Morgunblaðið - 20.01.1948, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.01.1948, Blaðsíða 1
Vikum saman á hafsboini HINGAÐ TIL hefur það þótt ógerningur að halda kafbát í kafi með fullri skipshöfn, nema í hæsta lagi í tvo sólarhringa, eða svo. En nú hafa Bretar bætt þýska aðferð til þess að skipverjar kafbáta geíi dvalið vikum saman í undirdjúpunum, eða á meðan vistir þeirra endast. Var nýlega gerð tilraun með enskan kafbát við Afríku- strendur. Var kafbáturinn og 67 manna áhófn hans í kafi í macgar vikur. Mestu erfiðleikarnir voru leiðindi, sem sóttu að kafbátsmönn um, en reynt var að bæta úr því með því að sýna kvikmyndir, halda fyrirlestra, spila á spil. Hjer sjest mynd af áhöfninni í kafbátnum. Maðurinn, sem er lengst til hægri var nýgiftur er hann fór í förina með kafbátnum. Ilann ritaði konu sinni 120 brjef í undirdjúpunum. lndland viJl ekki sam- einast Pakistan Faifa Gandhis mikill sspr. New Delhi í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. VIÐ ÆSKJIJM ekki eftir styrjöld við Pakistan. Við viljum fá tíma til viðreisnarstaría í landi voru, sagði Nehru, forsætisráð- herra Indlands, í ræðu, sem hann í dág flutti í tilefni af því, að Gandhi hefur hætt föstu sinni. En, hjelt Nehru áfram, við mur- um veita öfluga mótspyrnu, ef á okkur verður ráðist. Land okk- ar ætti að vera það öflugt, að við þyrftum aldrei að grípa til vopna. Vill ekki sameiningn. Nehru gat þess í ræðu sinni, að Indland mundi ekki að svo stöddu sameinast Pakistan á ný, jafnvel þótt stjórnarvöldin þar færu fram á það. Kvað hann Indland hafa nóg af eig- in vandamálum til úrlausnar, þótt vandamál Pakistan bættust ekki við, Mikill sigur. Gandhi líður nú vel, en lækn ar hans segja, að nokkur tími muni líða þar til hann verði búinn að ná sjer að fullu eftir föstuna. Er yfirleitt litið á frið arloforð Hindúa, Múhameðstrú armanna og Sikha sem mikinn persónulegan sigur fyrir hann', en árangurinn er þegar byrj- aður að koma í Ijós. Friðar- nefnd sú, sem sett var á lagg- irnar meðan Gandhi fastaði, hjelt þannig fund í dag, og skoraði að honum loknum á Hindúa þá og Sikha í New Delhi, sem sest hafa að í bæna húsum Múhameðstrúarmanna að flytja sem fyrst úr þeim. Malvælaúlfluin- ingur Bandaríkja Washington í gærkvöldi. SKÝRT hefur verið frá því, að Bandaríkin hafi flutt út 19 milj. tonn af matvælum á tólf mán- uðúm til júníloka síðastliðið ár. Er þetta meiri matvælaútflutn- ingur eins lands á einu ári en nokkru sinni hefur att sjer stað. Megnið af hinum útfluttu mat- vælum fór til landanna, þar sem skorturinn hefur verið hvað mestur. — Reuter. LiE ! PARÍS París í gærkvöldi. TRYGVE LIE, aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, sem nú er á ferð um ^lvrópu í leit að næsta íundarstað allsherjarþings S. þ., er nú kominn til Parísar. Lie heimsótti í dag Vincent Auriol, forseta Frakklands, — Reuter. Æðstaráð Araba staðráðið í að hafa skiptingu Palesfínu að engu j----------------------------® Skriða verður 21 manni að bana London í gærkvöldi. TUTTUGU og einn maður ljet lífið í gær, er geysimikiLskriða fjell yfir fjölfarinn veg i Tangan ika. Að minnsta kosti fimmtán manns særðust hættulega. Mikil rigning hefur verið þarna að undanförnu, og mun hún hafa orsakað skriðuna, en yfirvöldin í Tanganika segja, að þetta sje eitt versta slysið, sem orðiö hafi í landinu í mörg ár. — Reuter. Neitar að láta fulltrúa mæta fyrir Palestínunefnd New York í gærkvöldi. ÆÐSTARÁÐ Araba hefur tilkynt Palestínunefnd Sameinuðu . þjóðanna, að það geti ekki orðið við þeim tilmælum að senda full- trúa til að skýra afstöðu Arabaríkjanna fyrir nefndinni. Barst svar þetta í dag, og er orðrjett á þessa leið: Æðstaráð Araba er ákveðið í að halda til streitu þeirri ákvörðun sinni að vísa á bug ákvörðun Sameinuðu þjóðanna um skiptingu Palestínu. Af þess- um ástæðum, telur ráðið sig ekki geta þegið boð nefndarinnar um að mæta fyrir henni. Egyptsk llugvjel ræðsl á breskar her- Hugvjelar Cairo í gærkvöldi. BRESKA stjórnin hefur borið fram harðorð mótmæli í Cairo, vegna árásar, sem egypsk flug- vjel fyrir skömmu síðan gerði á nokkrar flugvjelar breska flug- hersins. Rjeðist egypska vjelin á þær bresku með skothríð. Stjórnin í Egyptalandi hefur lofað, að láta rannsaka atburð þennan. — Reuter. 15 báiar stunda sjóróðra frá Sand- gerði í vetur Sandgerði, mánudag. Frá frjettaritara vorum. FRÁ Sandgerði munu senni- lega róa 15 bátar í vetur og eru það helmingi færri bátar en undanfarnar vertíðar. Átta bátar eru nú þegar byrj- aðir veiðar, og hefir afli verið sæmilegur, eða 10—12 skpd. í róðri. Mb. Víkingur hefir farið flesta róða, eða 9, og aflað ca. 130 skpd. Tvö hraðfrystihús verða starf rækt í Sandgerði eins og að undanförnu og eitt í Garðinum. Hafa þau verið nokkuð endur- bætt og afköst aukin. Churchill kominn heim London í gærkvöldi. WINSTON Churchill fyrverand forsætisráðherra Breta, kom flugleiðis til Bretlands í dag, en j hann hefur um skeið dvalist í frönsku Marokko. Churchill var glaður og brosandi, er hann steig út úr flugvjelinni á Nor- holt-flugvelli, og tjáði frjetta- mönnum, að sjer liði ágætlega, er þeir spurðust fyrir um heilsu- far hans. — Reuter. Innkaupasamband Ijósmyndara stolnað Frá frjettaritara vorum á Akureyri, mánudag. INNKAUPASAMBAND ljós- myndara á Norðurlandi, var stofnað á Akureyri þann 17. þ. mán. Að stofnun sambandsins standa 6 ljósmyndafyrirtæki á Akur- eyri og eitt frá Siglufirði. Til- gangur sambandsins er að út - vega fjelögum efni til iðnaðar þeirra á sem hagfeldastan og ó- dýrastan hátt. í stjórn sambands ins voru kosnir: Edvard Sigur- geirsson, Hallgrímur Einarsson og Vigfús Friðriksson. — H. Vald. Versluharviðræður við Breta og Rússa EINS OG áður hefur verið skýrt frá hefur ríkisstjórnin fyrir nokkru hafið undirbúning að viðskiptasamningum við stjórmr Bretlands og Sovjetríkjanna. Samningar við Breta. Nú er ákveðið að samninga- umræður við Breta skuli hefj- ast .hjer í Reykjavík um 10. febrúar. Rússar reiðubúnir. Utanríkisráðuney ti Sovjetríkjanna hefur tilkynnt, að bað sje rerðubúið til athug- ana á vörulistum til undirbún- ings samningaumleitunum. •— Verður nú unnið að málinu á þessum grundvelli. (Frjettatilkynning frá utan- ríkismálar áðuney tiuu). Til úrslita. Frjettamenn benda á það í sambandi við þessa ákvörðun Arabaleiðtogánna, að enginn geti nú lengur efast um, að Arababandalagið sje staðráðið í að berjast til úrslita gegn Palestínusamþykkt S. Þ., og talsverðar líkur sjeu jafnvel fyrir því, að það láti verða úr þeirri hótun sinni, að fara með her inn í Palestínu, jafnskjótt og Bretar hverfa þaðan á brott. Geta ýmsir sjer jafnvel tií, að „innrásarflokkar“ Araba, sem tvisvar á einni viku hafa sótt frá Sýrlandi inn yfir landa- mæri Palestínu, hafi verið að þreifa fyrir sjer um það, hversu vel vörnum landsins sje komið. Styrkir það grun þennan, að Arabarnir voru í fyrra skiptið klæddir búningum, sem mjög líkjast einkennisfötum sýr- lenskra hermaiina. I Dráp og vopnastuldur. / Sömu átökin eru enn í Pale- stínu, og skiptast á árásir Gyð- inga og Araba. Flokkur Gyð- inga rjeðist þannig í dag á Ar- abaþorp fyrir ijorðan Haifa og drap tvo Araba, en særði sex. í Norður Palestínu skeði hins- vegay sá atburður í gær, að Arabaflokkur rjeðist á breska lögreglustöð og komst undan með 32 riffla, fimm marghleyp ur, eina vjelbyssu og talsvert af skotfærum. Dómar. Bretar dæmdu í dag fjóra af meðlimum Stern-óaldar- flokksins, sem handteknir voru fyrir skömmu síðan. Meðal þeirra var ein' stúlka, en öll fjögur voru dæmd í lífstíðar- fangelsi. Engu tauti varð við þau dæmdu komið í rjettarsaln um, og sungu þau Gyðinga- söngva og dönsuðu jafnvel. Þrír farasi í fiugslysi New Delhi í gær. EIN af flugvjelum Indian Air- ways hrapaði til jarðar s.l. laug- ardag, og fórst áhöfn hennar, þrír menn. Vjelin var á leið til Karashi, en engir farþegar voru í henni. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.