Morgunblaðið - 08.11.1947, Síða 6
6
MORGUTSBLAÐIÐ
Laugardagur 8. nóv. Í947
- FJÁRLAGARÆÐAN
, Framh. af bls. 5
Á þessu ári hefur ekkert at-
vinnuleysi verið, nema sem staf
að hefur af vinnustöðvun út af
kaupdeilum, og atvinnuskilyrði
yfirleitt verið góð. Þetta á þó
ekki við um sjávarútveginn,
sem allar líkur benda til að fari
enn ver út úr þessu ári en árinu
í fyrra. Togaraútgerðin mun
varla bera sig á gömlu togur-
unum þrátt fyrir gott verð, sem
hefur verið á ísvörðum fiski í
Bretlandi, en hið háa verðlag
innanlands og aflabrestur á síld
veiðum mun gera það að verk-
vim að allur þorri bátaflotans
verður rekinn með tapi á árinu.
Það er því fyrirsjáanlegt, að
hin rýra afkoma þessa atvinnu-
vegar mun draga allverulega úr
skattgreiðslu þeirra, er hann
stunda. Hins vegar hefur vísital-
an hækkað enn á þessu ári og
með hliðsjón að því og hve mik-
ið tekju- og eignaskatturinn fer
fram úr áætlun í ár þykir ekki
óvarlegt að telja að hann reyn-
ist svo sem ráð er fyrir gert í
frv.
Stríðsgróðaskatturinn varð
árið 1946 9.8 milij. kr., þar af
4.9 rnillj. kr. í ríkissjóð og á-
lagður stríðsgróðaskattur í ár
nemur svo að segja sömu fjár-
hæð. Með hliðsjón af því sem
áður er sagt um afkomu sjávar-
útvegsins á árinu, hefur ekki
þótt ráðlegt að hækka áætlun-
ina frá núgildandi fjárlögum.
T ollar:
Vörumagnstollurinn var í
septemberlok orðinn 14.2 millj.
kr., en er í frv. áætlaður 12
millj. kr. og er þá gert ráð fyrir,
að hækkun sú á þessum tolli,
sem lögfest var á síðasta Al-
þingi verði framlengd á næs'ta
ári. Það er mjög erfitt að gera
sjer grein fyrir hvað óhætt er
að fara hátt með þennan tekju-
lið, þar sem vitað er, að mjög
verður dregið úr innflutningi á
næsta ári. Síðast liðið ár nam
þessi tollur 14.7 millj. kr. Inn-
ílutningurinn var það ár meiri
en nokkru sinni fyrr, eða 444.3
millj. kr. Tollhækkunin nær að
vísu ekki til allra vörutegunda,
en þó innflutningurinn yröi
helmingi minni á næsta ári eða
meira, ætti þessi áætlun að geta
staðist.
V er&tollurinn:
Þessi tekjuliður var orðinn 51
millj. kr. í septemberlok, sem
áður greinir, og engar líkur til
að hann nái áætlun fjárlaga,
sem er 72.5 millj. kr. í frv. er
hann áætlaður 33 millj. kr. og
þá ekki í þessu frv. gert ráð
íyrir að verðtollshækkun sú er
samþykt var á síðasta þingi og
gildir til ársloka verði fram-
lengd eftir áramótin. Sú hækk-
un var gerð með sjerstöku til-
liti til þess að tekin var upp í
fjárlögin, við meðferð málsins á
Alþingi, upphæð til að standa
straum af niðurgreiðslu á vör-
um, en þar sem engin slík upp-
hæð er tekin upp í frv. þetta,
þótti rjett að gera ekki ráð fyr-
ir framlengingu á hækkun verð-
tollsins. Þessi tekjugrein er al-
veg háð innflutningnum og verð
lagi á erlendum markaði, farm-
gjöldum og öðrum kostnaði, sem
á vöruna leggst, áður en hún
kemur til landsins.
Til glöggvunar hefi jeg látið
gera skýrslu um hlutfallið á
milli innflutningsverðmætis og
verðtolls síðustu 5 árin, með
þeim niðurstöðum, er hjer grein
ir:
Ár Innfl. Veröt. %
1000 kr. 1000 kr.
1942 247.747 39.384 15.9
1943 251.301 33.933 13.5
1944 247.518 36.106 14.6
1945 319.772 48.771 15.3
1946 443.288 62.285 14.1
73.4
að meðaltali 14.68%.
Það er athyglisvert hve litlu
munar frá ári til árs á hlut-
fallinu á milli verðtolls og inn-
flutnings. Lægst er það árið
1943 13.5%, en hæst 15,9% árið
1942, og meðaltal 5 áranna er
14.68%, eins og fyrr segir. Af
þessu yfirliti má glögglega sjá
hver innflutningurinn þarf að
vera að krónutali til þess að áætl
unin standist og sje til hægðar-
auka miðað við 15%, þarf inn-
flutnigurinn að nema 220 millj.
til þess að verðtollurinn nái á-
ætlun fjárl.frv. 33 millj. kr.
En hvaða líkur eru til að svo
mikill innflutningur verði á
næsta ári? Það veltur að sjálf-
sögðu allt á því hvaða útflutn-
ingsverðmætum við höfum úr að
spila. Heildarútflutningurinn
1946 nam 291.4 millj. kr. Til
septemberloka í 'ár var báið að
flytja út fyrir 201 millj. kr. á
móti 204.3 millj. kr. á sama
tíma í fyrra. Likur eru til að
heildarútflutningurinn í ár
verði ekki minni en 1946, og
með tilliti til þess, að árið í ár
er ekki gott aflaár, og að allir
nýju logararnir verði komnir í
gagnið á næsta ári, er ekki á-
stæða til að halda annað, en að
útflutningsmagnið verði heldur
meira á næsta ári, og er þá eng-
in fjarstæða að gera ráð fyrir að
inn verði fluttar vörur að verð-
mæti fyrir 220 millj. kr., en það
er helmingi lægra en árið 1946,
og 27 millj. kr. mínna en þegar
hann var minnstur á undanförn-
um 5 árum, eða árið 1942. -—
Lækkandi verðlag á útflutnings-
vörunum getur að sjálfsögðu
breytt þessari áætlun, en um það
er erfitt að spá nokkru með
neinum líkum.
Bensínskatlur:
Samkvæmt fyrrgreindum lög-
um um breyting á tollskránni
var vörumagnstollur af benzíni
hækkaður úr 1 eyri á kg. í 20
aura og gert ráð fyrir á þ. á.
fjárlögum að hann mundi nema
5.8 millj. kr. Síðan að þessi lög
voru sett hefur verið tekin upp
skömmtun á benzíni, sem vafa-
laust hefur í för með sjer minnk
andi innflutning á þessari vöru.
Með hliðsjón af þessu, hefur
þessi tekjustofn aðeins verið á-
ætlaður 4 millj. kr. í frv.
Aðrir liðir frv. eru flestir á-
ætlaðir eins og í fyrra, eða með
mjög litlum brevtingum, enda
hefur reynslan sýnt að þeir
breytast lítið frá ári til árs, og
þarf ekki að skýra það nánar.
Ríkisstofnanir:
í tillögum póst- og símamála-
stjórnarinnar er gert ráð fyrir
halla á rekstri póstsjóðs 940 þús.
kr. og rekstrarhagnaði á sím-
anum kr. 87 þás. Þessar til-
lögur hafa verið lagðar til grund
vallar í fjárlagafrv. að því und-
anteknu að lagt er til, að fram-
lag til notendasíma í sveitum
verði lækkað úr 1.000.000 kr. í
500 þús. kr.
Var þar byggt á því, að vegna
gjaldeyriserfiðleika, mundi ó-
sennilegt að hægt væri á næsta
ári1 að verja svo miklu fje til
þessara framkvæmda, því að
efnið, sem á þarf að halda og
allt verður að kaupa frá útlönd-
um, er tiitölulega mikill hluti af
kostnaðinum. Samkv. skýrslu
póst- og símamálastjóra, sem
nýlega var birt í útvarpinu, eru
þegar komnir simar á 2000
sveitabýli. Það væri að sjálf-
sögðu, ákjósanlegt að hraða þess
um framkvæmdum sem mest,
en þegar jafnvel brýnustu nauð-
sýnjar eru, ná skammtaðar og
skornar við nögl, vegna gjald-
eyrisskorts, virðist verða að fara
gætilega um framkvæmdir, sem
þola bið, því ekki verður á allt
kosið, þegar vandi'æðin steðja
að.
Fram að síðustu styrjöld var
póstur og sími jafnan rekinn
með nokkrum hagnaði og mun
tekjuafgangur þessara stofnana
hafa nægt til viðhalds og endur-
nýjunar á eignum stofnananna.
Árið 1940 varð halli á rekstri
póstsjóðs og 2 síðustu árin hef-
ur mikill halli orðið á rekstrin-
um, einkum árið 1946, en þá
varð tapið kr. 1.662.045 á pósti
og kr. 1.623.494 á símanum. —
Tekjur póstsjóðs voru árið 1939
879 þús, en kr. 4.321.000,00 árið
1946 og hafa því fimmfaldast á
tímabilinu. Útgjöldin voru aftur
á móti 724 þús. kr. 1939, en
tæpar 6 millj. kr. 1946 og hafa
því áttfaldast á sama tíma. —
Tekjur símans voru 1939 kr.
2.824.000,00. en 15.5 milj. 1946
og hafa því meir en fimmfaldast
Útgjöldin voru rúmar 2 millj.
kr. 1939 en 17.1 millj. kr. 1946
og hafa því meir en áttfaldast á
tímabilinu.
Einkasölur ríkisins.
Sem stendur heldur ríkið uppi
einkasölum á nokkrum vöruteg’-
undum: Tiibúnum áburði, græn-
meti, viðtækjum, tóbaki og á-
fengi. Lögum samkvæmt er
ekki gert ráð fyrir að ríkissjóð-
ur fái neinar tekjur af áburða-
og grænmetisversluninni og tekj
ur af viðtækjaversluninní eiga
að renna til útvarpsins, og
skulu þessi fyrirtæki því ekki
gerð að umræðuefni hjer.
Á f járlagafrv. er gert ráð fyr-
ir að hagnaður af tóbaki verði
16.5 millj. kr, eða 1 millj. kr.
hærri en í fjárl. þ.á. Samkvæmt
reynslu þ.á. mætti búast við
meiri hagnaði af tóbakseinkasöl
unni en ráð er fyrir gert, en
vegna þess að tókbaksverslunin
útheimtir tiltölulega mikinn
gjaldeyri þótti ekki ráðlegt að
áætla hagnaðinn nema 16.5
millj. kr, ef til þess þyrfti að
koma að draga yrði úr innfl.
þessarar vöru, vegna gjaldeyris-
skorts.
Um áfengið gildir öðru máli.
Það kostar tiltölulega lítinn
gjaldeyri, en tollur og hin geysi-
háa álagning skapa hinn mikla
hagnað, sem af þeirri verslun
leiðir.
Það er því óhætt að reikna
með þeim hagnaði af þessari
vörusölu, sem gert er ráð fyrir í
frv. að óbreyttum ástæðum.
Hitt er svo annað mál, að á-
ætlunin um hagnað af þessum 2
fyrirtækjum, er byggð á gild-
andi verðlagi í landinu. — Verði
breyting á því í þá átt, að verð-
lagið lækki innanlands, er fyrir
sjáanlegt að ekki verður hægt
að halda hinu háa verði á tóbaki
og áfengi, sem reynst hefur
framkvæmanlegt í ár. Þess
vegna verður óumflýjanlegt að
endurskoðá tekjuáætlun frv. að
því er þessum stofnunum við-
kemur, ef breytingar á innan-
lands verðlagi til lækkunar ná
fram að ganga á Alþingi.
Iðnrekstur ríkisins.
Auk neftóbaksgerðar, sem Tó-
bakseinkasalan hefur haft með
höndum í nokkur ár og efna-
gerðar, sem rekin er á vegum
Áfengisverslunarinnar, sem
hvort tveggja hefur jafnan ver-
ið rekið með nokkrum hagnaði,
hefur ríkið starfrækt um all-
langt skeið prentsmiðjuna ,,Gut-
enberg“ og járnsmíðaverkstæði,
sem nefnt hefur verið Lands-
smiðjan. Prentsmiðjan hefur
jafnan skilað hagnaði, er nú orð
ið fjárhagslega öruggt fyrir-
tæki, enda verið prýðilega stjórn
að frá byrjun.
Landssmiðjan hefur gefið lít-
ið í aðra hönd, þau ár sem hún
hefur verið rekin, enda illa að
henni búið frá öndverðu. Fjekk
t.d. aldrei meira en 50 þús. kr. í
stofnf je og hefur lengst af orðið
að vinna með dýru lánsfje. Bjó
um langt skeið við mjög ljeleg-
an húsakost, uns í það var ráðist
á stríðsárunum að byggja stór-
hýsi yfir hana og auka mjög
verulega vjelakost og áhalda, og
má segja að Landssmiðjan
standi nú jafnfætis sambærileg-
um járn- og vjelsmiðjum í Rvík,
að því er allan útbúnað snertir.
En þetta hefur orðið dýrt og
skuldir fyrirtækisins eru nú um
3.9 millj. kr, auk þess, sem
ríkissjóður hefur nú þegar greitt
upp í tap á skipasmíðastöðinni
við Elliðavog kr. 1.650.000., —
Ennfremur skuldar Landssmiðj
an 682 þús. kr. í ógreidda skatta,
sem óhjákvæmilegt verður að af
skriía. Það sem verst hefur far-
ið með f járhag Landssmiðjunn-
ar er bygging skipasmíðastöðv-
arinnar, sern ráðist var í árið
1945 fyrir atbeina fyrrverandi
atvinnumálaráðherra, Áka Jak-
obssonar.
Starfrækslu skipasmíðastöðv-
arinnar er ní hætt og þessi við-
skipti gerð upp með halla upp
á 2,3 millj. kr, hvar af ríkis-
sjóður hefur þegar greitt 1650
þús, eins og fyrr segir. — í
stöðinni voru byggðir 4 bátar,
66 lesta og keypt efni í aðra 4
báta, sem ekki hefur verið not-
að, því þegar sýnt var hversu
komiö var hag Landssmiðjunn-
ar, meðfram vegna þessara báta
smíða, Ijet núverandi ríkisstjórn
hætta við frekari bátasmíðar
þar. Er þetta furðanlegt tap á
ekki meiri rekstri. Hefur ráð-
herra sá, er Landssmiðjan heyr-
ir undir fyrirskipað rannsókn á
þessu máli, sem ekki mun enn
lokið.
En þrátt fyrir þó að ríkissjóð-
ur greiði hið mikla tap, sem
varð á bátasmíðinni, er langt frá
því að fyrirtækið sje komið á
öruggan fjárhagslegan grund-
völl. Hinar miklu skuldir, sem
á því hvíla munu torvelda sam-
keppni við hliðstæð einkafyrir-
tæki, sem bættu mjög fjárhag
sinn á stríðsárunum. Það verður
því skjótlega að taka ákvarðan-
ir um framtíð þessa fyrirtækis,
ef á annað borð sýnist ráðlegt að
halda því áfram. En saga þessa
fyrirtækis frá byrjun gefur ekki
góða raun um að ríkisrekstur á
sviði stóriðnaðar henti vel í okk
ar þjóðfjelagi.
Tvö ný fyrirtæki hafa verið
stofnsett í fyrra og í ár,Tunnu-
verksmiðjur ríkisins á Si, 'ufirði
og Akureyri, samkvæmt I. nr,
32 1946, og Ti'jesmiðja r 1 isins,
samkvæmt ókvörðun ríkisstjórn
arinnar.,
Tunnuverksmiðjunum er ætl-
að það hlutverk að hafa jafnan
til nægar umbúðir' um saltsíld
og selja þær á kostnaðarverði og
er þess að vænt.a, að framleiðsl-
an geti orðið svo ódýr, að hún
standist samkeppni við ei’Iendar
verksmiðjur, en reynslan ein
fær úr því skorið, hvort þetta
tekst.
Á þessu ári keypti ríkissjóður
vjelar af trjesmíðaverksmiðj-
unni „Akur“ og leigði hús til
starfrækslunnar til 5 ára. Var
þetta gert af brýnni nauðsyn til
þess að greiða fyrir byggingar-
framkvæmdum ríkisins, en
reynsla undanfarinna ára hafði
sýnt að oft höfðu þessar fram-
kvæmdir tafist úr hófi fram,
vegna örðugleika á að fá smíð-
aðar hurðir og glugga og annað
trjeverk, sem nauðsyn krafði.
Er þess að vænta, að ekki þurfi
að verða tap á þessum i’ekstri.
Reksiraryfirlitið.
Eins og frv. ber með sjer er.
gert ráð fyrir tæpum 900 þús.
kr. tekjuhalla, en greiosluhall-
inn áætlaður óhagstæður um því
sem næst 20 millj. kr. Ilækkun
vísitölunnar hefur haft í för
með sjer að svo að segja allir
útgjaldaliðir fjárl. hækka cnn.
Við samning þessa frumvarps
hefur athyglinni fyrst og fre-mst
verið beint að því að takv. inn á
frv. öll lögboðin út-gjöld og á-
ætla þau eins nálægt sanní og
unnt er.
Hefur aldrei komið eins glöggt
í ljós, og við samning þessa frv.
hve umfangsmikill ríkisbúskap-
urinn er orðinn og hve miklum
tekjurn ríkissjóðurinn þarf á að
halda árlega, til að geta staðið
undir lögboðnum útgjöldum. —
Það mun vera eíalítið að kostn-
aðurinn við ríkisreksturinn mun
vera hlutfallslega meiri á voru
landi en t. d. annarsstaðar á
Norðurlöndum og liggja til þess
að sumu leyti eðlilegar orsakir,
þar sem slíkur rekstur. þarf að
vera jafn margþættur hjá smá-
þjóð, sem fjölmennari þjóðum
og margskonar utgjöld svo sem
til samgangna, pósts- og síma,
löggæslu, heilbrigðismála. menta
mála o. fl., hljóta að verða marg
falt meiri í svo strj^bygðu landi
og Island er, með 1,3 íbúa á
hvern ferkílómetra, heldur en í
hinum þjettbyggðu löndum álf-
unnar. En margt bendir einnig
Framh. á bls. 7