Morgunblaðið - 14.01.1948, Page 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Hægviðri. — Víðast ljettskýjað.
ANNA PAUKER og Michel kon
ungur. Sjá grein á bls. 7.
10. tbl. — MiSvikudagur 14. janúar 1948
Sveik út fylgibrjef
fyrir búsgöpum
©g sía! þeim
MAÐUR austan úr sveitum
varð fyrir einkennilegu óhappi
er hann kom hingað í bæinn, til
þess að sækja svefnherbergis-
hús5ögn sín, sem hann hafði
fenrfið send utan af landi. Fylgi
brjefið var hann með en manni
nokkrum tókst að svíkja það út
úr honum tók húsgögnin og
seldi þau.
Engin deili vissi maðurinn
á svikaranum. Hann hafði hitt
hann á förnum vegi og bárust
þá húsgögnin í tal. Hinum ó-
kunna manni langaði mikið til
þess að kaupa húsgögnin að
hann sagði sjálfur. Bað hann
austanmann að fá sjer fylgi-
brjefið til þess að hann gæti far
ið niður á skipaafgreiðsluna og
skoðað húsgögnin. Á þetta
fjellst austanmaðurinn, en gegn
því skilyrði, að hann fengi fylgi
brjefið aftur í sínar hendur inn
an tveggja stunda. Svikarinn
kom aldrei og sá austanmaður-
inn hann ekki meir.
Nú afhenti hann málið rann
sóknarlögreglunni. Henni tókst
fljótlega að komast fyrir þjófn
að þennan. Svikarinn hafði
kornið við þriðja mann niður á
skipaafgreiðsluna, afhent fylgi-
brjefið og tekið svefnherbergis
húsgögnin á bíl, sem hann var
með. I framhaldi af þessu tókst
rannsóknarlögreglunni dð finna
húsgögnin í einni af fornsölum
bæ.iarins. Þar hafði svikarinn
selt þau fyrir þrjú hundruð
krónur.
Prins með lífvörð
ÞEGAR hans konunglega tign, Emir Feisal, sem var einn af fulltrú-
um á þingi S.Þ. var á leið heim til Arabiu, itom flugvjel bans víð í
Englancli. — Emir Feisal er sonur íbn Saud. — Hann hafði með
sjer iífvörð og enska lögreglan fjölmcnnti á flugvel’inum til að
fyrirbyggja árekstra. Er blaðamenn spurðu prinsinn um álit hans
á skiftingu Palestínu, sagði hann: „Jeð álít hana órjettláta og ó-
heiðarlega“.
Samningar tókust milli
s /■
L I. U. og sjómanna
Siriðsáhæjiuþéknunin feld niður
SAMNINGAR milli Landssambands íslenskra útvegsmanna ann-
arsvegar, og Farmanna- og fiskimannasambands Islands, og Sjó-
mannaf jelags Reykjavíkur og Hafnarf jarðar hinsvegar tókust að-
faranótt þriðjudags. — Sáttasemjari ríkisins, Torfi Hjartarson,
hafði á hendi milligöngu milli aðila, frá því á fimmtudaginn var,
og gekk frá samkomulaginu.
-»
50 ganp a!
þingfundi
París í gærkvöldi.
FIMTÍU af þingmönnum hægri
manna gengu í dag í mótmæla
skyni út úr fulltrúadeildinni
frönsku, er Marcel Cachin, einn
af leiðtogum kommúnista flutti
harðorða áróðursræðu í stað
hinnar venjulegu ópólitísku
ræðu, sem siður er að flutt sje
við onnun nýs þingtímabils.
Kommúnistafjelagar Cachins
‘hylltu hann hinsvegar duglega,:
fyrir þetta brot hans á óskráð-
um þingreglum. — Reuter.
Verðmæti vetrarsíldarinn
ar nemur um 45 milj. kr.
Heildaraflinn um 700 þús. mái
EFTIR því, sem næst verður komist um heildarafla á síldarver-
tíðinni í vetur, bæði við ísafjörð og í Hvalfirði, munu nú hafa
veiðst um 700 þús. mál síldar. Til frystingar hafa farið um 30
þús. mál, ísvarin síld til Þýskalands 10 þús. mál og hingað til
Reykjavíkur hafa borist milli 650 og 660 þús. mál. Láta mun nærri
að verðmæti vetrarsíldarinnar sje um 45 millj. króna.
Rýrnun.
Að sjálfsögðu ber að reikna
með rýrnún síldarinnar við
flutning hennar norður og mun
láta nærri að landað verði í
verksmiðjurnar á Siglufirði um
600 búsund málum. Rýrnunin
nemyr um 50 þúsund málum.
Enn er veiði góð í Hvalfirði og
s.l. sólarhring hafa komið 21
skip með samtals 17800 mál síld
ar. í gærkvöldi biðu löndunar
um 30 skip með um 28000 mál
innanborðs.
Til Siglufjarðar.
í gær fóru norður til Siglu-
fjarðar með síld Súðin Hrím-
faxi og Fjallfoss. Verið er að
lesta Knob Knot. Var að jafn-
aði unnið að losun 13 skipa í
senn. Við flutning síldarinnar
að Knob Knot voru rúmlega 40
vörubílar.
Aflinn í gær.
Eggert Ólafsson með 200 mál,
Hólmaborg 1200, Fanney 1400,
Farsæll 1000, Keilir 850, Þor-
steinn 750. Helgi Helgason 500,
Svanur AK 700, Sigurfari 800,
Þorsteinn EA 600. Victoría 1150,
Bragi og Fróði 950, Jón Þor-
láksson 700, Huginn II. 650,
Rifsnes 1450, Illugí GK
Víðir SU 800, Vilborg
Ingólfur Arnarson 1100.
Vilja miðsa máium
Damascus í gærkvöldi.
ARABABANDALAGIÐ ákvað í
kvöld, að senda Indlandi og Pak
istan orðsendingu og bjóðast til
að miðla málum í deilu þeirra
um Kasmir. — Reuter.
anna" fyrir Hæsla-
rjetfi
I GÆRMORGUN hófst munn
legur málflutningur fyrir
Hæstarjett.i í máli þeirra manna
er stóðu að brunar.um á Akra-
nesi, í Miðstrætí í og víðar og
sem ætluðu að kveikja í hús-
inu Baldursgata 12. Þetta mál
vakti á sínum tíma mikla eftir-
tekt hjer í bænum.
Dr. Einar Arnórsson, sem er
sækjandi í málinu fyrir hönd
rjettvísinnar og valdstjórnarinn
ar hóf í gærmorgun frumræðu
sína og lauk henni ekki í gær.
Mun hinn munnlegi málflutn-
ingur þessa umfangsmikla máls
taka eina fjóra til fimm daga,
en dómur mun ganga í málinu
i næstu viku. Þeir sem ákærð-
ir eru, eru þessir: Snorri Jóns-
son og Þórður Halldórsson.
Verjandi þeirra er Sigurður
Ólason. Þá er Jóhannes Sæ-
mundur Pálsson, verjandi hans
er Eggert Claessen. Ástráður
Proppé, verjandi hans er Gústaf
A. Sveinsson. Sigurður Jónsson
og verjandi hans er Teódór B.
Líndal. Gísli Kristjánsson, sem
er yngstur hinna ákærðu, verj-
andi hans er Sveinbjörn Jóns-
son. Og Baldur Þorgilsson en
verjandi hans er Magnús Thor-
lasíus.
1150,
450,
Atomaldarsýiiing hjer
i bænum
Hún verSur hliðstæd eriendum sýningum
KRINGUM næstu mánaðarmót verður haldin sýning hjer í bæn-
um, sem eflaust mun vekja mikla athygli bæjarbúa og annara er
hana skoða. Þessi sýning fjallar'um Atomöldina. Islenskir vísinda-
menn vinna að uppsetningu hennar um þessar mundir.
a
Jerúsalem í gærkvöldi.
BRESKIR hermenn í Palestínu
hröktu í dag flokk Araba á
flótta, sem ráðist höfðu á Gyð-
inganýlenau í námunda við
landamæri Sýrlands. Enginn
maður var drepinn í viðureign-
inni.
Tilgangur sýningarinnar er
sá að gefa alþýðlega fræðslu
um atomorkuna, hagnýting
hennar í þágu mannkynsins og
ógnir þær er að mannkyninu
steðja, ef henni yrði beitt í
styrjöldum. Sá, sem hugmynd-
ina á að sýningu þessa% er
Jörundur Pálsson teiknari, en
hann hefur sem kunnugt er haft
á hendi framkvæmd við upp-
setningu ýmissa sýninga hjer í
bænum.
IUiðstæð sýningum í Brctlandi
og Amcríku.
, Sýning þessi er hliðstæð Atom
aldarsýningu, er breska stór-,
blaðið Daly Express efndi til í
London á s. 1. ári og sem einnig
var sýnd í Banderíkjunum. í
þessum löndum vakti sýningin
gífurlega athygli. Þess má geta,
að er sýningunni var lokið í
London, var hún scnd sem ferða
sýning um aílar Bretlandseyjar.
Til þess að sýning þessi verði
sem best úr garði gerð, hefur
Jörundur Pálsson fengið í lið
með sjer þrjá vísindamenn við
uppsetning hennar í Lista-
mannaskálanum. Menn þessir
eru: Þorbjörn Sigurgeirsson,
Trausti Einarsson og Sigurður
Þórarinsson.
Samningar þessir runnu út
um áramótin. En samninga-
fundir hófust ekki fyrri en upp
úr áramótunum. Var þá gert
bráðabirgðasamkomulag til 12.
þ. m. En síðan hafist handa um
það að ná samkomulagi áður
en sá tilskildi tími væri útrunn
inn. En ekki tókst þó að ganga
frá samningum fyrri en kom-
inn var sá 12.
Farmanna- og fiskimanna-
sambandið hefir á hendi samn-
inga fyrir yfirmenn á fiski-
skipunum, skipstjóra og stýri-
menn og vjelstjóra á hinum
stærri skipum. En sjómanna-
fjelögin höfðu samningagerðir
fyrir vjelstjóra á fiskibátunum,
háseta, matsveina og kyndara
á flutningaskipum.
Samningar um stríðsáhættu-
þóknun voru feldir úr gildi. í
stað þeirra kom fast kaup yfir-
manna bæði í innanlands og
utanlandssiglingum. í innan-
landssiglingunum fá yfirmenn-
irnir samkvæmt hinum nýju
samningum fast kaup. Er það
miðað við lægsta kaup sem
Ríkisskip greiðir, án fríðinda.
I utanlandssiglingum verður
þeim greidd uppbót. sem er lítil
prósenta af brúttósölu þess afla,
sem seldur er úr skipunum.
Þegar skipin eru á veiðum
hafa yfirmennirnir kauptrygg-
ingu sem nemur 578 krónum á
mánuði. En ef svo lítið aflast,
að til greiðslu á kauptryggingu
komi, þá fæða þeir sig sjálfir.
Nýtt ákvæði er í þessum samn
ingum þess efnis að þegar skip
liggja í höfn með farm, þá á
annaðhvort skipstjóri eða stýri-
maður að vera um borð í skip-
inu og eins annar hvor vjel-
stjórinn.
Samningurinn um stríðsáhættu
þóknunina er úr gildi líka fyrir
háseta. En hásetar og aðrir skip
veriar sém sjómannafjelögin
sömdu fyrir fá lága prósentu aC
brúttó aflasölum, þegar skipin
sigla til útlanda með afla. Sam
ingarnir um síldveiðikjörin eru
óbreyttir frá því sem áður var
Samningar þessir ná elcki til
togaranna. Þeir gilda frá ára-
mótum til áramóta, með tveggjai
mánaða uppsagnarfresti.
Gfaldeyrisleyfi ti
ufanfara
í GÆRKVÖLDI frjetti Morg-
unblaðið, að í dag myndi verða
gefin út reglugjörð þess efnis,
að enginn fái að ferðast til út-
landa, nema hann framvisi gjald
eyrisleyfi, sem viðskiftanefndin
hafý veitt til ferðarinnar. Ekki
er btaðinu kunnugt um hvaða
leið verði farin til þess að
trySSja að reglur þessar verði
ekki brotnar, en heyrst hefur,
að stimplað verði í vegabrjef
viðkomandi manns.