Morgunblaðið - 13.11.1947, Blaðsíða 1
34. árgangur
259. tbl.
Fimtudagur 13. nóvember 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Afstaða íslendinga til
Grænlands rædd í
Danmörku
Rasmussen ræðir máiið
Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgbl.
í SKEYTI frá Norsk Telegrambureau til Ritzau-frjettastof-
'innar, þar sem rætt er um áhuga íslendinga fyrir fiskimiðun-
um við Grænland, er þess getið, að íslensku kröfurnar nái til
íleira en fiskveiðirjeltindanna.
Numið frá íslandi.
Segir í skeytinu, að íslend-
ingar leggi áherslu á það, að
Grænland hafi verið numið frá
Islandi og að sterkar raddir
sjeu nú uppi um, að kröfur ís-
lendinga til landsins verði lagð
ar fram meðan á núverandi
samningaumleitunum stendur
við Dani.
Rasmussen er ,,fyndinn“.
Gustav Rasmussén hefur í
sambandi við ofangreint frjetta
skeyti sagt í viðtali við „Ber- |
linske Tidende“, að kröfur ís- i
lendinga byggist að öllum lík- ;
indum á þeirri skoðun Jóns
Dúsasonar, að Norðmenn þeir,
sem fóru til Grænlands, hafi
komið frá Islandi. Enginn vafi
er á því, segir Rasmussen, að
þeir lögðu upp frá Islandi. —
Þessar upplýsingar hafi mikið
sögulegt gildi, en þær sjeu þýð
ingarlausar í umræðum um
Grænland vorra daga.
Gvmveifl herveldi
Bandaríbjamaður ræðir um olíulindirnar
við Miðjarðarhaf
New York í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
í RÆÐU, sem Loy W. Henderson, yfirmaður Asíu og Afríku-
deildar bandaríska utanríkisráðuneytisins, flutti í New York
í dag, komst hann meðal annars svo að orði, að örlög þriggja
heimsálfa grundvölluðust á því, að takast mætti að koma í veg
íyrir, að olíusvæðin fyrir botni Miðjarðarhafs og við Rauðahaf
fjellu í hendur „óvinveittu stórveldi". Dró Henderson enga dul
ó, að hann ætti hjer við Rússland.
Heimsfriðurinn. ^
Enginn vafi er á því, sagði
Henderson, að okkar eigið ör-
yggi og heimsfriðurinn byggist
á bví, að engum ofbeldisaðferð-
um verði beitt á þessum land-
svæðum. Þau eru undirstaða
framleiðslu og flutninga —
ekki aðeins fyrir Suður-Asíu og
Afríku, heldur einnig fyrir Ev-
rópu framtíðarinnar.
Mundi tefja endurreisnina.
Óvinveitt herveldi mundi
geta tafið endurreisn Vestur-
Evrópu og komið 1 veg fyrir
framleiðsluþróun bæði Afríku
og Suður-Asíu, tækist því, að
komast höndum yfir hráefnin
þarna. Ef það einu sinni næði
tangarhaldi á þessum auðlind-
um, nlundi það ekki aðeins ráða
örlögum að minsta kosti þriggja
heimsálfa, heldur og varpa
dimmum skugga yfir heim all-
an.
Aukafjáriögin
bresku
FJÁRAUKALAGAFRUM-
VARP bresku stjórnarinnar var
lagt fram í neðri málstofu
breska þingsins í dag, og fylgdi
Hugh Dalton fjármálaráðherra
því úr hlaði. í frumvarpinu er
meðal annars gert ráð fyrir nýj-
um sköttum, sem nema munu
um 208 miljón sterlingspund-
um á ári, auk þess sem tollur
á áfengi verður töluvert aukinn,
gróðaskattur tvöfaldaður og
sjerstakur skattur lagður á veð-
banka.
Hans Hedtoft myndaði
stjórn í Danmörku í gær
Ehenhower fær Fílorðuna
Þegar Gustav Rasmussen utanríkisráðherra Dana var í Banda-
ríkjunum á dögunum hafði hann mcðíerðis æðstu orðu, sem
Danakpnungur veitir, en það er Fílorðan, handa Eisenhovver
hershöfðingia. Myndin hjer að ofan er af Eisenhower með Fílinn
um hálsinn, en kona hans horfir hrifin á.
„Við flýðum til að bjarga
lífi okkar“
Einkaritari Mikolajczyk kominn
fi! SvíþjóSar
Stokkhólmi í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
STEFAN KARBONSKI, einkaritari Mikolayczyk, pólska bænda-
leiðtogans, sagði í viðtali við frjettamenn hjer í Stokkhólmj í
dag, að bæði hann og þeir aðrir Stjórnmálamenn pólskir, sem
neyddust til að flýja heimaland sitt, hefðu gert það til að bjarga
lífi sínu.
<s>-----------------------
Kom fyrir viku.
Það var fyrst í dag, að skýrt
var frá því, að Karbonski hefði
tekist að komast undan til Sví-
þjóðar. Hann kom þangað fyrir
um viku síðan, en líklegt er tal-
ið, að hann haldi til Bretlands
innan fárra daga.
Átti að svifta hann
þinghelgi.
Karbonski sagði frjettamönn-
unum sænsku, að hann hefði
leynilega fengið vitneskju um
það, að stjórnarvöldin hefðu í
hyggju að svifta hann þing-
i
helgi sinni. Var svo í ráði að
saka hann um landráð, en það
er uppáhaldsákæra kommúnista
leiðtoganna í Austur-Evrópu.
Kona Karbonski komst undan
með honum.
Berjast
viS hvern sem er
BEIRUT: — Muftinn af Jerúsal-
em, scm nú er í heimsókn í Leban-
on, hefur látið hafa eftir sjer, að
Arabar muni berjast við hvern
sem er, til þess að hindra skiptingu
Palestínu.
Rasmussen
áfram utanríkis-
ráðherra
Kaupm.höfn í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HANS HEDTOFT, formaður
danska alþýðuflokksins mynd
aði í dag nýja stjórn, eftir að
tilraunir fjögurra aðalflokka
Danmerkur til að mynda sam-
steypustjórn, höfðu farið út
um þúfur. Hedtoft lagði ráð-
herralista sinn fyrir Friðrik
konung í kvöld, en búist er.við
því, að hxn nýja stjórn muni á
morgun (fimmtudag) taka
formlega við störfum.
Hinir nýju ráðherrar eru 17
— þar á meðal einn kvenmaður
— og fara nöfn þeirra hjer á
eftir:
Rá&herralistinn
Hans Hedtoft veiður forsætis-
ráðherra, Gustav Rasmussen
utanríkisráðherra, Hans Hansen
f jármálaráðherra, Wilhelm Buhl
ráðherra án sjerstaks ráðuneyt-
is, en mun eiga að starfa aðal-
lega að efnahagsmálum, K. Bor-
cling landbúnaðarráðherra, Al-
sing Andersen innanríkisráð-
herra, Johannes Kjærboel bygg-
inga- og heilbrigðisráðherra,
Carl Petersen ráðherra ríkis-
framkvæmda, Nieis Busch-Jen-
sen dómsmálaráðherra, Hartvig
Frisch menntamálaráðherra,
Christion Christiansen sjávar-
útvegsráðherra, J. Stroem fje-
lagsmálaráðherra, Rasmus Han-
sen landvarnarráðherra, Frede
Nielsen kirkjumálaráðh. Manus
Sörensen atvinnumálaráðherra,
Fanny Jensen ráðherra án ráðu-
neytis, en mun hafa yfirumsjón
barnafræðslu o. fl„ og Jens Krag
verslunar og birgðamálaráð-
herra.
Allir ráðherrar hinnar nýju
stjórnar eru jafnaðarmenn nema
Gustav Rasmussen, sem er utan-
flokka.
Fulltrói Indlands
efeki í kjöri
Lake Success í gærkvöldi.
TILKYNT var hjer í Lake Succ-
ess í dag, að Indland hefði ákveð
ið að hætta við að gera kröfu
til sætis í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna, en atkvæða-
greiðsla um sætið hefur hvað
eftir annað reynst árangurslaus,