Morgunblaðið - 17.12.1947, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. des. 1942
í 2
A n dksMða kMH miínwtn pgn slióin
arfrumvarplnu hófst með þing°
hneyksli Einars Olgeirssonar
Þeir geta ekki dulið hrun-
stefnu sína með biekk-
ingum
Vðiandi dýtSið er eina von jseirra
Einar Olg. heimtaði að
verða bankastjóri Lands-
bankans
' Sl
um
dýrfíðarmálin
VERÐBÓLGA, vaxandi dýrtíð,
og þar af leiðandi atvinnuvand-
ræði, er stefna kommúnista um
alla Evrópu. Það er boðorðið, sem
þeir hafa fengið* að austan, að
halda í dýrtíðina, vinna að vexti
og viðgangi verðbólgunnar, eins
og þeim er framast auðið.
Því að hvernig sem verðlagi er
háttað, þá er eitt víst, að fái verð
bólgan að „njóta sín“, eins og
kommúnistar vilja, þá verður
hún, fyrr eða síðar, svo mikil, að
atvinnuleysi, framleiðslu vand-
ræði, tekjurýrnun eðd tekju-
missir steðjar að fyrir - lands-
menn.
Þessi cr reynsla allra þjóða.
Enda auðsjeð, að ráðið til þess að
koraa verkafólki á vonarvöl, er
það, fremur öllu öðru, að lofa
verðbólgunni að halda áfram að
vaxa.
Fyrirfram ákveðið
Menn vissu það því fyrir
hvernig kommúnistarnir myndu
bregðast við hverjum þeim ráð-
stöfunum, sem gerðar yrðu, til
þess að stöðva verðbólguna.
Kommúnistar gera í því efni
eins og flokksbræður þeirra gera
í öðrum löndum. Það sem mið-
stjórn flokks þeirra leggur fyrir
þá, að berjast af alefli gegn öll-
um þeim ráðstöfunum, sem að
því miða að forða þjóðinni frá
hruni atvinnuveganna, vegna sí-
aukinnar verðbólgu.
Því er þeim órótt
En hitt var það, að menn gátu
ímyndað sjer, að kommúnistarnir
hjerna hefðu reynt að stilla skap
sitt og koma manneskjulegar
fram, í andstöðu sinni gegn þeim
ráðstöfunum, sem ríkisstjórnin
ber fram á Alþingi.
Við fyrstu umræðu málsins
missti Einar Olgeirsson alla
stjórn á geðsmunum sínum. Vissi
sýnilega ekki hvað hann var að
segja, þegar hann grenjaði ókvæð
isorð sín til utanríkisráðherrans.
Svo úr hófi keyrandi var fram-
koma þessa þingmanns, að for-
seti deiidarinnar var að því kom-
inn að slíta fundi og hefði gert
svo, ef ræðumaðurinn, sem var
að tala, Bjarni Benediktsson,
hefði ekki beðið forsetann að
sýna hinum geðæsta kommúnista
nokkra biðlund og vorkunnsemi,
á meðan hann væri að átta sig.
Undir merki verðbólgunnar
Hógvær orð Bjarna Benedikts-
sonar komu hinurr; æsta komm-
únista út úr jafnvægi. Hafði ut-
anríkisráðherrann sýnt fram á
það í ræðu sinni, að aðaláhuga-
mál kommúnistanna væri það að
ekkert yrði aðhafst til þess að
stöðva verðbólguna. Þeir hjeldu
því fram í líf og blóð, að allt
væri í stakasta lagi Verðlagið í
landinu mætti hækka. Það yrði
að hækka. Eftir því sem menn
fengju fleiri krónur í kaup, eftir
_því myndu menn álíta að kaup-
máttur Jaunanna hækkaði.
Þannig hafa kommúnistar farið
að í þeim löndum, sem nú eiga
við hin mestu vandræði að búa,
vegna verðbólgu og dvínandi
kaupmátts peninganna. Kommún
istar í Frakklandi hafa sífellt
hrópað á fleiri franka til handa
launþegurrl. Svo hver franki gild-
ir þar nú fáeina aura. En þó
menn fái þúsundir franka í hend-
ur hafa þeir ekki til 'hnífs og
skeiðar. Eins í Ítalíu. Sama á-
stand vilja kommúnistar skapa
hjer. Sífellt fleiri krónur til
handa þcim, sem taka laun. Án
tillits til þess . að kaupmáttur
krónunnar fellur við hverja
hækkun kaupsíns.
Þjóðin. þekkir þá
Þegar kommúnistar etú nú að
leggja til höfuðárásar gegn þeim 1
ráðstöfunum, sem gerðar eru, til |
þess að hafa hemii á verðbólg-
unni, þá líst þeim ekki á blik-
una. Þá þykjast þeir í upphafi
sjá að þjóðin er farin að þekkja
þá of vel, til þess að almenning-
ur fylgi þeim, fylgi verðbólgunni,
vilji styðja að aukinni dýrtíð. Og
þess vegna missa þeir stjórnina á
geðsmunúm sínum, eins og Einar
Olgeirsson í þinginu á mánudags-
kvöldið.
Mótsagnirnar
Það fyrsta, sem menn reka aug
un í þegar litið er á framkomu
kommúnista í baráttu þeirra fyr-
ir verðbólgunni eru mótsagnir
þeirra.
í fyrsta lagi halda þeir því
fram, eins og Bjarni Benedikts-
son benti á í ræðu sinni, að ekk-
ert þyrfti að gera og ekkert ætti
að gera til að hefta áframhald-
andi verðbólgu.
Samtímis ásaka þeir ríkisstjórn
ina fyrir það, hve seint hún beri
fram frumvarp sitt í dýrtíðar-
málunum. En því skyldu komm-
ar harma það, sem vilja að engar
ráðstafanir sjeu gerðar.
Einar þagði
Kommúnistar hafa haldið því
fram, að hægt hefði verið í ár að
selja útflutningsvörur lands-
manna hærra verði en gert hefði
verið.
En þegar þessi mál hafa verið
til umræöu í utanríkisnefnd, en
þar á Einar Oigeirsson sæti, og
hann hefur verið spurður hvaða
ieiðir hann hefði til að benda á,
til þess að fá hærra verð fyrir
vörurnar þá hefur hann engu
getað svarað.
Alar ásakanir kommúnista um
það, að linlega hafi' verið haldið
á markaðsmálunum hafa orðið
að engu. Enda sannast einmitt
síðustu vikur, hve mikið hefur
verið aðgert í þeim málum. Sbr.
viðskiptasamninginn við Hollend
inga og nú síðast samninginn um
að selja 70 þúsund smálestir af
ísfiski til. Vestur-Þýskalands eða
hernámssvæða Bandaríkj amarma
og Breta.
Hin bjánalega firra um
heildsalana
Ein fáránlegasta mótsögn og
firra kommúnistanna er sú, þegar
þeir halda því fram, að ríkis-
stjórnin sje að st^fna að atvinnu-
leysi í landinu, þegar einmitt er
unnið að því að láta verðbólguna
ekki eyðileggja vinnu lands-
manna. En sú firra þeirra verður
þó ennþá hlægilegri, er þeir þykj
ast hafa fundið út, að það sjeu
einhverjir sjerhagsmunir kaup-
manna, og þá einkum heildsala,
að • atvinna minnki, framleiðsla
dragist saman og te-kjur lands-
manna verði sem minnstar. Það
ætti að vera sjersagsmunir versl-
unarstjettarinnar að fólkið í land
inu væri sem snauðast og gæti
sem minnst keypt(!)
Engin furða þó þeir menn, sern
styðjast við slíkar fáránlegar fjar
stæður, óttist um málstað sinn,
og telji hann ekki sigurstrangleg-
ari.‘ .... ,
1 Reynslan af einokunum.
Enn er ein fjarstæða í mál-
flutningi kommúnista, sem vak-
ið hefir athygli. Að setja á fót
allsherjar Landsverslun og láta
gróðann af því verslunarbákni
greiða uppbæturnar á útflutn-
ingsvöruna.
En hvernig hefir reynsla þjóð-
arinnar verið af einokun? Og
hve margir skyldu það vera
meðal landsmanna. sem halda
það enn í dag að emokun»rversl-
anir verði neytendum hagstæð-
ari heldur en verslun, sem rek-
in er í frjálsri samkepni?
Ef iandseinokun ætti að hafa
fje aflögu til þess að greiða með
útflutningsuppbætur til útgerð-
arinnar, þá myndi slíkt því aðeins
verða gert, með gífurlegri álagn-
ingu á vörurnar til almennings.
En það kynni að vera bægilegt
fyrir kommúnista og gæðinga
þeirra, að hafa með höndum
stjórn á slíku landseyðandi versl-
unarbákni. Þó útkoman fyrir al-
menning yrði svipuð og á Síld-
areinkasölunni sem Einar Olgeirs
son stjórnaði á sínum tíma, og
gat því aðeins borið sig, að sjó-
menn ljetu til einkasölunnar afla
sinn fyrir ekki neitt.
Kommúnistar hamast gegn öll-
um þeim ráðstöfunum sem gerð-
ar verða til þess að stöðva verð-
bólguna eða draga úr henni.
Baráttu aðferðir þeirra verða
með þeim hætti, sem löggiltar
eru fyrir alla kommúnista heims.
Að tilgangurinn helgi meðalið.
En vegna þess að þjóðin veit
hver hinn sanni tilgangur komm-
únista er í þessu máli, þá mun
alþýða manna sjá við svikum
þeirra og blekkingum, og láta sig
engu skifta orð þeirra og aðgerð-
ir.
Aðalhindur Sjálf-
stæðlsfjelags Akur-
eyrar
NÝLEGA. var haldinn aðal-
fundur í Sjálfstæðisfjelagi Akur
eyrar. Fundurinn var fjölsótt-
ur. Starfsemi fjelagsins hefir
verið fjölþætt og mikil undan-
farin ár og fer stöðugt vaxandi.
I stjórn fjelagsins vóru kosn-
ir: Jónas G. Rafnar, form.,
Sveinn Bjarnason, fjehirðir og
Óskar Sæmundsson, ritari. Frá-
farandi formaður er Heigi Páls-
son, kaupm, og hefur hann
stjórnað fjelagina af dugnaði
og áhuga.
í fulltrúaráð Sjálfstæðisfjelag
-anna í bænum voru kosnir eft-
irtaldir menn: Páii Sigurgeirs-
son, Valgarður Steíánsson,-
tIndriði Heigason, Helgi Pálsson,
Karl Friðriksson. Til vara:
Gunnlaugur Jónsson og Einar
Sigurðsson.
I Naustaborgarráð voru kosn
ir: Magnús Bjarn.ison, Magnús
Jónsson, Guðm. Jónasson, Helgi
Pálsson og Jens Eyjólfsson.
FYRSTA umræða um dýr-
tíðarfrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar stóð til kl. 4 á mánudags-
nóttina.
Er leið á umi^eðmnar og upp
lýst hafði verið öll framkoma
og tvískinnungur kommúnista
reyndu þeir að verja sig með
stóryrðum og hrópum fram í
ræður annarra ræðumanna. Var
Einar Olgeirsson sjerstaklega
vanstiltur cg hrópaði hvað eftir
annað fram í.
Lúðvík Jósefsson, sem var
látinn halda rúmlega ,tveggja
tímá ræðu móti f»umvarpinu,
fór og hinar mestu hrakfarir.
Það var nefnilega upplýst að
Lúðvík á fundi í L. I. U. haust-
ið 1946 skrifaði undir nefndar-
álit, þar sem hann telur nauð-
syrilegt að grunnkaup og vísi-
tala hækki ekki frá því sem þá
var. Það er annar Lúðvík, sem
kemur fram á fundi L. í. Ú. en
sá, sem talar hjer á Alþingi,
sagði forsætisráðherra í ræðu
sinni. Er Lúðvík reyndi að
þræta, spurði forsætisráðherra
hvort nafn hans væri falsað, en
þá gugnaði hann,
Þannig væri allur málflutn-
ingur kommúnista, sagði for-
sætisráðherra ennfremur.
Þeir bæru fram frv. um lækk
un á viðgerðarkostnaði sjávar-
útvegsins, en þegar járniðnað-
armannadeilan er skoðuð í ljósi
þessa'frumvarps þá er afstaða
þeirra allt önnur.
Sjerstakur trúnaðarmaður
kommúnista, lögfiæðingur Al-
þýðusambandsins, var fenginn
til að athuga álagningu vjel-
smiðjanna, og hann komst að
þeirri niðurstöðu að þær þyrftu
að hækka álagninguna'
Að umræðu lokinni var frv.
vísað til 2. umr. og fjárhags-
nefndar.
Fundir í gær.
í gær kl. 1% hófst svo fundur
að nýju, en var frestað, sökum
óska E. O. um aö fá að semja
nefndarálit.
Kl. 5 í gær hófst svo 2. umr.
Meiri hluti nefndarinnar (Ásg.
Ásg., Skúli Guðm, J. Hafstein,
Hallgr. Benediktss.) lögðu til að
frv. yrði samþ.
Lögðu þeir áherslu á að þeir
menn, sem beittu sjer gegn því
að nú yrði drepið við fæti í
dýrtíðarmálunum, væru að
kalla yfir þjóðina verðfall pen-
inganna og atvinnuleysi.
Væri ótrúlegt að þegnar þjóð-
fjelagsins vildu ekki leggja
fram lítið brot af tekjum sín-
um til að tryggja rekstur sjáv-
arútvegsins og sinn eiginn hag.
Var síðan fundi frestað til kl.
8,30.
Kvöldfundurinn.
Fundur hófst að nýju kl. 8,30
og lágu þá fyrir breytingartillög
ur frá Einari Olgeirssyni, sem
sýna á áberandi hátt stefnu
kommúnista í dýrtíðarmálun-
um. Hann lagði tij að felldur
yrði niður III. kafli frumparps-
ins, sem fer fram á bindingu
vísitölunnar og þar með stöðv-
Ufl dýrtíðarinnar í stað þess
tekur E. O. uþp ákvæði úr' ,',áyr-
tíðarfrumvarpi“ þeirra komm-
únista, þar sem lagt er til að
felldir verði niður tollar á ýms-
um vörum.
Stefna E. O. í þessu máli er
því að draga verulega úr tekj-
um ríkissjóðs um leið og hann
vill enn íþyngja þær byrðar,
sem á ríkissjóð hvíla. Ennfrem-
ur tekur hann þær tillögur úr
frv. sínu upp, sem eiga að fara
fram á lækkun á viðgerðar-
kostnaði útvegsins, enda þótt
þegar hafi verið upplýst afstaða
kommúnista í því máli í sam-
bandi við verkf&.ll járniðnað-
armanna.
Forsætisráðh. upplýsti að E.
O. hefði spurt sig í maí s.l., áð-
ur en hann fór til Noregs, hvort
bann yrði skipaður í fjárhags-
ráð. „Jeg sagði ekkert um það“»
sagði ráðherra, „en ekki var
um að villast að E. O. vildi
gjarnan táka sæti í f járhagsráði
og hann vildi fá að vildi fá að
vita það úti í Noregi“.
Einar vildi verða bankastjóri.
> Ennfremur upplýsti ráðherra
að í sambandi við stjórnar-
myndunina í fyrravetur, þá
hefði E. O. sóst mjög fast eftir
að fá bankastjórastöðu við
Landsbankann.
Kommúnistar heimta
gengislækkun.
Gylfi Þ. Gíslason tók næstur
til máls. Sýndi hann fram á, acS
kommúnistar með tillögum sín-
um um að einskorða viðskifti
okkar við’ vöruskiftalöndin í
Austur-EvróþU, þá væru þeir
að vinna að dulbúinni gengis-
lækkun. Það væri vitað að þess
ar þjóðir hefðu mjög hátt verð
á framleiðsluvörum sínum.
Kommúnistar vilja að sjávar-
útveginum sje útvegað hærra
verð fyrir afurðir sínar á þanu
hátt, að við verðum í staðinn
a ðkaupa inn fyrir miklu hærra
verð en við getum fengið ann-
arsstaðar. Þetta er alveg sama
úrræði og ef gengið væri lækk-
að.
Þegar prentun blaðsins hófst
í nótt stóðu umræður enn sem
hæst. Var áformað að Ijúka
annari umræðu um frumvarpið.
Þriðja umræðan í Neðri deilcl
fer fram í dag.
Bókasýning
Helgafslls
BÓKASÝNINGU Helgafells
var lokið í gær, en næstu tvo
daga verða á vegum forlags-
ins selair þeir leirmunir, sem
voru á sýningunni, ásamt
nokkrum listaverkum eftir ís-
lenska málara.
Fer vel á því, að gefa ísl,
listmálurum, sem þess óska,
kost á því, að selja myndir fyr-
ir jólin og fólki tækifæri til að
prýða heimilin með málverk-
um og öðrum listaverkum.
Þessi sala fer fram aðeins í dag
pg á morgun kl. 2—8, því á
föstudagskvöldið hefir forlagið
fallist á, að rýma Listamanna-
skálann fyrir sjómannastofu,
sem þar á að verc5a um jólin.