Morgunblaðið - 15.01.1948, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.01.1948, Blaðsíða 1
KÖ m/ NISTAR FY ERK HUGA STORFELD ÞÝSKALANDI -$> I Álfadans á Iþróilsvellinum Álfadans skátafjelaganna á íþróttavellinum í fyrra'ivöld þótti takast vel. Iíjer er mynd af „álfunum" þar sem þeir fóru um völlinn með blys sín. (Ljós nynd Mbl., Ólafur K. Magnússon). — Fleiri mynd- ir frá álfadansinum og bfennunni á bls. 12. Sprengingar í Jerúsalem Erlendar sendisvettir krefjasl eigin öryggishers JERÚSALEM í gærkvöldi. Einkaskeyti til MBL. frá Reuter. FIMM sprengingar urðu í Jerúsalem í dag og en er óvíst hve miklum skemmdum þær hafa valdið. 1 Tel Aviv og Jaffa va” varpað sprengjum á húsþök Araba og flýðu vegfarendur í næstc kjallara og önnur skýli, er þeir gátu fundið. Arabar rjeðust á tvö Gyðingaþorp nálægt Hebron, suður af Jerúsalem, í gær og hjeldu uppi skothríð á íbúana. Hafði Gyðingum tekist að koma boðum til breskra hersveita og voru þær á leiðinni til hjálpar, en arabisk ar leyniskyttur töfðu fyrir þeim. 3> ....—------------- Erlendir sendiherrar kref jast öryggisliðs að heiman Stjórn Palestínu hefur leyft sendiherrum og ræðismönnum þar í landi, að fara fram á að herlið verði send frá þeirra eig- in löndum til þess að vernda heimili sín og skrifstofur. Einn Breti og tvær konur myrtar í gær rændu Arabar konu af Gyðingaættum og fannst hún myrt í miorgun. Fyrir framan að albækistöðvar Breta í Jerúsalem var einn breskur starfsmaður og kona hans, sem var af Gyðinga- Frh. á bls. 5. Meyer ræðir við Sir Stafford Cripps París í gærkveldi. MEYER, fjármálaráðherra Frakka, mun bráðlega fara til Bretlands til þess að ræða við Sir Stafford Cripps. Er álitið að þeir muni ræða Marshall- hjálpina til Evrópu,- kolaútflutn ing Bretlands til Fra'kklands og önnur sameiginleg hagsmuna- mál landa sinna. — Reuter. Gandhi fastar enn New Delih í gærkveldi. GANDHI, sem hótað hefur að svelta sig í hel ef óeirðum milli Hindúa og Múhameðstrúar- manna hættir ekki mætti í dag á bænasamkomu sinni. Sagði læknir hans að honum liði enn- þá vel þrátt fyrir föstuna en þó getur sú líðan brátt breyst þar sem Gandhi er gamall maður. Fundir eru nú haldnir um gjörvalt Indland og biðja leið- togar fólksins það um að hætta óéirðum sínum og segja það hafa líf Gandhis í hendi sjer. I dag heimsóttu fjórir ráðherr- ar Gandhi ©g var meðal þeirra Nehru forsætisráðherra. —Reuter. Kolaframleiðsla Breta minkar London í gærkveldi. KOLAFRAMLEIÐSLA Breta var heldur minni fyrstu viku ársins en búist var við; eða um 4 miljónir tonna. Ekki þykir þó rjett að örvænta ennþá því svo er venjulega fyrstu vikur ársins. Hitt þykir heldur illur fyrirboði að framboð til vinnu í námunum hefur minnkað, talsvert á nýja árinu. —Reuter. Ætla að leggja iðnað Rhurhjeraðanna í rúst með verkföllum Rýssastjórn sögS slanda á hak við BERLÍN í gærkvöldi. Einkaseyti til MBL. frá Reuter. KOMIST hefur upp um ráðagerðir kommúnista í Þýskalandi um að koma á algerri. stöðvun alls iðnaðar í Ruhrhjeruðunum. Eru þessar ráðagerðir hluti af allsherjaraðgerðum komintern, alþjóða fjelagsskap kommúnista, gegn Marshall aðstoðinni handa Evrópu. Stefna komintern í þessum málum er að koma öllum iðnaði og framleiðslu í öllum Evrópulöndunum í slíkt kaldakol sem auðið er. Ýms skjöl, sem fundist hafa meðal þýskra kommúnista nefna þessa ráðagerð „vetraráróðurinn gegn Marshalláætluninni". Rússneska stjórnin styður áform þessi og hefur skip að komintern að framkvæma þau. Þrír umboðsmenn komintern eru þegar komnir til stöðva sinna og halda sambandi sín á milli með lítvarpstækjum. Rússar handtaka Bandarikjamenn í Berlín Berlín í gær. HERMAN WELLS, háttsett- ur ráðunautur í hernámsstjórn Bandaríkjanna í Þýskalandi, var nýlega tekinn fastur ásamt fjórum liðsforingjum úr her Bandaríkjanna. Voru það rússn eskir hermenn sem gerðu þetta og voru Bandaríkjamennirnir yfirheyrðir og ógnað með vjel- byssum en síðan skilað aftur til Bandaríkjamanna. Astæðan fyrir handtökum þessum var sú að þeir höfðu með sjer mynda- vjel. Síðan utanríkisráðherra- fundurinn í Londcn hætti hafa 25 slíkar handtökur átt sjer stað af Rússa hálfu, og sömu söguna hafa Bretar að segja. —Reuter. Síldin komin til Noregs VETRARSÍLDVEIÐIN er að hefjast við Noreg. Norska út-- varpið skýrði'frá því í gærkv., að fyrstu reknetaskipin hefðu veitt síld í fyrrinótt út af Mær' og komu þau með afla sinn til Áiasunds í gærkvöldi. Herpinótaveiði er einnig að hefjast. Herpinótabátar hafa orðið varir við síld með lóðun- um og var búist við að þau myndu veiða síld í nótt. Mikill áhugi er meðal útgerð ar- og sjómanna í Noregi fvrir I sddveiðunum. Skipulagt verkfall. Aðalframkvæmdir á verki þessu eru í höndum leiðtoga komintern í Belgrad en þar eru aðalbækistöðvar þeirra og nefn- ast kominform. Byrjað verður á aðgerðum þessum með því að iðnaðarmenn gera verkföll en síðan járnbrautastarfsmenn og svo koll af koili. „Heimsveldisstefna“ Marshalls. Ástæðan fyrir þessu allsherj- arverkfalli og eyðileggingu, seg ir í skýrslum kommúnista, er að stemma stigu fvrir „heims- veldisstefnu“ Marshalláætlunar innar og Bandaríkjanna í heild, en raunverulega ætlunin er að koma þessum löndum í slíka örbirgð að fjárhagur þeirra fari í rústir. Tilbúnir í febrúa.r — Verkföllin í mars. í Dortmund í Ruhrhjeraðinu berast fregnir um að kommún- istar þar sjeu ákveðnir í að hlýða þessu nýja kalli komin- tern til eyðileggingar. Segja þeir að allur undirbúningur und ir verkföllin verði lokið í febrú- ar. ^ Skýrslur þessar sýna einnig að verkföllin sem nýlega voru í Vestur-Þýskalandi voru fyr- irfram ákveðin. Allsherjarverk- föllin eiga að hofjast í mars. Feitmefisskammfur Brefa aukinn London í gærkveldi. FEITMETISSKAMTUR Breta hefur nú verið aukinn nokkuð og fá þeir nú einni únsu meira af margaríni en áður. Alls nem- Breta nú 8 únsum. — Reuter. ur vikulegur feitmetisskamtur i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.