Morgunblaðið - 16.11.1947, Qupperneq 1
12 síður og Lesbók
ík, ® X,
Yaraíormaður pólska
bændaílokksins kominn
ti! London
Tillap m jmveldabandalag - Kaup-
hæfekun breskra námumanna - Bryssel-
REUTERSSKEYTI.
TVEIR af leiðtogum bændaflokksins pólska eru nú komnir
ril London, en þeim tókst að flýja frá Póllandi um líkt leyti
og Mikolajczyk, sem kom til Bretlands fyrir tveim vikum síð-
r,n. Er annar ofangreindra manna varaformaður Lændaflokks-
ins, en hinn formaður flokksins í Varsjá. Komst hann til Sví-
þjóðar, en þaðan flugleiðis til London.
ERLENT
Kommúnistar í pólska þinginu hafa ná látið
svifta Mikolajczyk þingsæti sínu, og skorað hef-
ur verið á stjói'narvöldin að taka einnig af hon-
um pólsk borgararjettindi. Annars munu rjett-
arhöld bráðlega hefjast í máli þeirra þriggja
manna, sem tilraun gerðu til að flýja um sama
. ............ leyti og Mikolajczyk, en'urðu fyrir því óiáni að
verða handteknr í Tjekkóslóvakíu og sendir tii baka til Póllands.
YFIRLIT
Washington.
® JOHN Foster Dulles, einn
af leiðtogum Bandaríkjanna á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð
anna, flutti ræðu í dag, þar
sem hann meðal annars lýsti yf
ir þeirri skoðun sinni, að Bret-
ar, Frakkar og Bandaríkja-
menn ættu að gera með sjer
sem fyrst 40 ára bandalag, ef
Rússar reynist ófáanlegir til
þátttöku. Dulles lýsti og yfir
ákyeðnu fylgi sínu við-aðstoð-
aráætlun Marshalls utanríkis-
ráðherra.
Til mála getur komið að
námunum fá 15 shillinga kaup-
hækkun á viku, en aðrir 10
shillings hækkun.
Brúðkaup.
© DÓTTIR Attlees forsætis-
ráðherra, gifti sig í dag að við-
stöstöddu miklu fjölmenni. —
Faðir hennar fylgdi henni til
kirkju, en meðal viðstaddra var
kona Churchills og dætur henn
ar tvær.
Bombay.
• ÞÚSUNDIR hafnaðarverka
Dulles verði einn af ráðunaut- manna eru nú í verkfalli í Bom
um Marshalls á fundi utanrík-
israðherra fjórveldanna, er hefj
ast mun í næstu viku.
Aþena.
• BANDARÍKIN hafa ákveð
ið að stækka hermálanefnd þá,
sem þeir hafa við bandaríska
sendiráðið í Áþenu. Verður
þetta gert í samráði við grísku
stjórnina, sem telur nefndar-
stækkunina nauðsynlega vegna
aukinna birgðasendinga Banda
ríkjanna.
Briissel.
© RÁÐSTEFNUNNI um tolla
bandalag Evrópu er nú lokið í
Brussel. Sátu hana 14 þjóðir,
og mun hafa verið ákveðið að
skipa nefnd, sem á að kynna
sjer betur tillöguna um tolla-
bandalag.
London.
® SAMBAND námuverka-
manna hefur nú fallist á launa-
hækkunartillögur bresku stjórn
arinnar vegna aukins vinnu-
tima kolanámumanna. Munu
verkamenn, sem vinna niðri í
bay og krefjast launahækkun-
ar. Hefur verkfallið valdið ým-
iskonar erfiðleikum, og meðal
annars tafið afskipun sjö banda
rískra og kanadiskra skipa, sem
eru með matvæli, sem mikill
skortur er á þarna.
Brelar fá 85 prósent
dönsfeu eggjafram-
ieiSsiimnar
Kaupmannahöfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
SAMKOMULAG hefur nú náðst
milli Breta og Dana um eggja-
útflutninginn danska. —. Munu
Bretar kaupa 85% allrar eggja-
framleiöslunnar, og greiða 3,G4
danskar krónur fyrir kílóið. —
Kílóverðið var áður kr. 2,45.
Menn líta svo á, að samkomu-
lag þetta sje góður íyrirboði um
árangur viðræðna ^rgirra, sem
brátt munu hefjs.st milli Breta
og Dana um dönsku flesk- og
smjörframleiðsluna. — Reuter.
Óeirðir og verkíöll magnast í
Frakklandi og Italíu
Giffi? Eiiisbdh og
MoynSMen
GEORGES Francis Fisher,
erkibiskup af Kantaraborg,
sem á að gefa þau Elisabcth
prinsessu og Mountbatten prins
í hjónaband í Westminster
Abbey næstk. fimtudag.
Kviknar í húsi í
Skerjafirði
ELDSNEMMA í gærmorgun
kom upp eldur í tvílyftu timb-
urhúsi, Baugsveg 13 í Skerja-
firði. Hús þetta mun vera eign
aðventista.
Þegar slökkviliðið kom var
allmikill eldur í herþergi á
neðri hæð hússins í austur-
enda. Vatnslítið var, en með
dugnaði sínum tókst }slökkvi-
liðinu að hefta frekari út-
breiðslu eldsins og tókst á
skömmum tíma að ráða niður-
lögum eldsins. Skemdir urðu
talsverðar í herberginu.
Leifeskóll starfrækt-
ur að Hlíðarenda
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt,
að láta ungfrú Bryndísi Zoega
í tje ókeypis afnot af 2 til 3 stof
um í húsinu Hlíðarenda við
Laugarásveg, fyrir leikskóla.
Ungfrú Bryndís hefur und-
anfarin ór starfrækt leikskóla
með ágætum árangri. en fjekk
nú ekki lengur það húsnæði,
er hún hefur áður haft.
Reykjavíkurbær mun cinnig
láta í tje ókeypis ljós og liita
og sjá um leiktæki utanhúss.
Mánaðargjald fyrir hvert
barn, verður sama og i öðrum
leikskólum, kr. 75 á mánuði
fyrir hvert barn. En til þess að
skólinn geti borið sig, þarf 35
börn. — Hinsvegar hafa um-
sóknir kömið aðeins fvrir 23
börn.
Komm únistar reyna að
koma á glundroða
PARÍS í gær.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ÓEIRÐASAMT var í ýmsum borgum á Ítalíu í gær, svo að
horfði til vandræða. Varð lögreglan að grípa til skotvopna til
þess að halda óróaseggjunum niðri. — í Frakklandi breiðast
verkföll enn út og kom þar allvíða til átaka í dag milli kom-
múnista og fylgismanna de Gaulle. Varð lögreglan að skerast
í leikinn og einnig var herlið sent á vettvang til þess að koma
á reglu.
■^Óeirðirnar í Ítalíu.
íúsr í Skólðyöróu-
hðlli flyija í (amp
Knox
BORGARSTJÓRI skýrði frá
því á fundi bæjarráðs s. 1. föstu
dag, að á næstunni myndu
verða rifnir 14 braggar í Skóla-
vörðuholti. Er þetta hverfið í
horninu milli • Baronstígs og
Eiríksgötu. Vei'ður því svæðið
að kapellunni nýju, Hallgríms
kirkju, og að Gagnfræðaskól-
anum þar með hreinsað.
íbúarnir munu flytja í Spít-
alabyggingarnar í Kamp Knox.
Þær byggingar eru gjörólíkar
hinum venjulegu braggabygg-
ingum, miklu vandaðri. Hefur
bærinn látið innrjetta þar 29
tveggja herbergja íbúðir, með
salernuny vatni, frárennsli og
rafmagni.
Fyrstu íbúarnir munu vænt-
anlega flytja inn í spítalabygg
ingarnar eftir viku tíma.
| Hæsta þittg Sþ. ;
| í Evrópu |
I ■ Lake Success, N. Y., I
í gærkv. í
| ALLSHERJARÞING S. j
= Þ. samþykkti í dag, að i
j næsta þing stofnunarinn- =
í ar skuli koma saman í Ev- i
i rópu. Samþykkt þessi er i
: þó því skilyrði bundin, að i
= nægilegur meirihluti með =
i lima S. Þ. samþykki aulca i
i kostnað þann, sem þetta j
i mun hafa í för með sjer. i
i Þrjátíu og einn fulltrúi j
i greiddi atkvæði með Ev- i
j rópuþinginu, 17 á móti, en i
i fimm sátu hjá. i
I irrygve Lie, aðalritari i
i S. Þ., tjáði frjettamönn- :
i um fyrir skönimu síðan, i
i ",ð aukakostnaðurinn =
i mundi að öllum líkindum i
i nema um miljón dollurum. j
j. — Rcuter. i
riiiiiiiiiiiiiiiiliiiiniiiiiiwtiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiuiiiii>
í Rómaborg kom til óeirða
er hermenn, sem Rússar höfðu
tekið til fanga í styrjöldinni,
en nú eru komnir heim, efndu
til fundarhaida. Foringi þeirra
var að halda ræðu, er komm-
únistar rjeðust að fundarmönn-
um pieð háreysti og barsmíð-
um og hleyptu fundinum upp.
Samgöngur allar lentu í mestu
ringulreið og gerðu starfsmenn
strætisvagna verkfall. Voru
nokkrir þeirra, sem stóðu fyrir
uppþotinu, handteknir. Frjettst
hefir að verkamenn hafi heit-
ið að hverfa aftur til vinnu,
ef foringjar þeirra verði látn-
ir lausir.
Verkföll breiðast út
frá Marseille.
Óeirðir hjeldu áfram í Mar-
seille í dag og voru 82 menn
handteknir, en yfir 1000 menn
voru teknir á lögreglustöðina til
yfirheyrslu. — Verkfallið í Mar-
seille hefur nú breiðst út til
annarra hafnarborga við Mið-
jarðarhafið og til eyjarinnar
Korsíku.
Stál og járniðnaðurinn.
1 París og nágrenni höfuðborg
arinnar hafa verkföll breitt um
sig í stál- og járniðnaðinum. —
Einnig hafa starfsmenn korn-
myilna hætt vinnu og gert verk-
fall.
Kommúnistar á bakvið.
Það dylst engum að það eru
komrnúnistar, sem standa á bak
við verkföll þessi og óeirðir í
Frakklandi og á ítalíu. Er álit-
ið að þetta sje upphafið að víð-
tækri baráttu þeirra gegn' lýð-
ræðisstjórnum þessara landa og
að þeir ætli að nota glundroð-
ann, sem af þessu skapast til
þess að reyna að hrifsa til sín
völdin. í þessu sambandi er bent
á það, að Frakkland og Ítalía
eru einu löndin, sem hið nýja
„kominform“ nær til, sem komra
únistar eru nú ekki állsráðandi.
Ætla þeir að nota byltingarað-
ferðina til þess að koma áform-
um sínum þar í framkvæmd.