Morgunblaðið - 31.10.1947, Qupperneq 6
6
MORGUISBLAÐIÐ
Föstudagur 31. okt. 194 7
BAIMDARÍKIN Á NÆSTD ÓLYMPÍDLEIKJDM
Eftir Braga Magnússon
S / Ð A R l G R K 1 N
1500 m. hlaup
Gill Dodds, sem á innanhúss
heimsmet á mílunni, 4,06,4 og
hljóp á þessu ári á 4,07,1 er
langlíklegasti hlaupari U.S. á
þeirri vegalengd í London. —
Margt getur þó skeð á einu ári,
og jafnvel það, að Leslie Mc
Mitchell, Frank Dixon eða Rill
Hules, sem eru nýkomnir frá
herþjónustu, taki forystuna af
prestinum.
Af yngri hlaupurum koma
helst til greina Bill Marck
(Dráke), Jack Dianell (Michi-
gan) og Roland Sink (Califor-
niu).
í lengri hlaupunum ciga
Eandaríkjamenn enga, sem nokk
uð kveður að og háfa aldrei átt.
Flestir muna þá 5000 metrana í
Los Angeles 1932, þegar Ralph
Hill sá af sigrinum sökum ó-
drengilegrar framkomu Lethin-
en frá Finnlandi.
Grindahlaup
í grindahlaupinu ber mest á
Harrison Dillard, eftir komu
hans úr hernum 1946. í 110 m.
grindahlaupi hefur hann aáð
tímanum 14,1 sek. Margir gagn-
rýna stökk Dillards yfir grind-
urnar, hraði hans á milli þeiíra
er hafinn yfir allar aðfinnslur.
Besti grindahlaupari heimsins
1938—41, Fred Wolcott mun að
öllum líkindum freista gæfunn-
ar á ný, hvernig sem honum
tekst. Bill Cummings, eftirmað-
ur hans 1942—43, særðist illa
á Okinawa, en hefur náð sjer
það vel, að hann var næstur
Dillard á meistaramótinu. Aðrir
mjög efnilegir grindahlauparar
eru Roy Cochram, Walter Smith,
Charles Stade, Seaon Hall, Bill
Porter, George Watker og Augie
Erfurth.
Ilástökk
Þessi íþrótt hefur á síðari ár-
um tekið á sig einskonar einok-
un Vesturheims. Nú eins og oft
áður eiga Bandaríkjamenn
marga ágæta hástökkvara, sem
svifu yfir rána í um og yfir 2ja
metra hæð. Meðal þeirra eiu
Ken Wiesner, Dane Albritton
(sem stökk jafnhátt Johnson,
Olympíumeistaranum 1936),
John Vislocky, Irving Mondse-
hein, Bill Vessie, Pete Watkins
og Dwight Edleman. — Lester
Steers, sem nú á heimsmetið,
hefur í hyggju að gera enn einu
sinni tilraunir við rána eftir sex
ára fjarveru.
Langstölck
W. Steele frá San Diego var
sá eini sem stökk framar 25
fetum árið 1946. Aðrir lang-
stökkvarar, sem líklegir eru til
stórræða eru helstir, Bill Lace-
field, Billy Brown, Don Borks-
dale, Herb Douglas og John Ro-
bertson.
Stangarstöklc
Hollendingurinn fljúgandi,
sem sveif yfir rána í 4,60 m.
(15 fet) hæð 45 sinnum gerð-
ist atvinnumaður fyrir nokkru
síðan. Cornelius Warmerdam
kennir nú íþróttir við Strand-
ford-háskóla, G. Smith, Irving
Moore og Bob Smith stökkva
allir 14—16,6 fet, en Ricmond
Morcon er eftirtektarverðastur
þeirra allra. Hann er mjög ung-
ur ennþá, en þjálfari hans og
fleiri hafa vonir um, að hann
feti í fótspor Warmerdams áður
en langt um líður.
Þrístökk
Hjer eiga Bandaríkjamenn
enga, sem þola nokkurn saman-
burð, enda þekkist þrístökk
varla á íþróttamótum þeirra og
alls ekki í skólunum. Ástæðuna
er að finna í skaðlegum áhrifum
þrístökks á líkamann og slysa-
hættu, sem oft er samfara þess-
ari íþrótt.
Kúluvarp
Hjer má segja líkt og um há-
stökkið. Bill Bangert, Bernie
Mayer, Irving Kintesch, Stanley
Lambert, Norman Wasser,
Charles Fornville, Ed Quirk,
Moose Thompson og Herb Mic-
haels varpa kúlunni allir um cg
yfir 16 m.
Kringlukast
Bob Fitsh (Minnesota), sem
nú á heimsmetið í þessari íþrótt,
kastaði yfir 55 m. (180 fet 2%
þuml.) á síðasta ári, og á æf-
ingu hefur hann kastað henni
yfir 58 m. (192 fet).
Fortune Gordien, kunnur úr
Evrópuför sinni í sumar, og
Byrl Thompson eru einnig lík-
legir til sigurs í þessari grein.
í sleggjukasti og spjótkasti
eiga Bandaríkjamenn enga, sem
ekki blikna við samanburð bestu
manna í Evrópu.
Tugþraut
Irving Mondschein (New
York) nýtur mestrar hylli í
þeirri grein sem stendur. Ágæt
efni eru þó í mikilli framför,
eins og t. d. Bill Cummings, Dike
Edleman og Lloyd Duff. Eng-
inn þeirra mun þó líklegur til
þess að feta í óviðjafrtanleg fót-
spor Glenn Morris.
AÐALFUNDUR Glímuf jelags-
ins Ármann var haldinn í Breið-
firðingabúð síðastliðið þriðju-
dagskvöld og var hann fjölsótt-
ur.
Stjórn fjelagsins gaf ýtarlega
skýrslu um starfið á liðna starfs
árinu. Milli 5 og 600 manns tóku
þátt í innanhúss-íþróttaæfingum
á síðastliðnu ári, þar af um 240
manns í fimleikum. Alls æfðu
á vegum f jelagsins að þeim með-
töldum sem stunduðu skíðaíþrótt
ina 8—900 manns, en fjelagið
telur nú rúmlega 1200 meðlimi.
Fjelagið stundar nú allar
greinar íþróttanna, sem hjer eru
æfðar, að undanskilinni knatt-
spyrnu.
Á síðastliðnu ári hóf það aftur
að stunda kappróður frá báta-
húsi fjelagsins í Nauthólsvík,
en síðan 1940 hefur sú grein
íþrótta legið niðri vegna þess að
----------------------------
Dynamo vann Horr-
köping 5:1
RÚSSNESKA knattspj'rnu-
fjelagið Dynamo frá Moskva
vann eitt af bestu knathpyrnú
fjelögum Svíþjóðar, NorrJ öping
s.l. sunnudag með 5:1. ] eikur
inn fór fram á Raasunda
Stadion í Stokkhólmi, en áður
en hann hófst heilsaði Gustav
Adolf krónprins leikmönnuri-
um.
Norrköping setti fyrsta mark
ið á 18. mínútu en Dynamó
jafnaði á 29. mínútu og rjett í
lok hálfleiksins skoruðu Rúss-
arnir annað mark sitt.
Leikurinn hafði verið mjög
jafn og var það einnig i seinni
hálfleik, þar til 11 mhiútur
voru eftir þá náði Dynamo al-
veg yfirhöndinni og skoraði
þrjú mörk á þremur mínútum,
36-, 37. og 38, og vann leikinn
með 5:1.
Sænska útvarpið sagði að
leikur Rússanna hefði verið
tekniskur, stuttur og snöggur
samleikur, en þó bar hann einn
ig keim af enskri knattspyrnu,
stytstu leið að marki. Þá vakti
það og undrun sænskra áhorf-
enda, að Rússarnir „hituðu sig
upp“ í 10 mínútur á vellinum
áður en leikurinn hófst, en
slíkt þekkist ekki annarsstaðar.
Rússneskur dómari dæmdi
leikinn. Hann notaði nokkuð
aðra aðferð en þekkist annars-
staðar. Skipti vellinum í tvent
með hugsaðri línu frá marki til
marks yfir miðjan völlinn (ekki
hornalínu), hugsaði sjálfur um
annan helminginn, en ljet línu-
verðina, sem einnig vöru rúss-
neskir, sjá um hinn helminginn.
setuliðið bannaði æfingar á
Skerjafirði.
Fjelagið hefur nú sótt um
leyfi til bæjarráðs um lóð fyrir
íþróttavöll og fjelagsheimili í
Nóatúni. Ríkti mikill áhugi fyr-
ir þessum framkvæmdum og
svarí frá bæjarráði svo hægt
væri að hef jast handa með und-
irbúning.
Ármenningar hafa sem kunn-
ugt er bygt í sjálfboðavinnu
bæði hið myndarlega skíðaheim-
ili í Jósefsdal og róðrarheimilið
í Nauthólsvík og hyggjast að
koma þessum nýju framkvæmd-
um í höfn sem mest sjálfir.
Glímufjelagið Ármann tók
þátt í nær 40 íþróttamótum á
liðnu starfsári og sendi bæði
flokka sína út um land og sem
kunnugt er fóru 45 Ármenning-
- k
i 1
Aðalfundur Ármanns
Fortune Gordien,
(Framh. á bls. 15)