýsing Lovetts sýni, að utan-
ríkisráðuneytið sje fallið frá
þeirri hugmynd að kalla París-
arráðstefnuna saman á ný. —-
Lovett vjek einnig að hjálpar-
þörf Frakklands og sagði, að
hann vonaðist til þess, að auð-
æfi þau, sem nasistar rændu á
styrjaldarárunum, gætu á næst-
unni bætt nokkuð úr fyrir Frökk
um.
MatvælasparnaSur
Marshall utanríkisráðherra,
benti á það í ræðu sirni, að líta
mætti á áætlun stjórnarinnar
um matvælasparnað sem bráða-
birgðahjálp. Þá væri og enginn
vafi á því að þingnefndir mundu
í næsta mánuði ræða aðrar hjálp
arleiðir. En þar til það yrði gert
mundi Bandaríkjastjórn gera
alt, sem hun gæti, til að hjálpa.
Þessar aðgerðir, hjelt Mars-
hall áfram, munu þó ekki nægja
Þær eru aðeins eitt skref —■
bráðnauðsynlegt skref — í átt-
ina til að koma í veg fyrir hrun
í vetur.
Skýrslur 16 þjóSa.
Marshall mintist nokkuð á
framgang Marshalláætlunarinn-
ar, síðan hún fyrst var birt op-
inberlega í ræðu hans í Harvard
í júní s.l. Við erum nú komnir
það langt, sagði utanríkisráð-
herrann, að 16 þjóðir hafa lagt
fram skýrslu um getu sína, auk
þess sem þær hafa látið uppi,
hversu mikillar — ef nokkurrar
— utanaðkomandi aðstoðar þær
muni þarfnast næstu fjögur eða
fimm árin.
Ver'ða ekki viðstödd
brúðkaupið
LONDON: Hertoganum af Wind-
sor og frú hans hefur ekki vei'ið
boðið að vera viðstödd væntanlegt
brúðkaup Elízabeth prinsessu.