Morgunblaðið - 16.10.1947, Page 8
Firritúdagúr 16. okt. Í1047
8
RÆÐA BJARMA BEMEDIKTSSOIMAR
(Fiamhald af bls. 7)
stjórn. Ekki hefði átt að vera
erfitt að rökstyðjn það. Hitt er
óneitanlega nokkuð veik vörn
gegn öllum þessum ófarnaði og
ósköpum, að skora á skemd-
arvargana sjálfa að gefa skýrslu
um sín skuggalegu áform, svo
sem háttv. 2. þm. Reykvíkinga,
Einar Olgeirsson ætlast :iú til.
Endurreisnar ráðstefnan
í París.
En háttv. 2. þmgm. Reyk-
víkinga, Einari Olgeirssyni,
finnst allt annað mega sitja á
hakanum fyrir einu stórmáli,
sem hann endilega varð að
koma á framfæri.
Svo er mál með vexti, að úti
í löndum, suður í París, var í
sumar haldin ráðstefna um við-
reisn Evrópu. Franska og
breska ríkisstjórnin boðuðu til
þessarar ráðstefnu og buðu þang
að öllum ríkjum j Norðurálfu,
að undanteknum Spáni einum.
Ástæðan til þess, að efnt var
til ráðstefnu þessarar, var vax-
andi öngþveiti í efnahagsmál-
um Norðurálfu, en um þann
voða hafði Mr. Marshall, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
talað í ræðu, sem hann hjelt í
Harward 5. júní s 1. Hjet hann
þá Norðurálfuþjóðunum stuðn-
ingi Bandaríkjanna, ef þær
legðu fram skýrslu um þarfir
sínar. og framleiðslugetu og
legðu ennfremur fram gild rök
fyrir því, að væntanleg fjárhags
aðstoð Bandaríkjanna yrði til
þess notuð fyrst og fremst, að
koma iðnaði Evrópiýþjóðanna
og matvælaframleiðslu í það
horf, að þær gæti af eigin af-
rakstri sjeð sjer farborða.
Nú er það að visu umdeilan-
legt, hversu mikinn þátt íslend-
ipgar eigi að taka í alþjóðasam-
tökum, en fátt varðar þá þó
meira en, að þjóðir Norðurálfu
rjetti við. Ef fátækt og vand-
ræði haldast við með þessum
þjóðum, er ljóst, að sá farald-
ur hlýtur að berast á örskammri
stundu til Islands.
Að vísu getum við ekki lagt
mikið af mörkum til viðrjett-
ingar nágrönnum okkar. Eftir
okkar litlu getu er okkur þó
skylt, bæði annara vegna, en
þó umfram allt sjálfra okkar
vegna, að taka þátt í uppbygg-
ingarstarfinu. Það lá því í aug-
um uppi, að við hlutum að taka
þátt í þessari ráðstefnu, sem
tvær af okkar bestu vina og
viðskiptaþjóðum efndu til.
Sigfús skerst úr leik.
Ríkisstjórnin varð um þetta
sammála svo og utanríkismála-
nefnd, þegar málið var undir
hana borið á fundi 7. júlí mán-
aðar s. 1. Þar var aðeins einn,
sem skarst úr leik, háttv. full-
trúi Sameiningarfiokks alþýðu,
Socialistaflokksins, þingm.
Reykvíkinga, Sigfús Sigurhjart
arson. Mótbára hans var þó í
fyrstu aðeins sú, að við ættum
að bíða þangað tii sýnt væri,
hverja afstöðu hin Norðurlönd-
in tækju til þessa boðs, þó að
það hefðist upp úr honum að
lpkum, að hann væri á móti
því að við þægjum boðið.
<í .Danmörk, Noregur og Sví-
Mjóð höfðu þá efnt til fundar
um þetta, án þess að kveðja
ísland til. Þótti ölium öðrum en
hinum háreista og djarfhuga
háttv. þingm. Reykvíkinga, Sig
fúsi Sigurhjartarsyni, ástæðu-
laust að bíða ákvörðunar fund-
ar, þar sem við værum hvergi
nærri og ekki til kvaddir.
Á sínum tíma korn það einnig
í ljós, að öll þessi þrjú riki tóku
sömu ákvörðun og Island hafði
gert, sem sje þá, að þiggja boð-
ið. Ríkisstjórnir þeirra mátu
hagsmuni landa sinna á hinn
sama veg og ríkisstjórn íslands
og utanríkismálanefnd höfðu
metið íslenska hagsmuni.
Raunin varð sú, að öll rík-
in, 16 að tölu, í vestur- og mið-
Evrópu, sem boðið fengu, tóku
því. En því miður höfnuðu
Rússar og nokknr nágrannar
þeirra boðinu. Það getur ekki
verið hlutverk íslensku ríkis-
stjórnarinnar að átelja afstöðu
þeirra ríkja, sem ekki vildu
þekkjast boðið. Stjórnir þeirra
ráða gerðum sínum án þess að
þurfa um þær að sækja dóm
undir okkur. Hinsvegar getur
engum óblinduðum íslendingi
blandast hugur um. að lítt hefði
land okkar vaxið eða orðið öf-
undsvert af afstöðu sinni, ef
það hefði bæst í hóp þeirra, sem
boðinu neituðu.
Allsherjarstríð gegn
endurreisninni.
En það voru ekki aðeins
stjórnarvöldin i Austur-Evrópu
og á Balkan, sem neituðu þátt-
töku í Parísarráðstefnunni,
heldur hófu kommúnistar um
gervallan heim heilagt stríð
gegn ráðstefnunni. Sá eldmóð-
ur krossfarans, sem nú hefur
gripið háttv. 2. þingm. Reyk-
víkinga, Einar Olgeirsson, út af
þessu máli, hefur einhvern veg
inn borist með austan blænum
hingað til landsins.
Það er þessi óskiljanlegi aust
an andvari, sem ætíð leikur um
forystumenn háttv. Sameining-
arflokks alþýðu, Socialista-
flokksins, sem hefu.r hvíslað því
að háttv. 2. þingm. Reykvík-
inga, Einari Olgeirssyni, að
það, sem íslensku þjóðinni riði
nú mest á af öllu, væri að gera
Parísarráðstefnuna tortryggi-
lega. Þá viðleitni yrði að setja
ofar öllu öðru. Henni yrði að
helga fyrsta mál stjórnarand-
stöðunnar á þessu nýja þingi.
Oll skemdarverk hrunstjórnar-
innar illu yrði að liggja í lág-
inni á meðan tekið væri undir
sönginn að austan um voðann,
sem stafaði af Parísarráðstefn-
unni.
En þeir segja mest af Ólafi
konungi, sem hvorki hafa heyrt
haiin eða sjeð. Ef til vill hefði
og verið hægt að egna menn
‘hjer á landi til haturs gegn
Parísarfundinum, ef engar
fregnir hefðu af honum borist
nema með austan blænum. En
hvaða gagn það hatur átti svo
að gera íslensku þjóðinni, er
raunar allt annað mál.
Tillögur ráðstefnunnar.
En nú vill svo vel til, að einn
ágætur íslendingur, Davíð Ól-
afsson, fiskimálastjóri, fylgdist
með störfum Parísarfundarins,
sem erindreki íslensku stjórnar-
innar. Davíð hefur gefið ítar-
lega skýrslu um ráðstefnuna og
sjerstaklega þátttöku fslands í
henni, en hann var sá fulltrúi,
sem allan starfstíma fundarins
íór með uraboð íslands.
Skýrsla Davíðs er því miður
svo löng, að jeg get nú ekki lesið
hana alla, og skal því aðeins
drepa á nokkur höfuðatriði, og
munu menn þá sjá, að eðli ráð-
stefnunnar var allt annað en
háttv. 2. þm. Reykvíkinga, Ein-
ar Olgeirsson, vill láta menn
halda.
Aðalverkeíni ráðstefnunnar
var að safna gögnum, um hvað
helst væri hægt að gera til end-
urreisr.ar Evrópu og semja fram
leiðsiuáætlun, samkv. upplýsing
um þeirra landa, sem þátt tóku
í ráðstefnunni. Um þetta segir
Davíð Ólafsson:
,,Til þess að tryggja það, að
svo miklu leyti, sem að beim
snýr, að endurreisn Evrópu
verði framkvæmd, samþykkja
hinar þátta.kandi þjóðir að gera
sitt til
1) að auka framleiðsiuna, aðal-
lega á kolum og matvælum,
eftir föngum.
2) að nota til hins ítrasta fram-
leiðslugetu sína, bæði hvað
snertir vinnuafl og tæki.
3) að fullkomna framleiðslu-
tæki sín og samgöngutæki
svo sem frekast er unnt, og
auka þannig afkasta getu
vinnuaflsins, vinnuskilyrði
verði bætt og afkomumögu-
leikar Evrópuþjóðanna bætt-
ir.
4) að vinna saman innbyrðis
og hafa samvinnu við aðrar
þjóðir, sem þess óska, að öllu
því, sem leiða mætti til
lækkandi tolla og minnkandi
hindrana á milliríkjaviðskipt
um.
5) að hafa samvinnu um nýt-
ingu sameiginlegra gæða“.
Þarna er það í mjög stuttu
máli rakið, sem Evrópuþjóðirn-
ar ætla af sinni hálfu að gera
til að rjetta hag sinn við. Jeg
sje ekki, að það sje neitt ískyggi
legt eða nokkuð það, sem ísland
geti haft skömm eða skaða af
að taka þátt í. Þvert á móti sýn-
ist mjer, að hjer sje um stór-
fellda nýsköpun að ræða. Ný-
sköpun, sem er alveg sama eðlis
og okkar íslenska nýsköpun,
sem Einar Olgeirsson áður fyrri
vissulega ljet sjer ant um, áður
en austanvindurinn feykti hon-
um af rjettri leið. •
Greinargerð frá okkur
nauðsynleg.
Þátttaká Islands í þessum á-
formum, sem sannarlega geta
miklu góðu til vegar komið fyr-
ir þann hluta heimsins, er við
byggjum, var fólgin í því, að
gera grein fyrir, hverjar nauð-
synjar við þurfum að fá innflutt
ar nú og á næstu árum. En þær
nauðsynjar þarf að mestu leyti
að sækja til þeirra þjóða, sem
að ráðstefnunni stóðu. í sam-
bandi við þetta var einnig gerð
grein fyrir gjaldeyrisástandi og
horfum eftir því, sem þá voru
gögn fyrir hendi suður í París.
Umfram allt beindist þó þátt-
taka Islands að því, að mínna
þær þjóðir, sem þarna voru
samankomnar, á, að Island
hefði til sölu fisk, sem þær gætu
notað. Mun það öllum vera aug-
ljóst, að það er lífsskilyrði fyrir
íslendinga, að í áætlunum um
endurreisn Norðurálfu sje hæfi-
legt tillit tekið til fiskveiðanna,
og sjeð fyrir, að sem ílestir geti
orðið neytendur fiskjar, bæði
sjálfum sjer og framleiðendun-
um til gagns.
Fulltrúi íslar.ds beindi áhrif-
um sínum einkum að því að
brýna þetta íyrir mönnum. Skal
ekki um það ságt, að hverju
gagn það kemur. En hitt er
ijóst, að ekki hefði okkar hlutur
orðið betri, ef fiskurinn hefði
alveg fallið niður, þegar rætt
var um matarþörf þessara Evr-
ópuþjóða og áætlanir gerðar um
• íullnæging hennar.
íslendingar
ekki beðiS um lán.
Því miður er efnahagur
margra Evrópuríkja svo slæm-
ur eftir eyðileggingar styrjaldar
innar, að þeim er um megn að
standa sjálf straum af endur-
reisnar starfinu. Þess vegna er
það von þeirra, að áætlanir þess
ar verði grundvöllur þess, að
Bandaríkin veiti þeim fjárhags-
legan tilstyrk.
ísland er hinsvegar ekki í
hópi þeirra þjóða, sem hafa beð-
ið um slíka aðstoð, og við skul-
um vona, að við berum gæfu til
að haga svo málum okkar, að
við þurfum ekki á henni að
halda.
Um þetta segir í skýrslu
Davíðs Ólafssonar:
„Þjóðir þær, sem þátt tóku í
ráðstefnunni, voru mjög misjafn
lega á vegi staddar f járhagslega,
en verst var að sjálfsögðu á-
standið í þeim löndum, sem
styrjöldin geysaði í og valdið
miklum eyðileggingum á mann-
virkjum.
Ýmsar af þeim þjóðum, sem
þátt tóku í ráðstefnunni, voru
þó ekki þangað komnar í því
skyni, að verða beint aðnjót-
andi væntanlegrar aðstoðar frá
Bandaríkjunum, heldur var til-
gangur þeirra sá, að hafa sam-
vinnu við aðrar þjóðir Evrópu
um endurreisn álfunnar, þar
sem þær álitu rjettilega, að ó-
frávíkjanlegt skilyrði fyrir vel-
megun þeirra sjálfra væri, að
sú endurreisn mætti takast sem
fyrst.
Frá íslands hálfu lá engin ósk
fyrir um f járhagslega aðstoð. —
Hinsvegar getur það orðið mjög
þýðingarmikið fyrir okkur, ef
þær þjóðir, sem gjarnan vildu
kaupa framleiðslu okkar, en
geta það ekki vegna gjáldeyris-
erfiðleika, fengju þá aðstoð,
sem vænst er eftir. Mundi það
hafa í för með sjer aukna fram-
leiðslu viðkomandi þjóða og
minnkandi gjaldeyriserfiðleika.
Ennfremur væri það þýðingar-
mikið, ef takast mætti, sem af-
leiðing af fjárhagslegri aðstoð
til þeirra þjóða, sem þess
óskuðu, að losa nokkuð um þær
viðjar, sem öll milliríkjavið-
skipti eru nú hneppt í, og loks,
tf sá árangur yrði, sem vonir
standa tii, að samvinna Evrópu-
þjóðanna á sviði fjármála og
viðrkipta gæti leitt til aukinna
milliríkjaviðskipta og aukinnar
velmegunar þjóðanna, en hað
var álit ýmissa þeirra, sem þátt
tóku í ráðstefnunni og kunnugir
eru þessum málum, að aldrei
hefði komið fram jafn eindreg-
inn vilji til samstarfs eins og á
þessari ráðstefnu“.
Komniúnistar stefna að
lántökuþörf.
Að svo stöddu skal jeg ekki
fara fieiri orðum um þátttöku
Islands í Parísarfundinum. Sú
þátttaka miðaði að því, að forða
íslandi frá því að taka stór-
felld lán. Alveg þvert á móti því
sem háttv. 2. þingm. Reykvík-
inga, Einar Olgeirsson, gefur í
skyn í hinni austrænu þings-
ályktunartillögu sinni.
Enda er það eindregin stefna
núverandi ríkisstjórnar, að ís-
lendingar verði í allra lengstu
lög að komast yfir núverandi
örðugleika án erlendrar lántöku.
Þar sem stefna háttv. 2. þingm.
Reykvíkinga, Eir.ars Oigeirs-
sonar og fjelaga hans hlýtur
hinsvegar óhjákvæmilega að
leiða til þess, ef ofan á verður,
að íslendingar á skammri stund
lendi á kafi í skuldum, ef þeir
eiga ekki að selja ákvörðunar-
vald í sínum eigin málum með
fiskinum eins og orð háttv. 2.
þingm. Reykvíkinga, Einars Ol-
geirssonar og fjelaga hans, ó-
neitanlega stundum hníga að.
Þeir vilja erlenda íhlutun.
í áróðri sínum í sumar hafa
þeir fjelagar haldið því mjög á
lofti manna á milli, að auðvélt
væri að selja allar ísienskar af-
urðir í Austur-Evrópu fyrir svo
hátt verði, að núverandi verð-
iagi mætti halda hjer á landi,
einungis ef vinveitt sljórn þess-
um þjóðum færi hjer með völd.
Því miður hefur háttv. 2.
þingm. Reykvíkinga, Einar OI-
geirsson, og skoðanabræður
hans, aldrei í alþjóðar áheyrn
útskýrt, hvað þeir eigi við með
þessum fullyrðingum sínum.
Ef þeir meina það, sem óneit-
anlega virðist felast í orðum
þeirra, að aðrir en íslendingar
eigi að segja til um, hverjir
sitji í ríkisstjórn á íslandi, er
öruggt, að sá boðskapur fær lít-
inn hljómgrunn meðal íslensku
þjóðarinnar. Stjórnir fara og
koma, og í frjálsu þjóðfjelagi
mun seint verða mynduð sú
stjórn, að öllum líki og svo sje
háttað, að hún sitji að eilífu. En
eitt er víst, og það er, að á
meðan íslendingar ráða nokkru
sjálfir um mál sín, ætlast þeir
til, að þeir einir og engir aðrir,
kveði á um, hvaða stjórn sitjí á
íslandi hverju sinni.
Góðir kaupmenn.
Því fer og fjarri, að þessir
hugarórar háttv. 2. þingm. Reyk
víkinga, Einars Olgeirssonar og
fjelaga hans, eigi nokkra stoð í
veruleikanum. — Samninga-
nefndir, sem nú hafa farið víðs-
vegar um lönd, hafa hvergi orð-
ið þess varar, að andúð á ís-
lensku ríkisstjórnirni rjeði
neinu um það, hversu samningar
um fiskverð og lýsis tækjust.
Þar hefur þvert á móti hvar-
vetna komið fram sama skoðun-
in, sem samninganefndin austur
í Moskva hefur eftir viðsemj-
endunum rússnesku, er „þeir
sögðust, sem góðir kaupmenn
gera kaupin þar sem þau væri
hagkvæmust. Við yrðum að vera
samkeppnisfærir í verði, ef við
viidum selja varning okkar. —
Verðlagsmálin á íslandi þótti
Framh. á bls. li