Morgunblaðið - 16.01.1948, Side 12

Morgunblaðið - 16.01.1948, Side 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói: Vaxandi SA-átt, aiihvass síð- degi?, — Rigning eða slydda. AFURÐASALAN vel undir- búin. — Sjá grein á bls. 2. 12. tbl.--Föstudagur 16. janúar 1948 E6 skip með 26 {lúsunii mál GÍFURLEG veiði var í Hval- firði s.l. sólarhring og var það almennt svo að skipin fylltu sig á miög skömmum tíma. Hingað til Reykjavíkur hafa komið s.l. sólarhring 26 síldveiðiskip og voru þau með samtals 26.260 mál. Eða rúmlega 1000 mál á skip. Hjer í höfninni voru í gær kvöldi 42 skip með milli 56 og 58 búsund mál innanborðs. í gær var lokið við að lesta Knob Knot og lagði skipið af stað til Siglufjarðar um kl. 5. I gærkvöldi var verið að lesta Banan og annað minna skip. Skinin sem komu. Steinunn gamla með 300 mál, Jón Valgeir 1250, Víkingur ÍS 800, Gylfi EA 450, Njörður EA 950, Hafdís IS 1000, Aðalbjörg 680, Vilborg RE 1200, Edda 2000 Frevja RE 900, Skíði 550, Auður 700, Súlan 1650, Blakknes 1200, Víðir AK 1250, Bjarnarey 1250, Ægir 500, Fagriklettur 1600, Andey 1200, Hannes Hafstein 630, Helga RE 1450, Huginn III. 760, Siglunes 1650. Haukur 1. 250, Þorsteinn RE 900 og Síldin GK með 1200 mál. Hafnarfjarðarbílamir nýju 8 veiiingaleyfi veiff Á FUNDI er heilbrigðisnefnd bæjarins hjelt nokkru fyrir jól, voru samþykkt átta veitinga- leyfi til einstaklinga og stofn- ana hjer í bænum. Veitingaleyfi voru veitt til þessara aðila: Til Helgu Marteinsdóttur til veit- inga.sölu í húsinu nr. 166 við Laugarveg. Til firmans Slíd & Fiskur til að selja smurt brauð, álegj og ýmsa smárjetti í hús- inu Lækjargata 6 B. Veitt var leyfi til Jónínu Þorkelsdóttur, til að reka veitingasölu í húsinu Vitasííg 14 og til firmans Silli & Valdi til að reka veitingasölu í húsinu Laugarveg 126 og enn fremur var Freisteini Jónssyni leyft að reka veitingar í húsinu Skólavörðustíg 3 A. Loks var svo Sósialistaflokkmim leyft að reka veitingar í húsinu nr. 1 við Lórsgötu og Regínu S. Guð mundsdóttur veitt leyfi til veit ingasölu í húsinu nr. 86 við Laugarveg. Hjer sjest einn hinna átta Skoda-almenningsvagna, sem, póstmála- stjórnin hefur keypt til að halda uppi ferðum milii Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Nýu almenningsvagnarn- ir sem aka milii Rvíkur og Hafnarfjarðar PÓST- OG SÍMAMÁLASTJÓRNIN hefur nú tekið til notkunar fimm hinna stóru og fullkomnu almenningsvagna, sem halda uppi ferðum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Alls verða 8 slíkir vagnar á þessari leið, auk þriggja tengivagna. Fljótandi síldarverksmiðja í 6 — 8 þús. smál. skipi Síldarverksmiðjunefnd skilar álltl næsfudaga ÞAÐ upplýstist á fundi bæjarstjórnar í gær í sambandi við um- ræður og staðsetning síldarverksmiðjunnar hjer í Reykjavík eða í nágrenni hennar, að nefndin, sem fjallað hefur um þetta mál, muni telja þá lausn heppilegasta að þessi verksmiðja skuli vera fljótandi. Hagnýiing gufuork- unnar í Hengllnuir í gær bauð Póst- og síma-<$- málastjórnin samgöngumálaráð- herra og atvinnumálaráðherra, nefndamönnum í viðskiptanefnd og meðlimum f járhagsráðs, auk ýmissa annara, að aka í einum þessara vagna. Voru gestirnir sammála um að vagnar þessir væru hinir ákjósanlegustu í alla staði. 1947 Snemma á umliðnu ári (1947) varð hið opinbera að taka við rekstri áætlunarvagnanna á leiðinni milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Var þá strax horfið að því að útvega nýja og hentugá vagna fyrir þessa mann flutninga og voru þeir pantaðir frá Skoda-verksmiðjunum í Tjekkóslóvakíu. Nokkrir af þess um vögnum eru nú komnir og er verið að taka þá í notkun. Lýsing á vögnunum Vagnar þessir eru af gerðinni Skoda 706—RO og eru byggðii fyrir 42 farþegar í sæti og auk þess eru stæði fyrir 20 farþega í hverjum þeirra. — Auk þess verða tengivagnar fyrir 35 far- þega hver, sem tengja má aftan í aðalvagnana þegar umferðin er mikil. Burðarmagn hvers vaghs er 8 tonn og orka vjelarinnar, sem er diesel-vjel, er 145 hestöfl. Vagn- arnir eru tæpir 11 metrar ú lengd og 2,50 metrar á breidd. Vega þeir tómir 8J/2 tonn. — Á- klæði á sætum er úr leðri. Sjer- stakt öryggisgler er í öllum rúðum, svonefnt perlugelr. Er það þannig, að ef rúða brotnar fer hún öll í smá korn, sem ekk; er hægt að skera sig á. Loft- ræsting er mjög fullkomin i vögnunum. Er óhreina loftið sog að út úr þeim og hreinu lofti dælt inn í staðinn. Bifreiðarstj. situr í sjerstökum klefa og geta farþegar ekki haft truflandi á- hrif á hann við starf hans. Hurð ir eru opnaðar og^ þeim lokaö með þrýstilofti og stjórnar bif- reiðarstjóri því. 1 þaki vagnanna eru sjerstök öryggisop. Sárabún aður til slysaaðgerða er í sjer- stöku hófi í hverjum vagni. — Slökkvitæki fylgir einnig hverj- um vagni. Póst- og farangurs- geymsla er fram í klefa bifreið arstjórans og auk þess eru hill- ur í vögnunum fyrir smá pakka eða töskur. Smíði vagnanna hefur gengið mjög greiðlega og hafa umboðs- menn verksmiðjanna, Tjekk- neska bifreiðaumboðið h.f., sýnt bæði áhuga og dugnað við að flýta sem mest smíði þeirra og flutningi til landsins. Skjaldaglíma Ár- manns SKJALBARGLÍMA Ármanns fer fram 1. febrúar n.k. og eru þá 40 ár liðin síðan hún fór fram í fyrsta sinn, eða árið 1908. Öllum fjelögum innan ISt, ei heimil þátttaka í móti þessu, og eiga þátttökutilkynningar að hafa borist minst viku fyrir mót ið. — I SAMBANDI við umræðurn ar um Hitaveituna í bæjafrstjórn í gær, vakti Gísli Halldórsson máls á því hvað liði þeim rann sóknum sem bæjarstjórnin á- kvað að gerðar skyldu á hag- nýtingu gufuorkunnar í Hengl inum. Bar hann síðan fram á- lyktun í málinu svohljóðandi Bæjarstjórn felur borgarstjóra að afla uppl. um það fyrir næsta bæjarstjórnarfund hvað líði þeim rannsóknum sem bæjar stjórnin ákvað fyrir um það bil 2 árum, að gerðar skyldu með það fyrir augum að hagnýta gufuorkuna úr Henglinum til upphitunar og raforkufram- leiðslu fyrir Reykjavík. Borgarstjóri svaraði Gísla Halldórssyni og gat þess að nefnd manna skipuð fulltrúum frá ríki og bæ hefði unnið að þessum málum. Kvaðst borgar- stjóri skulu afla upplýsinga um málið, en ekki myndi hann geta það fyrir næsta bæjarstjórnar- fund. Var ályktun Gísla Hall- dórssonar síðan borgin upp og samþykkt. Ármann vann Sund- knaltleiksmótið SUNDKNATTLEIKSMÓTI Reykjavíkur lauk s.l. miðviku- dagskvöld með sigri Ármanns, en eins og mönnum er kunnugt urðu fjelögin þrjú Ármann, Æg- ir og KR jöfn að stigatölu, er mótið fór fyrst fram og urðu að keppa aftur. Ármann vann Ægi með 5:0, og KR með 4:1. Ármann hlaut því 4 stig. KR fjekk 2, en Ægir ekkert. "^Liberty-skip. Það var Gísli Halldórsson verkfræðingur, er vakti fyrst máls á þessu umræðuefni á fund inum. Skýrði hann frá því, að hann heíði að undanförnu kynnt sjer þann möguleika, að hinni fyrirhuguðu síldarverk- smiðju yrði komið fyrir í skipi. í því sambandi benti hann á emerísku skipin af Liberty- gerð, sem hann kvað vera afar hentug til þess að koma upp í þeim um 10.000 mála verk- smiðju. Gerði hann ráð fyrir að kostnaður við skipakaupin og niðursetning vjelanna í skipið myndi verða um 5 milj. kr. Gísl? skýrði að lokum frá því að hann hefði tekið saman grein- argerð um þetta mál og myndi afhenda hana borgarstjóra og og ætlaðist til að hún yrði send nefnd þeirri, er fjallar um málið Ennfremur hefur hann sent út- vegsmálaráðherra greinargerð þessa. 20 bátar munu standa uppi í Eyjum í vetur vegna manneklu Einkaskeyti frá frjettaritara vorum í Vestmannaeyjum. UNDIRBÚNINGUR undir vetrarvertíðina hófst á venjulegum tíma, en heldur er dauft yfir öllu, sem að útgerð lýtur. Er það fyrst, að mjög er óvíst hvort nægur mannskapur fæst á báta þá, sem fyrirhugað er að gera út. Útlit er þó fyrir að um 50^“ bátar muni verða gerðir út hjeð an í vetur. í fyrra voru þeir 55. Vertíðin hefst með seinna móti Róðrar eru ekki byrjaðir enn- þá, en fyrstu bátarnir mun i fara um 25. þ. m., en almennt er ekki gert ráð fyrir að útgerð- in verði komin í fullan gang fyr en í febrúarmánuði, eða byrjun mars. Um 20 bátar munu standa uppi í vetur sökum manneklu. — Bj. Guðm. Alit nefndarinnar. Jón Axel Pjetursson upplýstí í þessu samband’, að nefndirx sem að undanförnu hefði unnið að rannsókn þessa verksmiðju- máls, hefði orðið sammála um, að heppilegasta leiðin og jafn- framt sú kostnaðarminsta, væri sú, að kaupa skip er falt væri í Bandaríkjunum Þetta skip er milli 6 og 8 þús. smálestir að stærð. Jón Axel bætti því við, að innan fárra daga myndi nefndin skila áliti sínu. Á Rauðarárvík. Gísli Halldórsson sagði í ræðu sinni, að hann hefði hugsað sjer, að Liberty skipinu yrði lagt nokkur hundruð metra austur af gömlu Kveldúlfsbryggjunni, á Rauðarárvíkinni. Þessi skip rista fullhlaðin um 35 fet. Þá gat hann nokkurra þeirra staða bæði við Norðurland og Aust- urland, sem heppilegir væru fyrir skipið að athafna sig á. Óheppileg skip. Jón Axel taldi þessi Liberty skip mjög óheppileg. Sagði hann t. d., að skipið myndi ekki geta lagst að bryggju hjer í höfn- inni nema um flóð, þegar það væri lestað sökum dýptar þess. Og ennfremur taldi hann það ógerning að hafa skipið á Rauð- arárvíkinni. Þegar slæm veður eru, þá em þessi skip mjög erfið viðfangs, einkum þegar þau eru tóm og þá er nauðsynlegt að halda uppi stöðugum ,,dampi“, en slíkt yrði gífurlega kostnað- arsamt. Kommúnistar hef ja bókaútgáfu PRAG: — Upplýsingamálaráðu- neytið hjer í Prag hefur tilkynt, að það ætli sjer að hafa eftirlit með bókamarkaðinum, svo að að- eins „fræðanui" bækur verði gefn ar út.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.