Morgunblaðið - 12.11.1947, Síða 12
VEÐIjHÚTLITIÐ: Faxaflóí:
ALLHVASS efta hvass norS
atxstan, — LjettskýjaS,
ÖRLÖG PÓLLANDS. — Um
það efni fjallar forystugreia
blaðsins i dag. Bls. 6.
Nýti vitaskip
V3TASKÍPIÐ HERMÓÐUR í Reykjavíkurhöfn í ga-rmorg-
»n. — (Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon).
kipto tiermoður er
glæsileg! skip og vel útbúið
ÞEIR GESTIR vitamálastjórnarinnar. sem í gær skoðuðu hið
nýja vitaskip, Hermóður, luku upp einum munni um, að skipi'ð
væri í hvívetna hið vandaðasta og að öllu væri þar haganléga
fyrir komið. Hingað komið kostar skipið aðeins Iki miljón ísl.
krónur, og er það mjög ódýrt eftir því sem nú gerist.
Fáir munu hafa lagt leið sína niður að höfn í gær, til þess
að skoða skipið, þar sem það liggur fánum skreytt stafna í milli
við Grófarbryggju. Norðankuldanum verður kennt um það.
Tíu þúsund króna sekt fyr-
ir að ssnygla Nylonsokkum
og fieiru
í GÆR var í lögreglurjetti Reykjavíkur kveðinn upp dómur yfir*
þrem mönnum. Tveim Bandaríkjamönnum og einum Islending.
íslendingurinn og annar Bandaríkjamaðurinn höfðu gerst sekir
um ólöglega verslun með bjór, vín og gjaldeyri. Hinn Banda-
ríkjamaðurinn er sá sem á dögunum smyglaði til landsins ölium
nylonsokkunum. Menn þessir voru dæmdir í samtals 15000 króna
sekt til ríkissjóðs. Hinn ólöglega innflutti varningur svo og ágóði
af ólöglegri gjaldeyrisverslun, verður gerður upptækur ríkissjóðí
til handa. — 1 sambandi við rannsókn málsins, kom upp um aðra
þrjá menn óg voru þeir með rjettarsætt dæmdir til að greiða sam-
tals krónur 2350.
<8>--------------
tlaodknaflleiksinét
Reykjavíkur hefi!
. n. k. langardag
REYKJAVÍKURMEISTARA-
MÓTIÐ í handknattleik innan-
húss hefst í íþróttahúsinu við
Uákigaland n.k. laugardag og
stendur í rúma viku. Keppt verð
Ur í fjórum flokkum karla og
tveimur kvenflokkum. Sex fje-
lög taka þátt í mótinu. Fram,
Valur, ÍR, KR, Víkingur og Ár-
rnann.
Öll fjelögin senda keppendur
í meistaraflokk karla og II. fl.
karla. I I. fiokki keppa aðeins
Fram, ÍR og Ármarw-og í III.
fiokki ÍR, Valur, Ármann og
KR. — í meistaraflokki kvenna
keppa- 4 fjelög, ÍR. Fram. Ár-
rnann og KR. og- i II. flokki
kvenna tvö. Fram og KR.
ÍR, KR, Fram og Ármann
senda þannig keppendur í 5 fl.
hvert fjelag, Valur i 3 og Vík-
ingur í tvo.
Núverandi Reykjavíkurmeist-
m i í handknattleik karla er Val-
Ur en Ármann í kvenflokki. Þá
vann Ármann í fyrra I., II. og
»r. flokk karla, en Fram II.
flokk kvenna.
Þá er þetta mót merkilegt að
því leyti, að 8-^-10 dómaraefni
f handknattleik munu ganga und
»i próf með því að dæma leiki.
HEIMDALLUR, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna, heldur kvöld-
voku í Sjálfstæðishúsinu í kvöld,
og hefst hún kl. 9.
Sigurður Bjarnason, alþm.,
íl.ytur þar ræðu, sýnd verður lit-
kvikmynd frá 20 ára afmælis-
hófí Heimdallar og ennfremur
kvíkmynd frá Sambandsþingi
ungra Sjálfstæðismanna á Ak-
ureyri s.l. sumar. Þessar myndir
hafa ekki verið sýndar hjer áð-
ur. Auk þess verður sóngur með
gítarundirleik og dansað til kl.
1. e. m.
Aðgöngumiðar eru seldir í
skrifstofu Sjálfstæðisíiokksins í
dag. Mun öruggara fyrir menn
RÖ tryggja sjer miða í tíma, þar
sem aðsókn á kvöldvökur Heim-
dallar hefur ætíð verið mjög
mikil.
Kwikf á nýja Sréitu-
tiianum
í GÆR var í fyrsta skipti
kveikt á hinum nýja Gróttu-
vita.
Ljósatæki vitans voru flutt
úr þeim gamla. Ný tæki munu
verða sett í hann síðar meir,
en þau eru í pöntun í Svíþjóð,
en ekkert urn það vitað hve-
ær þeirra sje von.
Heyrst hefur, að gamli viíinn
verði brotinn niður.
1 SparnaSaráœtlunin
reynist vel
WASHINGTON: — Skýrt hefur
verið frá því í Bandaríkjunum, að
áætlunin um matvælasparnað þar
í landi ætli að reynast vel.
Hermóður er byggt af skipa-
smíðastöðinni Finnboda Varf
við Stokkhólm. Var samið um
smíði skipsins á miðju sumri
árið 1945, en skipið tilbúið til
heimsiglingar um miðjan okt.
í ár.
Styrkt til að sigla í ís.
Skipið er 33,70 m. á lengd,
7,00 m. á breidd og ristir ca.
10’ fullhlaðið. Brúttóstærð þess
er tæpar 200 rúml. og burðar-
magn um 150 tonn. Það er
byggt úr stáli í hæsta flokki
Lloyd’s, styrkt að framan til
siglingar í ís og auk þess með
tvöföld bönd á báðum síðum,
til þess að þola sem best hnjask
við bryggjur. Lestarrúm er eitt,
og er það óvenju stórt í ekki
stærra skipi.
Vjelar.
Aðalvjel skipsins er 290 hest-
afla Atlas-Diesel, og mestur
hraði þess 12 sjóm. á klst. Ljósa
vjel er 30 hestafla Skandia-
vjel. Á þilfari eru 4 rafmagns-
vindur, nefnilega akkerisvinda,
bátavinda og tvær vindu*' til
losunar og lestunar. Stýrisvjel
er olíuknúin.
íbúðir skipverja o. fl.
Skipverjar verða 10 og eru
vistarverur þeirra rúmgóðar og
vistlegar. Fyrir háseta eru tvö
tveggja manna herbergi, en ann
ars allt eins manns herbergi.
Auk þess er eittfarþegaherbergi
fyrir tvo, og í káetu eru hvílur
fyrir tvo farþega. í þilfarshús-
inu, miskips, er rúmgóður mat-
salur, eldhús, kæliklefi og sal-
erni, en í brúnni e" stórt stýris-
hús, kortaklefi og herbergi skip
stjóra. í skipinu er miðstöðvar-
hitun, og rafljós bæði frá ljósa-
vjel og rafgeymum.
Siglingatæki.
Af siglingatækjum hefir skip
ið m. a. bergmálsdýptarmæli,
miðunarstöð og talstöð. Áttavit-
inn er að nýrri gerð og stend-
ur uppi á þaki stýrishússins, og
sjer sá er stýrir á hann í gegn
um sjónpípu (eins og á nýju
ísl. togurunum). Hjer í Reykja
vík verður sett í skipið hátalari
(loud-hailer), ljóskastari og raf
knúinn stýrishússgluggi (clear
view screen).
Islenskar teikningar.
Fyrirkomulagsteikningar af
skipinu eru gerðar á Vitamála-
skrifstofunni af Pjetri Sigurðs-
syni í samráði við Guðm. B.
Kristjánsson skipstjóra, er ljest
síðastliðið vor, en hann var frá
upphafi, og meðan honum entist
aldur til, skipstjóri gamla Her-
móðs. Eftirlit með smíði skips-
ins erlendis höfðu þeir Ólafur
Sigurðsson skjpaverkfræðingur
og Jóhann Björnsson vjelstjóri.
Skipstjóri nýja Hermóðs er
Guðni Thorlacíus og 1. vjelstj.
Guðjón Sigurðsson Aði ir skip-
verjar eru aðallega þeir, sem
áður voru á gamla Hermóð, en
hann er nú orðinn svo útslitinn
að honum mun verða lagt upp
fyrir fullt og allt, enda er skip-
ið nú 56 ára.
Sænskir skipasjerfræðingar
sögðu hið nýja skip vera í alla
staði hið vandaðasta og þótti
þeim samræmi milli yfirbygg-
ingar og skrokks vera gott.
Reyndust þeir hafa rjett fyrir
sjer, því reynsla hefur nú feng-
ist fyrir skipinu sem sjóskip
og var hún mjög góð.
Þegar upp komsl urn
smygliS
Það er leiddi til þess, að upp
komst um menn þessa, var það,
að bandarískir starfsmenn á
Keflavíkurflugvelli bentu lög-
reglunni þar á Bandaríkjamann
nokkurn, er nýlega var kominn
hingað aftur úr leyfisför til
Bandaríkjanna. Töldu starfs-
mennirnir, að manni þessum
hefði tekist að smygla inn all-
verulegu magni af nylonsokk-
um.
6 menn handteknir
Er málið var komið á þetta
stig, tók rannsóknarlögreglan
það að sjer. í beinu framhaldi
af rannsókn nylonsokkamálsins,
komst upp um fimm aðra menn
er gerst höfðu sekir um ýmis-
konar afbrot. Einn þessara
manna hafði smyglað inn 88
pörum af nylonsokkum og annar
hagnast um rúmlega 1000 krón-
ur á dollaraávísunum. Málum
þessara þriggja manna var lok-
ið með rjettarsættumj. Var ein-
um þeirra gert að greiða til rík-
issjóðs 400 krónur, öðrum 250
kr. og þeim þriðja 1700 krónur.
Dómurinn í gær
. Nylonsokkaeigandi, Frank W.
Kendrick, sem dæmdur var í
gær, var gert að greiða 10000
krónur í sekt til ríkissjóðs. En
verði sektin eigi greidd innan
f jögra vikna, verður hann látinn
sæta 120 daga varðhaldi.
Kendrick þessi hafði smyglað
inn 413 pörum af nylonsokkum,
ferðaviðtæki og hrærivjel.
íslendingurinn, sem er Odd-
geir Sveinsson, til heimilis að
Brú við Þormóðsstaði, var dæmd
ur í 3000 króna sekt. Sömu kvað
ir voru settar á greiðslu sektar-
innar. En að öðrum kosti sæti
hann 45 daga varöhaldi.
Oddgeir þessi hafði aðstoðað
við flutning og sölu á bjór og
ennfremur hafði hann keypt
gjaldeyri.
Þriðji maðurinn, sem er Ain-
slee Lawson Taylor, var dæmd-
ur í 2000 króna sekt til ríkis-
sjóðs. Verði sektin eigi greidd
innan 4ra vikna, skal hann sæta
30 daga varðhaldi.
Maður þessi hefur gerst sekur
um áfengis- og bjórsölu, svo og
sölu á dollurum.
í dómsorðum segir að lokum,
að allur hinn ólöglega innflutti
varningur, 413 pör af nylon,
hrærivjelin, ferðaútvarpið og af-
tekin wiskyflaska skuli gjört
upptækt ríkissjóði til handu. —•
Sömuleiðis ólöglegur hagnaður
Lawsons af sölu ávísana, að upp
hæð kr. 650.
Mönnum þessum var geit að
greiða allan kostnað sakarinnar
og þar með innifalin málsvarn-
arlaun til verjenda sinna.
Siormur hamlai
síldveiði í gær
VEÐUR var mjöð óhagstæt.t
til síldveiða hjer við Faxaflóa
í gær og barst heldur lítil
síld áð landi. Talsverð síld sást
þó í Hvalfirði og köstuðu nokk-
rir bátar, en þeir komust í
mestu vandræði með að ná nót-
inni inn aftur.
I gær var haldið áfram að
lesta síld í skip, sem síðan
flytja hana til bræðslu á Siglu-
firði. Var unnið að því í gær
að lesta Fjallfoss, Ólaf Bjarna-
son og Huginn.
/Eskulýðsfjelag ÍÉ-
ureyrarkirkju
slofnað
Akureyri, priðjudag.
NÝLEGA var stofnað Æsku-
lýðsfjelag Akureyrarkirkju fyr-
ir forgöngu sr._ Pjeturs Sigur-
geirssonar.
Tilgangur fjelagsins er sá að
styrkja fjelagsmenn til þess að
rækja það heit, er unnið er við
fermingu og felst í orðunum:
,,Jeg vil leitast við af fremsta
megni að hafa frelsaránn .Jesúm
Krist að leiðtoga í lífi mínu“.
Stofnendur voru fermingar-
börn frá s.l. vori, og skipa stjórn
fjelagsins: — Gunnlaugur Krist-
insson, formaður, Guðbjörg
Pálmadóttir, Sigríður Jónslótt-
ir, Máni Sigurjónsson og II: einn
Þormar. — H. Vald.
Miljón undirrita áskorunar-
lista
LONDON: — Meir en miljón Bret
ar hafa nú undirritað áskorunar-
lista, þar sem farið er fram á það,
að bensínskamtur sá, sem breskir
einkabifreiðaeigendur voru sviftir
á dögunum, verði tekinn upp á ný.