Morgunblaðið - 18.01.1948, Síða 1
35. árgangur
12 síður og Lesbók
14. tlil. — Sunnudagur 18. janúar 1948
Isafoldarprentsmiðja h.f.
KröfurRússa voru Aldrei til einangraðri þjóð
engilegar
en sú rússneska
Marshaii ræðir um friðarsamningana við
Þýskaland og Ausiurríki
Washington í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
í RÆÐU, sem Marshall utanríkisráðherra, flutti fyrir verslunar-
ráði Pittsburgh nú í vikunni, sagði hann meðal annars um þann
íund utanríkisráðherranna, sem haldinn var í Moskva s.l. vor, að
Rússar hefðu þar komið í veg fyrir samkomulag um friðarsamn-
inga við Þýskaland og Austurríki, með því að bera fram kröfur
á hendur þessum löndum, sem vesturveldin þrjú gátu ómögulega
gerst aðilar að.
Tveir kostir
Marshall bætti því við um fund
þennan, að hann hefði fært
Bandaríkjunum heim sanninn
um, að þau hefðu um tvent að
velja: annaðhvort að flytja all-
an her sinn frá Evrópu, eða
leggja alla áherslu á að ljúka
endurreisn álfunnar.
Mikilsvert
Utanríkisráðherrann fór í éng
ar grafgötur með það, hversu
endurreisn Evrópu væri heimin-
um mikilsvérð. Hann lýsti álf
unni sem þungamiðju alls efna-
hagskerfis veraldarinnar, enda
mundi það hafa voveiflegar af-
leiðingar í för með sjer, ef end-
urreisnaráformin færu út um
þúfur. Nefndi hann það sem
dæmi, að Suður-Ameríka og Kan
ada grundvölluðu efnahagskerfi
sín á marköðum í Evrópu.
Mistakist endurreisnin í Ev-
rópu, sagði Marshall loks, og svo
mun faraj ef við ljáum henni
ekki lið, mun heimurinn allur
finna fyrir því.
Minnisseðill um
verðlækkanlr
HJER fer á eftir listi yfir
nokkrar verðlækkanir þær sem
komust hjer á um áramótin
fyrir tilverknað ríkisstjórnar-
innar. '
Einhver af helstu reiknings-
hausum í liði Þjóðviljans hefir
komist að þeirri niðurstöðu að
verðlækkanir þessar samanlagð
ar næmu 10 krónum á mann á
ári fyrir hvern mann. Menn
greinir á um það, hvort útreikn
inga þessa hafi gert Aki eða Sig
fús. Sundurliðun hefir ekki birst
enn.
Lækkun vöruverðs er m. a.,
sem hjer segir:
Kartöflur ......... kr. 0.37 kg
Dilka- og geldfjárkjöt — 1.05 —
Ærkjöt................ — 0.90 —
Mjólk .............. — 0.061.
Rjómi ................ — 0.30 —
Smjör .............. — 0.80 kg
Skyr ................. — 0.10 —
Mjólkurostur ......... — 1,25 —
Mysuostur ............ — 0.50 —
Egg .................. — 1.00 —
Hangikjöt ............ — 1.50 —
Saltkjöt ............. — 1.05 —
Harðfiskur ....... 0.55—0.65 —
Fiskfars ............. — 0.75 —
Saltfiskur ........... — 0.10 —
lýtt fjárlaga-
fmmvarp
ALÞINGI kemur , saman til
framhaldsfundar n.k. þriðju-
dag. en fundum þess hefur ver
ið frestað eins og kunnugt er
síðan fyrir jól.
Samkvæmt því sem Jóhann
Þ. Jósefsson fjármálaráðherra
tjáði blaðinu í gær mun ríkis-
stjórnin leggja nýtt fjárlaga-
frumvarp fyrir þingið er það er
komið saman. Sprettur það af
þeim breytingum, sem löggjöf
sú, sem samþykkt var fyrir'
jólin, hefur í för með sjer á1
tekjur og gjöld ríkissjóðs.
Má gera ráð fyrir að í hinu
nýja frumvarpi muni tekjur og{
gjöld verða miljónatugum
hærri en í fjárlagafrv. sem lagt
var fram í haust.
Þingstörfum verði hraðað.
Það mun ætlun ríkisstjórnar
innar að hraða þingstörfum svo
sem verða má. Er jafnvel ekki
talið ólíklegt að þingi geti verið
lokið í lok febrúar eða byrjun
mars. Fjárveitinganefnd mun
að sjálfsögðu fjalla um hið nýja
fjárlagafrv. en að afgreiðslu
fjárlaga lokinni munu fá stór-
mál liggja fyrir þinginu og því
líklegt að þvi geti orðið lokið á
fyrgreindum tíma.
Tveir af ötulustu foringjum
Araba gegn skiftingu Palestínu
eru Ried E1 Solh, forsætisráð-
herra Lebanon og stórmuftinn
af Jerusalem, Raj A min el
Ilusseini. Þeir sjást hjer á mynd
inni. þar sem þeir eru að leggja
á ráðin um baráttuna.
Áróðursræðurnar eru
lífsblóð leiðtoga hennar
New York í gær.
FREDERICK OSBORN, varafulltrúi Bandaríkjanna í atomorku-
nefnd Sameinuðu þjóðanna, sagði í ræðu, sem hann s.l. viku
flutti í hádegisboði bandarískra blaðaútgefenda, að aldrei hefðu
nokkur stjórnarvöld borið jafn litla virðingu fyrir alheimsálitinu
nje einangrað þegna sína eins gjörsamlega og þau rússnesku.
VERÐLAGSSTJÓRI tilkynti i
gær, verðlækkun á kaffi. Sam-
kvæmt hinu nýja verði kostar
kg. af kaffi nú kr. 8.40. Nemur
lækkunin 40 aurum. 1 hinu nýja
verði er innifalinn söluskattur.
smiðjunefndar
ræ)t í bæjarráði
SÍLDARVERKSMIÐJUNEFND
Reykjavíkurbæjar, hefur nú lok
ið við að semja álit sitt og verð-
ur það lagt fyrir fund bæjarráðs
á morgun, mánudag. Þá kemur
bæjarráð saman til aukafundar.
í nefnd þessari áttu sæti: Jó-
hann Hafstein og var hann til-
nefndur af hálfu bæjarins, en
hann var formaður nefndarinn-
ar. Sveinn Benediktsson af hálfu
Síldarverksmiðja ríkisins, Jakob
Hafstein af hálfu Landssam-
bands ísl útvegsmanna, Þorvarð-
ur Björnsson frá Fiskif jelagi ís-
lands, Ingvar Vilhjálmsson frá
Sjávarútvegsnefnd Reykjavíkur
og Jón Axel Pjetursson tilnefnd-
ur af hálfu Sjómannafjelags
Reykjavífyur.
Verö á rafmagni
ækkar
VERÐLAGSSTJÓRI tilkynti í
gær, lækkun á rafmagnsverði
hjer í Reykjavík og utan. Lækk-
unin hjer í bænum nemur 1%,
en úti um land um 5%.
í Reylcjavík
Mismunurinn á rafmagnsverð
inu hjer í Reykjavík og úti á
landi, tvö prósentin, eru til jöfn-
unar vegna þess að verð á stræt-
isvagnafargjöldum, gasi og vatn
inu frá Reykjum, verður óbreytt
frá því sem áður var.
Lækkun rafmagnsins kemur
til framkvæmda við útreikning
rafmagnsnotkunar fyrir júní-
mánuð.
“®Prent- og skoðanafrelsi
Osborn sagði þetta í sam-
bandi við þá staðhæfingu sína,
að friðurinn í heiminum yrði
ekki fyr tryggður en prent- og
skoðanafrelsið næði til allra
þjóða veraldar. Benti hann á
það í þessu sambandi, að stjórn-
arfarslegar og þjóðfjelágslegar
umbætur hefðu aldrei átt neitt
skylt við stjórnarklíkur, sem ekk
ert hefðu hirt um að kynna sjer
stefnur og umbótahreyfingar
utan yfirráðasvæða sinna.
Góð síidveiði við
NORSKA útvarpið skýrði í
gær frá því, að afli síldveiðiskip
anna væri mjög góður. Þess var
getið í þessu sambandi, að til
bæjarins Möre, hefðu í gærdag
borist 83 þús. hektolítrar. Rek
netaskip voru með 40 þúsund
en snurpuskip 43 þús. Þá var
von á allmörgum skipum með
fúllfermi.
Montgomery
til Þýskalands
London í gær.
MONTGOMERY, yfirmaður
breska herforingjaráðsins,
flaug í dag til hernámssvæðis
Breta í Þýskalandi til viðræðna
við Robertson, yfirmann her-
námssvæðisins. — Reuter.
Arabar sækja á nýinn
í Palestínu frá Sýrlandi
Jerúsalem í gærkvöjjli.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ARABAR frá Sýrlandi hafa enn einu sinni ráðist yfir landamæri
Palestínu og gert tilraun til að ráðast á Gyðinga þar. Urðu Bret-
ar varir við ferðir þeirra í dag, er þeir stefndu í áttina að tveimur
afskekktum Gyðinganýlendum, og sendu herlið á vettvang. Er
Arabarnir sáu til hersveitanna, hjeldu þeir til baka yfir sýrlensku
landamærin.
39 lík.
TIL mikils bardaga kom milli
Araba og Gyðinga í gær, og eru
þeir síðarnefndu taldir eiga upp
tökin. Hafái hópur Gyðinga
ráðist á Arabaþorp nokkurt, en
er þeir sneru frá því, sátu ara-
biskar leyniskyttur fyrir þeim
í launsátri. Breskir hermenn
sem sendir voru á vettvang,
fundu lík 35 Gyðinga og fjög-
urra Araba, en annars eru frjett
ir af bardaga þessum óljósar
enn.
Áróðursræður
Um starfsaðferðir Rússa hafði
Osborne það að segja, að í atom-
orkunefndinni hefðu þeir hirt
minna um málefnið, en hinsveg-
ar gert mikið af því að flytja
langar áróðursræður, sem löng-
um hefðu alls ekki komið vanda
málunum við, en snúist að mestu
leyti um einstaka menn og stefn -
ur.
Ræður þessar, hjelt Osborn
áfram, hefðu svo verið hraðrit •
aðar jafnóðum og rússneski full
trúinn flutti þær, og sendar til
stjórnarvaldanna í Moskva. —
Benti því alt til þess, að einu
frjettirnar, sem yfirvöldin þar
hefðu fengið um viðræður og
framkomnar tillögur í atomorku
nefnd, befðu falist í hinum
gengdarlausu áróðursræðum
rússnesku fulltrúanna. Eru það
upplýsingar á borð við þetta,
spurði Osborn loks, sem Kremlin
byggir- stjórnmálaákvarðanir
sínar á? Þar til þessari andlegu
einangrun lýkur, virðist lítil von
um þá alheimssamvinnu, sem
nauðsynleg er, ef hafa á eftirlit
með atomorkunni.
Ber fasia Gandhis
lilætiaóan
árangur?
New Delhi í gærkveldi.
SUMIR fylgismenn Gandhis
hjer í New Delhl virtust vera
þeirrar skoðunar í dag, að fasta
Hindúaleiðtogans kynni að bera
tilætlaðan árangur og koma á
friði í borginni. Gandhi hefur
nú fastað í fimm daga, og verð-
ur máttfarnari með degi hverj-
um. Óttast læknar hans, að líf
hans verði í alvarlegri hættu,
ef hann heldur áfram föstu
sinni á morgun (sunnudag).