Morgunblaðið - 15.01.1948, Síða 12

Morgunblaðið - 15.01.1948, Síða 12
VEÐURÚTLITiö: Faxaílói: Hæg suð-austanátt, sumstaðar dálítil snjókoma. BORGARASTYRJÖLDIN___á Grikkland — Grein um hana á bls. 7. Prófsprengingunum lokið FYRIR jól var lokið próf- sprengingunum sem unnið hef- ur verið að í sambandi við bygg ingu neðanjarðarorkuvers við Neðri Fossa í Soginu. Almenna byggingafjelagið annaðist sprengingarnar og voru jarðgöngin sem sprengd voru í þessu skyni um 30 metra löng. Nú vinna verkfræðingar Raf magnsveitunnar og Almenna byggingarfjelagsins að skýrslu- gerð, er send verður Berdal verkfræðingi ráðunaut Raf- magnsveitunnar við virkjun þessa. Ferðalög tii úilanda í SAMBANDI við frjett, sem birtist hjer í blaðinu í gærmorg un um fyrirhugaðar ráðstafanir yfirvaldanna vegna ferðalaga til útlanda, skal það tekið fram, samkvæmt ósk formanns Við- skiptaráðs, að engar slíkar ráð- stafanir, sem í frjettinni voru nefndar hafa verið gerðar. Brennan á fþróffavelliaum og þrengslin vrð hliðln Bálið á íþróttavellinum í fyrrakvöld á álfadansi 03 brennu skátafjelaganna. 32 fangar INNAN veggja hegningar- hússins við Skólavörðustíg og innuhælisins að Litla Hrauni ru nú 32 fangar, þar af ein ona. í hegningarhúsinu eru 11 angar og þar er kvenfanginn. — Þar var í gær pláss fyrir 'imm fanga til viðbótar. Fang- rnir eru þar ýmist til afplán- már styttri dóma, eða hafðir í laldi vegna rannsóknar á af- ijrotum þeirra. Að Litla Hrauni var hinsveg- rr hvert rúm skipað. Þar' voru tl fangi, sem dæmdir hafa ver- ið til lengri og skemmri fang- 'lsisvistar. Þó að rúm hafi verið fyrir 'imm fanga í gær í hegningar- húsinu, þá má vera að þar verðí fullskipað í dag, því æði margir 'mi'xnu þeir vera, sem skráðir eru á biðlista. 100 fcrust MANÍLÁ: — í óveðrinu sem geis- aði hjer á jóladag fórust 100 manns aðallega í suðurhluta Luzon. «-------------------------------„ 30 þús. mál biðu lönd- unar í gærkvöldi Hikil veiði í HvaKirði eflir að dhnma fekur í FYRRINÓTT og þar til bjart var orðið að degi í gær var mikil veiði í Hvalfirði. Voru þar milli 30 og 40 skip að veið- um. Síðasta sólarhring hafa borist hngað rúm 13.000 mál síld- ar með 18 síldveiðiskipum. -------------------------------- ífalir 0 g Júgósiavar hæffa samningusn ALLT samkomulag um hver skuli verða landstjóri Trieste er nú úr sögunni milli Júgóslava og ítala en eins og kunnugt er hafa undanfarið staðið samning ar um það. —Reuter. Allt fram í Ijósaskifti í gær var rólegt í Hvalfirði, en þegar dimma tók kom síldin upp og var á hagstæðu dýpi. Þá kast- eði allur síldarflotinn sem þar var. Og er síðast frjettist virt- ist veiði hafa verið góð og verið var að háfa í mörg skip. Hjer í höfninni voru í gær- kveldi 37 skip og voru þau með 30 þús. mál innanborðs. Þessi skip biðu öll löndunar. Verið var að lesta Knob Knot Og hjer liggja nú þrír þýskir togarar er taka síld til Þýskalands. Skipin. Þessi skip komu með síld: Ásbjörn ÍS með 550 mái, Gunn- björn ís 500, Heimaklettur 1400 Friðrik Jónsson 550, Ásgeir RE 800, Hvítá 1250, Ingólfur GK 850, Álsey 1600, Nanna RE 1000 Jón Dan 400, Andvari TH 650, Sígurður SÍ 850. Skeggi 850, Jón Stefánsson 400, Dóra 1100, Morgunstjarnan 600. Ökladjúpur snjór í Hafnarfirði HAFNFIRÐINGUM, sem stunda atvinnu sína hjer í Reykjavík, þótti einkennileg heimkoman til bæjar síns í gærkveldi. Þar var ökla-djúpur snjór. Laust eftir hádegi í gær byrj aði að^snjóa þar og gekk á meðj hríðarjeljum allan daginn. •—•: Hjer í Reykjavík var aðeins föl á götunum. Fyrir austan fjall hafði ekkert snjóað í gær. Þetta er að eins hluti af hinum mikla mannfjölda, sem safnaðist saman við inngönguhlið Iþrótta- vallarins í fyrrakvöld skömmu áður en álfadansinn og brennan liófst. Þar tróðst hver sem betur gat. (Ljósmynd Mbl., Ólafur K. Magnússon). i Bamabarna jólatrjesskemmtun FRAMKVÆMDASTJÓRI Sjálf- stæðishússins Lúðvíg Hjálmtýs son bauð í fyrradag vistfólki EIli- og hjúkrunarheimilisins Grund til jólatrjesfagnaðar með barnabörnum sínum. Var þar glatt á hjalla og öllum veitt vel og kostaði Sjálfstæðishúsið veit ingarnar. Hljómsveit Aage Lor ange lif’k og skemti endurgjalds laust. Á þessari samkomú voru á fjórða hundrað manns. Gísli Sigurbjörnsson forstjóri, hefur beðið Morgunblaðið að færa framkvæmdastjóra Sjálfs ishússins þakkir gamla fólksins fyrir höfðingsskap hans, rausn- arlegar veitingar, svo og hljóm sveit Aage Lorange. KikiÖ flogið í gær FRÁ því um áramót hafa flug skilyroi verið svo slæm að flug- vjelarnar sem halda uppi ferð- um hjer innanlands, hafa lítið sem ekkert getað flogið. I gær var hinsvegar gott flugveður fyrri hluta dags og fóru þá flug vjelar flugfjelaganna í margar ferðir út um land og leiguflug- vjel Flugfjelags ísiands fór til Prestvíkur. Hjer innanlands var flogið til Akureyrar, Horna- fjarðar, Eskifjarðar og Reyðar- fjarðar, svo og Egilsstaða. Þá var flogið til Vcstmannaevja, Snæfellsness, Hójmavíkur, Isa- fjarðar og Siglufjarðar og loks var flogið tíl Keflavíkur. Seinnipart dags í gær tók skyndilega að snjóa og þykkna í lofti og var flugvjelum ánúið við er voru á leið til Rvíkur. Skákþing Reykja- viknr hefs! í kvöld SKÁKÞING Reykjavíkur hefst í kvöld að Þórsgötu 1 með keppni í meistaraflokki. Fer fyrsta umferð þá fram. •* Þessir eigast þá við: Guðjórj M. Sigurðsson og Kristján Syl- \príusson, Sigurgeir Gisiasorí og Ben. Benónýsson, Bjarni Magnússon og Árni Stefánsson, Hjálmar Theodorsson og Eggert Gilfer, Sveinn Kristinsson og Jón Ágústsson, Árni Snævarr og Guðmundur Ágústsson og Steingrímur Guðmundsson og Baldur Möller. x. Onnur umferð í meistara- flokki fer fram á föstudags- kvöld, og þá fara einnig fram fyrstu umferðir í 1. og 2. flokki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.