Morgunblaðið - 15.11.1947, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 15.11.1947, Qupperneq 5
I.augardagur 15. nóv. 1947 MORGUNBL4ÐIÐ 5 Dansíeikur í tilefni af 25 ára og 35 ára afmæli skátafjelaganna, verður haldinn að skátaheimilinu næstk. sunnudag kl. 9. Dansleikurinn er fyrir skáta eldri en 15 ára. SkemtiatriSi: Hörður segir gamansögur. Nýtísku uppboð. Gamanþættir: Sendiferð til Parísar o. fl. Leikþátturinn: Afbragðs kvöld. Dans: Róbert Amfinnsson, spilar^ Aðgöngumiðar verða seldir á laugardaginn frá 5—6. NEFNDIN Eftirmiðdagsdansleikur verður haldinn í Nýju Mjólk- prstöðinni á morgun sunnudag 16. þ.m. frá kl. 3—6 e.h. K. K.-sextettiim leikur Kristján Kristjáinsson syngur nýjustu danslögin. 'Aðgöngumiðar við innganginn. m ANSLEIKIJR • % í Tjarnarcafé í kvöld kl. 10, til ágóða fyrir S. f. B. S. 1 w w % Aðgöngumiðasala í anddyri hússins frá kl. 5 í dag. f Hafnjiröingar Reykvíki ngar Takið eftir í kvöld laugardagskvöld, er dansað frá kl. 9 til 11.30. ^ÁÍótei j^FÖátlAF Jam Session í Breiðíirðingabúð í dag laugard. kl. 3,30 e.h. Kynnir: Jón M. Árnason. Veitingar frá kl. 3 Breiðfirðingabúð Frá 9. þingi Bandalags starfsmanna ríkis ogbæja EINS og skýrt hefir verið frá hjer í blaðinu, er ný lokið 9. singi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þingið Ijet ýms mál til sín taka og gerði margar ályktanir. Hjer fara á eftir á- lyktanir þær er gerðar voru: Samþyktir og ályktanir sem gerðar voru Dýrtíðarmál. Þing B.S.R.B. gerir svofellda ályktun varðandi dýrtíðarmál- in: Nauðsynlegar byrðar vegna dýrtíðarinnar ber fyrst og fremst að leggja á þá, sem gjald þolið hafa mest. Að gefnu tilefni varar þingið mjög ákveðið við verulegri verð hjöðnun. I sambandi við umræður um niðurfærslu verðlags bendir þingið á þá staðreynd, að verð- lagsuppbót á laun hefir frá því verðbólgan hófst verið reiknuð ársfjórðungslega eða mánaðar- lega eftir á með þeirri afleið- ingu að launþegar hafa um skemmri eða lengri tima raun- verulega greitt hækkað afurða- verð með óbreyttri vísitölu, og þannig borið skarðan hlut frá borði, en þó einkum vegna ráð- stafana um niðurgreiðslur af-» urðaverðs. Fyrir því telur þing- ið launþega eiga siðferðilegan rjett á, að sá halli verði jafn- aður, þegar dýrtíðin minnkar, þannig að vísitölulækkun stafi af lækkuðu afurðaverði, enda gáfu þingflokkarnir á sínum tíma fyrirheit um að svo yrði. Þingið vekur sjerstaklega at- hygli á því, að flest stjettar- fjelög með frjálsum samnings- rjetti um kaup og kjör hafa fengið verulegar grunnkaups- hækkanir síðan gildandi launa- lög voru sett. Þingið leggur áherslu á að samtök launþega og framleiðslu stjetta eigi þess kost að fylgjast með ráðstöfunum þeim, sem Alþingi hyggst að gera. Þingið felur stjórn B.S.R.B. að kalla saman aukaþing þess, hvenær sem henni finnst á- stæða til, vegna aðgerða lög- gjafans í dýrtíðarmálunum. Um skattamál. 9. þing B.S.R.B. beinir þeirri áskorun til milliþinganefndar í skattamálum, að néfndin taki eftirfarandi atriði til greina við endurskoðun skattalaganna: Að fullnægjandi eftirliti með kkattaframtölum verði komið á, svo að tryggt verði að skatta byrðin komi rjettlátlega niður. Að persónufrádráttur verði hækkaður í samræmi við raun verulegan framfærslukostnað, en nú þegar til samræmis bóta- ákvæðum laga um almanna- tryggingar, enda verði hraðað rannsókn skv. fyrirmælum í sömu lögum, sbr. 7. tölulið í ákvæðum til bráðabirgða. Að skattskyldar launatekjur hjóna, sem bæði vinna utan heimilisins, verði aðgreindar í framtölum og skal skattleggja þau hvort um sig ef þau óska, enda sje tryggt, að það verði ekki notað tij a‘ð dreifa eigin- tekjum heimilisföður eða tekj- um af atvinnurekstri. Að sameinuð verði álagning útsvars og tekjuskatts í einn skatt, er verði innheimtur, hvað launþega snertir, með jöfnum afborgunum á 10 roánuðum jafn óðum og laun eru greidd, en innheimtu af öðrum skattskyld um tekjum hagað í samræmi við það. Um laimalög. 9. þing B.S.R.B. ítrekar sam- þykktir síðasta þings varðandi gildandi launalög og felur vænt anlegri stjórn þess að beita sjer fyrir nauðsynlegum aðgerð um í þá átt að hrinda þeim i framkvæmd. Lýðræði í atvinnumálum. í sambandi við fjárhagsörðug leika þjóðariiinar vegna vax- andi verðbólgu, hefir glögglega komið í ljós, að almennar kröf- ur eru uppi um hagkvæmari rekstur bæja og ríkisstofnana. 9. þing B.S.R.B. tehrr kröfur þessar eðlilegar og rjettmætar og vill því vekja athygli lög- gjafans á nauðsyn bess að lýð- ræði í atvinnumálum verði aukið, þ. e. að launþegum verði tryggð hlutdeild í stjórn opin- berra fyrirtækja, þar sem með því einu verður unnt að fá þann skilning um niðurfærslu rekst- urskostnaðar, sem óhjákvæmi- legur er, ef vel á að fara. * Tryggingamál. 9. þing B.S.R B. skorar á bæjarstjórnir og aðra aðila að hlutast til um: Að föstum starfsmönnum bæja- og sveitafjelaga, hvar sem er á landinu, sje fryggður eftirlaunarjettuf, ekki lakari en starfsmönnum ríkisins nú. Að stofnaðir sjeu eftirlauna sjóðir opinberra starfsmanna, þar sem nægilega margir starfs menn eru, til þess að þv> verði við komið. Að fullgildir lífeynssjóðir verði hið fyrsta stofnaðir a Isa- firði, Hafnarfirði og Vestmanra eyjum, og felur þingið stjórn bandalagsins, að veita starís- mannafjelögum bæjanna alla nauðsynlega aðstoð á kostnað bandalagsins. Þingið telur einnig eðlilegt, að^öðrum starfs mannafjelögum bæja- og sveita fjelaga verði veitt aðstoð á sama hátt, ef þau óska þess, Að um hvert atriði reglu- gjörða sjóðanna verði leitað fyrirmyndar í þeim starfandi sjóðum’ hjer á landi. sem best kjör bjóða. Að veita lífeyrissjóðum bæja starfsmanna viðurkenningu i samræmi við ákvæði 133. gr. laga um almannatryggingar. Þingið vill og benda hinum smærri bæjar- og sýslufvdög- um á ákvæði 2. málsgr. 4. ’gr. laga nr. 101, frá 30. des. 194’3. Matmálstíminn. Þar sem fram hafa komið á- kveðnar raddir um það, að breyta matmálstíma starfs- manna ríkis og bæja, felur bandalagsþingið stjórn B.S.R.Bn - að beita sjer fyrir almennri*at- kvæðagreiðslu innan bandalags fjelaganna fyrir næstu áramót um það hvort metm kjósi held- ur: Stytting matmálstímans' í hálftíma, eða lenging hans og þá hve mikið, eða óbreyttan matmálstírna, enda breytist vinnustundafjöldi ekki. Jafnframt fari fram atkvæða greiðsla um það. hvort Tefja skuli vinnu klst. fyrr á sumrin en á veturna. Áskorun tií þings. 9. þing B.S.R.B vekur nt- hygli hæstvirts Alþingis og ríkisstjórnar á þeim óverjandi drætti, sein orðinn er á setn- ingu laga um rjettinúi og skyld ur starfsmanna' ríkisins. Jafn- framt skorar þingið á stj órn bandalagsins að ganga ríkt eft- ir því, að haft verði full sam- ráð við B.S.R.B. við undirbún- ing málsins. Þing bandálagsins felur stjórn þess að hlutast til um það við útvarpsráð, að flutt verði nokkur útvarpserindi um sögu og rjettarstöðu opinberra. starfsmanna og til að kynna þjóðinni starfsháttu. þeirra. Þing bandalagsins felur stjórn þess að efna til frekari kvnninga milli starfsgreina innan þess með því: Að sjá um, að samdar verði stuttar greinar um starfsháttu, staxfsskilyrði og umbótaóskir hverrar stjettar um sig og sjeu þær annaðhvort birtar í Star.fs- mannablaðinu eða í smáritum. Að flutt verði erindi á fund- um einstakra fjelaga til fræðslu um málefni annarra fjelaga og starfsgreiná. 9. þing • bandalagsins telur nauðsvn, að bókasafni þesa sjeu send blöð og tímarit, sem einstök fjelög þess gefa út, e.nn fremur að skrifstofan safni og varðvéiti í bókasafninu þlaða- greinar og aðrar úrklippur, sem varða málefni bandalagsins eða líiör einstakra stjetta þess. Þing bándalagsins beinir þeirri áskorun til sambands- fjelaganna, að þau vinni að því hvert í sinni grein: Að efnt verði til námsskeiða í þeim tilgangi að, gera starfs- menn sem hæfasta i starfi sinu. Að styrkir verði veittir til utanferða í sama tilgangi. Þing bandalagsins beinir því til stjórnar þess, að hún stuðli að því, að hópar starfs- manna sameinist um kaup og lestur erlendra og innlendra tímarita eða blaða, sem fari um- ferð milli þeirra á skipulagð-c, an hátt, og leiti stjórnin samný inga um það, að Háskólafcoka-^ saín eða Landsbókasafn eðct> Framh. á bls. 11. é

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.